Dagblaðið - 17.10.1980, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 17.10.1980, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17.0KTÓBER 1980. Ljósmyndapappír plasthúðaður 1 miklu úrvali. 6 mism. áferðir, t.d. flos-matt, mjög falleg áferð i stórar stækkanir. Sama verðá öllum áferðum. Eifíum einnig litadan pappír, mjög hentugur f/auglýsingamyndir. Litir: Gulur—Rauður Silfur—Gull. Við eigum öll efni og tæki til Ijós- myndagerðar. Póstsendum Verð: Format. 9X13-100 bl. kr. 13X18- 25 bl. kr. 18X24- 10 bl. kr. 24X30- 10 bl. kr. 24X30- 50 bl. kr. 30X40- 10 bl. kr. 40X50- 10 bl. kr. 50X60- 10 bl. kr. 8.140.- 4.250.- 3.220.- 5.535.- 26.300.- 5.535.- 15.580.- 22.180. AMATÖR Ijósmyndavörur Laugavegi 55. Simi 12630. UPPBOÐ Samkvæmt ósk skiptaréttar Eskifjarðar verða eftirtaldar eignir dánarbús Gunnars J. Gunnarssonar, sem andaðist 10. febrúar 1980, boðnar upp og seldar, ef viðunandi boð fást, á opinberu uppboði, sem haldið verður föstudaginn 31. október 1980: 1. Kl. 10. Húseignin Strandgata 37A, Eskifirði, ásamt til- heyrandi lóðarréttindum. 2. Kl. 14. Landspilda utan við Bleiksá, ofan viðskrúðgarð á Eskifirði, um 14.000 ferm aðstærð. Up.pboðsskilmálar og önnur gögn, sem varða sölu eign- anna, eru til sýnis í skrifstofu embættisins. Sýslumaðurinn í Suður-Múlasýslu Bæjarfógetinn á Eskifirði 13. október 1980. KVIKMYNDIR 8 mm og 16 mm kvikmyndafilmur til leigu í mjög miklu úr- vali í stuttum og löngum útgáfum, bæði þöglar og með; hljóði, auk sýningarvéla (8 mm og 16 mm) og tökuvéla,1 m.a. Gög og Gokke, Chaplin, Walt Disney, Bleiki Pardusinn, Star Wars o.fl. Fyrir fullorðna m.a. Jaws, Deep, Grease, Godfather, China Town o.fl. Filmur til sölu og skipta. Ókeypis k vikmyndaskrár fyrirliggjandi. Opið alla; Kvikmyndamarkaðurinn da8a kl 1 —7 ■■B^HHSími 36521i Verkamenn óskast Uppl. í símum 83250 Og 75856 HÁRTOPPAR HÁRT0PPAFE8TINQAR Sérfrœðingur frá hinu heimsþekkta „ Trendman ” fyrirtœki kynnir algjöra nýj- ung í hártoppum og hártoppafestingum á rakarastofu minni laugardaginn 18., sunnudaginn 19. og mánudaginn 20. októ- ber. Pantið tíma í síma 21575 eða 42415. Vllll rakari Mlklubraut 68 FLUGLEWAMAUD í UMRÆÐUBANNI Á MNGI í GÆR þó tóku þmgmenn til máls og körpuðu um stöðu málsins „Ég greini fingraför annarra en forseta sameinaðs þings á þeirri neit- un, sem viö höfum fengiö hjá forseta sameinaðs þings til að hefja umræður um málefni Flugleiða utan dagskrár í dag," sagði Ólafur G. Einarsson, form. þingflokks Sjálfstæðisflokks- ins er hann fékk að ræða þingsköp utan dagskrár við setningu þings í gær. „Rikisstjórnin vill ekki umræður um það, sem hún hefur ekki komið sér saman um. Samgðnguráðherra er óhress með afstöðu fjármálaráðherra í málinu. Allt er því að komast í ein- daga. Frumvarpi um málið var lofað i þessari viku en á þvi bólar ekkert enn,” sagði Ólafur og mótmælti banni sem Jón Helgason setti á um- ræður utan dagskrár um málið. Bar forseti fyrir sig loforð samgönguráð- herra um að skýrslu um málið væri lofað á mánudag og umræður um hana færu fram á þriðjudag. En þrátt fyrir umræðubann tóku sex þingmenn til máls undir því yfir- skini aö þeir væru að ræða þingsköp, en ræddu beint og óbeint mál Flug- leiða. Steingrimur Hermannsson (F) staðfesti að skýrsla sín um mál Flug- leiða kæmi á mánudag með öllum fylgiskjölum málsins. ítrekaði hann fullkomna samstöðu 1 ríkisstjórninni um málið og kvaöst hafa lagt til að það yrði rætt á Alþingi á þriðjudag. Benedikt Gröndal (A) studdi for- seta í umræðubanni utan dagskrár á þeim forsendum að kratar hefðu beðið um ríkisstjórnarskýrslu um máliö eftir réttum þingleiðum. Friðrik Sophusson (S) kvað mjög óvenjulegt aö neitað væri um um- ræður utan dagskrár. Ósk um slfkar umræður hefði þó knúið fram fund samgönguráðherra, fjármálaráð- herra og dómsmálaráðherra um málið i gærmorgun með forstjórum Flugleiða. Krafðist Friðrik þess að einn þessara ráðherra skýrði frá þess- um fundi og lágmarkskrafa væri aö samgönguráðherra skýrði frá því hvort hann væri samþykkur bréfi Ragnars Arnalds til Flugleiöa, sem helzt bæri þvf vitni að vera samið í aöalbækistöðvum Alþýðubandalags- ins að Grettisgötu 3. Ragnar Arnalds (Abl.) skopaðist að óeiningu stjórnarandstöðunnar i þessu máli, en kvað engan ágreining í rikisstjórninni um hvernig taka ætti á málum. Halldúr Blöndal (S) kvað Flug- leiðamálið kalla á að þingnefndir störfuðu allt árið og gætu krafið ráð- herra til svara um hvað þeir meintu með blaðri í allar áttir. Hann lýsti undrun á umræðubanni forseta. Matthís Bjarnason (S) hafði loka- orðið og taldi umræður á þingi um Flugleiöamálið varla geta beðið, svo mikið sem málin hefðu verið rædd í blöðum og svo mjög sem fulltrúi fjár- málaráðherra heföi blaðrað um málin til tjóns fyrir Flugleiðir og mál- stað islendinga erlendis. Matthias gagnrýndi mjög sam- gönguráðherra fyrir fyrirskipanir til Seðlabanka um að lána Flugleiða- starfsfólki fé til hlutabréfakaupa. Lét hann i Ijósi þá ósk að sjávarútvegs- ráðherra leitaði ráða hjá samgöngu- ráðherra um hvernig fólk í fisk- vinnslu gæti fengið lánafyrirgreiðslu til kaupa hlutabréfa í fyrirtækjum i sjávarútveginum. Sjávarútvegs- og samgönguráðherrar ættu að vera hvor öðrum nógu kunnugir til að skiptast á ráöum þar um! - A.St. TONA Harðjax&MUlud Spencer á nú i ati vitCferosvfruð glæpasain- tök I Austurlöndum fjær. Þar duga þungu höggin bezt. Aðal- hlutverk: Bud Spencer, Al lj'ttffiitó Sýns-fffc?; 7.15 og 9.20

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.