Dagblaðið - 11.03.1981, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 11.03.1981, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1981. 17 ■v Að undanförnu hefur allnokkuð verið rætl og ritað um gjöf Banda- lags kvenna til endurhæfingardeildar Borgarspítalans vegna alþjóðaárs fatlaðra 1981. Stórhugur bandalagsins er aðdáun- arverður og áreiðanlega verður þess ekki langt að bíða að „taugagreinir- inn” verði kominn á sinn stað i endurhæfingardeild Borgarspítalans. Nafn tækisins, „taugagreinir” á íslensku, er frumlegt og gæti hvaða sálfræðingur sem er verið stoltur af þessari nafngift. Bara að menn greini ekki á um hve fullkomið þaðer. Nafn tækisins á ensku hefur ekki komið fram mér vitanlega. Allt sem varðar getu þessa tækis til rannsókna hefur verið býsna þoku- kennt en í morgun sá til sólar, iðju- þjálfari frá endurhæfingardeild Borgarspítalans upplýsti að „lauga- greinirinn” yrði einnig notaður til töku heilarita. í ávarpi Bandalags kvenna í Mbl. 6.3. ’81 segir: „Ekkert heildartæki af þessu tagi er til hér á landi.” Þetta má skilja á þann veg að hlutatæki séu til hér á landi. Síðar í ávarpinu er talað unr betri nýtingu sérhæfðs starfsfólks á sjúkrastofnunum. Spyrja má hvar stjórn Bandalags kvenna hafi fengið þessar upplýs- ingar senr fram koma í ávarpinu? Vissi stjórn Bandalags kvenna uni eftirfarandi staðreyndir: Síðan 1963 hefur Landspítalinn séð um töku heilarita og hafði um sl. ára- mót tekið tæp 25 þúsund heilarit, þar af á sl. ári 1980 1724 rit. í dag starfar við Landspítalann „Taugagreimrinn” taugalífeðlisfræðideild — þar sem unnið er að töku heilarita, vöðvarita, taugamælinga og bráðlega mun EV Evoked potential einnig koma til. Tvö tæki eru notuð til heilaritunar og tvö til töku vöðva- og tauganrælinga. Annað heilaritunartæki deildarinnar er sérhannað og styrkt til flutnings (portable) og er til notkunar á Landa- koti og Borgarspítala sinn hvorn dag- inn í viku. Á sl. ári telst mér til að endurhæfingardeild Bsp. hafi sent sjúklinga 46 sinnum til heilaritunar, þar af aðeins 4 sinnum þá daga sem tækið var staðsett á Borgarspítalan- um. Hægt er nánast hvenær sem er sólarhringsins í neyðartilfellum að fá tækið flutt á hvaða sjúkradeild sem er. Er að furða að maður undrist þegar háfleyg ávarpsorð kvenna tala um betri nýtingu starfsfólks og það sérhæfðs. Spyrja má; af hverju hefur þjónusta Landspítalans ekki verið betur nýtt fram að þessu? Á sl. ári var keypt til taugalífeðlis- l'ræðideildai Landspítalans nýtt EMCi (Electromyograph). Áður hafði eldra tæki verið i notkun í nokkur ár, nýja tækið gerir vökva-, lauga- og leiðnimælingar. 1980 voru gerðar 281 taugamæling (Mcv), 128 vöðvamælingar (EMG) og 94 (ENeG) mælingar á tilfinninga- taugum. Þetta tæki er þannig upp- byggt að mjög margir möguleikar eru á því að byggja við það og þannig auka möguleika á rannsóknum t.d. EV Evoked potentials — Adutiory- evoked potentials, Visual-evoked po- tentials og somalo sensory evoked mælingar. Ég kalla mér til hjálpar nafngjafa „taugagreinisins” að íslenska nöfn þessara rannsókna. Þeir aukahlulir sem til þarf vegna þessara rannsókna munu kosta u.þ.b. 25 þús. nýkrónur. Þá eru heildartækin á íslandi nánast orðin tvö. Vonir standa til að þessi viðbót komi fljótlega í gagnið, enda var alltaf inni í myndinni að svo yrði þótl aðstæður og hagræðing hafi seinkað því að koma þessu í notkun. Hvernig er komið hagræðingu tækja og sérhæfðs starfsfólks innan Borgarspítalans þegar tvö tæki til heyrnarmælinga eru innan slofn- unarinnar, en Auditory evoked potentials hafa verið framkvæmdar á heyrnardeild og nú senn á endur- hæfingardeild einnig? Við taugalífeðlisfræðideild Land- spítalans starfar að því er ég besl veit eini sérfræðingurinn í kliniskri tauga- lífeðlisfræði á íslandi í dag. Starfsfólk taugalífeðlisfræði- deildar er sérhæfl í þeim rannsóknum sem nefndar hafa verið. Betri nýting sérhæfðs starfsfólks verður ekki að veruleika nema um einhverja sam- Kjallarinn Jóhann Guðmundsson vinnu sé að ræða. Margar spurningar vakna. Hver les úr heilaritum „tauga- greinisins”? Hver gerir vöðvarit, taugamælingar, taugaleiðnimæl- ingar? Hver er menntun og starfs- þjálfun þeirra sem við taugagreininn vinna? Hvað kostar alll þetla? Af hverju 2 rannsóknardeildir sem vinna nánast að sama verkefni? Hvað er að gerast í heilbrigðismálum islensku þjóðarinnar? Ég met og virði átak Bandalags kvenna en ég bið um skýringar á því af hverju þessi kostur að kaupa „taugagreini" var valinn? Hverjir voru spurðir ráða? Var það sameigin- legt álit lækna Landspítalans og Borgarspílalans og annarra þeirra sem þekkja þessi mál best að brýnust þörf væri á þessu tæki? islenska þjóðin bregst ekki ef til hennar er leitað um aðstoð við þá sem minna mega sín, en það hvílir mikil ábyrgð á þeim sem leiða átök og athafnir hinna fórnfúsu kvenna til góðra verka. Var stjórn Bandalags kvenna kunnugt um tæki og möguleika til viðbótarrannsókna á Landspítalan- um? Mér vilanlega var aldrei um það spurt. Hver gaf bandalaginu upplýsingar um að ekkert heildartæki væri til í landinu? Hver upplýsli urn betri nýi- ingu sérltæfðs starfsfólks á sjúkra- stofnunum með því að kaupa þella tæki? Af hverju var ekki boðað lil lundar með þeim sérfræðingunr sem vinna hér á landi um stöðu þessara mála í dag? Margar fleiri spurningar vakna, en þær biða seinni tíma. Ég er undrandi og á erfitl með að skilja það sem hér er á seyði. Að lok- um vildi ég óska þess íslenskra heil- brigðismála vegna að einhver góður maður verði til þess að kveða þessa grein mína algjörlega í kútinn, þannig að ekki slandi sleinn yfir sleini. Júhann Guðmunsson, deildarsljúri taugalifeðlis- fræðideildar l.andsp. 1 iBIAÐIÐ UMBOÐSMENN ÚTIÁ LANDI Akureyri Eyrarbakki Húsavík Raufarhöfn Anna Steinsdóttir. Evdis Vilhjálmsdótrir Valaerður Kristjánsdóttir, Sianý Einarsdóttir, Kleifargerði 3 ý. 96—22789 Sæhóli S. 99—3435 Garðarsbraut 32 S. 96—41419 Nónási 5. S. 96— Akranes Fáskrúðsfjörður Hvammstangi Reyðarfjörður Guðhjörn 'Þórólfsdóttir, Siaurður Óskarsson, Inaibjöra Hjaltadóttir. óla Bjiirk Inavarsdóttir, Háholti 31 S. 93-1875 Búðarveai 54 S. 97—5148 Melaveai 13 S. 95—1489 Ásaerði 7 S. 97- Bakkafjörður Flateyri Hveragerði Reykjahlíð v/Mývatn hreydls Mannásdóttir, Þorsteinn Traustason, Þorlcif Þorstcinsdóttir Þuriður Snœbjörnsdóttir. Hraunstíft 1 S.21 Drafnaraötu 17 S. 94-7643 Boraarhrauni 3 S. 99—4628 Skútahrauni 13 S. 96— Bíidudalur Gerðar Garði Hvolsvöllur Rif Snæfellsnesi Jóna Þorgeirsdóttir, Ósk Waltersdöttir. A rnarímur S va varsson. Estcr Friðþjófsdöttir, Dalbraut 34 S. 94-2180 Melahraut 13 S. 92— 7222 Litlaaerði 3 S. 99-5249 láarifi 59 S. 93- Blönduós Grindavík Höfn í Hornafirði Sandgerði Olfta Óla Bjarnadóttir. Kristín Þorleifsdóttir. Guðný Eailsdóttir. Guðný Bcncdiktsdóttir, Arhraut 10. S. 95—4178 Faxahrauni 7 S. 92—8324 Miðtúni 1 S. 97—8187 Norðuraötu 24 S. 92- Bolungarvík Grundarfjörður ísafjörður Sauðárkrókur Siyríður Kjartansdóttir. Kristín Kristjánsdóttir, Kristín Ósk Gisladóttir, Branddís Bcncdiktsdóttir, Heiðarhrún 4 S. 94-7341 Sæhóli 12 S. 93—8727 Sundastræti 30 S. 94— 3855 Raftahlið 40 S. 95- Borgarnes Hafnarfjörður Keflavík Selfoss Bergsveinn Simonarson. Ásta Jónsdóttir, Mararct Siaurðardóttir. Pctur Pétursson. Skallaf’rímsf’ötu 3 S. 93-7645 Miðvanai 106 S. 51031 Smáratúni3l S. 92—3053 Enaiavcai49 S. 99-1541 Breiðdalsvík Hafnir Kópasker Seyðisfjörður Svana Björnsdóttir, Siaurður R. Maanússon, Gunnlauaur Indriðason, Kristhjöra Kristjánsdóttir. Sæheryi 12 S. 97-5652 Vesturhús, Höfnum. S. 92—6905 Boðaacrði 3 S. 96—52106 Múluveyi 7 S. 97- Búðardalur Hella IMeskaupstaður Siglufjörður Edda Trygnvadóttir, Inaihjiira Einarsdóltir. Þorleifur Jónsson, Friðfinna Simonurdótrir, Dalhraut 10 S. 93—4167 l aufskálum 8 S. 99-5822 Nesbraut 13 S. 97— 7672 Aðalaötu 21 S. 96— Dalvík Hellissandur Ytri og Innri IMjarðvík Skagaströnd Maryrét Inyólfsdóttir, Sveinhjörn Halldórsson, Þörev Raanarsdóttir, Guðmunda Siaurherasdóttir, Hafnarh. 22 S. 96-61114 Stóru-Hellu S. 93-6749 Ilollsaötu 27, Y-N. S. 92-2249 Sólarveai !4 S. 95 Djúpivogur Hofsós Ólafsfjörður Stokkseyri Á slauy Einarsdóttir, Guðný Jóhannsdöttir, Stefán Einarsson, Pétur Birkisson, Grund S. 97—8834 Suóurhraut 2 S. 95—6328 Bvlajuhyaað 7 S. 96—623801 Hcimakletti S. 99- Egilsstaðir Hólmavík Ólafsvík Stykkishólmur Siyurluuf! Bjiirnsdóttir. Daaný Júliusdóttir. Jökull Barkarson, llanna Jónsdóttir, Árskónum 13 S. 97—1350 Hafnarhraut 7 S. 95-3178 Brautarholti S. 93—6373 Silfuraötu 23 • S. 93— Eskifjörður Hrísey Patreksfjörður Stöðvarfjörður Mannea Maanúsdóttir, Þórdls Valdimarsdóttir, Viadis Helaadóttir, Biraitta Benediktsdóttir, Lamheyrarbraut 3 S. 97-6331 Austurveai 3 S. 96—61776 Siytúni 6 S. 94—1464 Steinholti S. 97— Súðavík Jónína Hansdóttir, Túnnötu S. 94- 6959 Suðureyri 1tinriöur Pálsdóttir. Hjalla icf-i 19 S.94-6UH Tálknafjörður Guðbjörg Friðriksdúttir. Túngötu.Jl S. 94—2565 Vestmannaeyjar Aurora Friöriksdóttir. Kirkjubwjarhraut 4 ,y. 98— 7161 Vík í Mýrdal Jón F. Gunnarsson, Hukkuhraut 16 S. 99— 7161 Vogar Brimhildur Jónsdóttir. Arancröi 9 S. 92-6569 Vopnafjörður llrafnhildur Stcindórsdóttir. I.ónabruut 36 S. 97— 3116 Þingeyri Tlulda Frióbertsdóttir, Brekkunötu 40 S. 94-8163 Þórkötlustaðarhverfi Grindavík Sinurdór Friðjónsson. Bræðratunnu. S. 92-8061 Þorlákshöfn Franklln Bcncdiktsson. Knarrarhcrfii 2 S. 99—3624 3636 Þórshöfn Aðalbjörn Arnurimsson. ArnarfeUi S. 96—81114

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.