Dagblaðið - 31.07.1980, Page 24

Dagblaðið - 31.07.1980, Page 24
Samningamálin: HREYFING A HLUTUNUM —að sögn Snorra lónssonar „Jú, mér finnst frekar vera hreyfing í áttina,” sagði Snorri Jónsson, forseti ASI í samtali við DB í morgun er hann var inntur eftir gangi samningaviðræðna ASÍ og Vinnumálasambands sam- vinnufélaganna. „Klukkan tvö i dag höfum við boðað á okkar fund fjörutíu og þriggja manna samninga- nefnd ASÍ og munum við skýra henni frá stöðunni í samningamálunum,” sagði Snorri. Snorri og hluti samninganefndar ASÍ áttu í gær fund með ráðherranefnd, þar sem rætt var um mögulegan „félagsmálapakka” sem ríkisstjórnin gæti lagt fram til að greiða fyrir samningum. „Á fundinum með ráðherrunum fórum V við yfir kröfur ASÍ eins og þær voru settar fram á kjaramálaráðstefnu ASf í janúar sl. og hafa alla tið síðan verið ljósar,” sagði Snorri, „einnig lögðum við áherzlu á að ef samningar tækjust við Vinnumálasambandið ættu ríkisfyrirtæki að semja við þá aðildarfélaga ASÍ sem hjá þeim starfa”. Snorri var inntur eftir því hvort búast mætti við samningum fyrr en seinna: „Um það er ómögulegt að segja en ef kominn er skriður á hlutina þætti mér ekki ólíklegt að við færum með verzlunarmannahelgina i þetta.” Hallgrímur Sigurðsson, formað- ur Vinnumálasambands sam- vinnufélaganna sagði ekkert vera hægt að fullyrða um hvort samningar væru á næsta leiti. „Það gerist ekkert í þessu i dag. Við munum taka við út- reikningum sambands bygginga- manna á fundinum fyrir hádegið en eftir hádegið mun stjórn Vinnumála- sambandsins koma saman til fund- ar,” sagði Hallgrímur. -BH. Frá fundi ASt-manna með rikisstjórninni, Karl Steinar Guðnason heilsar hér Gunnari Thoroddsen en aðrir á myndinni eru Sigfinnur Sigurðsson hagfræðingur Verzlunarmannafélags Reykjavikur, Svavar Gestsson ráðherra og Snorri Jóns- son. DB-mynd Ragnar Th. Símareikningar Sólness: „LAGKURA AF ÓMERKILEGASTA TAGI” —segir fyrrverandi dómsmálaráðherra „Þetta er lágkúra af ómerkileg- asta tagi,” sagði Vilmundur Gylfa- son alþingismaður í samtali við DB í gær, er hann var inntur álits á þeirri ákvörðun Þórðar Björnssonar rikis- saksóknara, að aðhafast ekki frekar í símareikningamáli Jóns Sólness. Það var einmitt í dómsmálaráðherratíð Vilmundar sem dómsmálaráðuneytið beindi því til ríkissaksóknara að hann rannsakaði hina tvígreiddu sima- reikninga Jóns. En Jón Sólnes fékk sem kunnngt er tvisvar greidda sömu símareikninga hjá því opinbera. Fyrst út á frumrit reikninganna hjá Kröflunefnd og síðan út á Ijósrit sömu reikninga hjá skrifstofu Alþingis. „Um þetta á ekki að tala neitt rósamál, á íslenzku er til orð yfir þetta sem byrjar á þ. Hér er að vísu um smámál að ræða sem skiptir ekki ríkissjóð öllu máli en einhverjar móralskar kröfur hljóta menn að gera, hver og einn borgari þessa lands,” sagði Vilmundur. „Þetta er refsifræðilegt atriði,” sagði Baldur Möller ráðuneytisstjóri i dómsmálaráðuneytinu þegar hann var inntur eftir því hví ráðuneytið vildi ekki að meira yrði aðhafzt að svo stöddu í símareikningamálinu. „Jón átti i „ströggli” með að fá símareikningana greidda. Tregða var í greiðslum þeirra svo hann sendi þá í tvær áttir. Tilgáta um að Jón hafi ætlað sér greiðslu í tvígang verður ekki sönnuð, enda endurgreiddi hann annan símareikninginn er hann hafði fengið þá greidda. Niðurstaða Þórð- ar Björnssonar ríkissaksóknara er sú sama og okkar, alls ekki er útilokað að málið verði tekið upp að nýju ef gögn berast í málinu,” sagði Baldur. Mál þetta kom fyrst upp við endurskoðun yfirskoðunarmanna ríkisreiknings á ríkisreikningum, sem leiddi til þess að málið var rætt á Alþingi. Er alls ekki ósennilegt að þegar Alþingi kemur aftur saman til fundar í haust verði þetta eitt af þeim málum sem tekin verða upp að nýju, til frekari umræðu og umfjöllunar. „Þetta er 1 1/2 tonns trilla með dísilvél. Við erum að vinna að því að ná henni upp, en sennilega hefur hún sokkið við það að sog myndaðist þeg- ar rannsóknarskipið Hafþór lét skrúfurnar vinna undir átaki þar sem það var bundið við bryggjuna hérna rétt hjá,” sagði Jóhann Örn Guðmundsson, einn af fjórum eig- endum trillunnar. Við komum við á höfninni i gær þar sem trillan lá marandi í kafi. „Þetta er nú fyrst og fremst sportbátur. Við leggjum línu og veiðum á handfæri. Það er góðafslöppun,” sagði Jóhann. -EVI/DB-mynd R. Th. SPORTTRILLA SÖKK í HÖFNINNI * frjálst, úháð dagblað FIMMTUDAGUR 31. JÚL> 1980. Aukafundur hjá Skáksambandinu: Agreiningur um skipan ólympíu- landsliðsins Upp er kominn ágreiningur um skipan ólympíulandsliðs íslendinga i skák. Þeir Margeir Pétursson og Jón L. Árnason hafa óskað eftir því, að ELO- skákstig þeirra séu reiknuð fram til dagsins í dag í stað þess að miða við síðasta stigaútreikning FIDE frá því í nóvember 1979. Þeir Margeir og Jón telja sig nú vera orðna stigahærri en Helgi, sem ekki hefur teflt mikið að undanförnu. Ætti því slagurinn um 3. borðið i sveitinni að standa á milli þeirra en stjórn Skáksambandsins hafði áður ákveðið að Helgi tefldi á 3. borði en Jón og Margeir á 4. og 5. borði. „Það er hægt að reikna þessi stig til dagsins í dag en þessi stig hafa verið reiknuð á vegum FIDE og send til allra aðildarlanda. Það yrði því ný stefna ef reikna ætti stigin til dagsins i dag,” sagði Þorsteinn Þorsteinsson, varafor- seti Skáksambands íslands, er DB innti hann álits á málinu. Hann sagði, að ekki væri hægt a_ð tala um deilu í þessu sambandi og yrði endanlega gengið frá þessu máli n.k. þriðjudag. -GAJ. Sundrung íASÍum samningana Sundrung kom upp í liði Alþýðusam- bandsmanna i gær um afstöðu til þess, hvort ganga skuli til samninga á þeim grundvelli, sem er að skapazt i við- ræðum við Vinnumálasambandið og rikisstjórnina. Deilur munu vafalaust blossa upp á 43ja manna fundi aðalsamninganefnd- ar ASÍ, sem haldinn verður í dag. í meginatriðum skiptast menn þann- ig, að stjórnarsinnar vilja ganga til samninga en stjórnarandstæðingar eru andvígir samningum á þessum grund- velli. -HH. Gjaldskrámefnd skerhækkunar- beiöni Hitaveitunnar — Leggur til rúmlega 10 prósenthækkun Gjaldskrárnefnd leggur til að hækkun hitaveitugjalda á Reykja- víkursvæðinu verði rúmlega 10 prósent. Munu tillögur nefndarinnar um hækkun vera á bilinu II —13 prósent, eftir því sem DB hefur heyrt. Hitaveitan hafði beðið um 60 prósent hækkun. Málið kemur nú til kasta ríkis- stjórnarinnar. Gjaldskrárnefnd gerir yfirleitt tillögur um 9 prósent hækkun til þeirra opinberu fyrirtækja, sem sótt hafa um hækkun nú. Spurningin um hitaveitugjöldin mun hafa verið borin undir Orkustofnun og hún lagt til, að hækkunin yrði á bilinu 10—20 prósent. -HH. ÍUKKUDAGAR: 31. JtJLÍ: 795 Vöruúttekt að eigin vali frá Liverpool fyrir 10 þúsund krönur. Vinníngshafar hringi isíma 33622.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.