Dagblaðið - 17.10.1980, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 17.10.1980, Blaðsíða 1
6. ÁRG. - FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 1980 - 235. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI 27022. ASI-menn ekki á samningabuxunum, segir framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins: „Sáttur við lögbindingu” —segir Guðjón Jónsson, formaður Málm- og skipasmiðasambandsins „Ef afskipti ríkisvaldsins af kjara- samningum eru launafólki til góðs er ég þeim samþykkur, en ef afskiptin eru launafólki til ills snýst verkalýðs- hreyfingin gegn þeim. Eins og fundur 43ja manna aðalsamninganefndar Alþýðusambandsins lýsti yfir á mið- vikudaginn er hægt að fallast á meginefni tillögu sáttanefndar sem Vinnuveitendasambandið hafnaði. Ég get því sætt mig við að hún verði lögfest og tek að því leyti undir með Guðmundi J. Guðmundssyni, ” sagði Guðjón Jónsson formaður Málm- og skipasmiðasambandsins i morgun. „Stjórnvöld eru nánast alltaf að koma inn í kjarasamninga með laga- setningum. Með þessu framhaldi stefnir ekki í annað en að ríkisstjórn- in og löggjafarvaldið skerist í leikinn. Ástandið er þannig að það má einfaldlega ekki dragast að verkafólk fái sínar kjarabætur,” sagði Guðjón. „Það hlýtur að skýrast enn frekar nú um helgina hver framvinda mála verður. Við bíðum eftir að sjá hvort Alþýðusambandið vill semja eða ekki, en m.a. af ályktun 43ja manna nefndar fundar er ekki að sjá að ASÍ- menn séu á samningabuxum,” sagði Þorsteinn Pálsson, framkvæmda- stjóri Vinnuveitendasambandsins, i morgun. Þorsteinn sagði það augljóslega ekki gera útlitið bjartara að heyra svo „sterkar lagahótanir” frá félags- málaráðherra og sumum verkalýðs- foringjum. Samningamálin eru því áfram föst og aðilar í „biðstöðu eftir að hinir geri eitthvað”. Sáttanefnd talar við forystumenn VSÍ og ASÍ hvora i sínu lagi tíl að skýra sjónarmiðin. Engir samningafundir höfðu verið boðaðir í morgun, enda ekkert nýtt komið fram sem gefið gæti vonir um aðsjónarmiðin nálguðust. Fleiri og fleiri verkalýðsforingjar eru farnir að „hugsa upphátt” að lögbinding sáttatillögunnar sé það sem koma skal. Tilgangslaust sé að halda samningaumleitunum áfram þar sem „fyrirfram er vitað að VSÍ hefur ekki ætlað sér að semja,” eins og einn ASÍ-maður sagði við DB. Á hinn bóginn hafa „lagahótanirnar” gert forystu VSÍ enn harðari í sinni afstöðu og þar við situr. -ARH. i ....* ....II lllM.tli.mitMir 1 Og þegar Reykvíkingar komu áfœtur í morgun var allur snjórinn höndunum — en stelpurnar taka þessu öllu létt. Ekki er útlitfyrir horfinn. Það snjóaði að vísu ekki mikið í gœr, en nóg til þess að frekari snjókomu alveg strax, en veður fer hægt kólnandi um allt krakkar fóru í snjókast og mikill gáski komst í liðið. Það leynir sér land. ekkert á svipnum á piltinum, að hann telur sig standa með pálmann í DB-myndir: Gunnar Örn Bömáokkartímum: Alin uppaf vekjaraklukku ogsíma? — sjá bls. 7 Alsín Barizt um býfií rústunum — sjá erl.fréttir ábls.8-9 „Vinningurínn kemursérvel” - sagði Kristinn Jóns son, nemandi í Kennaraháskól - sjáíþróttir á bls. 12 og 21 DBheimsækir Janus Guðlaugs- son íKöln — sjá íþróttir ábls. 12og21 HVAÐ ER ÁSEYÐI UM HELGINA? Annað Útsýnar- kvöldiðáSögu Pældíöífrumsýnt Nýlistasafnið opnar Evitulýkur Auk þess: Messur helgarínnar Sýningar um helgina íþróttirhelgarínnar Danshúsin um helgina Matsölustaöimir Útvarps- ogsjónvarps- dagskrá næstu viku ogfíeira — SjáHelgar- dagbókDB RÉTTUREDA RANGURÁS — það breytti öllu á ólympíumótinu — sjá IrUa bridge- þáttinnfdagbók Dýrtað verzla við kaupfélagið: Skuldin tífaldaðist - sjá Raddir lesenda ábís.2-3

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.