Dagblaðið - 11.03.1981, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 11.03.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1981. d l Erlent Erlent Erlent Erlent Amy gat ekki svarað einni spumingunni — atvinnumálaráðuneytið gerði þá viðamikla skýrslu Amy Carter, hin 12 áragamla dóttir seta, var alltaf nokkuð í fréttum á Jimmy Carters, fyrrum Bandaríkjafor- meðan faðir hennar gegndi forseta- Amv — vissi ekki svarið við einni spurningu i heimaverkefninu. embættinu. Amy er eins og jafnaldrar hennar í skóla og fær að sjálfsögðu heima- verkefni. Eitt sinn hafði henni verið sett fyrir að gera verkefni um iðnbyltinguna. Amy bað mömmu sína, Rosalynn, um smáhjálp við verkefnið en mamma hennar var ekki of vel að sér í efninu sem um var að ræða. Rosa- lynn hafði því samband við einn af ráðgjöfum Hvíta hússins og spurði hvort hann vissi eitthvað um þetta ákveðna atriði í sambandi við iðnbyltinguna. Ráðgjafinn misskildi erindið — hélt að verið væri að biðja um upplýsingar fyrir forsetaembættið — svo hann hringdi í atvinnumálaráðuneytið og til- kynnti að Hvíta húsið vantaði upplýsingar um ákveðið atriði í sam- bandi við iðnbyltinguna. Þar var allt setl í gang og nokkrum dögum seinna barst Hvíta húsinu þykk skýrsla um iðnbyltinguna. Sagt er að fjöldi starfsmanna rikisins hafi unnið baki brotnu við skýrslugerðina, grafizt fyrir um hin ýmsu atriði og reynt að vanda vel til verksins í þeirri trú að um væri að ræða eitthvað mikilvægt fyrir Hvíta húsið. Rosalynn Carter hafði ekki hug- mynd um hvað orðið hafði af fyrir- spurn hennar og varð því mjög undr- andi þegar ráðgjafinn færði henni hina viðamiklu skýrslu. VITNI VARÐ AF VERÐLA UNUNUM St. Paul’s dúmkirkjan tekur 2500 manns i sæti. Köflóttar gangbrautir? Danskir umferðarsálfrieðinfiar (það starfsheiti er líka til) halda þvifram að ekki sé ntegilegt að merkja RanRbrautir eingöngu með römlum sem lifmia sam- hliða götunni, heldur verði einnifi að mála þverrendur. Ganf-hrautirnar eifii sem sagt að vera köflóttar. Hafa umferðarsálfrœðingarnir lugt til að linur á gangbrautum verði 50 sentl- metra breiðar, og með 50 sentlmetra millibili. Og að sjálfsögðu köflóttar. Verða gangbrautir f Re.vkjavik orðnar köflóttar áður en árið er liðið? Það rikti spenna i dórnshúsinu í San Francisco þegar réttarhöld hófust yfir þrem meðlimum óaldar- flokksins Hell's Angels sem við á Islandi nefnum gjarnan Vítisenglana. Earl Moore var aðalvitni saksókn- arans og átti að fá $15,000 grciddar fyrir upplýsingar sem leitl gætu til sakfellingar „englanna” í eiturlyfja- máli. Moore leit yfir salinn og ákveðið benti hann á þrjá menn sem hina seku. J. Tony Serra, Andre La Borde og Allan Caplan. En vandinn var sá að þessir þrir, sem Moore benti á, voru engir aðrir en verjendurhinnaákæröu „engla”. Á fótun- unum hennar mömmu Nýfteddi mörgtesarunginn á mynd- inni virðist ánœgður með aðfáfriaferð á fótunum hennar mömmu sinnar. En það er ekki aðeins vegna ánœgjunnar sem mörgtesarunginn stendur áfótun- um, hinir ungu fœtur þola illa kuldann á suðurpólnum og mega þvl ekki standa mikið á Isnum. Pabbinn, I slnum náttúrulegu kjól- fötum, stendur stoltur hjá. Brúökaup Karls og Diönu 29. júlí nk.: Verða gefin sam- an í St. PauVs dómkirkjunni — en ekki í Westminster Abbey Karl prins, erfingi brezku krúnunnar, og Diana Spencer verða gefin saman 29. júlí nk. í St. Paul’s dómkirkjunni í London. Hjónaefnin völdu St. Paul’ s kirkjuna frekar en Westminster Abbey sem hingað til hefur verið notuð við flest mikilvæg tækifæri í sögu konungs- fjölskyldunnar, s.s. brúðkaup og jarðarfarir. Elísabet drottning og Filippus voru t.d. gefin þar saman í hjónaband árið 1947. Ástæðan fyrir því að St. Paul’s kirkjan varð fyrir valinu er að sögn talsmanns Buckingham-hallar sú að hún rúmar mun fleiri í sæti — 2500 manns. Erkibiskupinn af Kantaraborg. Robert Runcie, andlegur leiðtogi 65 milljóna meðlima Ensku biskupa- kirkjunnar, framkvæmir vígsluna. í ráði er að brúðkaupsdagurinn verði lýstur þjóðhátiðardagur. Hraðskreiðasta farþegalestin — hefur náð 380 km hraða á klst. Farþegalestin á myndinni er sú hraðskreiðasta i hcimi. Hún er frönsk og í tilrauna- akstri nýlega náði hún 380 km hraða á klst. sem er met. í september nk. verður hraðlcstin sett f áætlun á miili Parisar og Lyon.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.