Dagblaðið - 13.09.1980, Side 4

Dagblaðið - 13.09.1980, Side 4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1980. Afmælisterta Dagblaðsins: Ævistarf tólf afburða varp- hæna í sjálft kökudeigið Hátt í sjö þúsund manns fengu væna sneið af stærstu köku sem bökuð hefur verið á íslandi Á minútunni kl. 3, sunnudaginn 7. september var byrjað að skera al stærstu tertu sem bökuð hefur verið á íslandi. Það var afmælisterta Dag- blaðsins sem Ragnar Eðvaldsson bakarameistari í Keflavík bakaði með aðstoðarfólki sínu. Ragnar hannaði raunar kökuna sjálfur, þ.e. reiknaði út burðarþol og allar uppistöður kök- unnar, en hún vó hvorki meira né minna en 766 kg. — Síðasta sneiðin af kökunni var skorin kl. 20.45 eða fimm klukkutímum oa fjörutíu i fimm mínútum eftir a' •.k-urðnri; ■> hófst. —Að jafnaði vo> m> m»n> við skurðinn, fyrst í .kaiaiini sex og síðan starfsmenn Dagblaðsins og þeirra aðstoðarmenn, sem raunar voru úr ' skálahreyfingunni. — Þessari forláta tertu var skolað niður með hvorki meira né minna en sjö þúsund glösum af Pepsi Cola, sem Sanilas bauð upp á í tilefni af fimm áraafmæli Dagblaðsins. Ævistarf 12 afbragðs varphœna I kökuna sjálfa fóru hvorki meira né minna en 2916 stk. af eggjum. Við höfum reiknað út að það sé ævistarf tólf afburða góðra varphæna og þá miðað við að ekkert egg reynist fúlegg! Að öðru leyti var kökudeigið sem hér segir: 148,5 kg sykur - 162 kg egg — 121,5 kg smjörlíki —- 39 kg smjör — 148,5 kg hvr ii — 27 kg krempúlver og3,6 kg lytudufl. Smjörkremið var búið til úr: 43.2 kg sykur, 23,41 vatn — 2,7 kg eggjahvitur — 36 kg smjör — 36 kg smjörlíki og 27 kg nougat. Annað sem í tertuna fór var: 34.2 I íssósa — 6,3 I líkjör — I flaska sherry — 69isýróp— 46lvaln — Karamellusósa úr: 24 I rjóma — 24 kg sykur og 5 kg súkkulaði. Marengs úr I kg flórsykur og 0,5 kg eggjahvítur. Utan á og ofan á alla botnana fóru 40 kg af marsípani. Tertan var lögð saman úr eitt hundr- að og átta botnum. Hátt í sjö þúsund sneiðar Eftir því sem næst verður komizt voru skornar hátt í sjö þúsund sneiðar af afmælistertunni. Ekki er Eldsnemma á sunnudagsmorgun komu bakararnlr i tveimur sendiferðabilum frá Keflavik með gersemina. Þeir þurftu að fá aðstoð fílefldra næturvarða Laugardalshallarinnar til þess að bera botnana inn. Neðsti botninn var svo stór og þungur að hann varð að fíytja i tvennu lagi. Ragnar Eðvaldsson bakarameistari og Gísli Sigurðsson bakari eru þarna að leggja siðustu höndá skreytinguna sem fór fram i Laugardalshöllinni. rétt að taka svo til orða að allur þessi mannfjöldi hafi „fengið bita” af tertunni. Hér var alls ekki um neina smá bita að ræða, heldur stórar og vel útilátnar tertusneiðar. — Gríðarleg þröng myndaðist fyrir l'raman Dagblaðsbásinn þegar leið að því að byrja ætti að skera af kök- unni. Á tímabili var engu líkara en að allt væri að fara úr böndunum og voru menn hræddir um að einhver træðist undir í ósköpunum. En þá voru fengnir tveir skátar, Gunnar \ Þór Atlason og Ingólfur Arnarson með nokkrar skátastúlkur sér til aðstoðar, og skipulögðu skátarnir raðir afmælisgestanna. Þótt Dagblaðstertan komist kannski ekki í metabók Guinness þá er óhætt að fullyrða að hún sé meistaralega vel hönnuð og hafi í alla staði tekizt frábærlega vel. Tertur úr samskonar deigi verða framvegis til sölu í Ragnarsbakaríi og öðrum út- sölustöðum á höfuðborgarsvæðinu. Þannig geta þeir, sem ekki gátu komið því við að smakka kökuna á sjálfan afmælisdaginn fengið sér sina eigin Dagblaðstertu. -A.Bj. Heimilisbókliald vikuna: til Mat- og drjfekjarvörur, hreLnlætísvörur og þ.h.: Suirnud Mánud Þridjud Midvikud FLmmtud Föstud Laugard Samfc. Samt Samt. Samt Samt Samt Samt Oruiur útgjöLd: Suimud Mánud Þridjud Miðviknd Fimmtud Föstud Laugard Samt Samt Samt Samt Samt Samt Samt Taugaspenningurinn var nærri þvi farinn með viðstadda þegar verið var að taka efsta lagið ofan af tert- unni. En bakarameistararnir vissu h vað þeir voruað gera. I I l

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.