Dagblaðið - 13.09.1980, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1980.
7
-
>f
l y W,- ^ A
BILL 0G BUSLOD GJÖRONYTT
Það er lítið heillegt eftir af sendibílnum sem var | ónýtur eins og sjá má af myndinni og búslóðin,
að flytja alla búslóð ungra hjóna um Oddsskarð sem var óvátryggð, brann öll til ösku.
til Norðfjarðar um síðustu helgi. Bíllinn er gjör- | DB-mynd: Emil Thorarensen, Eskiftrði.
Tóku leiguflugvél til Egilsstaða 15 mínutum eftir að
áætlunarvél með auð sæti tók sig á loft:
Seðlabankatoppamir
á fundi í Skriðdal
— Af öryggisástæðum við aidrei allir í sömu vél, segir
Guðmundur Hjartarson seðlabankastjóri
,,Jú, það er rétt að fimm menn frá
Seðlabankanum fóru með leiguflug-
vél frá okkur til Egilsstaða á föstu-
daginn. Sú ferð kostaði um 425 þús.
krónur,” sagði Jón Kristinsson hjá
Arnarflugi þegar Dagblaðið leitaði
eftir staðfestingu á sögusögn um
ferðalag yfirmanna Seðlabankans
með leiguflugvél fyrir sl. helgi.
Dagblaðið hafði spurnir af því að á
föstudaginn fór áætlunarvél Flug-
leiða frá Reykjavík til Egilsstaða og
voru laus sæti í henni. 15 mínútum
siðar fór af stað leiguvél frá Arnar-
fiugi til Egilsstaða og með henni 5
seðlabankamenn. Farið með Flug-
leiðavélinni hefði kostað fimmmenn-
ingana kr. 337.500 báðar leiðir, en
þess i stað greiddu þeir á fimmta
hundrað þús. kr. fyrir leiguflugið
aðra leiðina. Þótti viðmælendum
blaðsins hér vera farið heldur óvar-
lega með peninga skattborgaranna,
að bankamennirnir skyldu ekki láta
sér lynda farþegaflug eins og almúg-
inn.
„Fyrir lá að halda fund bankaráðs
og bankastjórnar í Múlakoti á Skrið-
dal, sem er sumardvalarstaður i eigu
bankans síðan 1976. Á fundinn
þurftu að fara 5 bankastjórnarmenn,
3 bankaráðsmenn og 1 skrifstofu-
stjóri sem er ritari fundarins. Stefna
bankans er að þegar svona stendur á
fari ekki allir með sömu fiugvél af
öryggisástæðum. Við þurftum allir
að fara austur um hádegi á föstudag,
en fundur hófst strax eftir hádegið.
Um annað var þvi ekki að ræða en að
4 menn tækju áætlunarvél til Egils-
staða en 5 fóru með leiguvél.”
Þetta hafði Guðmundur Hjartar-
son, einn þriggja bankastjóra Seðla-
bankans, að segja í samtali við Dag-
blaðið um ástæður fyrir ferðalagi
yfirmanna bankans með Arnarflugs-
vélinni sl. föstudag.
,,Á heimleiðinni dreifðum við okk-
ur á 3 ferðir, enda voru þá ekki þröng
tímamörk,” sagði Guðmundur.
Seðlabankinn keypti Múlakot árið
1976 sem fyrr segir. Þar hefur verið
útbúin orlofsaðstaða og unnið að
gróðursetningu á jörðinni og fleiru til
að gera aðstöðu þar sem vistlegasta.
,,Það þótti ekki óviðeigandi að líta
á staðinn og sjá árangurinn af starf-
inu undanfarið. Sumir yfirmenn
bankans höfðu aldrei komið þarna,
svo að það þótti liggja beint við að slá
tvær fiugur í einu höggi: Halda fund-
inn og skoða staðinn um leið.”
Samkvæmt þessum upplýsingum
biaðsins hefur ferðakostnaður vegna
þessa fundarhalds seðlabankamanna
á Austurlandi numið kr. 835.800. Er
þá reiknað með fargjöldum fjögurra
manna báðar leiðir með áætlunar-
flugi og áætlunarflugi 5 manna aðra
leið og leigufluginu hina leiðina.
Kostnaður vegna dvalar mannanna í
Múlakoti er þar fyrir utan.-ARH/ELA
Abertssimar á fuid á Setfossi í fyrrakvöld og boða bndsraðstefni á H6td
Cngii 77 eanhynSwr
„Bjartsýni ríki í stað bölsýni
í þjóðmálaumræðu
— segir Albert Guðmundsson
„Þarna hittust 30—40 menn úr hópi
stuðningsmanna minna úr kjördæminu
á fundi sem ekki var auglýstur. Rætt
var um kosningabaráttuna, úrslit
kosninganna og framhaldið,” sagði
Albert Guðmundsson alþingismaður
þegar hann var inntur frétta af fundi
sem hann sat ásamt hópi manna á
Selfossi sl. fimmtudagskvöld. Voru
auk Alberts margir af helztu drifkröft-
um forsetaframboðs hans á Suður-
landi. Björn Gíslason á Selfossi stýrði
fundinum. Indriði G. Þorsteinsson rit-
höfundur flutti ræðu og fleiri tóku til
máls.
„Margir stuðningsmenn mínir úr
öllum fiokkum halda enn hópinn og
sameinast um að beita sér fyrir að snúa
stjórnmálaumræðu á íslandi frávanda-
málum og svartsýni. Við viljum ekki að
fólk gangi með höfuðið í dökkum
skýjum, heldur komi niður á jörðina og
komi auga á þá möguleika sem landið
hefur upp á að bjóða. Að fólkið geti
nýtt þá möguleika með samtakamætti
sínum hvar í flokki sem það annars
stendur. Við viljum taka skref inn í
nýja tíma og láta ekki dægurþras
stjórnmálanna villa okkur sýn, heldur
gera okkur grein fyrir að við búum í
góðu landi.
Við erum skyidug til að nota tæki-
færið og búa land og þjóð undir betri
framtíð. Þess vegna er tími til kominn
að fá bjartsýni inn í umræður um land
og þjóð í stað bölsýni sem ríkt hefur í
þjóðmálaumræðupiallt of lengi.”
Albert staðfest.i frétt í Dagblaðinu í
gær þess efnis að stuðningsmenn hans
boði til landsráðstefnu á Hótel Sögu
laugardaginn 27. september. Búizt er
við fjölmenni víðs vegar af landinu til
skrafs og ráðagerða. Hann var að því
spurður hvort fundarhöldin væru for-
boði stofnunar nýrrar stjórnmálahreyf-
ingar:
11
,,Ég stefni ekki að stofnun nýs
stjórnmálafiokks. Hins vegar reynum
við að breyta hugarfari þjóðarinnar,
viljum gera okkar bezta til að fólk
horfi á björtu hliðar tilverunnar. ”
-ARH.
Badminton-
menn
funda
Formannafundur Badmintonsam-
bandsins verður haldinn á Hótel Esju 1
dag klukkan 14. Formenn badminton-
félaga og deilda eru eindregið hvattir til
að mæta á fundinn.
n
C7
VIL DU PA H0J*
SKOLE I DANMARK.
SA VÆLG: _ _ T
SNOGH0J
Nordiskfolkehoiskotó^
DU KAS cnMGGr0n?aLnLdE” and, Norden
'MENFERenSe°To" politiK, kunst mm.
gsss
- 'j) / KUnRoSvUSl5Dapril e.ler 5. ian. -25. aprl.
f XsAÍ fA fuere oplysninger hos^
ruu icvfliF OK-7000FREDERICIA
Húsnæði - Salur
um það bil 100 ferm salur óskast fyrir
félagsstarfsemi. Upplýsingar hjá auglýs-
ingaþjónustu Dagblaðsins í síma 27022.
H—743
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir
tilboðum í að steypa upp kyndistöðvarhús
á Seyðisfirði.
Útboðsgögn verða seld á kr. 10.000 hvert
eintak á skrifstofu Rafmagnsveitnanna
Laugavegi 118 Reykjavík frá og með
föstudegi 12. þ.m. og skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins á Egilsstöðum frá og með
mánudegi 15. þ.m.
Tilboðum skal skila 23. þ.m., en verki skal
ljúka eigi síðar en 15. des. n.k.
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR %ÁÍÍ
SKÚBÚÐIN LAUGAVEGi 100 - simi 19290
STAÐARFELL, AKRANESI - sw 93-1105.