Dagblaðið - 22.09.1980, Síða 20
20
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1980.
Iþróttir
Iþróttir
I
ð
Iþróttir
Iþróttir
Neal nýtti ekki vítaspymu sem
Liverpool fékk á „The DelF’
- brenndi af í fjarveru McDermott en meistararnir náðu jafntefli. Ipswich með þriggja stiga forskot
Englandsmeislarar Liverpool og
Southampton með Kevin Keegan í
broddi fylkingar skildu jöfn, 2—2, á
The Dell á suðurslröndinni á laugardag
í þeim leik 1. deildarinnar er mesta
athygiin beindist að á laugardag. Úr-
slitin voru i heildina litið sanngjörn þó
svo að Liverpool nýtti ekki vitaspyrnu,
sem liðið fékk minútu áður en David
Fairclough skoraði jöfnunarmark
liðsins með góðum skalla eftir að Phil
Neal hafði þeyst upp hægri kantinn og
gefið vel fyrir markið. Southampton
var sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum
og þá varð Clemence þrívegis að taka á
honum stóra sínum til að afstýra
marki.
Leikurinn hófst vel fyrir Liverpool
þvi strax á 9. mínútu skoraði Graeme
Souness laglegt mark eftir að hann
hafði tekið 30 metra sprett og snúið á
vörn Dýrlinganna. Spyrnti hann knett-
inum í gagnstætt horn, er hann var
kominn inn i vítateiginn. Ekki liðu
nema 7 minútur þar til Southampton
jafnaði metin. Eftir hornspyrnu tókst
Chris Nicholl, miðverði, að jafna eftir
darraðardans i markteignum.
Southampton náði betri tökum á
leiknum eftir því sem á hann leið og
markið lá i loftinu. >að koma á 33.
mínútu, en var ærið klaufalegt.
Ísraelinn Avi Cohen lagði þá boltann
beint fyrir fætur Phil Boyer, sem hafði
lítið fyrir því að skora. Clemence var
hins vegar ekki ánægður með frammi-
stöðu varnarmanna sinna og lét þá hafa
það óþvegið.
í siðari hálfleiknum snerist dæmið
algerlega við og það fór mjög i taugar
leikmanna Southampton að sjá að þeir
höfðu ekki þá yfirburði er einkenndu
leik liðsins i fyrri hálfleiknum. Á 55.
mínútu handlék McCartney knöttinn
innan vitateigs og dómari leiksins, sem
reyndar vakti undrun og gremju áhorf-
enda jafnt sem leikmanna út leikinn
fyrir undarlega dóma, dæmdi umsvifa-
laust vitaspyrnu. Terry McDermott,
vítaskytta Liverpool-liðsins, hafði
orðið að fara útaf í fyrri hálfleiknum
vegna meiðsla og kom Sammy Irwin í
hans stað. Það kom þvi í hlut Phil
Neal, fyrrum vítakóngs á Anfield, að
framkvæma spyrnuna. Það tókst hins
vegar ekki betur til en svo að knött-
urinn fór framhjá markinu. Áfallið
virtist ekki hafa mikil áhrif á leikmenn
liðsins því mínútu síðar náðu þeir að
jafna metin.
Lokakaflinn var mjög harður og sló
í brýnu á milli Kevin Keegan og fyrrum
félaga hans. Fékk Keegan gult spjald á-
samt nokkrum öðrum, fyrir að sparka
Ray Kennedy niður aftan frá. Phil
Thompson var ekki ánægður með
aðfarirnar og sendi Keegan tóninn og
um tima leit út fyrir að þeir ætluðu í
hár saman. Greinilegt að ekki ríkir
neinn bróðurkærleikur með þessum
fyrrum félögum. Southampton-liðið
virðist þegar hafa tapað þeim frískleika
er einkenndi liðið í fyrstu leikjunum og
það var spá undirritaðs þá og er enn að
liðið verði ekki á meðal þriggja efstu
liða er upp verður staðið í vor. En litum
á úrslitin:
l.deild
Aston Villa-Wolverhampton 2—1
Birmingham-West Bromwich I —1
Brighton-Norwich 2—0
Everton-Crystal Palace 5—0
Ipswich-Coventry 2—0
Leeds-Manchester Utd. 0—0
Manchester C.-Stoke 1—2
Middlesbrough-Arsenal 2—1
Nottingham Forest-Leicester 5—0
Southampton-Liverpool 2—2
2. deild
Blackburn-Grimsby 2—0
Bolton-Swansea 1—4
Bristol City-Notts. County 0—1
Cardiff-Bristol Rovers 2—1
Chelsea-Preston 1 — 1
Derby-Wrexham 0—1
Luton-Orient 2—1
Newcastle-Oldham 0—0
Sheffield Wed.-QPR 1—0
Shrewsbury-Cambridge United 2—1
West Ham-Watford 3—2
3. deild
Barnsley-Swindon 2—0
Blackpool-Brentford 0—3
Charlton-Colchester 1—2
Chester-Burnley 0—0
Chesterfield-Newport 3—2
Fulham-Walsall 2—1
Huddersfield-Sheffield U. 1—0
Hull City-Portsmouth 2—1
Millwall-Exeter 1—0
Oxford Utd.-Carlisle 1—2
Plymouth-Gillingham 4—1
Rotherham-Reading 2—0
4. deild
Doncaster-Southend 1—0
Northampt.-York C. 2—0
Scunthorpe-Stockport 2—0
Tranmere-Torquay 1—0
Aldershot-Mansfield 1—0
Crewe-Halifax 2—1
Hartlepool-Hereford 2—0
Peterbor.-Bournem. 1—0
Port Vale-Darlingt. 4—2
Rochdale-Bradford C. 0—2
Wigan-Bury -2—1
Wimbledon-Lincoln 0—1
Leicester á eftir að vera i basli með
að halda stöðu sinni i deildinni og fékk
nú sinn annan 0—5 skell í röð. Það var
þó fátt sem benti til slíks stórsigurs
framan af því Mark Wallington varði
eins og hetja i markinu og eigi sjaldnar
en þrivegis sýndi hann snilldartilþrif.
Honum tókst þó ekki að ráða við skot
Frankie Gray á 24. mínútu og þannig
var staðan, 1—0, fram á 72. mínútu er
Larry May braut óþarflega á einum
sóknarmanna Forest innan vítateigs.
John Robertson skoraði örugglega úr
spyrnunni og í kjölfarið fylgdu þrjú
mörk Forest. Gary Birtles bætti þriðja
markinu við á 80. mínútu, þá skoraði
Gary Mills, en hann kom inn á sem
varamaður og á 88. mínútu skoraði
Birtles aftur og auðmýking Leicester
var alger. Forest-liðið er afar sterkt á
heimavelli, rétt eins og Liverpool, en á
i basli áútivöllum.
Crystal Palace fékk svipaða útreið
og Leicester gegn Everton á Goodison
Park. Everton-liðið er í mikilli framför
og leikur nú stórgóða knattspyrnu. Það
gerir Palace reyndar líka ef svo ber
undir og menn undrast að liðið skuli nú
sitja á botni deildarinnar. Ekkert mark
var gert i fyrri hálfleiknum og fyrsta
markið kom ekki fyrr en á 58. minútu
er Bob Latchford, sem ekki hefur skor-
að allt of reglulega að undanförnu,
ikoraði gott mark. Hann bætti siðan
tveimur mörkum við á næstu 10
mínútum og fullkomnaði þrennu sína.
John Gidman skoraði siðan úr vita-
spyrnu og síðan bætti Peter Eastoe við
marki — hans sjötta i haust.
Manchester City, sem íslenzkir
sjónvarpsáhorfendur sáu leika
prýðilega gegn Forest á laugardag,
tapaði enn — nú fyrir Stoke, sem spáð
var falli af flestum enskum blöðum,
áður en keppnistímabilið hófst. Adrian
Heath gerði sér lítið fyrir og labbaði í
gegnum vörn City á 35. mínútu á laug-
ardag og sendi siðan á Loek Uresem,
sem skoraði. Aðeins fjórum mínútum
siðar sendi Ursem á Paul Champman
sem skoraöi annað mark Stoke. Dennis
Tueart minnkaði muninn á 44. minútu
með ágætu marki en ekki tókst City að
jafna metin í síðari hálfleiknum. Þó
fékk Kazimirez Deyna dauðafæri á 90.
minútu — ,,an absolute sitter” eins og
BBC orðaði það — en tókst ekki að
skora. Kevin Reeves lék ekki með City
og við það vantaði mikið bit i sóknina
hjá Maine Road-liðinu, sem hlýtur þó
að fara að rifa'sig upp úr drómanum.
Ipswich hefur nú náð þriggja stiga
forskoti á næstu lið í deildinni eftir 2—
0 sigur á Coventry og auðvitað var það
Johnnie Wark, sem skoraði bæði
mörkin. Hann hefur nú gert 6 mörk í
síðustu tveimur leikjum liðsins og þaö
þó hann leiki ekki stöðu framherja. Er
reyndar sóknartengiliður hjá liðinu.
Coventry hélt út í 57 mínútur en það
var einkum stórbrotin markvarzla Les
Sealey, sem hélt liðinu á floti. Hann
réð þó ekki við tilraunir Wark á 57. og
64. mínútu og Anglíu-liðið siglir nú
lygnan sjó á toppi deildarinnar. Hins
vegar virtist toppsætið hafa dálítið
taugaálag í för með sér fyrir Ipswich
því leikmenn liðsins voru engan veginn
sannfærandi framan af. Um leið og
fyrra markið hafði litið dagsins ljós var
aldrei nein spurning um hvar sigurinn
hafnaði.
Gamla kempan Emlyn Hughes varð
fyrir þvi óláni að senda knöttinn í eigið
net strax á 4. mínútu leiks Aston Villa
og Úlfanna á Villa Park. Tony Morley
brunaði þá upp kantinn og þrumaði
fyrir markið. Boltinn skauzt til í hálu
grasinu og small á fæti Hughes og,
þreyttist þaðan í netið án þess að Paul
Bradshaw gæti rönd við reist. Mel Eves
tókst að jafna fyrir Úlfana um miðjan
síðari hálfleikinn en David Geddis
skoraði sigurmark Villa skömmu siðar.
Hann hefur verið valtur i sessi í liðinu
frá því hann var keyptur frá Ipswich og
lengst af verið á sölulista. E.t.v. kemur
þetta mark honum á sporið á ný.
Allan Clarke stýrði Leeds í fyrsta
skipti á laugardag og mótherjarnir voru
ekki af lakara taginu — Manchester
United. Leikurinn var þó lengst af
slakur og það var ekki fyrr en í lokin
að smá fjör færðist í hann. Þá varði
Gary Bailey meistaralega frá Brian
Flynn og hinum megin sýndi John
Lucic enn stórbrotnari tilþrif er hann
varði frá Jimmy Greenhoff, sem var
aftur í fremstu víglínu hjá United.
Jordan er enn meiddur og Andy Ritchie
kemst ekki i lið.
Boro lagði Arsenal að velli á
Ayrsome Park í Middlesbrough með
mörkum þeirra Proctor og Armstrong
i síðari hálfleik eftir að Graham Rix
hafði fært Arsenal forystu i leiknum.
Mick Robinson og Gary Stevens
skoruðu mörk Brighton gegn Norwich
og Brighton vann þar með sinn fyrsta
sigur í 6 leikjum. Birmingham og
Albion deildu stigunum á St.
Andrews’. Givens skoraði fyrir heima-
liðið en Alistair Brown fyrir gestina,
sem þurfa þó ekki annað en að taka
næsta strætó til að komast á St.
Andrews . Tottenham og Sunderland
skildu jöfn i marklausum leik á White
Hart Lane og eftir að hafa gert átta
mörk i fyrstu þremur leikjum sínum
hefur Tottenham ekki fundið leiðina í
mark andstæðinganna. Nú þrjú
markalaus jafntefli í röð. Beztu færi
leiksins fékk Bryan „pop” Robson á
27. minútu en Barry Daines varði mjög
glæsilega frá honum.
í 2. deildinni heldur Blackburn sínu
striki og vann enn einn sigurinn um
helgina og hefur ekki fengið mark á sig
á heimavelli. Það voru þeir Garner og
Stonehouse sem skoruðu mörk iiðsins.
West Ham er komið í 2. sætið og náði
að sigra Watford og yfirvinna „timbur-
mennina” frá í leiknum gegn Castilla i
vikunni. Ekki höfum við nema einn
markaskorara í leiknum en nýliði að
nafni Barnes skoraði eitt marka
Hammers. Don Masson skoraði mark
County 8 mínútum fyrir leikslok en i
lokin var þeim David Rodgers hjá
Bristol og Rachid Harkouk hjá County
vikið af leikvelli. Pearson skoraði mark
Wednesday, sem er ofarlega á töflunni
— þökk sé heimavellinum. Þar voru þó
engir áhorfendur í stæðum gegn QPR
vegna fyrirmæla enska knatt-
spyrnusambandsins.
Staðan í deildunum er nú þannig.
-SSV.
l.deild
Ipswich 7 6 10 14—3 13
Nottm. Forest 7 4 2 1 15—5 10
Southampton 7 4 2 1 13—7 10
Liverpool 7 3 3 1 14—6 9
Everton 7 4 12 11—7 9
Aston Villa 7 4 12 8—7 9
Manch. Utd. 7 2 4 1 9—2 8
Sunderland 7 3 2 2 10—5 8
Arsenal 7 3 2 2 9—7 8
Tottenham 7 2 4 1 8—7 8
Middlesbrough 7 3 2 2 10—11 8
Coventry 7 3 13 8—8 7
WBA 7 2 3 2 7—8 7
Brighton 7 2 2 3 10—11 6
Birmingham 7 14 2 9—10 6
Stoke City 7 2 2 3 8—15 6
Wolves 7 2 14 5—8 5
Norwich 7 2 0 5 9—14 4
Leeds Utd. 7 12 4 5—12 4
Leicester 7 2 0 5 4—14 4
Manch. City 7 0 3 4 8—16 3
Crystal Palace 7 10 6 10—21 2
2. deild
Blackburn 7 5 2 0 13—4 12
West Ham 7 4 2 1 13—5 10
Notts. County 7 4 2 1 9—8 10
Swansea 7 3 3 1 10—6 9
Sheffield W. 7 4 12 8—5 9
Derby County 7 4 12 9—9 9
Oldham 7 3 2 2 7—4 8
Wrexham 7 3 2 2 10—8 8
Newcastle 7 3 2 2 7—10 8
Cardiff 7 3 13 10—10 7
Luton Town 7 3 13 8—10 7
Bolton 7 2 2 3 9—8 6
Orient 7 2 2 3 11 — 11 6
Chelsea 7 14 2 9—10 6
Watford 7 3 0 4 9—11 6
Preston 7 14 2 5—7 6
Shrewsbury 7 2 2 3 8—12 6
Cambridge 7 2 14 8—10 5
Grimsby 7 13 3 4—8 5
QPR 7 12 4 7—7 4
Bristol Rovers 7 0 4 3 4—11 4
Bristol City 7 0 3 4 3—7 3
enski
boltinn
meó eigin augum
Einstök ferð fyrir alla
knattspyrnuunnendur
Viö bjóöum áhugamenn um ensku knatt-
spyrnuna velkomna í einstaka knattspyrnuferð
til Englands.
Þrír stórleikir
7. okt. Liverpool - Middlesbro
8. okt. Manch. Utd. Aston Villa
11. okt. Manch. Utd. - Arsenal
Brottför 7. okt.
Verð kr. 310.000
Innifalið i veröi er flug til Glasgow, flutningur til
Manchester og gisting þar meö morgunverði,
íslensk fararstjórn og flutningur og miöar á
ofangreinda leiki.
Takmarkaö sætaframboö.
Samvinnuferóir-Landsýn
AUSTURSTRÆT112 - SÍMAR 27077 & 28899