Dagblaðið - 19.08.1980, Page 2

Dagblaðið - 19.08.1980, Page 2
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 1980. Einkennilegir viðskiptahættir: Saumavélin hækkaði um 31 þús. kr. á einni viku Á.G. skrifur: Þannig er mál með vexti að rétt fyrir mánaðmót ætlaði ég að kaupa saumavél hér í kaupfélaginu á Akra- nesi. En af því að illa stóð á fyrir mér og þetta var síðasta saumavélin á þessu verði, þá samdi ég við stúlkuna að taka vélina frá og borgaði jafn- framt inn á hana 10 þúsund krónur. Sagði ég stúlkunni að ég myndi koma eftir viku og ganga frá kaupunum. Hún tók vélina úr glugganum, setti hana í kassa og skrifaði nafnið mitt á hann. Verðið var rélt tæplega 170.000 krónur. Svo sendi ég manninn minn til þess að ná í og borga saumavélina en þá var verðið orðið 201.000 krónur. Hann tók vélina því að hann hélt að ég hefði misskilið þetta. Ég var ekki alls kostar ánægð með hækkunina og fór sjálf og talaði við stúlkuna og sagði henni að ég hefði ætlað að kaupa vélina á 170.000 krónur en ekki á 201.000 krónur. Tilkynnti hún mér þá að það hefði verið vitlaust verð. Til að mótmæla þessum við- skiptaháttum skilaði ég aftur vélinni. En ég spyr, er þetta eðlilegt og er Sigurður Ingimarsson, úlibússtjóri Kaupfélags Borgfirðinga á Akranesi, sagði að umrædd saumavél hefði verið á röngu verði þegar konan kom fyrst og lét taka hana frá fyrir sig. Hefði verið hringt til Toyota- umboðsins í Reykjavík og spurt hvað sams konar vél og konan ætlaði að þetta leyfilegt? Vélin var búin að vera að minnsta kosti í viku úti í glugga og mér fyndist ekki óeðlilegt að fleiri hefðu tekið eftir verðinu á henni. Myndi sjálfur kaupfélagsstjórinn kaupa kostaði. Ekkert væri lagt á kaupverðið frá umboðinu, utan flutningskostnaður, og að þeim út- reikningum loknum kom í ljós að verð saumavélarinnar var 201.000« krónur. Þess má að lokum geta að hjá Kaupfélaginu á Akranesi eru til tvær vera ánægður með svona viðskipti? Það efast ég um, en gaman væri að heyra hans álit. Ég vil að siðustu taka það fram að vélin var mjög greinilega verðmerkt. tegundir saumavéla af Toyota gerð. Kostar sú dýrari, (4500 EL) í dag 252.700 krónur en sú ódýrari, (5500), 198.300 krónur. Bæði verðin eru miðuð við verð hjá umboðinu og ofan á leggst flutningskostnaður til Akraness. Kaupf élagið svarar: Verð vélarinnar var rangt UTVEGSBANKAN- UM VEX EKKI FISKUR UM HRYGG — Neitar sparif járeigendum um lán Spsiriljáreigamli hringdi: Kunningi minn hefur undanfarna mánuði lagt fyrir peninga hjá Útvegs- bankanum í Kópavogi. Hefur hann lagt hluta af kaupi sínu inn á vaxta- aukareikning unt hver mánaðamót og nú er svo komið að hann á inni 4,5 milljónir króna. Nú þurfti þessi maður að taka lítið lán og hélt því á fund bankastjórans og bað um 1,5 milljón króna lán, annað hvorl í formi v'ixils eða skuldabréfs. Þá brá svo kynlega við að bankastjórinn neitaði honurn um lán, á þeirri for- sendu að hann fengi ekki laun sín greidd í gegnum bankann. Aðrir en þeir sem það gerðu fengju ekki lán. Við svo búið varð maðurinn frá að hverfa. Okkur fannst þetta stórfurðuleg málalok. Ef sparifjáreigendur fá ekki lán, hverjir fá þau þá? Fyrir mörgum árum talaði ég við sparisjóðsstjóra og sá tjáði mér að bönkum væri ekki stætt á öðru en að veita sparifjáreig- endum lán. Sá maður sem hér um ræðir hefur ekki tekið víxillán i mörg ár, en þau sem hann tók þá stóð hann fullkom- lega við og borgaði ætíð á gjalddaga. Þetta er skilamaður eins og þeir gerast beztir. Eitt er víst, að ekki vex Útvegsbankanum fiskur um hrygg meðan ráðamenn þar neyta þar skil- vísum sparifjáreigendum um lán. Bréfritara finnst nýi kjallari hússins vera of hár og að húsið hafi misst svip sinn við fiutninginn, auk þess sem hæð þess raski loftlinunni við götuna. Hús byggt á röngum grunni Athugull skrifar: Við Hverfisgötu, rétt fyrir innan Vitastíg, stendur járnklætt timbur- hús, sem nýlega var flutt til. Húsið stóð töluvert út í götuna og truflaði umferð um hana. En ráð við þeini vanda var að flytja húsið ofar i götuna, og var því steyptur nýr grunnur fyrir aftan húsið, og það síðan sett ofan á hann. Galli finnst mér hins vegar, að kjallari hússins er alltof hár og missir húsið því þann svip sem það hafði fyrir flutninginn. Þá raskar húsið einnig loftlínunni við þennan hluta götunnar. Finnst mér að vel hefði mátt athuga þessi atriði áður en grunnur hússins var steyptur, því svo virðist sem það eitt hafi vakað fyrir eigendum þess að fá sem stærst- an kjallara út úr fiutningunum. Island og Pólland hafa marga hildi háð á Iþróttasviðinu, einkum I handbolta og knattspyrnu. Nú er mikil ólga i Póllandi og bréfrítari vill fá að vita hvort ASÍ hyggst grípa til einhverra aðgerða vegna handtöku verkfallsmanna þar f landi. Ólgan í Póllandi: HVAÐ GERIR ASÍ NÚ? Árni spyr: Blaðafulltrúi Alþýðusambands íslands lætur sér mjög annt um ástand mála í Guatemala, einkum þó um verkamenn i ótilgreindri verk- smiðju. En hvaða aðgerða hyggst ASÍ grípa til vegna handtöku verka- manna í Póllandi? Rennur ASÍ ekki blóðið til skyldunnar að gera eitthvað verkamönnunum til stuðnings? Sjálf- um var mér að detta i hug, hvort ASÍ ætlaði að neita að losa skip er kæmu frá Póllandi. Milli íslands og Pól- lands eru mikil menningarleg og íþróttaleg tengsl svo varla gctur ASÍ látið hjá líða að gera eitthvað í þessu máli. Enn einu sinni minna lesenda- dálkar DB alla þá, er hyggjast senda þœttinum llnu, að láta fylgja fiillt nafn, heimilisfang, slmanúmer (ef um það er að ræða) og nafn- númer. Þetta er lltil fyrirhöfh fyrir hréfritara okkar og til mikilla þœginda fyrir DB. Lesendur eru jafnframt minntir á að bréf eiga að vera stutt og skýr. Áskilinn erfullur réttur til að stytta bréf og umorða til að spara rúm og koma efni betur til skila. Bréf œttu helzt ekki að vera lengri en 200—300 orð. Símatlmi lesendadálka DB er milli kl. 13 og 15 frá mánudögum tilföstudaga. Þessi brúða verður meðal þess sem getur að Uta i Tvivollinu sem verður opnað seinna I vikunni. Ekkert skemmti- legra en aðfara í Tfvolí Kin sem man gamla TivolíiO hringdi: Nú gelur að líta i blöðunum fregnir þess efnis að Tívolí verði starfrækt í tengslum við sýninguna Heimilið ’80 sem hefst á föstudag. Þessum fregn- um fagnar hver taug í líkama mínum því ég man þá tíð er Tivolíið okkar gamla var ennþá starfrækt. Ekkert vissi maður þá skemmtilegra en að fara í Tívolí og allir skemmtu sér jafnvel, ungir sem gamlir. Þvi miður var starfsemi þess lögð niður og unga kynslóðin i dag kynntist þvi aldrei þessari paradís. En nú á að gera bragarbót þar á og er það vel. Verst þykir mér þó hvað Tívolíið er opið stuttan tíma, það mætti vel vera opið i svona sex vikur, því ekki hafa allir peninga til að skreppa til Kaup- mannahafnar. Of seint í rass gripið — að kjósa nú Gunnar íGeirsstað Kinn scm vill frekar rykuga vcgi cn oliumö! frá Framkvæmdastofnun ríkisins skrifar: Það var vel mælt hjá Ólafi G. Einarssyni í Dagblaðinu um daginn, að lausnin á vanda Sjálfstæðisflokks- ins væri ekki fólgin í kjöri Gunnars Thoroddsen í formannsstöðu í stað Geirs Hallgrímssonar. Hér er að vanda of seint í rass gripið á þeim bæ, því kjör Gunnars Thoroddsen á sínum tíma í stað Geirs Hallgríms- sonar hefði forðað Sjálfstæðis- flokknum frá þeirri ógæfu sem hann hefur nú ratað i. Kjör Gunnars kemur því of seint nú og leysir ekki þennan vanda, frekar en áframhald- andi seta Geirs Hallgrímssonar leysir nokkúrn vanda.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.