Dagblaðið - 13.01.1981, Síða 16
Tuttugu ogfjögurra ára í aðalhlutverkið:
„BALLETTINN ER ERFIÐUR
ANDLEGA OGLÍKAMLEGA
99
— segir Ingibjörg Pálsdóttir, sem tekur við hlutverki
Sveinbjargar Alexanders í Blindisleik
„Sýningar hjá mér hefjast á föstu-
daginn. Þetta er afar spennandi hlut-
verk og skemmtilegt en jafnframt erf-
itt. Ballett er mjög erfiður bæði lík-
amiega og andlega en það er spennan
sem heldur manni i þessu,” sagði
Ingibjörg Pálsdóttir dansari í
íslenzka dansflokknum í samtali við
Fólk-síðuna. Ingibjörg tekur við einu
aðalhlutverkinu í ballettsýningu
Þjóðleikhússins, Blindisleik, á föstu-
dagskvöld, hlutverki Freyju.
Sveinbjörg Alexanders ballett-
meistari kom hingað til lands til að
aðstoða við undirbúning sýningar-
innar og jafnframt til að taka að sér
hlutverk Freyju. Sveinbjörg er nú á
förum og tekur þvi Ingibjörg við.
Byrjaði 9 ára í ballett
„Jón Ásgeirsson valdi fólk i hlut-
verkin og hann bað mig að taka þetta
að mér. Það kom mér mjög á óvart,
það verð ég að segja,” sagði Ingi-
björg. Hún byrjaði að æfa ballett 9
ára gömul hjá Listdansskóla Þjóð-
leikhússins ásamt tvíburasystur sinni
Guðrúnu. Síðan hafa þær systur
verið saman í öllum sýningum sem
haldnarhafaverið.
„Nei, ég hef ekki æft mikið. Ég
fylgdist að vísu vel með æfingum
Sveinbjargar en það er aðeins vika
síðan ég fór að æfa af krafti,” segir
Ingibjörg. „Ég hef verið með í sýn-
ingunni í öðru hlutverki og við þvi
taka núna tvær stúlkur. Það er sjálf-
sagt að skipta hlutverkunum svona
þá fáfleiri tækifæri.
Þetta hlutverk er langstærsta hlut-
verk mitt til þessa. Leikurinn stendur
yfir í tvo tíma og ég er nær stanzlaust
á sviðinu. Þá eru einnig mjög góðir
karldansarar sem dansa með mér.”
Aðeins einn karlmaður
í flokknum
í íslenzka dansflokknum eru 10
dansarar, þar af aðeins einn karl-
maður. Ingibjörg var spurð hverju
þetta sætti.
„Ja, það hefur komið til tals að fá
í flokkinn erlendan dansara en fjár-
málin hafa komið í veg fyrir að það
gæti orðið að veruleika. Það eru
nokkrir íslenzkir karlmenn núna í
skólanum: Tveir þeirra gætu komið
til greina i fiokkinn eftir nokkur ár.”
Ingibjörg fór ásamt systur sinni til
Bandarikjanna fyrir nokkrum árum
og dvöldu þær þar um eins árs skeið
Þó að það sé vissulega nægilegt starf
þá munar hana ekki um að dansa
fyrir gesti Þórskaffis á sunnudags-
kvöldum i svokölluðum Þórskabar-
ett. „Kabarettinn er allt annað. Hann
er léttur og maður slappar vel af.
Skemmtir sér jafn vel og áhorfand-
inn. Þar er maður laus við tauga-
veiklunina,” sagði Ingibjörg Páls-
dóttir, 24 ára ballettdansari.
-ELA
við nám. Þá dönsuðu þær einnig með
dansflokki þar. „Það var mjög
skemmtileg reynsla að fara út, bæði
sáum við annað en hér heima og
höfðum gott af því. Hvort ég fari
aftur, það veit ég ekki.”
í Þórskabarett einnig
Fyrir utan að æfa með dansflokkn-
um og sýna með honum kennir Ingi-
björg í ballettskóla Þjóðleikhússins.
Hlutleysi
sagnfrœð-
innar
Bók Þórs Whitehead, Ófriður í
aðsigi, hefur vakið verðskuldaða
athygli, enda varpar hún nýju ljósi á
margt í stjórnmálasögu okkar fyrir
seinna stríð. Þeir sem lesið hafa
bókina hafa einnig tekið eftir því að í
formála þakkar dr. Þór Hannesi H.
Gissurarsyni margháttaðan greiða í
tengslum við bókina, m.a. hafi
Hannes fylgzt með verki hans frá
handriti til endanlegrar prentunar.
Þeir hinir sömu ráku hins vegar
upp stór augu þegar Hannes skrifaði
einnig ritdóm um bók dr. Þórs i Mbl.
(7. jan. sl.) og kallaði hana beztu
bókina á jólavertíðinni og stórvið-
burð. Það er nú svona þegar greiða-
semin verður sagnfræðilegu hlutleysi
yfirsterkari.
Samagamla
síðasta lag
fyrir fréttir
Útvarpshlustendur hafa stundum
furðað sig á því hvers vegna það eru
stöðugt sömu mennirnir, sem syngja
sama síðasta lag fyrir fréttir.
Rannsóknardeild fleira fólks hefur
nú komizt að hinu sanna í málinu —
eða hinni opinberu skýringu, sem
gefin er á útvarpinu. Hún er sú, að
siðasta lag fyrir fréttir skuli einungis
sungið af félögum í Einsöngvara-
félaginu, sem ekki hafi aðra tekjulind
en þessa. Má kannski eiga von á að
heyra fljótlega einu simii á dag lauf-
létta dónasögu til að tryggja Félagi
dónasagnahöfunda fastar tekjur?
húsfreyja að SkarOI vlð stjökun-
umúr hendl Reynts.
ynd: S.
Færöi Skaröskirkju
tvo koparstjaka aögjöf
Velunnerl SkarOsklrkJu i SkarOs-
strönd / Dölum, Reynlr Ludvlgs-
son, fmrOI hennl eO gjöfi annan I
Jóhim tvo koparstjaka. Reynlr
hefur iOur sýnt kkkjunnl margs
konar vlnittiryott. Fyrk tveknur
irum gefhann hennl rnjög vand-
eða bók, som nefnlst
söngur fom og nýr. — Á
• • - - « »«" - ■■iliífiy. '
ffiw (MTv Horunn Mmrtantoovar
HtWHH
burt
rte1
Úr myndlnnl Punktur, punktur, komma, strlk. Hir þrammar mótmæla-
ganga fram hji Austurbœjarbíói. DB-mynd: Kristjin Ingi.
Vinnsla við Punktínn
er á lokastígi
— Myndin verður frumsýnd í marz
„Viö reiknuðum meö að frumsýna
í byrjun marz og mér sýnist sú áætlun
ætla að standast,” sagði Þorsteinn
Jónsson kvikmyndagerðarmaður, er
blaðamaður DB spurðist fyrir um
myndina Punktur, punktur, komma,
strik. — Þorsteinn er leikstjóri mynd-
arinnar.
„Þessa dagana erum við að vinna
við lokaklippingarnar,” sagði Þor-
isteinn. Hann kvaðst búast við því að
myndin yrði frumsýnd í Háskólabíói
og öðru til viðbótar, sem enn hefur
ekki verið tekin ákvörðun um.
Upphafleg fjárhagsáætlun kvik-
myndarinnar hljóðaði upp á um eitt
hundrað milljónir gkróna. Þorsteinn
var að því spuröur hvernig það hefði
gengið að halda henni.
„Við vorum einmitt að reikna út
kostnaðinn núna nýveriö. Okkur
sýnist við hafa farið um tiu prósent
fram yfir, sem hlýtur að teljast mjög
vel sloppið,” svaraði hann. -ÁT
Lögreglustöðin
heilleg eftir
áramótin
Sauðárkrókur og Selfoss hafa
fengið á sig slæma stimpla vegna
árlegra skrílsláta. Hafa forráðamenn
bæjarfélaganna haft miklar áhyggjur
vegna þessa.
Gamlárskvöld hefur verið árlegur
skrilslátadagur Sauökræklinga. Hafa
ólætin þar aðallega beinzt að
lögreglustöðinni og ýmist reynt að
sprengja hana í loft upp eða brenna
til ösku. Hafa lögreglumenn bæjarins
séð sér þann kost vænstan að forða
sér í felur.
En í ár fékk lögreglan á Króknum
liðsauka bæði frá Akureyri og
Reykjavík og árangurinn varð sá að
lögreglustöðin var svo til óskemmd
eftir áramótin. Að vísu var ein rúða
brotin en hvað er það?
Veiztu?
Veiztu, hvað það heitir í Bandarikj-
unum, þegar górilla ekur sendiferða-
bíl? '
?
Vanilla
Veiztu hvað bananasplitt heitir á
íslenzku?
?
Bjúgaldinsklofningur.
Veiztu hvernig maður kemur
hundrað Víetnömum inn í Volkswag-
en? i
?
Maður stráir bara hrígrjónum undir
sætin.