Dagblaðið - 13.09.1980, Blaðsíða 1
Eftirlitsmenn rikisins með Flug-
leiðum, Birgir Guðjónsson deildar-
stjóri i samgönguráðuneytinu og
Baldur Óskarsson, afhentu Erni Ó.
Johnson stjórnarformanni Flugleiða
i gaer bréf með um 50 spurningum og
athugasemdum vegna efnahags-
skýrslu og áætlunar stjórnar Flug-
leiða sem lagðar voru fyrir ríkis-
stjórnina í byrjun vikunnar. Farið er
fram á að Fiugleiðamenn leggi skrif-
leg svör við athugasemdum eftirlits-
mannanna fyrir stjórnvöld strax eftir
helgina. Eru gerðar athugasemdir við
fjölmörg atriði í plöggum Flugleiða-
manna, meðal annars við mat á
eignum fyrirtækisins, rekstrar-
áætiun, greiðslufjárstöðu, farþega-
spá, hótelnýtingu, bókhaldsfærslur,
samskipti við önnur fyrirtæki og fjöl-
margt fleira.
Eftirlitsmennirnir, Steingrímur
Hermannsson samgönguráðherra,
Rúnar Jóhannsson frá ríkisendur-
skoðun og þingmennirnir Eiður
Guðnason, Matthías Á. Mathiesen,
Ólafur Ragnar Grímsson og
Guðmundur G. Þórarinsson, hittust
á fundi í samgönguráðuneytinu í gær
vegna Flugleiðamálsins (hinir fjórir
síðasttöldu eru fulltrúar þingflokk-
anna sem fjölluðu um ríkisábyrgð
fyrir Flugleiðir sl. vetur). Voru
fundarmönnum afhent gögn í
málinu, m.a. afrit af bréfi eftirlits-
mannanna til stjórnar Flugleiða,
greinargerð frá rikisendurskoðun um
skoðun hennar á efnahagsskýrslu
Flugleiðao.fl.
Þá var ætlunin í gær að ganga
formlega frá skipan sendinefndar
sem fer til viðræðna við stjórn
Luxemborgar i næstu viku. Sam-
kvæmt upplýsingum DB í gærkvöldi
var frestað til sunnudags að ræða
skipan nefndarinnar. Eru valkost-
irnir tveir: Annars vegar að
samgönguráðherra fari einn ásamt
embættismönnum, eða að í nefnd-
inni verði líka fulltrúar allra stjórnar-
flokkanna.
Á mánudag og þriðjudag verður
svo gengið endanlega frá viðræðu-
grundvellinum sem Steingrímur fer
með til Luxemborgar. -ARH.
Keppnin um Sumarmynd DB ’80:
Hver er á skjánum?
— sjá fleiri myndir á bls. 13
Hver er ú skjánum? heitir þessi mynd ár keppninni um Sumarmynd DB 1980. Höf-
undur er Einar Guðmundsson, Reykjavík. Fleiri myndir, sem dómnefnd hefur valið til
úrslita, eru hirtarábls. 13 í blaðinu í dag, en um nœstu hetgi verða verðlaunamyndirn-
arþrjár birtar og úrslit tilkynnt.
Lögreglueftirlit í miðborginni um helgina með sama sniði og um síðustu helgi:
„ÆRSUN EKKIOLL AFILLUM TOGA’’
— segir Páll Eiríksson yfirlögregluþjónn, sém stjómar aðgerðum lögreglunnar
,,Það var ákveðið að hafa lög-
reglueftirlit í miðbænum um þessa
helgi með sama sniði og var um
síðustu helgi,” sagði Páll Eiríksson,
aðstoðaryfirlögregluþjónn, sem
stjórna á lögregluvaktinni. Páll hefur
langa reynslu að baki og er þekktur
fyrir rósemi, yfirvegun en ákveðni.
„Það verða 26—28 lögregluþjónar
á vaktinni og 29 með rannsóknar-
deildarmönnum. Framkvæmdinni
verður hagað eins og fyrr. Við
munum taka þá sem í versta ástand-
inu eru, leggjum hald á áfengi þeirra
sem ekki mega reglum samkvæmt
hafa það undir höndum og við
verðum að stinga þeim inn sem verst
láta og verst eru drukknir.”
„Það voru 15 borgarfulltrúar sem
réttu upp höndftjl samþykkis því að
reynt yrði með öllu tiltæku móti að
stöðva skemmdarverk í miðborginni.
Skemmdarverkin eru vandamál sem
þarf að uppræta. Hitt er ekki óeðli-
legt að unglingarnir safnist saman.
Þeir hafa engan stað til að vera á.
Þeir eru vel aldir og þurfa vissa útrás.
Ærsl þeirra á haustin eru ekki öll af
illum toga, heldur oft fögnuður yfir
því að hittast eftir sumarlangan
aðskilnað,” sagði Páll.
Hann kvað áfengisneyzluna mikið
vandamál og kvaðst ekki skilja að
unglingar hefðu efni á 12—15 þús.
króna eyðslu i vín og fá svo kannski
20 þúsund kr. sekt fyrir óspektir eftir
handtöku og innstungu i fangaklefa.
Um síðustu helgi lauk málum tuga
unglinga með sátt og greiðslu sektar
frá 5—30 þús. krónum og fengu flest-
ir 20 þús. kr. sekt. Mikið vín var gert
upptækt og komu unglingarnir sam-
kvæmt kalli og gengu löglega frá
upptökuheimildinni eftir helgina.
Síðan er víninu hellt niður með
pompi og pragt.
„Miðborgarlætin eru ekki óspekdr
sem kveða á niður með vatni eða
táragasi. Þetta er múgæsing unglinga
sem ráfa um í eirðarleysi af því þau
hafa ekkert annað að gera og hafa
dálítið gaman af að gera hasar í lög-
reglunni. Við munum gera okkar
bezta og geri það allir, þá fer allt
vel,” sagði Páll Eiriksson.
-A.St.
Geir og Jónas
Haralz í orða-
sennu
við Gunnar
— sjá baksíðu
Næstum
fullkominn
— Alþjóðlegt dans-
tímarít hyllir Helga
Tómasson. Sjá grein
á bls. 16-17