Dagblaðið - 13.01.1981, Qupperneq 10
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1981.
a ne ytendamarkaði
Dóra
Stefánsdóttir
Hvor er betrí grár eða hvrtur?
Mistök í hreinsun eða
meðfædd óánægja
Þórey Björgvinsdóttir sem búsett
er 1 Garðabæ kom við á ritstjórn DB
meö ullarjakka. Jakkann hafði hún
nýverið látiö hreinsa og var afar
óánægð, bæði með vinnuna og það
dónalega viðmót sem hún sagðist
hafa fengið i hreinsuninni.
Jakkinn er brezkur úr ullarefni. Að
sögn Þóreyjar hafði hann verið hvít-
ur i upphafi. Búið var að hreinsa
hann tvisvar áður og alltaf var hann
jafnhvítur. En ur úr síðustu hreinsun
segir hún hann hafa komið eins og
við sáum hann, gráan. í sömu hreins- i
un hafði farið útsaumaður klukku-
strengur sem kom út með nákvæm-
lega sama gráa litnum.
Síðustu hreinsunina hafði Efna-
laugin í Nóatúni framkvæmt. Maður !
Þóreyjar hafði farið með jakkann
þangaö ásamt klukkustrengnum og
dökkbláum útsaumuðum dúk. Hann:
kom síðan við á heimleið úr vinnu og
tók við hlutunum. Búið var að pakka
þeim inn þegar hann kom þannig að
hann skoðaði ekki vinnuna. Þegar
BLÓMAHORNIÐ
ABUTILON HYBRIDUM Kiukkutrá
Klukkutréð er ættað af hitabeltis-|
svæðum Ameríku. Klukkutréð er ár-'
angur af kynblöndun nokkurra af-
brigða, sem ekki hentuðu eins vel sem
stofublóm. Blöðin eru oftast ljós-
græn, en liturinn getur verið breyti-
legur og gulflekkótt afbrigði eru ekki
óalgeng. Blöðin geta jafnvel verið
ólik að lögun. Greinarnar leita upp á
við, blaðstilkurinn er mjór og blöðin
eru þunn. Blómin eru klukkulaga,
oftast i rauðum eða gulum lit, en
einnig eru til hvit, bleik og appelsínu-
gul afbrigði. Klukkutréð blómstrar á
vorin og nær blómgunin hámarki yfir
sumarmánuðina.
Klukkutréð er auðvelt í ræktun, er1
sólelskt og þrífst bezt í venjulegum
jarðvegi. Á vaxtartímanum er því
gefin áburðarupplausn og vökvað ríf-'
lega. Yfir veturinn er aðeins vökvað
þannig að moldin sé rök. Umpottun
fer fram á vorin og um leið er plantan
klippt niður. Klukkutrénu er venju-
lega fjölgað með græðlingum, sem
mynda fijótt rætur. Til þess að fá
þéttan vöxt er nauðsynlegt að topp-
klippa ungar plöntur oft.
- JSB / VG
Jón Sævar
RalHvinsson
Afar sólelsk (þolir
ekld afl standa I steikj-
andi sólarhita).
Vökvist riflega yfir
sumarmánuflina,
minna ó veturna.
Áburðarupplausn
gefin reglulega yfir
vaxtarskeiflifl.
Venjulegur stofuhiti
hæfir vel.
heim var komið og böggullinn opn-
aður kom hins vegar gráminn i ljós.
Þórey fór þá aftur með jakkann í
hreinsunina og fékk því framgengt að
hann var hreinsaður aftur. Hún segir
gráa .litinn hafa lýstst lítið eitt við i
þessa seinni hreinsun en þó varð jakk i
inn ekki jafnljós og hann hafði verið.
Þegar hún kom að taka hann í
seinna sinnið og sá hvernig hann var
neitaði hún að taka við honum. Hún
segir eiganda hreinsunarinnar þá
hafa sagt að hún svo sem réöi því en
jakkinn yrði ekki þar til frambúðar.
Tók hún það sem hótun um að ef hún
ekki tæki fiíkina yrði henni komið
fyrir kattarnef. Hún tók því við
jakkanum og sagði eiganda
hreinsunarinnar hafa stungið í vasa
hans þeim fimm þúsund g.kr. sem
hreinsunin kostaði. Kvað hún
manninn hafa verið hinn mesta dóna
og hefði hann ekki viljað neitt gera til
þess að bæta fyrir skaðann.
Við hreinsum
föt, óhreinkum
þau ekki
Sigurjón Þórðarson eigandi Efna-
laugarinnar í Nóatúni sagði að jakki
Þóreyjar hefði verið grár þegar hann
kom í hreinsun. „Við hreinsum föt
en óhreinkum þau ekki,” sagði hann.
Hann sagði að jakkinn hefði greini-
lega verið orðinn gamall og byrjaður
að slitna og útiiokað væri aö hann
yrði nýr við það eitt að hreinsa hann.
Hann sagði Þóreyju hafa komið með
hvítan ullarlagð þegar hún sótti jakk-
ann og krafizt þess að sami litur væri
á jakkanum og honum. Sér væri hins
vegar lífsins ómögulegt að verða við
þeirri kröfu. Um klukkustrenginn
væri það að segja að þegar slíkir
strengir væru búnir að hanga uppi í
e.t.v. 20 ár í reyk yrðu þeir gráir. Það'
vissi hann eftir að hafa unnið við
hreinsun siðan 1950. Greinilegt væri
að Þórey væri fædd óánægð og ef
fólk vildi vera óánægt þá mætti það
vera það. Búið væri að hreinsa jakk-
ann tvisvar eða þrisvarog meira væri
ekki hægt aðgera.
•DS.
Jakkinn og klukkustrengurinn sem i
hreinsunina fóru. Það fer eftirj
duttlungum prentvélarinnar sem þettal
prentar hvort litarmunur á lopanum
sem lagður er á jakkann og honum séstj
eða ekki En greinilegt var beru auga|
að lopinn var mun Ijósari. Sama lit
sagði Þórey hafa verið á jakkanum í
upphafi.
DB-mynd Sigurður Þorri.;
1i——«—■
Ofnbökuðýsa
íkarrýsósu
Blessuð ýsan er alltaf góð soðin
eða steikt. En fleira má gera við hana
, til tilbreytingar. Uppskrift dagsins er
einmitt að einni slíkri breytingartil-
lögu, ýsu í karrýsósu.
3/4 kg ýsa i flökum
50 gr smjör
2 laukar, fint saxaðir
1 rif hvítlaukur, marinn
. 1 epli skrælt og skorið f bita
1—1 1/2 tsk. karrý
1 tsk. hveiti
300 ml kjúklingakraftur
225 gr tómatar skrældir og niður-
skornir
2 tsk. tómatkraftur
1 tsk. sítrónusafi
1 tsk. engifer
Skreytt með sítrónusneiflum og ein-
hverjum grænum kvisti.
settur í eldfast mót. Smjörið er brætt
í skaftpotti og laukurinn og hvítlauk-
urinn kraumaður í því í 3 mínútur.
Eplinu bætt í og soðið í 2 mínútur.
Karrýi og hveiti er hrært saman og
stráð yfir maukið í skaftpottinum.
Hrært vel og soðið í 2 mín. Tekið af
hitanum og saman við hrært kjúkl-
ingakraftinum, tómötunum, tómat-
kraftinum, sítrónusafanum, engi-
fernum og ef vill fleira kryddi. Látið
sjóða og hrært vel í á meðan. Hellt
yfir fiskinn. Honum er blandað vel
saman við, lok sett yfir og allt saman
inn í ofn. Bakað í hálftíma við 160
gráður. Borið fram með soðnum
hrísgrjónum.
Þetta er ódýr réttur. Kostar líklega
svona í kringum 18 krónur. Hann
dugar fyrir fjóra, þannig að kostn-
aðurinn á mann er 4 krónur og 50
aurar.
Fiskurinn er skorinn í litla bita og
- DS
iUpplýsingaseðiíí
' til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi i upplýsingamiölun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nytsamt heimilis-
tæki.
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks__
Kostnaður í desembermánuði 1980.
Matur og hreinlætisvörur kr.______
Annað kr._______
Alls kr..______
m VfKiY .