Dagblaðið - 05.07.1980, Side 14
14
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1980.
LJósmyndasamkeppni um Sumarmyndina '80:
Verömæti vinninga er tæp-
lega ein miiljón króna íágústlok *
Heildarverðmœti vinninga í
Sumarmyndakeppni Dagblaðs-
ins að þessu sinni er hvorki
meira né minna en 935 þúsund
krónur. Í boði eru tveir ferða-
vinningar og fuiikomin
myndavél.
Fyrstu verðlaun í keppninni
eru ferð til lbiz.a næsta sumar,
að verðmæti hálf milljón
króna. Farið verður meö
Ferðaskrifstofunni Úrval.
Canon myndavél með 50 milli-
metra linsu og tösku frá Týli
hf. er veitt í önnur verðlaun.
Verðmæti þessa grips er 335
þúsund. Þriðju verðlaunin,
sem margir telja áreiðanlega
þau sérstæðustu, eru sex daga
hesta- og veiðiferð með Arin-
birni Jóhannssyni frá Brekku
læk í Miðfirði. Sú ferð er aö
verðmæti um eitt hundrað
þúsund krónur. Ferðin verður
Jarin næsta sumar.
Þó að keppnin um Sumar-
mynd '80 hafi aðeins staðið i
hálfan mánuð eru myndirnar
þegar teknar að streyma inn.
Einhvern næstu daga verður
dómnefnd keppninnar kvödd
saman, þar sem valdar verða
myndir júnímánaðar. Þær sem
áfram komast verða birtar
fljótlega I Dagblaðinu, en
hinar verða endursendar
eigendum hið allra fyrsta.
Nauðsynlegt er því að muna
að merkja myndirnar með
nafni og heimilisfangi.
Allar þær myndir sem náð
hljóta fyrir augum dóm-
nefndarinnar verða metnar í
lok keppninnar í byrjun
september. Þrjár þær beztu
hljóta síðan verðlaunin. —
Dagblaðið hefur þrjú undan-
farin ár gengizt fyrir Sumar-
myndasamkeppni sem þessari.
RagnarTh. Sigurðsson Ijósmyndarí DB:
„NOTUM AEl JÖFN-
UM HÖNDUM MEÐ
ÖÐRUM GERÐUM
CANON-VÉLA”
Ein af myndum Kristjáns Inga Einarssonar frá Ibi/.a. Þar blandast saman nýtt of> gamalt i rikum mæli.
Krístján Ingi Einarsson:
Ibiza er myndrænn staður
„Mér finnst það vel til fundið að
hafa Ibizaferð í verðlaun í ljós-
myndasamkeppni,” sagði Kristján
Ingi Einarsson. Hann er hnútum vel
kunnugur á eyjunni og hefur tekið
þar mikið af myndum. Siðastliðið
sumar hélt hann sýningu á myndum
sínum þaðan.
„Þarna er mjög skemmtilegt
mannlíf,” hélt Kristján áfram.
„Fornu og nútímalegu ægir saman;
hægt er að fara á markað með gamla
laginu og einnig á mjög nútímalegt
diskótek með sundlaug og gufubaði
innan dyra. — Ibiza er nánast eini
staðurinn á Spáni — að minnsta kosti
í ferðamannahlutanum — sem segja
má að sé í nokkuð upprunalegu
horfi. Gamli bærinn er þarna innan
múra og þar er allt eins og það var i
gamla daga.”
Kristján bætti því við að síðari árin
hefði það ágerzt að alls kyns
„fríkað” fólk hefði tekið að streyma
til Ibiza, talsvert af stórauðugu ungu
fólki og fylgifiskum þess. Þetta
fólk væri nú tekið að setja nokkum
svip á mannlíf eyjarinnar.
Það er ferðaskrifstofan Úrval sem
selur skemmtiferðir til Ibiza hér á
‘landi.
-At-
I
Óhætt er að lofa þeim sem fara á Arnarvatnsheiði með Arinhirni Jóhannssyni ósvikinni snertingu við náttúruna. Farið er á
hestum frá Laugabakka i Miðfirði.
Til skamms tíma notaði mestur
hluti íslenzkra blaðaljósmyndara
Canon AE- I myndavélar. Hún er
þriðja fullkomnasta vélin frá Canon,
elektrónísk með sjálfvirku ljósopi og
hægt er að fá á hana sjálfvirkt flass.
Með slíkan útbúnað er ekki rélt-
lælanlegt að myndatökur mistakist
hjá neinum.
„Ég nota AF-1 jöfnum höndum
með Canon A1 og F1,” segir Ragnar
Th. Sigurðsson ljósmyndari Dag-
blaðsins. „Canonlinsur og annar út-
búnaður passar á ailar vélartegundir í
seríunni. Það er hægt að fá á þær 42
mismunandi linsur, allt frá 7.5 milli-
metrum upp í 1200 mm.”
Linsan sem fylgir með verðlauna-
myndavélinni er með 50 millimetra
linsu. Það er Hilmar Helgason hf.
sem flytur Canon myndavélar til
landsins. -AT-
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njálsgötu 49 — Sími 15105
Sex daga ferð á Arnarvatnsheiði
Náttúrufegurðin hef ur orðið
mörgum skáldum að yrkisefni
„Maður er í góðum friði með
sjálfum sér. Þetta minnir reyndar
talsvert á þá göfugu íþrótt að vaska
upp i eldhúsi, sem eins og allir vita er
næsta indæl vinna, þegar maður fær
að vera við hana í friði: hvernig
maöur sigrar hvert riddaravirkið á
fætur öðru, afhjúpar pólitísk hrösul-
menni eða skírir jafnvel þverbrotna
heiðingja upp úr Hreinol og Vex.”
Þannig lýsti Arni Björnsson þjóð-
háttafræðingur í Helgarpóstinum
þeim áhrifum sem það haft á hann að
rölta um í kyrrðinni á Arnarvatns-
heiði. Þriðju verðlaunin í Sumar-
,myndakeppninni ’80 eru einmitt ferð
þangað á sumri komanda.
Það er Arinbjörn Jóhannsson frá
Brekkulæk í Miðfirði sem stendur
fyrir sex daga hesta- og veiðiferðum á
Arnarvatnsheiði. Hann sér um að út-
vega ferðalöngum allan þann út-
búnað sem með þarf utan veiðarfæri
til að veiða á flugu. í sumar býður
Arinbjörn upp á ellefu ferðir. Sú
fyrsta var farin 29. júní og þann 29.
ágúst fer síðasti hópurinn. Reynt er
að hafa ekki meira en sex manns i
hverri ferð.
Fegurð náttúrunnar á Arnarvatns-
heiði er rómuð. Hún hefur gefið
mörgum skáldum innblástur til Ijóða-
gerðar. Steingrímur Thorsteinsson
kvað þar Þú bláfjallageimur með
heiðjöklahring og flestir þekkja
kvæði Jónasar Efst á Arnarvatns-
hæðum oft hef ég fáki beitt.