Dagblaðið - 03.04.1981, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1981.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1981.
12
2K
i
íþrótfir
Iþróftir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
Fram sló Val út í bikarkeppni HSÍ26-24:
EKKILENGUR NEISTI
í LEIK VALSLIÐSINS
Lett hja Víkingum
íslandsmeistarar Víkings tóku Árbæ-
inga í kennslustund í handknattleik
á fjölum Laugardalshallarinnar í gær-
kvöld f 8-liða úrslitum bikarkeppni
HSÍ. Úrslit Víkingur 28, Fylkir 17. Vík-
ingar komust fljótt í 4—1, síðan 12—5
og staðan í hálfleik var 14—7. I s.h.
juku Vikingar muninn í 11 mörk.
Aldrei nein keppni.
Mörk Víkings skoruðu Þorbergur
Aðalstcinsson 11/1, Ólafur Jónsson 4,
Páll Björgvinsson 3, Steinar Birgisson
3, Guðm. Guðmundsson 2, Óskar Þor
steinsson 2/1, Brynjar Stefánsson 1,
Stefán Halldórsson 1 og Árni Indriða-
son 1. Krístján Sigmundsson varði tvö
af þremur vítaköstum Fylkis. Mörk
Fylkis Gunnar Baldursson 8/1, Stefán
Gunnarsson 3, Ásmundur Kristinsson
2, Guðm. Kristinsson 2, Haukur Har-
aldsson 1 og Andrés Magnússon 1.
- hsím.
Fram vann sanngjarnan sigur á Val í
8-liða úrslitum bikarkeppni HSI i
Laugardalshöll í gærkvöld, 26—24.
Sigur Fram var öruggari en þessar tölur
gefa til kynna. Fjögurra marka munur,
25—21, þegar tæpar þrjár mínútur
voru til leiksloka. Snjall leikur Atla
Hilmarssonar, Björgvins Björgvins-
sonar og Hannesar Leifssonar lagði
grunn að sigri Fram. Varnarleikur og
markvarzla beggja liða var hins vegar
slakur allan tímann eins og markatöl-
urnar gefa til kynna.
Eftir að Jón Pétur Jónsson hafði
skorað fyrsta mark leiksins fyrir Val
náði Fram fljótt forustu. Komst í 3—1
en Fram gekk illa að ná afgerandi for-
ustu. Hafði þó oft möguleika til að
komast fjórum til fimm mörkum yfir.
Mestur munur þrjú mörk en undir lok
hálfleiksins tókst Val að minnka mun-
inn niður í eitt mark, 13—12.
Val tókst fljótt að jafna í 14—14 í
s.h. en það vantaði neistann í leik Vals-
manna. Eftir aðjafntvar 16—lökomst
Valur i annað skipti í leiknum yfir,
17—16. Fram sneri þó fljótt dæminu
við sér í hag. Komst í 22—19 þegar átta
íslandsmótið í badminton á Akranesi:
Keppendur 80
f rá átta félögum
Reykjavikur- íslands- og bikarmeistarar Þróttar. Fremst eru Leifur Harðarson fyrirliði og Valdemar Jónasson. I miðröð frá vinstri Jón
Árnason, Jón Friðrik Jóhannsson, Gunnar Árnason og Skúli Sveinsson. Aftast cru Haukur Magnússon, Barði Valdimarsson, Sveinn Hreinsson
og Guðmundur E. Pálsson sem jafnframt er nýkjörinn formaður Þróttar. DB-mynd: S.
ÞREFALT HJÁ ÞRÓTH
— en ÍS-stúlkumar komu ívegfyrir aö kvennalið Víkings léki það eftir
Þróttur varð bikarmeistari í blaki, karla-
flokki, er liðið vann ÍS örugglega með
þremur hrinum gegn engri í Hagaskóla í gær-
kvöldi. Þar með vann liðið sinn þriðja titil i
vetur, fyrir í safninu voru Reykjavíkur- og
íslandsmeistaratitillinn.
Fyrsta hrinan í úrslitaleiknum í gærkvöldi
var tilþrifalítil og Þróttur vann hana örugg-
lega 15—9. Á sömu leið virtist ætla að fara í
næstu hrinu, Þróttur komst í 6—0 og 11—5
en þá tók ÍS við sér og náði forystu 13—11
og skyndilega var komin spenna í leikinn. En
Þróttarar voru seigir, sigu hægt og rólega
fram úr og unnu 15—13. Þriðju hrinuna
unnu þeir með yfirburðum, 15—5, og þar
með leikinn.
Þróttur og lS léku einnig um síðustu helgi,
i síðasta leik 1. deildar. Þá voru Stúdentar
mun hressari heldur en í gær og veittu
Þrótturum harða keppni en ekki tókst þeim
að hindra að þeir færu út úr íslandsmótinu
með fullt hús stiga því Þróttur vann 3—2,
15—11,9—15, 15—17, 15—7,og 15—5.
Lokastaðan í 1. deild karla varð þessi:
Þróttur 16 16 0 48—11 32
(S 16 10 6 38—25 20
Víkingur 16 8 8 33—29 16
UMFL
Fram
UMFL og Fram þurfa að leika aukaleik
um fallið en enn hefur ekki verið ákveðið
hvenær sá leikur fer fram.
Ungmennasamband Eyjafjarðar, UMSE,
varð sigurvegari i 2. deild þegar liðið vann
ÍBV í hörkuspennandi leik, 3—2, eins og
þegar hefur verið skýrt frá. Fjögur lið, tvö
efstu liðin í hvorum riðli deildarinnar, léku í
úrslitakeppni og varð lokastaðan í henni
þessi:
UMSE 2 2 0 6—3 4
ÍBV 2 11 5—3 2
ÍMA 2 1 13-4 2
Þróttur b 2 0 2 2—6 0
Rétt er að taka fram að enn er tveim leikj-
um ólokið í Norðausturlandsriðlinum.
UMSE og ÍMA eiga bæði eftir að fara á
Norðfjörð og leika við heimamenn en móta-
nefnd Blaksambandsins taldi ekki rétt að
fresta úrslitakeppninni vegna þessa þar sem
leikirnir hafa engin áhrif á stöðu efstu
liðanna i riðlinum.
Víkingsstúlkurnar höfðu gert sér vonir um
HJ0RTUR SETTIMET
— hljóp 50 m grind á 6,7 sek ígærkvöld
Hjörtur Gíslason, KR, setti í gærkvöld
íslandsmet í 50 m grindahlaupi og hljóp á 6,7
sek. Það fór því eins og við spáðum hér í DB
að metið þeirra Valbjarnar, Stefáns og Elías-
ar stæði ekki lengi. Annar varð Gísli Sigurðs-
son, UMSS, á 6,9.
Jón Oddsson stökk 7,20 í langstökki og
Hjörtur náði þar 6,57 — svona upp á grín.
Þá má geta góðs tíma Gunnars Kristjáns-
sonar, stórefnilegs pilts, í 50 m grind. Tími
hans var 7,5 sek. aðeins 0,2 sek. frá meti
Stefáns Hallgrímssonar í drengjaflokki.
Í síðustu viku átti Guðrún Ingólfsdóttir
kast upp á 14,11 metra í kúlunni en steig út
úr hringnum. Þá er ung stúlka, Pálína Auður
Lárusdóttir, líkleg til afreka í kúlunni í
sumar og hefur á skömmum tíma bætt sig
um hálfan annan metra. Kastaði 9,50 metra í
sl. viku. -SSv.
KSImeð
námskeið
A-stigs námskeið verður haldið 10.
og 11. apríl 1981, ef næg þátttaka fæst.
Umsóknir berist skrifstou KSÍ, box
1011, fyrir þriðjudaginn 7. apríl, ásamt
kr. 150,00.
Almennt námskeið verður þann 12.
apríl. Nánar auglýst síðar.
að vinna þrefalt eins og Þróttarar en IS-stúlk-
urnar gerðu drauminn að engu i gærkvöldi er
þær lögðu Víking í úrslitaleik bikarkeppninnar.
ÍS vann 3—2, (16—14, 12—15, 15—7, 8—15 og
15—8) og komu þau úrslit mjög á óvart en engu
að síður var sigurinn sanngjarn því ÍS sýndi
mjög ákveðinn leik gegn frekar döðru Víkings-
liði' -KMU.
íslandsmeistaramót í badminton fer
fram um helgina á Akranesi. Mótið
hefst með setningu formanns BSÍ,
Rafns Viggóssonar, kl. 12 á laugardag.
Verður leikið fram í undanúrslit á
Fimleikasýning
íFirðinum
Fimleikafélagið Björk gengst fyrir
fimleikasýningu í íþróttahúsinu í Hafn-
arfirði á sunnudag kl. 17.00. Þátttak-
endur um 50 drengir og stúlkur á aldr-
inum 5—17 ára. Meðal þeirra er
íslandsmeistarinn Brynhildur
Skarphéðinsdóttir. Sýningin er liður i
Menningarvöku Hafnarfjaröar. Þar
verða hópsýningar og
einstaklingsæfingar.
laugardag. Sunnudag kl. 10 f.h. fara
fram undanúrslit og síöan leikið til úr-
slita kl. 2e.h.
Keppt verður i ölluip flokkum;
meistaraflokki, A-flokki, öðlinga-
flokki og æðsta flokki. Þátttakendur
verða um 80 frá eftirtöldum félögum:
TBR, KR, Val, Gróttu, BH, ÍA, USHÖ
og TBA.
Allir beztu badmintonleikarar lands-
ins eru meðal þátttakenda. Má búast
við hörkuspennandi leikjum í einliða-
leik karla milli núverandi íslands-
meistara, Brodda Kristjánssonar,
Jóhanns Kjartanssonar, Guðmundar
Adolfssonar og fleiri, einnig í tvíliða-
leik karla.
Iþrottir
Þrátt fyrir tap í gær eru Víkingsstúlkurnar þó allténd Reykja-
víkur- og íslandsmeistarar. Frá vinstri Jóhanna Guðjónsdóttir,
Anna Garðarsdóttir, Ólöf Ámundadóttir, Sigurhanna Sigfús-
dóttir, Jóna Óskarsdóttir, Ásdís Jónsdóttir, Ingibjörg Helga-
dóttir, Hólmfrfður Garðarsdóttir, Hermína Gunnarsdóttir, Ni
Fengguo þjálfari og Sunneva Jónsdóttir, stjórnarmaöur blak-
deildar Víkings.
DB-mynd: Bjarnleifur.
mínútur voru til leiksloka. En Brynjar
Harðarson misnotaði annað vítakast
sitt í leiknum — skaut framhjá — og
svo tókst Bjarna Guðmundssyni ekki
að skora úr hraðaupphlaupi eftir að
hafa skorað tvö mörk með stuttu milli-
bili rétt á undan, 22—21. í stað þess að
jafna fyrir Val barst knötturinn upp að
marki Vals. Jón Árni Rúnarsson
skoraði og fljótt á eftir fylgdu tvö mörk
Framara, 25—21. Úrslit ráðin og sann-
gjarn sigur Fram-liðsins.
Mörk Fram í leiknum skoruðu
Hannes 8, Atli 7, Björgvin 5, Jón Árni
3, Björn Eiríksson 1, Hermann Björns-
son 1/1 og Erlendur Dvíðsson 1. Fram
fékk eitt víti í leiknum — Valsmenn
fimm. Einum leikmanni Fram, Jó-
hanni Kristinssyni, var vikið af velli. Á
meðan skoruðu Valsmenn tvö mörk.
Engum Valsmanni var vikið af velli.
Það hefur verið eitthvað meira en
lítið að hjá Valsliðinu í vetur og leikur-
inn í gærkvöld var þar engin undan-
tekning. Nú brást varnarleikurinn
meira að segja herfilega. Markvarzla
Þorláks Kjartanssonar heldur nöturleg.
Bjarni var beztur en það merkilega var
að hann hvarf alveg á milli. Steindór
Gunnarsson og Brynjar Harðarson
einnig sæmilegir en Brynjar brást illa í
tveimur vítaköstum af fjórum sem
hann tók. Átti skot í stöng — og
framhjá í því fjórða.
Mörk Vals skoruðu: Bjarni 6,
Brynjar 6/2, Stefán Halldórsson 4, Jón
Pétur 3/1, Steindór 2, Þorbjörn Guð-
mundsson 2 og Gunnar Lúðvíksson
eitt.
Einum leik er nú ólokið í átta-liða úr-
slitum milli Aftureldingar og Þróttar.
Leikið verður á Varmá og við höfum
frétt að leikurinn verði háður á
laugardag. Það ætti þvi að verða dregið
til undanúrslitanna um helgina.
- hsím.
Kvennalandsliðið á æfingu i Höllinni i gær. Tvær voru farnar er Ijósmyndarinn
kom á staðinn og fjórar komust ekki vegna vinnu eða náms. F.v.: Sigurbergur
þjálfari, Jóhanna H., Erna, Gyða, Katrín, Eiríka, Ingunn, Margrét, Olga,
Jóhanna P. og Sigrún Bl. DB-mynd Bjarnleifur.
Mætum til leiks með öðru
hugarfari en úti í Noregi
—segir fyríiiiði kvennalandsliðsins, sem mætir Norðmönnum um helgina
„Við gerum betur gegn norsku stelp-
unum hér heima en í Noregi. Þetta er
ekki neitt ósigrandi lið — síður en
svo,” sagði fyrirliði íslenska kvenna-
landsliðsins, Katrín Danivalsdóttir, á
blaðamannafundi sem boðað var til i
vikunni. „Við verðum bara að leika
bolta við okkar hæfi, hægari en þær
reyndar, og þá gengur þetta upp. Við
vorum að reyna að halda í við þær
þarna úti en réðum ekki við það. Nú
held ég að okkur sé öllum Ijóst hvernig
þetta komi til með að verða og við
förum í leikinn með allt öðru hugarfari
en þarna úti. Leikum bolta við okkar
hæfi og spilum upp á opin færi.”
Á morgun kl. 17 og á sunnudag kl.
20 mætir kvennalandsliðið stöllum sín-
um frá Noregi í tveimur landsleikjum í
handknattleik. Fyrri leikurinn er siðari
leikur liðanna í undankeppni HM en
úrslitakeppnin fer fram í Danmörku í
haust. Norsku stúlkurnar unnu fyrri
leikinn 17—9 og þar var það fyrst og
fremst slakur fyrri hálfleikur sem gerði
útslagið en þær norsku leiddu 9—3 í
hálfleik.
Norska landsliðið er skipað mjög
sterkum stúlkum. Þær hafa á undan-
förnum vikum unnið t.d. Ungverja,
□NAR VARÐI4 VIIIKR!
—og HK sló vesturbæjarliðið út úr bikamum, 17-15, í gærkvöld
HK kom heldur betur á óvart í gær-
kvöldi er liðið, geysilega vel stutt af
tryggum áhangendahóp, lagði KR-inga
að velli, 17—15, í íþróttahúsinu að
Varmá. Sigur HK var í alla staði sann-
gjarn. Liðið barðist af eldmóði leikinn
á enda og ekki skemmdi fyrir að i
markinu var Einar Þorvarðarson KR-
ingum erfiður og varði fjögur vítaköst
en tvö til viðbótar fóru í súginn hjá KR.
Liðið nýtti þvi ekkert vítakasta sinna.
Reyndar skoraði Björn eftir að hafa
skotið í stöng úr einu þeirra og fengið
knöttinn aftur.
Jafnræði var með liðunum allan fyrri
hálfleikinn og munurinn aldrei nema 2
mörk. KR komst aðeins einu sinni yfir i
leiknum, 8—7, eftir að HK hafði leitt
7—5 skömmu áður. í hálfleik leiddi
Kópavogsliðið svo 9—8.
í seinni hálfleik komst HK fljótt í
þriggja marka mun, 13—10, og hélt
honum leiktímann á enda og átti KR
aldrei möguleika á að jafna. Baráttan í
HK-liðinu eins og hún bezt getur orðið
og Hilmar Sigurgíslason bókstaflega
öskraði sína menn áfram. Ekki var
laust við að mótlætið færi í taugar
sumra leikmanna KR, en það dugði
skammt. HK lék yfirvegað og ætlaði
Bakari hengdur
fyrírsmið!
í frétt okkar hér á iþróttasíðunni í
fyrradag urðu okkur á þau mistök að
hengja bakara fyrir smið eins og svo er
oft að orði komizt. Greindum við frá
undarlegum viðbrögðum formanns
Bláfjallanefndar við ósk frá Skíðaráði
Reykjavíkur. Það var hins vegar
íþróttafulltrúí Reykjavíkurborgar sem
var hinn seki i þessu tilviki en ekki for-
maður Bláfjallanefndar og vonumst
við til að mannorð hans hafi ekki beðið
hnekki af.
-SSv.
sér greinilega ekkert annað en sigurinn
og hafði hann sanngjarnt að lokum.
Bezti maður HK var án efa mark-
vörðurinn Einar Þorvarðarson, sem
varði um 20 skot í leiknum. Hreint
frábær allan leikinn. Þá áttu þeir
Ragnar Ólafsson og Hilmar Sigurgísla-
,son báðir góðan leik. Hjá KR var
enginn sem stóð upp úr og markvarzla
þeirra Brynjars og Péturs léleg.
Mörkin. HK: Ragnar Ólafsson 7/2,
Sigurður Sveinsson 3, Hilmar Sigur-
gíslason 3, Kristinn Ólafsson 2 og Berg-
sveinn Þórarinsson 2. KR: Haukur
Ottesen 4, Haukur Geirmundsson 4,
Alfreð Gíslason 3, Friðrik Þorbjörns-
son 2, Björn Pétursson og Konráð
Jónsson 1 hvor.
KR fékk sex víti í leiknum — ekkert
nýtt en hins vegar skorað einu sinni
Þærleika
gegn Noregi
Eftirtaldar stúlkur munu mæta
norskum stöllum sínum í tveimur
landsleikjum um hclgina. Þetta eru
fyrstu landsleikir hér heima — utan
ieikja við Færeyinga — hjá konunum í
nákvæmlega 4 ár.
Jóhanna Pálsdóttir, Val
Gyða Úlfarsdóttir, FH
Kolbrún Jóhannsdóttir, Fram
Katrín Danivalsdóttir, FH
Margrét Theodórsdóttir, FH
Kristjana Aradóttir, FH
GuðríðurGuðjónsdóttir, Fram
Jóhanna Halldórsdóttir, Fram
Oddný Sigsteinsdóttir, Fram
Sigrún Blomsterberg, Fram
Erna Lúðvíksdótir, Val
Sigrún Bergmundsdóttir, Val
Eirika Ásgrímsóttir, Víking
Ingunn Bernódusdóttir, Víking
Erla Rafnsdóttir, ÍR
eftir stangarskot. HK fékk tvö víti og
nýtti þau bæði. Þremur leikmönnum úr
hvoru liði var vísað af leikvelli.
Dómarar voru þeir Stefán Arnaldsson
og Ólafur Haraldsson og dæmdu vel.
-gb/-SSv.
Boltinh byrjar að
rúlla á mánudag
Þá byrjar boltinn að rúlla í knatt-
spyrnunni. Reykjavíkurmótið hefst á
mánudag, 6. apríl, með leik Þróttar og
Vals á Melavellinum. Leikurinn hefst
kl. 19.00 og það verður leiktíminn að
minnsta kosti fyrstu vikuna. Flóðljósin
á Melavellinum eru biluð.
Sjö lið taka þátt í keppni meistara-
flokks auk Vals og Þróttar, Ármann,
Fram, Fylkir, KR og Víkingur. Núver-
andi Reykjavíkurmeistari er Vikingur.
Sigraði í fyrra eftir aukaleik við Þrótt.
Aukastig verða gefin sem áður fyrir
þrjú mörk skoruð. Jafntefli gildir ekki
og ef jafntefli verður eftir venjulegan
leiktíma ráðast úrslit í „bráðabana” —
vítaspyrnukeppni.
Eins og áður segir verður fyrsti
leikurinn á mánudag. Daginn eftir, 7.
april, leika Ármann og Fram. Fimmtu-
daginn 9. apríl leika Þróttur og Fylkir
Kylfingaraf
stað
umhelgina
Fyrirsögnin hér að ofan er ekki apríl-
gabb, nei af og frá. Golfklúbbur
Reykjavíkur hefur ákveðið að efna til
fyrsta móts sumarsins að Korpúlfsstöð-
um á sunnudag kl. 13.30. Nefnist það
Vorleikur. Þá er og í bigerð að halda
mót um páskana verði veður skaplegt.
og laugardaginn 11. apríl leika
Víkingur og KR. Sá leikur hefst kl.
14.00. Aðrir leikir í vikunni kl. 19.00
þó annað sé gefið upp í mótabók KRR.
Ástæðan er flóðljósin eins og áður er
getið.
Keppni í 1. flokki hefst 10. apríl og
keppni í yngri flokkunum 24. apríl.
-hsim.
Búlgari og Dani — allt á útivöllum og
norskur kvennahandknattleikur er
hlutfallslega mun sterkari en hjá körl-
unum enda leggja Norðmenn mikið i
kvennalandslið sitt. Til marks um
áhugann á leiknum við ísland mættu
um 900 manns til að sjá hann og var þá
leikið í Haugasundi.
„Það var allt of mikið álag á ötlum
hópnum í þessari ferð til Noregs um
daginn,” sagði Sigurbergur Sigsteins-
son, þjálfari liðsins. „Það voru allir á
taugum, jafnt innan vallar sem utan.
Staðreyndin er sú að þessar stelpur
hafa allt of litla reynslu í landsleikjum
og æfingar í kvennahandknattleiknum
hérlendis eru allt of máttlausar, stelp-
urnar vantar meiri hörku. Það sem þær
norsku höfðu fyrst og fremst fram yfir
okkur var meiri snerpa. Það er þvi
aðaltakmark okkar á laugardag að
reyna að koma í veg fyrir hraðaupp-
hlaup þeirra, sem eru geysilega vel
útfærð. Viðverðum að , nætta að rétta
þeim boltann.”
í leikjunum úti voru það helzt
skytturnar sem brugðust en vörn og
einkum markvarzlan kom vel út. Skytt-
urnar fengu á móti sér vörn sem þær
hafa ekki áður þekkt og það gerði það
að verkum að þær hættu að reyna um
tima. Stelpurnar eru hins vegar
dýrmætri reynslu ríkari að þessu sinni
og með góðum stuðningi áhorfenda
ættu þær að geta staðið vel uppi t
hárinu á þeim norsku. Að ætlast til
sigurs er e.t.v. til of mikils mælzt en
hins vegar verður að setja markið hátt
— ekki þó of hátt — til að árangur
náist. Þetta er samstilltur hópur sem
ekki gefst upp fyrr en í fulla hnefana.
Hafa saf nað á sjö-
unda tug þúsunda
„I vetur hafa stelpurnar í kvenna-
landsliðinu safnað vel á sjöunda tug
þúsunda nýkróna og það er víst að ekki
þýddi að bjóða karlalandsliðinu upp á
slíkt,” sagði einn nefndarmanna i
landsliðsnefnd kvenna. „Ég held ég
megi segja að stclpurnar standi nær al-
gerlega, ef ekki að fullu, undir
kostnaði við úthald liðsins og það er
meira cn hægt er að segja um marga,”
sagði hinn sami ennfremur. Enn vantar
þó 15—20.000 nýkrónur upp á að
dæmið gangi upp, en með góðri aðsókn
á lcikina mætti þó koma verulfga til
móts við þær tölur.
Man. City leikur
hérálandi
Man. City, kanttspyrnuliðið fræga
frá Englandi, mun leika tvo leiki hér á
landi í sumar. Fyrri leikurinn verður
við Þór á Akureyri 12. ágúst. Daginn
eftir verður leikið við islenzkt úrvalslið
— landsliðið — á Laugardalsvelli.