Dagblaðið - 11.03.1981, Blaðsíða 27

Dagblaðið - 11.03.1981, Blaðsíða 27
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1981. 27 <s Útvarp Sjónvarp BASILÍÓ FRÆNDI — útvarpssagan kl. 21,45: A ðalpersónumar ung hjón sem eru að koma sér fyrir —gerist á breytingatímum í portúgölsku þjóðlífi Erlingur E. Halldórsson, rit- höfundur, les í kvöld fjórða lestur út- varpssögunnar, Basilíó frænda, eftir Jose Maria Eca de Queiros. Sagan gerist i Lissabon og næsta nágrenni á síðustu öld. Aðalper- sónumar eru ung hjón sem eru að koma sér fyrir og fjallar sagan um lif þeirra. Maðurinn er verkfræðingur. Basilíó frændi, sem sagan er nefnd eftir, er ævintýramaður, sem ungur hafði farið til Brasiliu og auðgaztþar á braski. Hann snýr heim og verður áhrifavaldur í lífi ungu hjónanna. Sagan gerist á þeim tima þegar miklar þjóðfélagsbreytingar eru að ger- ast í Portúgal. Aðallinn í landinu er að syngja sitt síðasta en borgarastéttin að ná völdum. Að sögn Erlings E. Hall- dórssonar er sagan skrifuð í fremur raunsæjum stíl, þeim, sem tíðkaðist á öld, og minnir sagan nokkuð á Dickens. Höfundurinn, Jose Maria Eca de Queiros, er portúgalskur. Hann lézt stuttu eftir aldamót. Hann var lög- fræðingur að mennt og starfaði lengi í utanríkisþjónustunni, m.a. á Kúbu. Lesturinn í kvöld er, sem fyrr sagði, sá fjórði en alls er sagan yfir 30 lestrar. -KMU. Erlingur E. Halldórsson. MAÐUR NORÐURSINS - sjónvarp kl. 18,35: Rekur stóran villidýrabúgarð — í þeim tilgangi að bjarga dýrum frá útrýmingu Maður norðursins hefur A1 Oeming verið nefndur. A1 Oeming er dýravinur sem rekur stóran villidýra- búgarð í Alberta í Kanada, en i sjónvarpinu í dag kl. 18.35 verður sýnd mynd um starf hans. Al Oeming elur upp og ræktar dýr á búgarði sínum í þeim tilgangi að bjarga þeim frá útrýmingu. Er þar bæði um að ræða hitabeltisdýr og heimskautadýr og allt þar á milli. Þessi mynd lýsir starfi hans, hvernig það fer fram og hvað A1 Oeming er í raun að fást við. A1 Oeming hefur mikið beitt sér fyrir dýra- og um- hverfisvemd og telur að hagsmunir manna og dýra fari þar saman og því beri að fara að öllu með gát á tímum iðnvæðingar. Sjálfsagt muna margir eftir mynd um þennan manns, er sýnd var i sjónvarpinu um síðustu jól en í dag gefst okkur kostur að kynnast enn frekar starfihans. Þýðandi og þulur er Ingi Karl Jó- hannesson. -KMU. Al Oeming hefur m.a. stundað rannsóknir á fágætri uglutegund i þeim tilgangi að bjarga henni frá út- rýmingu. UK- / ffí Karl Ingalls ásamt Láru dóttur sinni. Þau koma mikið við sögu i þættinum i kvöld. HÚSIÐ Á SLÉTTUNNI—sjónvarp kl. 20,35: Karl slasast íveiðiferð — Lára send eftir hjálp Næstsíðasti þáttur Hússins á sléttunni er á dagskrá í kvöld — að loknum fréttum. Nefnist hann Veiðiferðin. Lára fer með föður sínum i veiðiferð út í skóg. Á leiðinni fara þau fram hjá kofa þar sem blindur maður býr ásamt syni sinum, sem er veiðimaður. í veiðiferðinni slasast Karl, faðir Láru. Hann sendir Láru til byggða, til að sækja hjálp. Meira segjum við ekki. Burl Ives, þjóðlagasöngvarinn kunni, fer með hlutverk i þættinum, hann leikur blinda manninn sem býr i kofanum. Björn Baldursson, dagskrárritari sjónvarpsins, sagði í samtali við DB að ekkert væri enn ákveðið um frekari kaup á þessum þáttum. Þátturinn næsta miðvikudag verður því sásíðasti, a.m.k. í bili. -KMU. 4L Borgarbíóið 4 MINNIR Á Ný hörkuspennandi mynd um ævintýramanninn Harry Black og glæpamenn sem svífast einskis til að ná takmarki (skotmárki) sínu. Leikstjóri: HenryNeill Aðalhlutverk: Vic Morrow Charlotte Rampling Caesar Romero Victor Buono lsteittV“rtóí? Bönnuo

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.