Dagblaðið - 22.09.1980, Side 33
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1980.
33
nýjar bækur — nýjar bækur — nýjar bækur — nýjar bækur — nýjar bækur —
Bóka Snjólaugar Bragadóttur er ætlð beöið meö eftirvæntingu, en sú nýjasta heitir
Dægurlagasöngkonan dregur sig i hlé og kemur út hjá Erni & örlygi.
nýja bók eftir Snjólaugu Bragadóttur
sem ber nafnið Dægurlagasöngkonan
dregur sig f hlé.
Jón Birgir Pétursson heldur áfram
að skrifa sakamálasögur, bætir við
bókinni Einn á móti milljón. Örlygur
vildi einnig vekja athygli á þýddri bók
eftir Bretann Dominic Cooper sem er
skáldsaga um Sunnevumálin hér á 19.
öld, en þessi höfundur er vel látinn, í
heimalandi sínu. Siðan verður annað
bindi af Steingríms sögu gefið út og
sömuleiðis viðtalsbók við Stefán
frá Möðrudal, skráð af Pjetri
Hafstein Lárussyni og nefnist hún
Fjallakúnstner segir frá. Svo er það
Heimsmetabók Guinness sem Örlygur
segir nú vera orðna meir islenska en
erlenda, því inn i hana hefði verið bætt
fjölda islenskra staðreynda til saman-
burðar fyrir þá sem nota vildu bókina.
Loks gefa örn & örlygur út íslenskar
tónmenntir eftir Dr. Hallgrím Helga-
son, en fyrir það verk hlaut hann ný-
lega verðlaun í Þýskalandi. Kvað Ör-
lygur þá bók hafa verið lengi í vinnslu
því ekki hefði verið hægt að prenta
nótur á Íslandi. Verður sú bók gefin út
í takmörkuðu upplagi. „Svo eru það
fastir liðir eins og Þrautgóðir á rauna-
stund sem Steinar J. Lúðvíksson tekur
saman,” sagði Örlygur Hálfdánarson
að lokum. Ekki má gleyma barnabók-
unum, en í ár leggja Örn & Örlygur
mest kapp í að kynna bók Jan Pien-
kowskis, Draugaspaug, sem sögð er ein
mest selda barnabók í heimi.
Iðunn
Iðunn verður atkvæðamesta for-
lagið á bókamarkaðinum í ár með
u.þ.b. 130 bækur og er þegar komin út
bókin um Sævar Ciesielski eftir Stefán
Unnsteinsson. Iðunn gefur út a.m.k.
þrjár nýjar islenskar skáldsögur, Ljós-
tollur eftir Ólaf Gunnasson, höfund
Milljón prósent manna, Læknamafían
eftir Auði Haralds sem ber undir-
Ný Ijóöabók eftir Hannes Pétursson er
ávallt viöburður. Iðunn gefur út „Heim-
kynni við sjó” eftir skáldið.
Marilyn French er umdeildur rit-
höfundur, en nú hefur skáldsaga hennar
Kvennaklósettið verið þýdd og kemur út
hjá Iðunni f haust.
titilinn „lítil pen bók”. Gunnar
Gunnarsson sendir frá sér aðra bók um
lögreglumanninn Margeir sem nefnist
Margeir og spaugarinn og ein frum-
samin Ijóðabók kemur út hjá for-
laginu, Heimkynni við sjó eftir
Hannes Pétursson. Jón Helgason sér
um Öldina sextándu, fyrri hluta og
Sverrir Haraldsson myndskreytir
heildarútgáfu af ljóðum Sigfúsar
Daðasonar. Gils Guðmundsson heldur
áfram með Mánasilfur II, safn endur-
minninga og Ólafur Jónsson ritstýrir
greinasafni Ásgeirs Hjartarsonar.
Jóhann Páll sagði að Iðunn mundi
gefa út 5 nýjar íslenskar barnabækur,
þ.á.m. nýja bók um þá Jón Odd og
Jón Bjarna eftir Guðrúnu Helga-
dóttur, bók eftir Magneu frá Kleifum
er nefnist Krakkarnir i Krummavík og
Hreiðar Stefánsson sendir frá sér
Grösin í glugghúsinu. Þýddar bækur
eru fjölbreytilegar hjá Iðunni í ár. Þar
má nefna Kvennaklósettið eftir
Marilyn French sem Elísabet Gunn-
arsdóttir þýðir og bók eftir perúvíska
rithöfundinn Manuel Seorza sem
nefndur hefur verið í tengslum við
Nóbelsverðlaun. Nefnist hún Rancas,
— þorp á heljarþröm og hefur Ingi-
björg Haraldsdóttir þýtt bókina. Sér-
staks eðlis er bókin Grænlensk dag-
bókarblöð eftir Tómas Fredriksen,
Grænlending sem hélt dagbók fyrir
sjálfan sig uns einhverjum datt í hug að
koma henni á framfæri í Danmörku.
Kemur bókin samtímis út hjá Iðunni og
Læknamafian heitir hin nýja bók Auðar
Haralds og ber hún undirtitilinn „iitil og
pen bók”. Hér sést höfundur fagna fyrri
bók sinni. Iðunn gefur út.
mm
Gyldendal i Danmörku og hefur
Hjálmar Ólafsson þýtt íslensku útgáf-
una.
Iðunn verður með mikið af þýddum
barna- og unglingabókum að venju.
Vinsælir höfundar eins og Ole Lund
Kirkegaard og Sven Otto S verða á-
fram á dagskrá, auk þess bók eftir
hollendinginn Jan Terlouw og svíann
Marx Lundgren. Sígild ævintýri þeirra
H.C. Andersens og Grimmsbræðra
verða einnig gefin út í vönduðu formi.
Loks gefur Iðunn út bókina Dalur
dýranna í samvinnu við Alþjóðlega
Náttúruverndarsjóðinn, en þar er
fjallað um þau dýr sem nú eru
annaðhvort útdauð eða standa tæpt í
iífríkinu. Hafa þeir Örnólfur
Thorlacius og Þrándur Thoroddsen
þýtt texta bókarinnar.
Skuggsjá
Skuggsjá gefur út svipað og í fyrra
að sögn OÍivers Steins. Af skáldverkum
gefur forlagið út Smásögur eftir
Fríðu A. Sigurðardóttur og skáldsögu
eftir Ásgeir Jakobsson, Grims sögu
trollaraskálds. Skuggsjá gefur einnig
út viðtalsbók Jóhannesar Helga við
Slgfús Halldórsson og smásögur
eftir Einar Benediktsson. Annað
íslenskt efni eru sagnaþættir og
Þriðja bindi æviminninga eða „essay-rómana” Halldórs Laxness kemur út hjá
Helgafelli.
Viðtalsbókar þeirra Jóhannesar Helga
og Sigfúsar Halldórssonar er beðið af
mörgum aðdáendum tónskáldsins.
Skuggsjá gefur út.
fróðleikur ýmiss konar m.a. eftir Gísla
Kristjánsson, Eirik Sigurðsson og
Lárus Jóhannesson. Að venju gefur
Skuggsjá einnig út mikið af þýddum
bókum, ævintýrum og ástarsögum.
Setberg
Setberg tekur svipaðan pól í
hæðina. Þar eru fræðibækur, heimild-
arrit og þjóðlegur fróðleikur í fyrir-
rúmi, auk þýddra bóka fyrir börn og
unglinga. Gylfi Gröndal skráir
ævisögu verkakonunnar Jóhönnu
Egilsdóttur og Guðmundur Danícls-
son á viðtöl við marga merka menn og
konur i bókinni Jarlinn af Sigtúnum
og fleira fólk. Setberg gefur út margar
matreiðslu- og handbækur, m.a. 300
drykkir eftir Símon Sigurjónsson og
heldur auk þess áfram að gefa út
Nóbelshöfunda, nú Isaac Bashevis
Singer í þýðingu Hjartar Pálssonar.
Bækur frá Setbergi munu verða yfir 30
talsins að sögn Arnbjarnar Kristins-
sonar.
Helgafell
Loks er það Helgafell sem fer var-
lega i sakirnai í ár. Þeirra stóra bók er
að sjálfsógðu hið nýja verk Halldórs
Laxness og þar verða einnig gefnar út
nýjar skáldsögur þeirra Þorsteins frá
Hamri, í Skírisskógi og Guðbergs
Bergssonar, Sagan af Ara Fróðasyni
sem áður er nefnd. Helgafell heldur
sömuleiðis áfram að gefa út sigiíd
íslensk verk meö myndskreytingum.
Nú er það Njála með myndum þeirra
Þorvaldar Skúlasonar og Gunnlaugs
Scheving og Ijóð Jóns Helgasonar,
Áfangar með myndum Braga Ásgeirs-
sonar.
Fleiri forlög og bækur mætti að
sjálfsögðu nefna til viðbótar, en þau
munu væntanlega verða kynnt seinna.
-Al.
JÁRNIDNADARMENN AÐST0ÐAR-
MENN 0GÍEÐA LAGTÆKIR MENN
óskast sem fyrst á þunnplötudeild
okkar. Mötuneyti á staönum. VELSMIÐJAN
Upplýsingar hjá yfirverkstjóra. HÉÐINN H/F
Simi 24260.
Köbenhavns StrygekvartettSBSafr
heldur tónleika í Norræna húsinu mánudaginn 22. september
kl. 20.30. Á efnisskrá verða verk eftir W.A. Mozart (K. 590),
Niels W. Gade og L.v. Beethoven („Heiliger Dankgesang”,
op. 132). Aðgöngumiðar seldir í kaffistofu hússins og við inn-
ganginn. Norræna húsið
Styrkið og fegrið /íkamann,
Ný 4ra vikna námskeið hefjast 29. sept. Leikfimi fyrir konur á öllum aldri.
Hinir vinsælu HERR ATÍM AR í hádeginu.
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt jóga og megrandi
æfingum.
Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira.
Sértímar fyrir eldri dömur og þær sem eru slæmar i baki eða þjást af
vöðvabólgum.
Vigtun — mæling — sturtur — ljós — gufuböð — kaffi
Innritun og upplýsingar alla virka daga frá kl. 13—22 í síma 83295.
Júdódei/d Ármanns
Ármúla 32.