Dagblaðið - 11.03.1981, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1981.
8
( Erlent Erlent_______________Erlent_______________Erlent____________j
. f ■
Bóndasonurinn byggði upp milljarðafyrirtæki:
Enginn færad veröa
of valdamikill innan
IKEA-fyrirtækisins
—Bónda-
sonurínn
Ingvar
Kamprad
villhafa
þaröll
spilá
eigin
hendi
Sagan um veldi IKEA-verzlana-
keðjunnar er sagan um bóndasoninn
Ingvar Kamprad frá Smálöndum í
Svíþjóð, sem byggði upp þetta millj-
arðafyrirtæki i húsgagnaíðnaði.
IKEA er langstærsta fyrirtæki sinnar
tcgundar í Svíþjóð, með útibú á öll-
um Norðurlöndunum. Á nánast
hverju sænsku heimili gætir áhrifa
frá IKEA, sem er í sérstökum stil.
Ótrúleg saga
Ingvar Kamprad, eða IK eins og
hann er almennt kallaður, á næsta
ótrúlega sögu að baki. Hann hefur
algerlega byggt þetta fyrirtæki upp
einn frá grunni. Á bóndabænum þar
sem hann ólst upp byrjaði hann á þvi
að framleiða húsgögn og sendi þau
síðan i póstkröfu til viðskiptavina
sinna. Á 25 árum hefur hann gert
þetta fyrirtæki að risaveldi, eftir
stendur aðeins nafnið IKEA, sem
stendur fyrir Ingvar Kamprad Emla-
ryd Agunnaryd.
Nú er fyrirtækið, sem er orðið al-
þjóðlegt, með aðalb.mkistöðvar sínar
á Norðurlöndununt. i Álmhult í Sví-
V ,
þjóð, en samsteypu í Humlebæk í
Danntörku.
Enn eru þó Irtgvar Kamprad og
fjölskylda aðaleigendur verzlana-
keðjunnar. Sölugildi fyrirtækisins er
reiknað á langt yfir milljarð (s. kr. )
og myndi þá hugsanlegur kaupandi
gera góð kaup.
Ekki í sölu-
hugleiðingum
Ekki þykir þó líklegt að Ingvar
Kamprad og fjölskylda séu í söluhug-
leiðingum. Þvert á móti er það ekki
talið líklegt að hann hafi áhuga á því
að losna við þetta risafyrirtæki.
Hann tekur enn mjög mikinn þátt
i daglegum rekstri þótt það sé nú
þjóðsaga að hann vinni enn í vöru-
geymslunni í Álmhult. Hann fylgist
mjög náið með allri framleiðslu, og
hann fær eintök send. af öllu sem
fyrirtækið framleiðir, Hann gelur því
stoppað allt sem honum lízt ekki á og
telur ekki standast þær kröfur sem
gerðar eru.
í Svíþjóð er fyrirtækið tvíþætt, í
Kreditkorthafar
velkomnir
SL)scÐco)=ír[^an®©Tr®[ÐD!^a
Laugalæk 2, Reykjavík,
Sími 86511
[HÚSASMIÐIR:-----------------------
Framtíðaratvinna í sveit
Byggingarfélagið Höfn hf. við Patreksfjörð óskar eftir
vönum smið til að reka trésmíðaverkstæði. Húsnæði
hugsanlega til leigu.
Upplýsingar veitir Gunnar Össurarson í síma 22527 kl.
8—9 síðdegis dagana 11. og 12. marz.
Borgarbókasafn Reykajvíkur
STÖÐUR
bókasafnsfræðinga
og bókavarða
eru lausar til umsóknar.
Stööurnar eru í:
aöalsafni, Þingholtsstræti 29A,
Sólheimasaf ni, Sólheimum 27,
Bústaðasafni, Bústaðakirkju.
Launakjör fara eftir samningnm við Starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar. Skriflegar umsóknir ásamt upplýsing-
um um menntun og fyrri störf sendist safninu fyrir 1. apríl
* ^^ *' Borgarbóka vörður
fyrsta lagi er það eitt fyrirtæki sem
sér um innkaup og vörugeymsluna i
Álmhult (IKEA Svenska AB) og svo
hins vegar fyrirtæki sem sér um
reksturinn á verzlununum (IKEA
Svenska försaljnings AB).
eingöngu viðskiptavit og fjármálavit
Ingvars Kamprads sem sé ástæðan
fyrir því.
Er fyrirtækið hefur verið að víkka
Út starfsemi sina í öðrum löndum
hafa aldrei verið gerðar neinar kann-
sé svona háð einum manni; hvað ger-
ist ef hann fellur skyndilega frá?
Hann hefur sjálfur svarað þeirri
spurningu eitthvað á þá leið að til sé
bráðabirgðaáætlun sem myndi verða
notuðef hann félli skyndilega frá.
H i'kv '• ••
wyj&M
Sú saga er sögð um lngvar Kamprad að hann vinni enn i vörugeymslu fyrirtækisins f Álmhult.
Ódýr húsgögn
í fjöldaf ramleiðslu
Hugmyndin á bak við velgengni
IKEA er að selja ódýr húsgögn, í
fjöldaframleiðslu. Ódýr húsgögn er
hægt að framleiða ef haft er strangt
eftirlit með allri framleiðni alveg frá
grunni og nákvæmt eftirlit með allri
dreifingu. Húsgagnahlutirnir verða
að komast fyrir á mjög litlu plássi;
Ingvar Kamprad komst að þvi að
það væri óhagkvæmt að flytja loft
með, dýrt og fyrirhafnarmeira.
IKEÁ framleiðir ekki einstaka hús-
gagnahluti sjálft, heldur eru það aðr-
ir sem framleiða hina einstöku hluti
eftir pöntun frá IKEA: 60% af vör-
unum eru framleiddar í Svíþjóð.
IKEA leggur mikla áherzlu á að
skapa sérstaka linu. Innan Skandína-
víu eru þeir með sænska linu en utan
Skandínavíu leggja þeir áherzlu á
skandinaviska linu.
Leyndardómurinn
En hver er leyndardómurinn á bak
við þessa miklu velgengni?
Þeir sem til þekkja telja það vera
anir á markaðshorfum áður. Sögð er
sú saga innan fyrirtækisins að þegar
stóð til að opna verzlanir i Ziirich í
Sviss hafj Ingvar Kamprad stillt sér
fyrir utan húsgagnaverzlun þar í borg
og varpað þeirri spurningu til vegfar-
enda hvort ekki mætti bjóða þeim að
líta á IKEA-sófa í stað þess sem væri
i sýningarglugganum.
Þeirri hugmynd hefur skotið upp
innan fyrirtækisins að það kunni að
vera mjög varhugavert að fyrirtækið
Engir arftakar
Arftakar innan fyrirtækisins finn-
ast ekki. Ingvar Kamprad er þó ekki
nema 54 ára gamall, þannig að ekki
er kannski þörf á neinum sérstökum
arftökum fyrirtækisinsí dag.
Þeir sem reyna að verða of áhrifa-
miklir og valdamiklir eru látnir
hverfa úr fyrirtækinu hefur heyrzt
sagt hjá starfsfólkinu.
IKEA-keðjan hefur á sinum snær-
um 23 vöruhús, þar af sjö í Svíþjóð.
Vöruhúsin eru í Danmörku, Noregi
Vestur-Þýzkalandi, Hollandi, Sviss,
Austurríki og Kanada. Auk þess eru
fjöldamörg fyrirtæki sem selja hús-
gögn fyrir IKEA i umboðssölu. Þetta
er gert i Japana, Ástralíu, Hong-
Kong og víðar. Nú stendur fyrir
dyrum hjá fyrirtækinu að freista
gæfunnarí Bandaríkjunum.
Talið er að velta fyrirtækisins sé
um 3.6 milljarðar sænskra króna á
ári og starfsfólk fyrirtækisins er um
4.800 manns. Þetta mun vera
stærsta húsgagnakeðja í heimi, og
hafa þeir 20% af húsgagnamarkaðn-
um í Svíþjóð.
r