Dagblaðið - 17.10.1980, Side 12

Dagblaðið - 17.10.1980, Side 12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 1980. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17.0KTÓBER 1980. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Éþróttir íþróttir íþróttir Iþróttir Iþróttir I - Janus Guðlaugsson i leik með Fortuna Köln. Sigurður Sverrisson skrifar f rá Köln í Vestur-Þýzkalandi: „Mitt mottó er að hafa gaman af lífinu og fá eitthvað út úr þvf’ — segir landsliðsmaðurinn í knattspy rnu, f viðtali við Dagblaðið í Köln í síðustu viku Málar í f rístundum ,,Ég læt hverjum degi nægja sina þján- ingu. Auðvitað hef ég minar framtiðar- áætlanir og ætla mér eitt og annað en ég geri mér far um að hafa ekki áhyggjur af morgundeginum. Þú nærð ekki að einbeita þér að verkefnum dagsins i dag ef þú ert með hugann við eitthvað sem er að gerast á morgun”. Þannig fórust Janusi Guðlaugssyni orð er ég hitti hann að máli sl. miðvikudag á heimili hans í Frechen, rétt utan Kölnar., þar sem hann býr ásamt konu sinni Sigrúnu og dóttur- inni Láru. Janus hefur um 15 mánaða skeið leikið með 2. deildarliðinu Fortuna Köln og það er mál manna, sem fylgjasl með knattspyrnunni hér að hann sé ein styrkasta stoð liðsins. Eftir að hafa séð hann á æfingu á fimmtudagsmorgun fór það ekki á milli mála að Janus var einn af lykilmönnunum. örðugleikar hjá okkur í haust „Okkur hefur ekki gengið nógu vel í 2. deildinni í haust, a.m.k. ekki í saman- burði við startið, sem við fengum í fyrra. Við höfum misst leikmenn vegna meiðsla, fengið nýjan þjálfara sem ég reyndar kann mjög vel við, ogþá tel , g einnig að félagið hafi keypt vitlausl, þ.e. keypt leikmenn í rangar stöður. Það eru nú 22 atvinnumenn á skrá hjá félaginu og hafa aldrei verið fleiri. Það eru því tveir um hverja stöðu hjá okkur. Það er erfitt í rauninni að finna einhverja skýringu á gengi liðsins, en sú líklegasta er einfald- lega sú að liðið er ekki eins gott og í fyrra. Þó gekk okkur ágætlega t.d. í æfingaleikjum og unnum t.d. Belgíu- meistara FC Brugge 3—0, en siðan virð- ist herzlumuninn hafa vantað hjá okkur.” | Allt önnur knattspyrna Janus kom til Kölnar-liðsins í júní- mánuði í fyrra og ætlaði þá jafnframt því að leika knattspyrnu að reyna að komast að við fþróttaháskólann -í Köln. Það hefur gengið hálf brösulega enda mikil sókn í skólann og gífurlega miklar kröfur gerðar. Hann komst fljótt i aðalliðið hjá Fortuna og hefur síðan verið lykilmaður hjá félaginu. Reyndar átti hann við slæm meiðsl i læri að stríða til að byrja með, en náði sér síðan á strik. Það kemur í raun ekki á óvart að Janus skuli vera einn burðarása Fortuna. Eftir að hafa spjall- að við hann eina kvöldstund er það aug- ljóst að metnaður hans og ákveðni á sér fáa lika. „Knattspyrnan hérna er svo gerólík því sem við eigum að venjast á íslandi að það er í raun ekki rétt að bera það isaman. Hérna gengur allt út á að láta hlutina ganga einfalt fyrir sig. Knöttur- inn gengur frá manni til manns og oftast er þetta bara ein snerting. Það er ekki verið að gera þetta erfiðara.Boltinn er látinn vinna miklu betur og þú hreyfir þig meira um leið og ert meira í snertingu við leikinn. Það er hugsun á bak við hverja hreyfingu og sendingu. Þó okkur hafi e.t.v. ekki gengið nógu vel hérna hef ég fengið góða krítik í blöðunum og ég geri mér vonir um að komast í Bundes- líguna og það má eiginlega segja að hún sé farin að banka á dyrnar hjá mér. Hins vegar geri ég ekki ráð fyrir að þau mál skýrist fyrren um jólaleytið.” hefur trú á Guðni okkur Spjallið barst inn á aðra braut og við ræddum um Iandsleikinn eftirminnilega gegn Tyrkjum og síðan i beinu framhaldi af því um stöðu landsliðsins í dag. „Það er ekki gott að segja hvers vegna okkur hefur gengið svo miklu betur nú i sumar en t.d. siðastliðin tvö ár á meðan Youri llitschew var með okkur. Ég get ekki sagt það að ég finni einhvern mun á menntun þessarra tveggja manna, Guðna og Youri. A.m.k. tókst Youri ekki að segja okkur neitt meira en Guðni hefur gert í sumar, en meginmunurinn liggur að mínu mati í því, að Guðni hefur tröllatrú á þeim strákum, sem hann velur. Hann treystir okkur fyrir þeim verkefnum sem við tökumst á við en ég er ekki svo viss um að Youri hafi gert það. Leikmenn finna það strax að traust er borið til þeirra og það endurgjalda þeir með betri leik. Ekki þar fyrir, við áttum ágæta leiki á meðan Youri var með landsliðið en við skoruðum bara ekki mörk: Þau hafa hins vegar komið í sumar. Ég held að það skipti litlu máli i sjálfu sér hvaða 11 einstaklingar þessara rúmlega 20, sem koma til greina, skipa liðið hverju sinni. Við náðum góðum leikjum í Sviþjóð, Noregi og Tyrklandi með atvinnumönnunum, en síðan voru þeir ekki til staðar gegn Rússunum. Árapgurinrr Vár engu að síður prýðis- góður þó svo tap hafi orðið raunin á. Það skiptir öllu máli að menn hafi sjálfs- traust og þeim sé treyst til að gera góða hluti. Hugarfarið skiptir óskaplega miklu sé það ekki rétt er vonlaust að vænta árangurs. Það hefur gerzt í auknum mæli í síðustu leikjum, að við höldum boltan- um meira en áður hefur verið. Þetta gefur mönnum tíma til að róa sig aðeins niður og byggja síðan skipulega upp. Það verður erfitt að finna meiri tíma fyrir landsliðið en verið hefur. Keppnis- tímabilið heima er svo stutt og það er eiginlega ógjörningur. Nú, ef þeir æda að nota okkur sem erum hérna úti, hafa þeir ekkert við langan undirbúningstíma að gera því við getum yfirleitt ekki komið nema 2—3 dögum fyrir leik. Mér finnst þó muna mikið um einn dag í undirbún- ingi hjá liðinu því menn ná miklu betur saman með örlítið lengri undirbúningi.” Aftur ventum við okkar kvæði i kross og blm. spurði Janus hvað hann gerði í frístundum sínum hér í Þýzkalandi. „Ég mála mikið en hef samt ekki eins mikinn tíma til þess og ég hefði viljað. Ég málaði miklu meira heima því þar var meiri frítimi.” Ég fékk að skoða nokkrar mynda hans, auk þeirra er hanga á veggj- um uppi og það verður að segjast alveg eins og er að Janus er liðtækur málari. ,,Ég hlusta einnig mikið á plötur og set alltaf tvær ákveðnar plötur á fyrir leiki til þess að koma mér í rétt skap. Mér hefur gefizt það vel og kem til með að halda því áfram. Þá hef ég hugsað mér að nota eitthvað af fritímanum til að undirbúa mig undir svonefnt „Fussball Lehrer” — próf héðan úr iþróttaháskól- anum og ég geri mér vonir um að ná því síðar meir. Þetta próf er nú algert skil- yrði fyrir menn, sem vilja þjálfa í Bundesligunni. Ég er ekkert farinn að hugsa út í þetta frekar, en ætla bara að bíða átekta og sjá hvernig þróunin verður”. Lœt handboltann vera Flestir muna efalaust eftir því að Janus var um tíma landsliðsmaður bæði í knattspyrnu og handknattleik. Ég lagði þá spurningu fyrir hann hvort hann væri endanlega búinn að leggja handknattleik- inn á hilluna. „Já, ég hugsa það nú. Þetta fer ekki saman, a.m.k. ekki hérna úti þar sem keppnistímabilin í báðum greinum eru á sama árstíma. Heima fannst mér gott að vera i handboltanum yfir veturinn til þess að halda mér í æfingu en síðan setti ég mér það takmark að komast í landsliðið og það tókst. Ég gerði það mikið til þess að afla mér reynslu, sem hefur komið mér til góða hér úti þó ekki leiki ég hand- bolta hér. Reynsla er bara hlutur, sem ekkert getur komið í stað fyrir. Hún er geysilega dýrmæt ekki sízt þegar komið er út í atvinnumennsku. Hins vegar gæti 'ég alveg hugsað mér að þjálfa i hand- knattleik því ég hafði mikið yndi af því á meðan ég var i Hafnarfirðinum. Ég veit þó ekki hvers vegna. Bera saman hand- og fótbolta? Það er svo erfitt því þettta eru svo ólíkar greinar, sem frekast getur orðið. En það er víst að knattspyrnan er miklum mun erfiðari íþrótt, ef þú ætlar þér að verða toppmaður í henni. Það tekur þig ekki langan tíma að komast á toppinn í handboltanum: Visst álag fylgir peningunum Það er ekki hægt að neita því að visst álag fylgir peningunum og því að vera at- vinnumaður í knattspyrnu. Ég hef hins vegar mjög gaman af þessu — annars hefði ég aldrei farið út í þetta. Auðvitað fylgdu þessu ýmsir erfiðleikar í önd- verðu, en þeir eru einungis til að læra af þeim. Þeir eru hluti af hinni ómetanlegu reynslu. Nei, ég held ég eigi í sjálfu sér ekki neina sérstaklega minnisstæða leiki öðrum fremur hér úti en auðvitað kemur leikurinn gegn Tyrkjum fyrst upp í hug- ann þegar spurt er um minnisstæða leiki og markið mitt á að sjálfsögðu sinn þátt í því. Leikirnir hérna í 2. deildinni eru í raun allir mjög svipaðir þannig að það þarf eitthvað stórbrotið að gerast til þess að þeir verði minnisstæðir. Hver leikur hér er í raun eins og landsleikur hjá okkur heima. Það fer hálf vikan i að undirbúa hvern leik.” Er ekki á heimleið Nokkuð háværar raddir hafa heyrzt heima á íslandi þess efnis að Janus muni snúa heim í vor. Ég spurði hann hvort það væri raunin. ,,Nei, það held ég ekki. Það má þá eitthvað ákaflega óvænt koma upp á ef svo verður. Þó svo ég komist ekki í Bundesliguna i fyrstu til- raun tel ég mig hafa það svo gott hér hjá Fortuna að ég gæti allt eins dvalið hér áfram. Mér finnst bæði gott og gaman að vera hérna og ég hef það fyrir lífsmottó að fá eitthvað út úr lífinu. Gerirðu það ertu ánægður. Hafirðu ekki gaman af lífinu — til hvers ertu þá hér?” -SSv. CIBONA LEK A ANNARRIHÆÐ —Júgóslavamir sigruðu Val 110-79 ífýrri leik liðanna í Evrópukeppni bikarmeistara „Ég er ánægður með mína menn, við unnum leikinn á hæðinni og góðum skyndisóknum, en hins vegar held ég að við getum lofað betri leik annað kvöld. Beztu menn Vals í leiknum, fannst mér vera leikmenn númer 5 (Rikharður Hrafnkelsson) og 15 (Þórir Magnús- son, þeir hittu vel úr langskotunum” sagði þjálfari júgóslavneska liðsins Cibona Zagreb.Mirko Novosel, eftir að liðið hafði unnið Val 110—79 i fyrri leik liðanna i Evrópukeppni bikar- meistara i körfuknattleik f Laugardals- höll i gærkvöldi. í hálfleik var staðan 59—32. Alls ekki slæmur árangur hjá Val, þegar haft er I huga að Júgóslavar eru beztir allra þjóða Évrópu I körfuknatt- leik og hafa verið það undanfarin átta ár. Til samanburðar má geta þess að danska liðið Stevnsgade tapaði fyrir Bosna Sarajevo, sem einnig er frá Júgóslaviu, 69—121, í fyrri leik Uðanna i sömu keppni, en sá var leikinn i Kaup- mannahöfn. Án efa hefðu Valsmenn getað saumað enn betur að Júgóslövunum, ef Bandaríkjamenn þeirra, Ken Burrell og John Johnson, hefðu verið í stuði í leiknum. En því miður var því ekki fyrir að fara, Burrell hitti ákaflega illa og John Johnson virtist vera í frekar lélegri æfingu, skaut litið, en hitti hins vegar allvel. Islendingarnir stóðu hins vegar fyrir sínu. Taugaóstyrkur setti mjög mark sitt á leikinn í upphafi, og virtust Júgóslav- arnir ekki síður vera undir þá sök seldir. Þeir skoruðu fyrstu tvö stig leiksins og var þar að verki leikmaður númer 5, Aleksander Petrovic, en hann var mjög atkvæðamikill í leiknum. Torfi svaraði fyrir Val og siðan var aftur jafnt 4—4, áður en Júgóslavarnir settu í annan gír og skoruðu næstu sjö stig. Þar með var tónninn gefinn, þeir heldu áfram að raða inn stigum og Valsmenn læddu inn einu og einu stigi inn á milli. Eftir fjórar mínútur munaði fjórum stigum, 13—6 og átta mínútum síðar var munurinn orðinn 37—18. Áfram héldu „Júkkarnir” að breikka bilið og í hálfleik munaði 27 stigum, staðan 59—32 fyrir Cibona. I upphafi siðari hálfleiks náðu Vals- menn síðan sínum bezta kafla, hittnin var góð hjá þeim, en Júgóslövunum voru eitthvað mislagðar hendur í sókn- inni. Er þrjár mínútur voru liðnar af hálfleiknum var staðan 65—44 og hinir rúmlega þúsund áhorfendúr tóku nú við sér og áttu jafnvel von á að Vals- menn myndu láta kné fylgja kviði. En Valur náði ekki að minnka muninn frekar, þetta 21 stigs bil hélzt næstu mínúturnar og eftir átta mínútna leik var staðan 78—57. Upp úr því smájuku Júgóslavarnir forskot sitt og á 17. mínútu rufu þeir 100 stiga múrinn, staðan 100—72. Lokakaflinn var síðan eign þeirra. Þrátt fyrir að við ofurefli væri að etja sýndi Valsliðið góðan leik. Það er ekkert grín að hitta í körfuna með tveggja metra risa fyrir framan sig, en í liði Cibona voru sjö menn tveir metrar eða hærri. Það segir sína sögu að „dvergurinn’Mliðinuer 1,86! Ríkharður Hrafnkelsson og Þórir Magnússon áttu báðir góðan leik, skor- uðu fallegar körfur með skotum utan af vellinum, en það er e.t.v. táknrænt fyrir leikinn, að þegar Þórir reyndi körfuskot úr vinstra horni sínu í fyrri hálfleik, eftir að hafa skorað tvívegis í röð af sama stað, voru komnir tveir tveggja metra „Júkkar” á hann og vörðu skot hans. Þá áttu Torfi Magnússon og Kristján Ágústsson einnig góðan dag. Lið Cibona er gífurlega sterkt, á þvi er enginn vafi. En einhvern veginn fannst manni þeir aldrei taka á öllu sínu. Petrovic (nr. 5) sýndi afbragðs- leik, skoraði úr nánast öllum færum, en einnig voru þeir Nakic (nr. 4), Danik (nr. 8) og Usic (nr. 13) iðnir við kolann. Stig Vals: John Johnson 16, Ken Burrell 14, Torfi Magnússon 13, Kristján Ágústsson 12, Ríkharður Hrafnkelsson og Þórir Magnússon 10 hvor, og Jóhann Magnússon og Gylfi Þorkelsson 2 hvor. Stig Cibona: Petrovic 29, Nakic 18, Usic og Danik 16 hvor, Knego 11, Cosic 10, Gospodnetic 8 og Bevanda 2. -SA. Jóhann Magnússon skorar sin einu stig i fylgjast spenntir með leiknum meðan aðrir leikmenn DB-mynd: S. „Vinningurinn kemur sér vel í f ramhaldsnáminu” — sagði Kristinn Jónsson nemandi í Kennaraháskólanum Vióar Halldórsson æfði um tima hjá Fortuna Köln. Myndin var tekin á æfingu. Viðar til vinstri, Daninn Flemming f miðið og Janus til hægri. DB-mynd: Sigurður Sverrisson. „Vinningurinn kemur sér ákaflega vel núna, þvf ég og eiginkona mín erum i námi I framhaldsdeild Kennara- háskóla íslands. Hófum þar nám i haust eftir að hafa kennt þrjá vetur á Reykjaskóla. Það var mjög óvænt að fá þennan hæsta vinning i Getraunun- um”, sagði Krístinn Jónsson, kennari, þegar honum var afhent vinningsupp- hæðin i fimmtu leikviku Getrauna í haust — tvær milljónir sjö hundruð þrjátiu og átta þúsund fimm hundruð og fimm krónur á sl. miðvikudag. Hæsti vinningur, sem Getraunir hafa greitt út frá upphafi. Kristinn var með 12 rétta á átta raða seðli. Hann er kvæntur Sigurlaugu Bjarnadóttur og eiga þau tvær dætur. Kristinn er 27 ára. Um síðustu helgi fékk Selfyssingur enn hærri upphæð i Getraunum og aukning hjá Getraunum hefur verið um 130% i krónutölu — 50% f getraunaseðlum — frá því á siðasta starfsári. Kristinn var með alla leikina 12 rétta á átta raða seðli leikdaginn 20. septem- ber sl. Það var í þriðju röð seðilsins og Kristinn notaði ekkert kerfi. Fyllti út allar raðirnar eftir því, sem honum datt í hug. Notaði ekki teninga ogárangur- | inn varð þessi 5-7-12-6-6-5-5 og 4, það er fimm rétttir leikir í fyrstu röðinni. Fjórir réttir í þeirri síðari. „Ég fylgist talsvert með ensku knatt- spyrnunni í blöðum og sjónvarpi en hafði ekki tippað i þrjú ár, þegar ég byrjaði aftur í haust. Þetta var þriðji jseðillinn, sem ég hef verið með í haust. Ég vissi í hádeginu sunnudaginn 21. september eftir að tilkynning hafði verið lesin frá Getraunum í útvarpinu að ég var með 12 rétta. Það var talsverð spenna á mánudag, þegar ég beið eftir því hvort fleiri yrðu með 12 rétta. Svo varð ekki og vinningsupphæðin skiptir því verulegu máli. Hátt í þrjár milljón- ir”, sagði Kristinn. „Það hefur verið geysimikil aukning hjá Getraunum i haust — og um síðustu helgi voru raðir 156 þúsund. Hæst á síðasta starfsári voru 144 þúsund raðir. Það má því segja að það stefni í eina röð á hvern íbúa landsins. Þátttaka er mjög misjöfn eftir stöðum. í Reykjavík er þátttakan komin talsvert upp fyriræina röð á íbúa — voru yfir 120 þúsund síðast. Sama er að segja um Keflavík — þar voru sjö þúsund raðir. Hafnarfjörður er nálægt þvi að vera með eina röð á íbúa”, sagði Ólafur Jónsson, starfsmaður Getrauna, þegar Kfistni var afhent vinningsupphæðin á miðvikudag. Hann er eini fasti starfs- maðurinn hjá Getraunum en fimm stúlkur starfa við að fara yfir raðirnar á mánudögum. Sigurgeir Guðmannsson er framkvæmdastjóri Getrauna en i stjórn eru Gunnlaugur J. Briem for- maður, Sigurður Geirdal, Friðjón Friðjónsson, Gunnar Sigurðsson og Þorsteinn Einarsson. Um síðustu helgi var potturinn tæpar sex milljónir króna hjá Getraunum — aukning er mikil og almenn um allt landið. Ef svo stefnir sem horfir má fara að búast við mjög stórum vinningsupphæðum ef einhver verður svo heppinn að vera með 12 rétta einn eins og Kristinn Jónsson var 20. september sl. Kannski er von í sjö, átta, jafnvel níu milljón króna vinning, þegar nálgast jól.. Vinningar skatt- frjálsir. .hsjm. Kristni Jónssyni afhentur tékki að upphæð 2.738.505 kr. — hæsti vinningur, sem greiddur hefur verið út hjá Getraunum. Frá vinstri Kristinn, Sigurgeir Guðmannsson, Gunnlaugur Briem, Ólafur Jónsson og Sigurður Geirdal, fulltrúi UMFl, sem afhenti Kristni vinninginn. DB-mynd EÓ

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.