Dagblaðið - 19.08.1980, Blaðsíða 10
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 1980.
Bandaríkiunum
Ekkert óvenjulegt virtist vera að
gerast. Risaolíuskipin tvö höfðu lagzt
hvort upp aö ööru eins og svo oft ger-
ist við skipaskurðinn upp að Houston
í Texas. Með því koma stjórnendur
olíuskipanna í veg fyrir að þau reki á
meðan þau bíða eftir afgreiðslu, sem
oft tekur allt að tvo daga.
Ekki var þó allt sem sýndist og
fjörutíu manna lögreglulið sem beið í
leyni uppi áströndinni beið ekki boð-
anna, þegar oliuskipin voru föst
saman. >au voru umkringd af bátum
og ráðizt um borð í þau í þyrlum.
Sautján skipverjar voru handteknir
og sakaðir um að hafa stolið eða ætl-
að að stela 100 þúsund gallonum af
olíu. Síöar skýrði lögreglan svo frá að
þarna hefði verið á feröinni þjófa-
hringur sem lagt hefði haid á olíu-
vörur að jafnvirði sjö milljarða ís-
lenzkra króna á liðnu ári.
Handtaka hinna sautján skipverja
á olíuskipunum tveimur var aðeins
einn liðurinn í baráttu yfirvalda og
olíufyrirtækja við þessa nýju tegund
þjófa sem nú láta sífellt meira að sér
kveða vegna mikillar hækkunar á
olíuverði. Enginn getur fullyrt með
neinni nákvæmni hve miklum upp-
hæðum þjófarnir ná undir sig í
Bandaríkjunum öUum. Yfirvöld í
Oklahomafylki einu hafa áætlað að
þar nemi þetta allt að jafnvirði 30
milijarða íslenzkra króna áári.
Vegna verðhækkananna hefur
svartur markaður með alls konar
olíuvörur farið mjög vaxandi. Yfir-
völd viðurkenna að þau séu illa undir
það búin að berjast gegn þessari nýju
tegund þjófnaöa.
Eitt er yfirvöldum þó orðið ljóst og
það er að ef tU er hugsanleg leið til að
stela olíu þá notfæra þjófarnir sér
hana. Liklega er einfaldasta aðferðin
beint og umbúðalaust rán. Oliuflutn-
ingabifreið er ekið að óvarðri olíuUnd
í Texas eða Oklahoma. Komizt er aö
olíunni í tönkunum og siðan er ekið á
brott þegar búið er að hlaða bifreið-
ina.
Aðrar þjófnaðaraðferðir eru
flóknari eins og þegar bifreiðarstjóri
olíuflutningabíls kemst að samkomu-.
lagi við þann sem sér um mæUnguna^
á oiíunni um að ekki sé mæld öU olí-
an sem fer í tanka bifreiðarinnar.
Síðan hirðir hvor sinn hlut.
Þeir aðUar sem hreinsa tanka olíu-
skipanna eru sagðir gegna lykUhlut-
verki við að koma olíunni frá olíu-
skipunum og eins að koma henni í
verð á almennum markaði.
Samkvæmt venju þá eiga þessi fyrir-
tæki alla þá oliu sem þau geta krækt
sér í við hreinsun skipanna. Hafa
fyrirtækin heimild tU að selja hana.
Auk þess þurfa þessi hreinsifyrirtæki
ekki að gefa upp hvaðan olía þeirra
ÖLAFUR
GEIRSSO
er eins og venjuleg olíudreifingar-
fyrirtæki þurfa að gefa sínum við-
skiptavinum upp.
Einnig er olíunni dreift frá litlum
olíulindum sem afkasta minna en tíu
olíufötum á dag. Ekkert opinbert
eftirlit er með slíkum lindum. Þar af
leiðandi eru þetta kjörnir staöir til að
koma fyrir aUs konar illa fenginni
olíu, sem gjarnan hefur þá verið
keypt á lágu verði. Slðan er unnt að
selja þýfiö á eölUegu markaðsveröi
án þess að neinn geti gert við það at-
hugasemdir.
Þó svo yfirvöldum sé mæta vel
ljóst að olíuþjófnaðir fara vaxandi
geta þau lítiö gert tU varnar. Fámenni
er mikið í þeim deildum bandarísku
lögreglunnar sem á að sjá um slík af-
brot. TU dæmis eru aðeins sex menn í
þeirri deild sem sjá á um slík mál í
Houston í Texas. Aðeins er heimilt
að kalla á FBI alríkislögregluna ef
um mál er að ræða sem varðar fleiri
en eitt ríki Bándaríkjanna og ef hið
stolna er talið vera meira en 5000
dollara virði eða jafnvirði 2,5 millj-
óna íslenzkra króna.
Jafnvel þegar lögreglunni tekst að
koma upp um olíuþjófa er ekki al-
gengt að þeir séu dæmdir sekir fyrir
dómi. Mjög erfitt er að greina á milli
einstakra olíufata þar sem olía er að
miklu leyti stöðluð vörutegund. Þess
vegna eru mál gegn grunuðum oliu-
þjófum sem ekki eru beinlínis gripnir
við sjálfan þjófnaðinn erfið í með-
förum og erfitt að afla óyggjandi
sönnunargagna.
Þar af leiðandi verða varnir gegn
oliuþjófnaði að mestu að vera í
höndum olíufélaganna sjálfra.
Viðurkennt er af talsmönnum þeirra
að þau hafi verið mjög sofandi á
verðinum og þau geri sér grein fyrir
hve hér sé um viðamikið mál að
ræða. Olíufélögin hafa einnig verið
hikandi í að grípa til róttækra að-
gerða. Hafa þau ekki viljað láta málin
líta svo út sem hin stóru og voldugu
olíufélög væru að ráðast á fátæka
borgara. Nú telja talsmenn olíufélag-
anna hins vegar að hin stóru olíufélög
séu orðin þau sem ráðizt er á. Þessar
árásir og olíuþjófnaður á vafalaust
eftir að aukast og svartur markaður
með olíuvörur að blómgast í framtíð-
inni eftir því sem verð á oliu fer
hækkandi.
(Byggt á Newsweek).
iMMBuma
m • r * ' - rm r ^ _■_A
Útsefandi: Dagbiaðið hf.
Framkvœmdasljóri: Svainn R. EyjóHsson. Ritstjóri: Jónas Kristjánsson.
Ritstjómarfulftrúi; Haukur Helgason. Fróttastjóri: Ómar Valdimarsson.
Skrífstofustjóri ritstjóman Jóhannas Reykdal.
Iþróttin Hallur Stmonarson. Menning: Aðalsteinn Ingólfsson. Aðstoðarfréttastjóri: Jónas Haraldsson.’
Handrit: Asgrímur Pálsson. Hönnun: Hilmar Karisson. I
Blaðamenn: Anna Bjarnason, Atli Rúnar Halldórsson, Atli Steinarsson. Ásgeir Tómasson. Bragi
ISigurðsson, Dóra Stefánsdóttir, Elín Albertsdóttir, Ema V. IngóHsdóttir, Gunnlaugur A. Jónsson,
(Ólafur Geirsson, Sigurður Sverrisson. j
Ljósmyndir: Ámi Páll Jóhannsson, Bjardeifur Bjamleifsson, Hörður Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurös
son, Sveinn Pormóðsson. Safn: Jón Sœvar Baldvinsson.
Skrifstofustjóri: Ólafur EyjóHsson. Gjaldkeri: Þráinn Þoriorfsson. Sölustjóri: Ingvar Svoinsson. Drorfing
jarstjóri: Már E.M. Halldórsson.
Ritstjóm Siðumúla 12. Afgreiðsla, áskriftadeild, auglýsingar og skrifstofur Þvorholti 11.
Aðalsimi blaðsins er 27022 (10 línur).
Setning og umbrot Dagblaðið hf., Síðumúla 12. Mynda- og plötugerð: Hilmir hf., Síðumúla 12. Prentun
Arvakur hf., Skerfunni 1CL________________________________________
Áskriftarverð á niánuðíkr. 6.000. Verð i lausasöhi kr. 250 eintakið. '
Olíuþjófnaöur
vaxandi í
Kommissarar afnumdir?
Efnahagsnefnd ríkisstjórnarinnar
hefur komizt að hinni óvæntu og
ánægjulegu niðurstöðu, að leggja beri
niður kommissara Framkvæmdastofn-
unar ríkisins. Þetta er liður í nýjum
efnahagstillögum nefndarinnar.
Framkvæmdastofnunin hefur frá upphafi verið
merkisberi hinnar pólitisku spillingar hér á landi. Hún
tók við af bönkunum, sem áður voru í fararbroddi. Og
hún hlúði betur en þeir að skilyrðum spillingarinnar.
Bankastjórar voru lengst af ráðnir eftir valdatafli
stjórnmálanna. Þeir voru umboðsmenn flokka sinna
við peningakassa þjóðarinnar. Það er fyrst á síðustui
árum, að nýir bankastjórar eru ráðnir sem fagmenn. /
Bankastjórarnir stóðu ekki og féllu með valdatafl-
inu. Þeir héldu starfínu, þótt ríkisstjórnin að baki
þeirra félli. Smám saman urðu margir þeirra minna
pólitískir og ræktuðu með sér faglega hæfileika.
Landsfeður okkar höfnuðu þessu sjálfstæði banka-
stjóra, þegar þeir leiddu yfir þjóðina Framkvæmda-
stofnun ríkisins. Þar skipuðu þeir bankastjóra, sem
áttu að koma og fara með nýjum rikisstjórnum.
Þessir bankastjórar hafa frá upphafi verið kallaðir
kommissarar. Þeir hafa yfirleitt verið skipaðir úr
röðum þingmanna og þá þeirra, sem hafa komizt næst
því að ná ráðherraembætti. Hlutverk þeirra er stórpóli-
tískt.
Minnihlutastjórn Alþýðuflokksins skipti ekki um
kommissara í vetur, enda var hún bara vakthafandi og
mátti ekkert gera. Núverandi ríkisstjórn lét líka undir
höfuð leggjast að skipta um kommissara.
Ríkjandi kommissar er úr hópi þingmanna Sjálf-
stæðisflokksins. Sá flokkur hefur oft þótzt vera and-
vígur kommissarakerfinu, en hefur þó alltaf stutt það i
raun. Hafa menn það til marks um fánýti stefnumála.
Kommissarinn varð frægur í síðustu kosningabar-
áttu, þegar hann þakkaði sér persónulega ýmsar fram-
kvæmdir í fjórðungnum. Þessar framkvæmdir voru
unnar fyrir fé frá Framkvæmdastofnun ríkisins, ,,hins
•félagslega banka”.
Félagsleg sjónarmið eru töfraorðin, þegar ekki er
hægt að fínna nein skynsemissjónarmið fyrir fjárveit-
ingum. Á grundvelli félagslegra sjónarmiða er hægt að
reka óhefta, pólitíska fyrirgreiðslu.
Þessi aðferðafræði byggist á velgengni verðbólgunn-
ar. Stöðug rýrnun höfuðstóls veldur því, að lán eru að
verulegum hluta gjafir. Auðvitað vilja allir fá slíkar
gjafir. Og sumir hafa betri aðgang en aðrir.
Stjórnmálaspilling á íslandi felst að verulegu leyti í,
að blandað er saman stjórnmálum og úthlutun lána.
Þessi tegund spillingar er ekki möguleg, ef fjárskuld-
bindingar eru verðtryggðar, svo sem nú er verið að
reyna að gera.
Eðlilegt framhald þeirrar siðvæðingar er afnám
kommissarakerfis Framkvæmdastofnunar ríkisins.
Það er veigamikið skref í valddreifingu, aðskilnaði
stjórnmálavalds og fjármálavalds.
Ríkisstjórnin hefur ekki tekið afstöðu til þessarar til-
lögu efnahagsnefndar. Málið er engan veginn komið á
þurrt. Meirihluti þingmanna þjóðarinnar talar fagurt,
en heldur um leið dauðahaldi í fyrirgreiðslukerfið.