Dagblaðið - 17.10.1980, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 17.10.1980, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 1980. 3 Stöðvum SÍS-háhýsið eins og Seðlabankann Ung stúlka við Sundin skrifar: Alveg er ég hissa á mönnum, sem dettur í hug að byggja tíu hæða skrif- stofublokk fyrir SÍS inn við Sundin. Hvers vegna geta þeir ekki byggt ann- ars staðar eins og t.d. þar sem hús verzlunarinnar er í þessum svokall- aða nýja miðbæ. Svo skil ég ekkert í þeim sem hafa verið að æsa sig upp út af gömlum húsum og alls konar umhverfisvernd að láta ekkert í sér heyra út af þessu SÍS máli. Er ekki alveg eins hægt að stoppa það eins og Seðlabankann. Ég ætla að minnsta kosti að vera með í þessum samtökum sem á að fara að stofna á móti þessu ferlega háhýsi á versta stað í bænum og mér finnst að unga fólkið ætti að vera með, því við þurfum að glápa lengur á ósköpin en þessir gömlu kallar í borgarstjórninni. ÖLL ÞJÓÐIN TAKI Á SIG OLÍUGJALD —almenningur fær ranga mynd af tekjum sjómanna Sjómannskona af Vestfjörðum hringdi: Ég er mikill sjónvarpssjúklingur og vil fá að hafa Kaz áfram. Kaz er frá- bær þáttur. Nýi þátturinn sem á að koma í staðinn er sjálfsagt ágætur en hann getur bara verið líka á dagskrá. Er ekki hægt að sýna meira af Tomma og Jenna í eiriu? Það er lág- mark að hafa tvo þætti saman, fimm mínútur eru ekki einn einasti tími. Tvö föstudagskvöld I röð hefur það gerzt að sjónvarpið hér hafi dottið út. Mér skilst að sjálfvirk klukka í endurvarpsstöðinni i Stykk- ishólmi hafi slökkt á útsendingu þegar klukkan var orðin hálfeitt. Slíkt má ekki gerast. Við misstum fyrir bragðið m.a. hluta úr skemmti- legri mynd um mann sem var að bjarga sér úr eyðimörk. Að lokum langar mig að koma orðsendingu til þingmanna. Ég er gift sjómanni og þeir eru eina stéttin í þjóðfélaginu sem greiða þarf olíu- gjald. Það er ekkert réttlæti I því að þeir einir þurfi að borga olíugjald með útgerðinni. Af hverju er ekki hægt að taka vissa prósentu af allri þjóðinni? ' Meirihlutinn af sjómönnum vinnur bara fyrir kauptryggingunni. Það eru ekki nema toppskipin sem hafa eitt- hvað að ráði umfram trygginguna en. Sjómannskonan telur ekkert réttlæti i þvf að láta sjómennina eina bera oliugjaldið. DB-mynd: Árni Páll. Leigubfl- stjórinn sem fékk hringinn Hulda Björnsdóttir, Fannarfelli 6, sími 74882, skrifar: Ég vil biðja leigubílstjórann sem fékk hring sem tryggingu fyrir greiðslu fyrir akstri úr Glæsibæ að Fannarfelli 6 að hafa samband við mig sem fyrst. þau eru líka alltaf í fréttum. Þvi fær Borgarráð hefur samþykkt að verða við beiðni StS um að fá að reisa við Holta- almenningur ranga mynd af tekjum garða 11000 fermetra hús undir aðalskrifstofur sinar. Hins vegar hefur ekkert sjómanna. veríð ákveðið um það hvaða form verði á húsinu. DB-mynd: Einar Olason. Vid f luttum um set, að Suðurlandsbraut 18 Pálmi Gíslason Guðrún Jóhannsdóttir Kristín Káradóttif Egilína Guðgeirsdóttir Katrín Torfadóttir Til gamalla og nýrra viðskiptavina! Vegna stóraukinna viðskípta, höfum við flutt í stærra Jiúsnæði. Við bjóðum ykkur velkomin og væntum þess að geta boðið enn betri þjónustu. Starfsfólk Samvinnubankans Suðurlandsbraut 18 Samvinnubankinn Suðurlandsbraut 18 Spurning dagsins Ætlarflu afl taka vetrarfrí? Hanna Kristjánsdóttir húsmóðir: Nei, ég ætla ekki að taka vetrarfrí. BJörg Kjartansdóttir húsmóðlr: Nei, ég er húsmóöir. Þær eiga sjaldan frí. Snorri Kristleifsson vélamaður: Já, ég ætla aö gera það. Annars læt ég hverjum degi nægja sína þjáningu og hef því ekkert ákveðið neitt sérstakt. Sigurður Hákonarson danskennari: Nei, svo sannarlega ekki, veturinn er minn háannatimi. Jóhann Eymundsson kaupmaður: Nei, ég hugsa að ég hafi ekki tíma til þess, ég er þrælbundinn i vinnu. Pálina Aðalsteinsdóttir, útivinnandi húsmóðlr: Nei, það ætla ég ekki að gera. Ég tók ágætt sumarfri.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.