Dagblaðið - 22.09.1980, Page 22
22
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1980.
FÓLK
Baldur Kristjánsson félagsmálafulltrúi BSRB:
Væri ekki að þessu
nema ég gœti hugs-
að mér prestsstarf”
— en Baldur snýr sér nú að guðfrœðinámi
,,Ég hef verið að gutla við
guðfræðinám tvo undanfarna vetur
og lokið þar nokkrum punktum,”
sagði Baldur Kristjánsson
félagsmálafulltrúi og blaðafulltrúi
BSRB, sem lætur af störfum um
næstu mánaðamót og helgar sig
guðfræðinámi. Baldur er raunar
þjóðfélagsfræðingur að mennt.
„Starf mitt er þess eðlis,” sagði
Baldur, ,,að ekki er með góðu móti
hægt að sameina það námi og því
hætti ég þessu ágæta starfio.1 reyni að
stunda guðfræðina. Þessi ákvörðun
hefur raunar talsverð áhrif á fjárhag
heimilisins en ég treysti á gæði konu
minnar, sem er í ágætu starfi.”
Eiginkona Baldurs er Jóhanna S. Sig-
þórsdóttir blaðamaður á Vísi.
En hvað veldur þvi að maður í á-
gætu starfi fer út í langt nám og
kostnaðarsamt, raunar með próf i
annarri háskólagrein?
,,Ég hef unnið fjögur ár hjá BSRB
og það er prýðilegt starf. En ég væri
ekki að þessu nema ég gæti hugsað
mér preststarf. En hvað varðar fram-
tíðaráætlanir þá læt ég mér nægja
guðfræðinámið.”
-JH.
Baldur Kristjánsson
„Hlakka bœði til
og kvíðifyrir”
— segir Svanhildur Halldórsdóttir sem tekur við starfifélagsmálafull-
trúa BSRB
,,Ég hlakka bæði til þess að taka að!
mér þetta nýja starf og kvíði fyrir,”
sagði Svanhildur Halldórsdóttir, sem
tekur við starfi félagsmálafulltrúa
BSRB af Baldri Kristjánssyni. ,,Ég
býst við að þær tilfinningar séu hjá
iflestum við breytingar á starfi. Þær
valda breytingum á lífi manna.
'Maður veit hvað maður hefur, en
ekki að hverju maðurgengur.”
4
Svanhildur Halldórsdóttir.
Hestir kannast að líkindum við
Svanhildi Halldórsdóttur eftir störf
hennar sem kosningastjóra Vigdísar
Finnbogadóttur i forseta-
kosningunum í sumar. Starf hennar
var nokkuð öðru vísi en hefðbundin
störf kosningastjóra, en enginn deilir
um að góður árangur náðist.
,,Ég hef verið viðloðandi Hag-
stofuna allt frá árinu 1958 og hef
verið þar í hálfu starfi fráárinu 1975.
Það er því eins og að flytja úr gömlu
hverfi að fara þaðan.
Ég var hvött til þess að sækja um
þetta starf og ákvað að gera það eftir
vandlega umhugsun og marga fjöl-
skyldufundi. Það er erfitt fyrir
okkur konur að taka að okkur slik
störf vegna barnanna. Konur eru á-
sakaðar fyrir að taka ekki þátt í at-
vinnulífinu, en síðan þegar þær hafa
tekið að sér tímafrek störf þá eru
þær ásakaðar fyrir að láta heimilið
sitja á hakanum.”
En hvað gerir félagsmálafulltrúi
BSRB?
„Starfið er fjölþætt, m.a. fólgið i
því að túlka sérsamninga og hafa
tengsl við félaga BSRB, fundaritun
og fleira. Ég mun vinna eina viku
með Baldri til að byrja með, þannig
að þetta lærist vonandi allt með
tímanum.”
-JH.
/ tUefnifimm ára afinælis Jazzvakningar:
Bandaríski bassaleikarinn Bob Magnusson
leikur á þrennum tónleikum í
Stööfirðingar
eiga sinn
KK-sextettinn frægi lagði upp
laupana fyrir mörgum árum og
verður tæpast endurreistur héðan af.>
Stöðfirðingar hafa væntanlega séð,'
að viö svo búið mátti ekki standa.
Þeir hafa því komið sér upp sínum
KáKá, sem að visu er tríó.
í bréfi, sem Fólk-síðunni barst að
austan, segir meðal annars að KK-
trióið — eða Tríó Kára Kristinssonar
eins og það heitir fullu nafni — hafi
spilað vítt og breitt um Austurland
síðastliðinn vetur og sé nú að taka til
starfa á ný eftir sumarfrí. „Þeim
KáKá
hefur tekizt að skemmta öllum með
fjölbreyttu lagavali og fjörlegri sviðs-
framkomu. Einnig hefur vakið at-
hygli frumsamið efni, sem þeir flytja,
en slikt er fátítt meðal austfirzkra
hljómsveita,” sagði meðal annars í
bréfinu.
Hljómsveitina skipa þeir Kári
Kristinsson, sem spilar á trommur;
Garðar Harðarson bassa — og
hljómborðsleikari og söngvari og
Páll Ásgeirsson, sem leikur á gitar og
syngur.
Afmælisgjöf Jazzvakningar til
félagsmanna sinn og annarra
jazzunnenda eru þrennir tónleikar
bandaríska bassaleikarans Bobs
Magnusson. Með honum leika fjórir
góðkunnir islenzkir jazzistar, þeir
Rúnar Georgsson, Guðlaugur
Ingólfsson, Guðmundur Steingrims-
son og Viðar Alfreðsson.
Bob Magnusson er 33 ára gamall.
Hann kemur úr mikilli tónlistar-
fjölskyldu og hóf að leika jazz nitján
ára gamall. Hann er í hópi virtustu
bassaleikara vestanhafs og hefur
leikið inn á plötur með fjölda frægra
manna. Nýlega sendi hann frá sér
sína fyrstu sólóplötu, Revelation, og
er nú í óðaönn að undirbúa
upptökur á þeirri næstu ásamt
kvaneui sínum. Bob er búsettur í Los
Angeles.
Fyrstu tónleikar jazzflokksins
verða annað kvöld í veitingahúsinu í
Glæsibæ. Næstu tvö kvöld á eftir
leika þeir á Hótel Loftleiðum.
Ætlunin er að hljóðrita leik þeirra
fimmmenninganna fyrir útvarp.
Bob Magnusson áættiraó rekja til íslend-
inga. Þeð hefur lengi verið draumur hans
e0 koma i slóðir forfeðra sinna og tók
hann þvi þvi vel að verða afmælisgestur
Jazzvakningar. Ljósm.: Árni Þórarinsson.
Væntanlega verður einnig gerður
sjónvarpsþáttur með þeim, auk þess
sem þeir hljóðrita hljómplötu til
minja um þessa fimm ára afmælis-
tónleika Jazzvakningar.
Á efnisskránni verða lög eftir Bob
Magnusson og islenzk þjóðlög í út-
setningu Gunnars Reynis Sveins-
sonar.