Dagblaðið - 13.01.1981, Page 8

Dagblaðið - 13.01.1981, Page 8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1981. 3: Erlent Erlent Erlent Erlent Erlent Stjómmál og græðgi settumarksittá hjálparstarfið: Kraftaverk að Kampútseuhjálpin eppnaöist sem skyldi? v Milljónir doliara streymdu til hjálparstarfsins, enda var það umfangsmikið. Þúsundum tonna af mat, aðallega hrísgrjónum, var dreift, bæði meðal flóttafólksins á landamærunum og inn yfir landa- mærin til Kampútseu. Vatni var ekið í tankbilum yfir 100 kílómetra leið til landamæranna, allt að einni milljón lítra á dag. Allt þetta leiddi til þess er menn höfðu vonað. Hungurvofunni var bægt frá. Flóttafólkið var að snúa aftur til lifsins. Hjálparstarf innan Kampútseu komst í fullan gang, þrátt fyrir ýmsa erfiðleika í byrjun í samstarfi við stjórn Heng Samrin sem situr á valdastóli í Kampútseu með aðstoð Víetnama. Mánudaginn 29. desember sl. var tilkynnt í Bangkok að þessu risa- vaxna hjálparstarfi í Thailandi væri lokið. Frá og með áramótunum lauk samstarfi Rauða krossins og Barna- hjálparinnar og hér eftir vinnur hver —ásakanir hafa komiðfram um pólitíska spillingu og beina þjófnaði innan hjálparstarfsins Þau komu þúsundum saman, hungruð, sjúk og án heimilis, menn, konur og börn. Staðurinn er landa- mæri Kampútseu' og Thailands. Fólkið er flóttafólk sem flúið hefur heimaland sitt Kampútseu. Tíminn er haustið 1979. Þegar fréttir af ástandinu í Kamp- útseu og af því sem á undan hafði gengið í landinu bárust út um veröld- ina þá tóku þjóðir heims höndum saman og hleyptu af stokkunum einni stærstu neyðarhjálp sem nokkru sinni hefur verið stofnað til. Haustið'1979 er talið að um hálf milljón flóttamanna hafi verið á og við landamæri Thailands og Kampút- seu. Þetta var gífurlegt vandamál sem slóði margvíslegra annarra vanda- mála fylgdi, bæði á sviði stjórnmála og hernaðar. Stjórnvöld í Thailandi gáfust upp bg sneru sér til fjölmargra i alþjóðastofnana þg fóru fram á aðj þær leystu vandann, ella lægi ekki: annað fyrir þessu fólki en að verða snúiðtilbakayfirlandamærin. | Fulltrúar frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR), Alþjóðlegu matvælaáætluninni (WFP), Alþjóða Rauða krossinum (ICRC),BarnahjáIp Sameinuðu þjóð- anna (UNICEF) og ýmsum öðrum hjálparsamtökum settust á rökstóla og útkoman varð sú að samstarf var ákveðið á milli ICRC og UNICEF til að reyna að leysa vanda flóttafólks- ins. Aðrir aðilar komu þarna einnig inn í myndina. Flóttamannastofnun- in sá um þá hlið mála er sneri beint að því flóttafólki er þegar var komið í búðir innan landamæra Thailands. Starf Rauða krossins og Barna- hjálparinnar beindist fyrst og fremst að því að koma flóttafólkinu til hjálpar, reyna að gera því lífið bæri- Iegt, veita læknishjálp, mat, vatn og á annan hátt gefa þessu fólki lífsvon á ný. Hafin var fjársöfnun um heim allan og Rauði krossinn leitaði til aðildarfélaga sinna eftir starfsliði, aðallega læknum og hjúkrunarliði. Viðbrögðin voru skjót. Peningar streymdu inn og strax í nóvember ’79 voru um 200 læknar og hjúkrunar- konur komnar til starfa meðal flótta- fólksins. Ástandið var uggvænlegt. Fólkið var vannært og sjúkt eftir margra ára hörmungar. Dánartala var mjög há. Fólkið streymdi þúsundum saman yfir landamærin og tók sér bólfestu i flóttamannabúðum á landamærunum sjálfum. Þangað varð að beina hjálpinni. Allt árið 1980 var unnið sleitulaust við hjálparstarf á þessu svæði, oft við erfiðar aðstæður, innbyrðis skærur meðal flóttafólksins, Víetnamar gerðu árásir á búðir flóttafólksins, á regntímanum fór allt á flot. Allt þetta hjálpaðist að til að gera starfið erfið- ara. Að hjálparstarfi vann fólk frá öllum heimshornum. Héðan frá íslandi fór einn hópur, 6 manns, til starfa strax í desember ’79. Allt fram á þennan dag hefur íslenzkt hjúkr- unarfólk verið við störf á þessum slóðum. Hættan liðin hjá? Strax á fyrstu mánuðum ársins 1980 var ljóst að ástandið fór batn- andi. Dánartala lækkaði og almennu heilsufarsástandi fólksins fór fram. hjálparstofnun að þvi að ljúka sínum verkefnum og þær munu síðan draga sig í hlé eftir því sem aðstæður leyfa. Þótt þessu risaverkefni sé opinber- Iega lokið er enn fjöldi flóttafólks á landamærum Thailands og Kampút- seu og einnig í flóttamannabúðum innan Thailands. En neyðarástandið er liðið hjá. Hjálpin er komin í fastarskorður. beinlínis að hafa notað hjálparstarf- ið til að hafa áhrif á pólitíska þróun mála. Mynd þessi var sýnd í Noregi skömmu fyrir jól og vákti þar mikla athygli. íslenzka sjónvarpið fékk myndina til skoðunar en ekki þótti ástæða til að sýna hana, en önnur mynd hlutlausari valin í staðinn frá UPITN og var hún sýnd fyrir nokkr- um vikum. ríkisstjórnum ýmissa landa. Þær hafa mætt vantrú frá ríkisstjórninni í Pnom Penh og frá leiðtogum Pol Pott stjórnarinnar. Hjálparstarfið varð „pólitískt”. Þeir sem unnu að hjálparstarfinu vildu beina matnum og hjálpinni þangað sem hennar var mest þörf. Á bak við allt saman sátu síðan stjórnmálamenn og hernaðar- yfirvöld og reyndu að beina hjálpinni þangað sem hún kom að mestum notum frá pólitískum sjónarhóli. Margir vildu bita af kökunni En hjálparstarfi sem þessu fylgja afætur. Milljónir og aftur milljónir dollara streymdu til hjálparstarfsins og margir freistuðust. f haust handtók bandaríska alríkis- lögreglan FBI Bandaríkjamann sem hafði verið í þjónustu Sameinuðu þjóðanna. Bandaríkjamaðurinn, George Warner, sem hafði verið í þjónustu World Food Programme, var ákærður fyrir að hafa dregið sér 134 þúsund dollara. Warner hafði starfað í Bangkok og var verksvið hans að fylgjast með því hvernig bandarísku hjálparfé var varið í Kampútseuhjálpinni. Asíusérfræðingur franska stór- blaðsins Le Monde skrifar frá Bang- kok að þegar upp komst um Warner málið hafi það haft í för með sér að ýmsir aðrir aðilar lentu undir smásjá, og það hafi komið í Ijós að thailenzk yfirvöld hafi einnig einsett sér að ná í bita af kökunni. þessu. Það eina sem rétt er er að hluti hjálparstarfsins hefur að vísu farið til flóttafólks sem hliðhollt er Pol Pott, hinna svokölluðu Rauðu Khmera. Það er einnig vitað mál að stjórn- málahreyfingar skæruliða hafa fest sigí sessi í flóttamannabúðunum. Víetnamar sem vantreysta bæði Bandaríkjamönnum og Kínverjum sjá vel hagsmuni þeirra að baki hjálparstarfinu. Þetta sjónarmið tekur John Pilger upp í mynd sinni. Hjálparstarfið i Kampútseu hefur langt frá því verið auðvelt fyrir hinar alþjóðlegu hjálparstofnanir. Þær hafa orðið fyrir þrýstingi frá Græðgi yfirvalda Sagt er að ríkisstjórn Thailands hafi þvælt Landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna, FAO, út í margs konar ónauðsynleg viðskipti sem alis hafi kostað stofnunina yfir tvær milljónir dollara. Þessir pening- ar runnu beint í vasa stjórnvalda og nauðsynlegar hjálparsendingar töfð- ust. Le Monde nefnir dæmi: Hliðar- stofnun FAO sá um innkaup á hrís- grjónum á innanlandsmarkaði í Thai- landi. Verðið á markaðinum var á milli 150 og 170 dollarar fyrir tonnið. Stofnunin borgaði hins vegar 225 til 240 dollara fyrir tonnið. f þessu til- felli voru það thailenzkir milliliðir sem stungu af með mismuninn. Landbúnaðarráðherra Thailands leit málið sérstæðum augum og sam- kvæmt Le Monde á hann að hafa Ásakanir í desember ’79 var sýnd í íslenzka sjónvarpinu mynd sem brezki blaða- maðurinn John Pilger gerði um ógnartímana í Kampútseu í tið stjórnar Pol Potts. Þessi mynd var sýnd víða um heim og átti sinn þátt í að þjóðir heims brugðu jafnskjótt til hjálpar þessu fólki og raun varð á. Nú nýverið hefur John Pilger lokið við aðra mynd og nú um hjálparstarf- ið sem fram fór á Iandamærum Thai- lands og Kampútseu og eins og í fyrri myndinni er hann ómyrkur í máli og ásakar bæði hjálparstofnanir og ríkisstjórnir um óreiðu, svindl og Kraftaverk að Kamp- útseuhjálpin heppnað- ist? John Pilger dregur enga dul á það að hann styður stjórn Heng Samrins og það sem Víetnamar hafa verið að gera í Kampútseu. Eitt aðalinntak í mynd hans er að stór hluti hjálpar- starfsins hafi farið til að hjálpa liðs- mönnum Pol Potts og að Bandaríkin og Kína noti sér hjálparstarfið til að styðja skæruliða og á þann hátt að stuðla að framhaldi Víetnam- stríðsins. Það er útilokað að gerá sér grein fyrir því hvort fótur sé fyrir t flóttamannabúðunum reyndi fólk að skapa sér sem beztar aðstæður og lögðu aliir þar hönd á plóginn, jafnt fullorðnir sem börn. Hér eru börn að bera heim vatnsskammtinn, en vatn var eitt af þvi sem mestur skortur var á á landamærunum. Ljósmyndir J. Reykdal. Helztu farartæki flóttafólksins voru uxakerrur eins og sú á myndinni. Á kerrum sem þcssari voru flutt mörg þúsund tonn af hrísgrjónum og öðrum matvælum yfir til Kampútseu, auk þess sem mikið magn var flutt á reiðhjólum eða menn báru skammtinn sinn á bakinu, oft margar dagleiðir. Auk Rauða krossins og Barnahjálparinnar störfuðu fjölmörg hjálparsamtök við flóttamannaaðstoðina. Hér biða börn eftir heitum matarskammti frá kaþólskum hjálparsamtökum. • *****#:

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.