Dagblaðið - 17.10.1980, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17.0KTÓBER 1980.
7
Börn á okkar tímum:
Alin upp af vekjaraklukku og síma
— meðan f oreldramir stríta
Frá vinstri: Grétar Marinósson, Eðvald Sæmundson, Sigriður H. Jóhannesdóttir, Guðlaug Magnúsdóttir, Helga-Gunnars-
dóttir og Sigtryggur Jónsson, sálfræðideild skóla i Breiðholti. DB-mynd: Einar Ólason.
á landinu, þar sem foreldrar eru
burtu meira og minna allan daginn í
vinnu. Þetta er mjög algengt vanda-
mál. En þar sem er svona margt fólk
nýflutt i framandi umhverfi, verður
andrúmsloftið allt öðru vísi en til
dæmis í sjávarþorpi, þar sem fjöl-
skyldur eru ekki tvístraðar og allir
þekkjast og félagslegt aöhald og sam-
skipti eru meiri og grónari.
Rótleysi og
millibilsástand
Þeir fullorðnu eru síblankir, sifellt
með áhyggjur og öryggisleysi þeirra
endurspeglast í börnunum. Verðbólg-
an og óvissuástandið I þjóðfélaginu
almennt spiiar hér inn í, enginn veit
hvort vextirnir hækka á morgun,
hvort það verða verkföll, hvort rikis-
stjórnin er traust i sessi.
húsnæðið á markaðnum. En þó svo
dýrt að ekki veitti af að báðir for-
eldrar færu út að vinna eins fljótt og
mögulegt var. Og vegna þess að engir
vinnustaðir eru í hverfmu fer langur
tími í ferðir til og frá, engin leið aö
skreppa heim í hádeginu.
Og hvar eru staðirnir, sem börnin
hafa til að vera á á meðan? Hafa þau
matstofur, sundlaugar, bókasöfn eða
diskótek? Nei, ekki einu sinni skól-
arnir eru nógu stórir. Það verður að
þrísetja, og aukatímarnir dreifast yfir
allan daginn, svo skólatíminn slitnar I
DB-mynd Gunnar örn.
sundur. Skólataflan verður kolgötótt
og eldri krakkarnir eru aö koma og
fara og hanga og biða fram til klukk-
an sex ákvöldin.
Álagið á bðrnin er gífurlegt og
sömuleiðis á kennarana, sem flestir
vinna meira en fullt starf.
Breiðholtiö er langt í frá eini staður
, ,Ég er bara sex ára og það er eng-
inn heima og dagurinn er lengi að líða
hjá mér. Ég fer i skólann í einn' og
hálfan tima, en ég kann ekki alveg
rétt á klukku, svo ég veit ekki hvenær
ég á að leggja af stað. En pabbi eða
mamma hringja i mig úr vinnunni,
eða þau stilla vekjaraklukkuna, áður
en þau fara. Þá verð ég að finna tösk-
una mína og vettlingana og fara í
skóna og passa að það leki ekki úr
neinum krana eöa það sé kveikt
nokkurs staðar á rafmagninu. Svo á
ég að læsa íbúðinni, en ég má bara
ekki gleyma lyklinum, því þá kemst
ég ekki inn til mín aftur.”
Starfsmenn hjá sálfræðideild skól-
anna í Breiðholti voru þeirrar skoð-
nnar. að sex ára börnum væri ýtt
Mikilvægustu uppeldistæki nútimans.
óþarflega harkaiega út í lífið.
„AUt í éinu standa þessi litlu peð
frammi fyrir því að þjóðfélagið gerir
tíl þeirra auknar kröfur. Þau þurfa
að standa sig í skólanum, og hlýða
mörgum reglum, en jafnframt að
bjarga sér sjálf — kannske er það á
þessu stígi, sem rótleysi þeirra hefst.”
Hvar megum við vera?
Meðalaldur ibúa i Fellahverfmu er
um 22ja ára. Hingað hafa flutzt þús-
undir af ungum foreldrum með börn
sin, því hér var ódýrasta nýja íbúðar-
Eftirfarandi grein er byggð á
heimsókn í sálfræðideild
skóla í Breiðholtinu. Hún er
til húsa í Hólabrekkuskóla
og þar starfa fjórir sálfræð-
ingar og tveir félagsráðgjaf
ar. Þeirra hlutverk er að vera
ráðgefandi í sambandi við al-
menna líðan og tilfallandi
vandamál skólabarna í hverf-
inu, fjölskyldna þeirra og
kennara. Þeir eru Ijúfir og
velviljaðir, og foreldrum jafnt
sem börnum skal á það bent
að þeir eru fúsir að rœða öll
vandamál, sem tengjast á ein-
hvern hátt skólagöngunni.
Síminn er 77255.
„Kennararnir eru þreyttir, foreldr-
arnir úrvinda og börnin auövitað
lika,” segir Grétar Marinósson, for-
maður sálfræðideildarinnar. „Þetta
veldur andlegri vanlíðan hjá börnun-
um, firringu, sem þau vita ekki sjálf
hvaðan er sprottín, en sem verður að
fá útrás. Og það gerist á óheppilegan
hátt, m.a. með því aðbrjóta rúður.
Það ýtir enn undir rótíeysið að i
rauninni er Fellahverfið ekki staður,
þar sem fólk ætlar sér að setjast að.
Fyrir marga er það viðkomustaður á
leiðinni tíl betra lífs. Skýli, sem veitir
stundargrið. Millibilsástand.
Og auðvitað fylgja því ævinlega
vaxtarverkir þegar mikill mannfjöldi
flyzt á skömmum tíma í nýtt fjöl-
býlishúsahverfi.
Þannig er nú mikið talaö um að
skemmdarverk séu tíð í Breiðholti og
meðal annars fái strætisvagnasætín
aldrei að vera í friði.
Gömul saga
-ogný
En þeir sem hafa séð um viðhald á
Strætisvögnum Reykjavíkur á liðn-
um árum hafa séð slíkar skemmdir
fyrri. Á sínum tíma voru Voga-vagn-
arnir ilta útieiknir — og nú eru Vog-
arnir svo grónir og friðsælir að
maður getur ekki hugsað sér að þar
hafi nokkurn tímann verið ófrá-
gengnar gangstéttir.
Seinna urðu það Bústaðavagna-
sætín, sem ekki fengu aö vera i friði,
þá Álfheimarnir og loks Árbæjar-
vagnarnir. Þannig mætti rekja út-
þenslusögu Reykjavíkurborgar eftír
sætaviðgerðanótum SVR, aö minnsta
kosti að nokkru leyti.
Og rúðurnar sem brotnar eru í
skólum og öðrum opinberum bygg-
ingum Breiðholtsins fá áreiðanlega
að vera heilar í framtíðinni, þegar
börnin og unglingarnir hafa fengið
vistleg félagsheimUi, eins og þau eiga
fulla heimtíngu á.
Og einhver af lyklabörnunum sem
nú eru alin upp af vekjaraklukkum
og síma f Breiðholti verða sjálfsagt í
fyllingu tímans kvenráðherrar og
heimsfrægir listamenn, bankastjórar
og iöjuhöldar.
Kannske verður Fellahverfið orðið
fínna en Grjótaþorpið eftir fimmtiu
ár, friðað og eftírsótt.
En á meðan, hvað er hægt að gera
á meðan?
(Ráð frá sálfræöingunum: For-
eldrar og börn reyni að gefa sér tíma
til að sinna hvert öðru og muna að
gæði samverunnar skipta meiri máli
en magnið — og mest áríðandi er að
þau reyni að skilja hugsunarhátt
hvert annars.) -IHH
Sauðárkrókur:
Gáfu björg-
unarbúnað
Félagar i Kiwanisklúbbnum Drangey
á Sauðárkróki boðuðu fulltrúa björg-
unarsveitar Slysavarnafélags Íslands á
staðnum á sinn fund fyrir skömmu og
afhentu þeim björgunarbúnað fyrir
sveitína. Voru það súrefnistæki,
sjúkrabörur og loftspelkur. Kostuöu
tækin um 1100 þús. kr. og hafa lengi
verið á óskalista björgunarsveitarinnar.
Kiwanismenn söfnuðu fyrir gjöflnni
með samlokusölu á Sæluviku Skag-
flrðingasl. vetur.
Forseti Kiwanisklúbbsins Drang-
eyjar, Jónas Sigurðsson, tíl vinstri á
myndinni, afhenti Braga Skúlasyni for-
manni björgunarsveitarinnar þessa
ágætu gjöf.
Ókeypis
leiðbeiningar-
bæklingar
fylgja
Miklatorgi — Opið kl. 9—21.
Sími 22822
Haustiauka-
úrvaI
Túlípanar 6—10 stk. í pk. 1980 kr.
Páskaliljur 4 stk. í pk. 1980 kr.
Hýjasintur 4 stk. í pk. 1980 kr.
Crocus 15 stk. í pk. 1980 kr.
Aðrir smálaukar 10—15 stk. í pk. 1800 kr.
Jólahýasintur 900 kr. stk. , — 9 litir
Hýasintuglös 1000 kr. stk. 2 tegundir.
Sendum hvert á land sem er.
• HG, Sauflúrkrókl.