Dagblaðið - 11.03.1981, Blaðsíða 10
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1981.
10
tm'mm.....
Uppsögn starfsmanns á trésmíðaverkstæði Kópavogsbæjar:
MAUNU VÍSAÐ TIL
TRÉSMIÐAFÉLAGSINS
Páll Björgvinsson húsasmiður i
Kópavogi hefur beðið Trésmíðafélag
Reykjavíkur að leita réttar síns. Páll
var starfsmaður á trésmíðaverkstæði
Kópavogsbæjar en var sagt upp
störfum 4. marz sl. í kjölfar árekstra
við Sigurð Gíslason, yfirmann
tæknideildar bæjarins. Arnmundur
Bachmann, aðstoðarmaður félags-
málaráðherra og lögmaður Tré-
smíðafélagsins, mun kanna málið
síðar í vikunni.
Dagblaðið greindi frá þvi á laug-
ardaginn að erindi Páls hefði komið
fyrir fund bæjarráðs 3. marz.
Meirihluti ráðsins vísaði því til
Sigurðar Björnssonar bæjar-
verkfræðings að „Ijúka málinu”,
eins og það var orðað. Sigurður
afhenti Páli siðan formlegt
uppsagnarbréf. Á bæjarráðs-
fundinum gerðu tveir bæjarfulltrúar
harðorðar bókanir um málið. Daginn
eftir óskaði Sigurður Gislason eftir
þvi að stjórn Starfsmannafélags
Kópavogsbæjar mótmælti bókun
annars þeirra, Guðmundar Odds-
sonar. Á bæjarráðsfundi í gær lagði
Sigurður Gíslason svo fram greinar-
gerð um málið sem birt er í DB í dag.
Einnig var leitað til Sigurðar Björns-
sonar og Páls Björgvinssonar um
deilu þessa.
-ARH.
Páll brást reiður við og kallaði mig
uppskaf ning, vindbelg og annað verra.
Eg gat ekki unað því og:
EG RAK HANN
ÚR STARFI
Á STUNDINNI
segir í greinargerð Sigurðar
Gíslasonar sem lögð var f ram á
bæjarráðsfundi íKópavogi ígær
Sigurður Gíslason, yfirmaður
tæknideildar Kópavogs, lagði fram
bréf á bæjarráðsfundi i gær vegna
uppsagnar Páls Björgvinssonar. Þar
eru málsatvik rakin eins og þau horfa
við Sigurði:
„24. ágúst 1980 fór Þorsteinn
Magnússon stjórnandi trésmíða-
verkstæðis í orlof, voru þá eftir 1 tré
smiður, 1 aðstoðarmaður og I
sumarmaður sem vann til 1. sept.
16. sept. ræður undirritaður Pál
Björgvinsson trésmið til starfa.
29. sept. kom Þorsteinn úr orlofi.
Unnið var að venjubundnu viðhaldi
auk nýsmíði.
17. okt. hættir aðstoðar-
maðurinn, og eru þá eftir Þorsteinn,
Sigurður Þorsteinsson og Paul
Björgvinsson. í byrjun nóv. var
ákveðið að Þorsteinn færi í hjarta-
aðgerð til London. Þorsteinn var þá
búinn að hafa augastað á Konráð
Guðmundssyni fyrrverandi nemanda
sinum, sem hann gjörþekkti og var
ráðinn 19. nóv. sem verkstjóri með
Þorsteini. Konráð gat ekki byrjað
fyrr en 2. janúar 1981.
21. nóv. fór Þorsteinn á verk-
stæðið og tilkynnti þar að verkstjóri
hefði verið ráðinn. Um kvöldið
hringir Páll til undirritaðs og krefst
kauphækkunar og hækkunar á bif-
reiðastyrk, þar sem hann telur sig
hafa rétt til verkstjórastarfsins. Fór
nú að bera á óánægju og hótunum
hjá honum við þann starfsmann sem
eftir var.
1. des. byrjar Jónas Jónsson tré-
smiður sem þriðji trésmiður á verk-
stæðinu.
hvað hann hefði fyrir stafni. Þetta
gekk þannig til fram eftir janúar og
var komið út í það að hinir starfs-
menn verkstæðisins voru farnir að
kvarta yfir yfirgangi hans og óþarfa
afskiptasemi og ofstjórnun. Þetta á-
stand var að mestu látið afskipta-
laust af undirrituðum.
Segja ekkert,
gera ekkert
og vera ekkert
29. jan. fór Páll upp á bæjarskrif-
stofur og klagaði undirritaðan fyrir
yfirmönnum og vildi fá beiðnabók til
úttekta, en fékk ekki.
30. jan. frétti undirritaður þessar
aðgerðir hans og bar á hann að hann
hefði klagað sig fyrir yfirmönnum
bæjarins. Hann brást reiður við og
kallaði undirritaðan uppskafning,
vindbelg og annað verra eftir því, og
skipaði honum út af verkstæðinu.
Undirritaður gat ekki unað þessu
eftir það sem á undan var gengið og
rak hann úr starfi á stundinni.
Formgalli var á þessari uppsögn þar
sem hún var ekki staðfest skriflega.
Undirritaður hefur afsakað það á
fundi, sem haldinn var með tilnefnd-
um mönnum af hálfu bæjarráðs og
Páli. Það má kannski segja eins og
einhvers staðar stóð: Eina leiðin til að
forðast gagnrýni er að segja ekkert,
gera ekkert og vera ekkert.
Sigurður Gíslason (sign).”
-ARH.
„EKKIBLAÐAMATUR”
—segir Sigurður Bjömsson bæjarverkf ræðingur, sem gekk
f ormlega f rá uppsögn Páls
„Mér var falið að segja
manninum upp formlega og það
gerði ég,” sagði Sigurður Björnsson
bæjarverkfræðingur Kópavogs-
kaupstaðar aðspurður um hans þátt í
uppsögn Páls Björgvinssonar. Meiri-
hluti bæjarráðs, Jóhann H. Jónsson,
Guðni Stefánsson og Richard
Björgvinsson, lögðu til eftirfarandi á
fundi 3ja marz:
„Bæjarráð átelur i hvern farveg
þetta mál hefur farið, en telur ekki
rétt að hafa bein afskipti af því og
felur bæjarverkfræðingi að ljúka
málinu.”
Sigurður Björnsson færðist undan
því að segja hvernig uppsögnina
hefði borið að höndum eða hver
hefði tekið ákvörðun í málinu áður
en honum var falið að ganga frá þvi
endanlega.
„Bæjarráð fól ákveðnunt
mönnum að kanna þetta og
ákvörðunin var nánast tekin á
fundi.”
Hvaða „ákveðnum mönnum” og
á hvaða fundi?
„Það vil ég ekkert um segja. Þetta
er ekkert mál, það er daglegt brauð
að lausráðnum mönnum sé sagt upp.
Þetta er ekki blaðamatur. ”
-ARH.
Sigurður Gíslason, yf irmaður tæknideildar:
Mótmælir bókunum bæjarráðsmanns
—við stjórn Starfsmannaf élags Kópavogskaupstaðar
Ósamkomulagið
magnaðist
19. des. fór Páll að kvarta um að
fá ekki úttektabeiðnabók til afnota,
en ein beiðnabók var fyrir verk-
stæðið, og Þorsteinn hafði beðið
Sigurð son sinn, og sem var búinn að
vera lengst af þeim starfsmönnum,
að sjá um útréttingar fyrir verk-
stæðið. Fékkst Páll ekki til að gefa
upp nafn á verki né efnismagni. Þetta
ósamkomulag magnaðist svo að
undirritaður bauð Páli að hann
þjónaði sérstaklega dagvistunar-
stofnunum og þeim verkum sem
heyra undir Félagsmálastofnun til að
halda ósamkomulaginu niðri. Nú fór
að bera á, þegar undirritaður kom til
eftirlits á verkstæðið, að Páll svaraði
ekki undirrituðum eða gaf ekki upp
Sigurður Gíslason, yfirmaður
tæknideildar Kópavogs, hefur sent
stjórn Starfsmannafélags bæjarins
bréf dags. 4. marz og óskað eftir því
að hún „mótmæli þeirri árás og sér-
bókunum bæjarfulltrúa á 1102.
fundi bæjarráðs, þar sem sýnilega
eru túlkuð sjónarmið annars aðila,
og umsögn flutningsmanns um
undirritaðan niðrandi.” Sigurður
harmar að „slík ummæli skuli koma
frá háttvirtum fulltrúa í bæjarráði
um starfsmann sem hefur starfað
nær 15 ár í þágu Kópavogs-
kaupstaðar.”
Umrædd bókun birtist í DB á
laugardaginn og er frá Guðmundi
Oddssyni, Alþýðuflokki.
Hún er svohljóðandi.
„Að reka mann fyrirvaralaust og
án mikils tilefnis er vítavert athæfi.
Það lýsir vel hroka og stærilæti yfir-
mannsins. Framkoma Sigurðar
Gíslasonar í þessu máli er stórlega á-
mælisverð. Bæjarbúar gera þá lág-
markskröfu til yfirmanna
tæknideildar bæjarins að þeir sýni
undirmönnum sínum venjulega
kurteisi og láti þá njóta almennra
mannréttinda. Mér finnst bæði rétt
og sjálfsagt að Sigurður Gíslason
biðji Pál Björgvinsson afsökunar á
framkomu sinni.”
Björn Ólafsson, Alþýðubandalagi
lét bóka á sama fundi:
„Ég tek undir það að bæjarráð
hafi ekki bein afskipti af uppsögn
Páls Björgvinssonar en ég tel það lág-
markskröfu til starfsmanna bæjarins
að þeir fari að lögum og siðaðra
manna háttum. Ég tel það lágmark
að Páll Björgvinsson fái greiddan
fullan uppsagnarfrest frá móttöku
skriflegrar uppsagnar og að hann
verði formlega beðinn afsökunar á
frumhlaupi starfsmanna bæjarins.”
-ARH.
V