Dagblaðið - 13.01.1981, Blaðsíða 17
hefur enn ekki verið mönnuð,
en hún ætti að vera tilbúin
fyrir vikulok.
Stjörnumessan verður
haldin fimmtudaginn 12.
febrúar. Skilafrestur at-
kvæðaseðla i Vinsældavalinu
rennur út 1. febrúar. Þar eð
mjög stuttur tími er þarna á
milli eru kjósendur beðnir um
að fylla seðla sína út og senda
þá sem fyrst. Merkið umslag-
ið:
Dagblaðið
„Vinsældaval”
Síðumúla 12,
105 Reykjavík.
Ef draga má ályktun af því
hve margir seðlar hafa þegar
borizt í Vinsældavali Dag-
blaðsins og Vikunnar má bú-
ast við metþátttöku. Það þarf
ekki að koma neinum á óvart,
því að áhugi á lifandi tónlist
var mun meiri á síðasta ári en
mörg þar á undan.
Flestir sem sent hafa inn at-
kvæðaseðil hafa fyllt hann
allan út af stökustu samvizku-
semi. Það kann að reynast
mörgum erfitt að fylla hann
út en rétt er að taka fram að
seðillinn er gildur þó að ein-
hverjar línur á honum séu
auðar. Enn einu sinni skulu
kjósendur þó minntir á að
merkja hann með nafni sínu,
aldri og heimilisfangi. — Og
að skrifa skýrt og greinilega.
Sérstaklega er hætta á mis-
skilningi í erlenda hluta
valsins, ef skriftin er ekki
vönduð.
Ekki hefur miðaverð á
Stjörnumessuna verið á-
kveðið endanlega ennþá.
Þrátt fyrir það eru strax
farnar að berast fyrirspurnir
um hvenær miðasala hefjist
og hvort hægt sé að láta taka
frá borð í Súlnasalnum strax.
Verktakar Stjörnumess-
unnar verða hinir sömu og í
fyrra. Hendrik Berndsen í
Blómum og ávöxtum mun
skreyta Súlnasalinn. Gisli
Sveinn Loftsson hefur lýsingu
með höndum og Verzlunin
Tónkvísl sér um að allt tal
og tónar komist klakklaust til
skila. Stjömuhljómsveitin
Undirbúningur að Stjörnumessunni
er ákaflega margþættur. Sigurvegar-
arnir æfa sig í nukkra daga fyrir há-
tíðina með Stjörnubandinu, skreyta
þarf salinn, koma fyrir Ijóskösturum
og stilla upp söngkerfi. Hér eru tveir
sem leggja fram sinn skerf. Annar er
að steypa verðlaunastyttu úr áli, hinn
hrærir af vandvirkni i sveppasósunni.
DB-myndir.
DAGBLAÐSINS & VIKUNNAR 1980
Vinsœldaval DB og Vikunnar
/ Inníenáur Tónlistarmaður ársins 1. markaður Söngvari ársins 1. Vinsœldaval Dagbtaðsins og Vikunnar iqso \ Nafn: Aldur: Heimili:
2. 2.
3. 3.
Hl|ómsveit ársins 1. Söngkona árs’ins 1.
2. 2.
— -
3. 3.
Hljómplata ársins 1. 2. Lagársins 1 U»' - «*»)omsveit arsins 1. Söngvari ársins 1.
2. 2. 2.
3. 3. 3. 3.
Lagahöfundur ársins 1. Textahöfundur ársins 1. Söngkona ársins 1. Htfómplata ársins 1.
2. 2. 2. 2.
3. 3. 3. 3.