Dagblaðið - 13.01.1981, Side 12

Dagblaðið - 13.01.1981, Side 12
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1981. 12 . Útgefandi: Dagblaðið hf. Framkvaemciastjóii: Sveinn R. Eyjötfsson. Ritstjörí: Jónas Krístjónsson. Aóstoðarrítstjóri: Haukur Helgason. Fréttastjóri: Ómar Valdimarsson. Skrífstofustjóri rítstjómar Jóhannes Raykdal. Iþróttir Hailur Simonarson. Menning: Aflaisteinn Ingóifsson. Aðstoðarfráttastjóri: Jónas Haraldsson. Handrít Ásgrímur Páisson. Hönnun: Hilmar Karísson. Blaðamann: Anna Bjarnason, Adi Rónar HaHdórsson, AtH Steinarsson, Ásgeir Tómasson, Bragi Sig urðsson, Dóra Stafánedóttir, EMn Afcertsdóttir, Qisli Svan Einarsson, Gunniaugur A. Jónsson, Inga Huld Hókonardóttk, Krístján Már Unnarsson, Siguröur Sverrisson. Ljósmyndir Bjarnleifur ÓjamleHsson, Einar Ólason, Ragnar Th. Sigurðsson, Sigurður Þorrí Sigurðsson og 8veinn Þormóðsson. Skrífstofustjórí: ólafur EyjóHsson. Gjaidkerí: Þráinn Þorietfsson. Auglýsingastjóri: Már E.M. Halldórs- son. DreKingarstjórí: Valgerður H. 8velnsdóttir. Ritstjóm: Siðumúla 12. Afgralðsla, ásJtríftaðelkSrmjgfýsingar og skrífstofur Þverholti 11. AAaJslml blaflslns ar Í7A22110 ■nurt. Setning og umbrot Dagblaðið hf., Siðumóla 12. Mynda- og plötugorð: HHmir hf., Siðumóla 12. Prentun: Gerilsneydd reglugerö Reynt að breyta fjárlögum til betri vegar Verkefnasnauð þjóðarljós í heil- brigðisráðuneytinu hafa bannað sölu á kjúklingum hér á landi öðruvísi en frystum. Birt hefur verið reglugerð um þessa björgun heilsufars þjóðarinnar, enn eitt skrefið dl ríkis stóra bróður. Um kjúklinga gildir eins og um fisk, að fersk vara er mun betri og næringarmeiri. Flestar menningarþjóðir taka ferska vöru fram yfir frysta, svo sem íslendingum má vera ljóst, ef þeir bera saman ferskan fisk og freðfisk. Norðmenn eru undantekning á þeirri reglu, að menningarþjóðum þyki gaman að borða góðan mat. Þeir eru svo grátt leiknir af langvinnu heimatrúboði, að áhugi á mat þykir nánast ósiðlegur. Þaðan er líka fyrirmynd ráðuneytisins. íslenzkir landbúnaðarmenn hafa áttað sig á, að hér á landi blundar áhugi á góðum mat. Þeir hafa tekið upp á að selja ófryst lömb á stórhátíðum á borð við páska, hvítasunnu og jól. Margir neytendur hafa tekið þessu feginshendi. Frysting er auðvitað mikilvæg aðferð til að brúa bil framboðs óg eftirspurnar, einkum þegar framleiðsla er árstíðabundin eða flytja þarf matvælin um óravegu. Hún er næstbezti kosturinn, þegar ekki er hægt að fá ferska vöru. Hitt er verra, að frystingu er beitt í vaxandi mæli til að spara mönnum rétta og vandaða meðferð við- kvæmrar vöru. Þegar allt er stílað á frystingu, dregur úr tilfinningu manna fyrir meðferð þeirrar vöru, sem ekki er fryst. Slíkt mun einmitt vera áhyggjuefni ráðuneytisins. En það velur ekki þann kost að fræða menn og upplýsa um meðferð ferskrar vöru, heldur bannar það fersku vöruna yfirleitt. Þar er reitt hátt til höggs af litlu til- efni. Fræðilega séð er mögulegt, að salmonella berist með ófrystum kjúklingum til manna. Er þá gert ráð fyrir, að menn annaðhvort nagi kjúklingana hráa eða borði með tólum, sem áður voru notuð við meðferð hrárra kjúklinga. Slys af slíku tagi gerast að sjálfsögðu hjá fólki, sem er orðið svo gegnsýrt af færibandahætti frystingar, að það gerir sér ekki lengur grein fyrir natni og nákvæmni í meðferð matvæla. Þannig er vítahringur ráðuneytis- ins. í framhaldi af þessu er eins víst, að stóri bróðir í ráðuneytinu taki upp á að banna sölu á lunda og svart- fugli öðruvísi en frystum. Það er nefniiega ekki hægt að fortaka, að á þeim leynÍSÍ einn eða tveir koli-gerlar úr fjörunni Svo að ekki sé nú minnzt á þau ósköp, að hingað eru fluttir ferskir ávextir úr öllum heimshornum, þar sem grassera hinir verstu gerlar, mun verri en aumingja salmonellan, sem ekki hefur einu sinni mannslíf á sam- Við afgreiðslu síðustu fjárlaga fluttu alþýðuflokksmenn ýmsar breytingartillögur, sem meðal annars fólu í sér lækkun á tekjuskatti ein- staklinga, lækkun á uppbótum á út- fluttar landbúnaðarafuröir, en hækkun til nýrra búgreina og fiski- ræktar. Allar þessar tillögur voru felldar, enda þótt margir stjórnar- þingmenn viðurkenndu réttmæti þeirra. Ég veit ekki annað en að allir ábyrgir tslendingar séu ánægðir með efnahagsráðstafanir núverandi ríkis- stjórnar. Allir sannir íslendingar ósk- uðu eftir því á árunum 1974—78 að stjórn Geirs Hallgrímssonar gerði róttækar efnahagsráðstafanir, enda hafði sú stjórn 42 þingmenn að baki sér og almenningur þráði að fjármál- um okkar litlu þjóðar yrði komið á réttan kjöl. Með öðrum orðum að eyða ekki meiru en þjóðin aflar og minnka erlendar skuldir. En hvernig fór með þá sterku stjórn? Hun gerði ekki það sem hún var kosin til. Bara tók erlend lán og lifði langt um efni fram, eins og flestar ríkisstjórnir hafa raunar gert sl. 40 ár. Á þessum fjórum árum er Geir var forsætisráðherra var mörg- um frystihúsum lokað, stutt frá heimabyggð hans. Þess skal þó getið sem satt er og rétt að í febrúar 1978, þegar kjörtímabili hinnar sterku jríkisstjórnar var að ljúka, þá var fyrst farið að átta sig á þvi að eitt- hvað varð að gera í efnahagsmálum þjóðarinnar. Geir Hallgrímsson er alltaf svo seinheppinn. Þá voru kjósendur orðnir svo leiðir á stjórn hans og úr- ræðaleysi að þeir treystu honum ekki lengur. En ef stjórn hans heföi gert róttækar aðgerðir strax og hún tók ^ „Ragnar Arnalds er greinilega kominn á aöra skoðun í ráöherrastóli, því tekju- skattur félaga nær ekki einum fimmta af því sem einstaklingum er ætlað að greiða.” viö völdum (því það þráði þjóðin) þá hefði margt verið á sterkari grunni en eridag. Eftir kosningarnar 1978 tók Ólafur Jóhannesson við stjórnarforystunni með hjálp Alþýöuflokks og Alþýöu- bandalags eftir glæsilegan kosninga- Kjallarinn Regína Thorarensen sigur hjá tveimur siðarnefndu flokk- unum. Sjálfstæðisforystan er gleymin úr hófi fram. Eftir að Ólafi Jóhannes- syni tókst stjórnarmyndunin með áðurgreindum yinstri flokkum þá byrjaði æðið í Geir Hallgrímssyni, sem var i þvi fólgið að senda sjálf- stæðisþingmennina út um alla lands- byggðina (einmitt um fengitímann). Og það glumdi í eyrum fólks að þing- menn Sjálfstæðisflokksins væru á þessum og þessum stað að halda fundi. Svo langt gekk þessi auglýs- ingaherferð að hinn ábyrgi fyrrver- andi alþingismaður okkar Austfirð- inga, Jónas Pétursson, tók sér penna í hönd og sendi smágrein í Morgun- blaðið um þær miklu og leiðinlegu auglýsingar i hádegisútvarpinu um fundarhöld Sjálfstæðisflokksins. Jónas Pétursson sagði m.a. í grein sinni að allir ábyrgir þingmenn vissu að hver ábyrg ríkisstjórn þyrfti minnst eitt til eitt og hálft ár að vera í friði i stjórn til að sjá ávöxt af störf- um sínum. Þetta sagði hinn greindi og gætni fyrrv. sjálfstæðisþing- maður, sem er mikill og ábyrgur maður. Enda fór það svo að eftir þessi miklu fundahöld í janúar 1979 hjá Sjálfstæðisflokknum (um fengitím- ann) minnkaði fylgi þeirra mikið. En allir bændur keppast við að ala rollur og hrúta sína vel um fengitímann til að fá sem flestar rollur tví- og þri- lembdar. Já, það hefur vist alltaf Launastef na rík isstjómarínnar og kjaradómur vizkunni. Þegar V'ið erum orðnir svo afsiðaðir af færibanda- stefnu frystingar, að við erum hættir að þvo ferska ávexti, má búast við, að þjóðarljós heilbrigðisráðu- neytisins gefi út reglugerð um bann við sölu ávaxta, annarra en niðursoðinna. Sumt mataráhugafólk hefur haft mikið fyrir að ná sér í ferska kjúklinga, alveg eins og það kaupir ferskan fisk í stað freðins. Þá ánægju hefur stóri bróðir nú af- numið af misráðinni umhyggju fyrir velferð þessa fólks. Óþarfi ætti að vera að éta upp allar reglur Norð- manna sem af færibandi. Einhver önnur leið hlýtur að vera til aðbæta úr atvinnuástandi þeirra íslenzkra embættismanna, sem hinum megin verða látnir naga frysta kjúklinga. Núverandi rikisstjórn orðar stefnu sína f launamálum i málefnasamningi á þá leið að jafna Iífskjör og bæta kjör hinna lakast settu i þjóðfélag- inu. Einnig hefur oft verið haft eftir talsmönnum ríkisstjórnarinnar, að ekki skyldu verða grunnkaupshækk- anir launa á árinu 1980. Samningur BSRB í samningi fjármálaráðherra við BSRB í ágúst síðastliðnum varð kauphækkun að niíéslími 3—4%. Ragnar Arnalds fjármálaráðherra sagði í sjónvarpi þann 7. jan. að i samningum við BSRB i ágúst sl. hefðu ,,þeir sem voru í efri hluta launastigans fengið lítiö eð^ ekkj neitt”. Þetta er ekkii-;'ett. B6kUn IV við samning *&RB viö fjármálaráð- herra ÍTa því í ágúst sl. hljóðar svo: „Aðilar eru sammála um að í hlið- stæðum launaflokkum, þar sem launastigi BHM samkv. dómi kjara- dóms frá 18.02. 1980 er hærri en um- saminn launastigi BSRB, þá verði sá mismunur afnuminn í áföngum 1. des. 1980, 1. marz 1981, 1. júní- 1981”. Þetta samsvarar hækkun í næstefsta launaflokk BSRB (launafl. 131) 7,3%. Þetta er augljóslega yfir meðalgrunnkaupshækkun samnings- ÍP.S Og miðað við tal Ragnars um 0% hækkun þá sem kjaradómur hef”- nú dæmt BHM telur R— .,r hækkun ekki H‘« '”lgnar þeSSa næKKun eKKi uUa pjármálaráðherra eyn- pví hér staðreyndum. Fjár- málaráöherra sagði i sama sjónvarps- viðtali:, ,Við gerðum svo samning við BHM um að hækka þá, sem svarar til þeirrar hækkunar sem BSRB menn voru búnir að fá”. Hér fer fjármála- ráðherra aftur með rangt mál. Kjara- dómur kvaö upp dóm 9. nóv. sem samræmir launastigana, þannig aö þvi fer fjarri að um eitthvert sam- komulag hafi verið að ræða. Samningar á f rjálsum markaði í samningum ASÍ og vcf ' október sl. <■- — \T& 27 ■ ^vi. -í meðalgrunnkaups- ..^nun talin hafa verið um 10— 12% en þó fengu ýmsir hópar sem ofarlega eru í launastiganum hjá ASÍ meiri hækkun, s.s. bifvélavirkjar 22,17% samkv. upplýsingum Morgunblaðsins. Ef samningar Verkstjórasambands íslands við vinnuveitendur eru skoðaðir og tekið dæmi um hæsta taxta þess samnings um yfírverk-

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.