Dagblaðið - 04.06.1981, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1981.
i
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Viðræður Begins
ogSadatsfara
fram í diskóteki
Eldf laugadeilan talin verða á dagskrá f undarins
Anwar Sadat Egyptalandsforseti
og Menachem Begin, forsætisráð-
herra ísraels, hefja í dag viðræður
sem líklegt þykir að snúist mjög um
eldflaugadeilu ísraels og Sýrlands.
Sadat hefur þegar hvatt Begin til
að gera ekki of mikið veður út af eld-
flaugum Sýrlendinga.
í Kairó segjast stjórnarerindrekar
mjög undrandi á tímasetningu
fundarins sem stangist á við fyrri
stefnu stjórnar Egyptalands um að
slíkan fund ætti ekki að halda fyrr en
aö loknum þingkosningunum f israel
sem verða slðar f þessum mánuði.
Egypzkir embættismenn segja að
greinilegt sé að fundurinn hafi verið
talinn það nauðsynlegúr nú að hann
þyldi ekki bið og sé ástæðan vafa-
laust eldflaugadeila Sýrlendinga og
Israelsmanna. Þetta er í fyrsta skipti í
sautján mánuði sem þeir Sadat og
Begin hittast.
Viðræður þjóöarleiðtoganna
tveggja fara fram i diskótekinu
„Hvíta fflnum” við baðströnd á
suöurhluta Sinafskagans.
Dagskrá fundarins hefur verið
haldið leyndri en opinberar heimildir
greina að Sadat muni biðja ísraels-
menn að flýta brottför sinni frá
suðurhluta Sinaí.
RÆNINGJARNIR VORU BARA
„VENJULEGIR GLÆPAMENN”
—segir spænska lögreglan um mennina sem héldu um 200
gíslum í banka í Barcelona í síöasta mánuði
Ræningjarnir, sem hótuðu að myrða
um 200 gfsla í banka í Barcelona f
síðasta mánuði, ef forsprakkar í valda-
ránstilraun þjóðvarðliðanna f febrúar
sfðastliðnum yrðu ekki látnir lausir,
voru bara venjulegir glæpamenn, að
því er spænska lögreglan segir.
Miklar umræður hafa að undan-
förnu farið fram á Spáni um hverjir
ræningjarnir hafi í raun og veru verið.
Hafa menn verið misjafnlega ánægðir
með þær fullyrðingar stjórnvalda að
þjóðvarðliðarnir hafi hvergi komið
nærri töku bankans og gfslanna í
Barcelona.
Sumir gíslanna hafa sagt að ræningj-
arnir hafi hagað sér eins og þjálfaðir
hermenn og kallað hver á annan með
númerum.
Lögreglan segir að Jose Juan
Martinez Gomez leiðtogi ræningjanna,
hafi gert þetta í þeim tilgangi að rugla
spænsk yfirvöld.
Gomez mun hafa haldið því fram við
yfirheyrslu að krafan um að Tejero
Molina liðsforingi og aðrir þeir er
stóðu að valdaránstilrauninni f febrúar
yrðu látnir lausir hefði einungis verið
sett fram f blekkingarskyni meðan þeir
reyndu að grafa göng úr bankanum
niður í skolpkerfi borgarinnar. Þannig
ætluðu þeir að sleppa á brott með 700
milljónir peseta.
Tórínó-líkklæðin eru enn ráðgáta:
MYNDIN EKKIFOLSUÐ OG
BLETTIRNIR EFTIR BLÓD
—Vísindamenn skila skýrslu um niðurstöður rannsókna
sinna á Tórínó-líkklæöunum
Vlsindamenn sem rannsökuðu
Tórfnó-likklæðin svonefndu árið 1978
hafa nú skilað Vatíkaninu skýrslu um
niðurstöður rannsókna sinna. Niður-
stöðurnar eru í meginatriðum þær að
myndin á klæðinu sé ekki máluð og
það sem virðist vera blóðtaumar sé í
raun og veru eftir blóð.
Hinn 85 blaðsíðna langi útdráttur úr
niðurstöðum vfsindamannanna var
sendur Vatíkaninu í sfðasta mánuði, aö
þvl er Larry Schwalbe, eðlisfræðingur
við Los Alamos rannsóknarstofnunina
i Bandaríkjunum, sagði. Eftir að hafa
getið meginniðurstöðunnar sagði hann
að lfkklæöin væru eftir sem áður ráð-
gáta. „Við vildum mjög gjarnan vita
hvernig myndin á klæðinu varð til. Enn
sem komið er höfum við engar sann-
færandi hugmyndir um það,” sagði
hann.
Lfkklæðin — sem fjölmargir kristnir
menn trúa að séu f raun og veru lik-
klæði Jesú Krists — hafa aö geyma
svipmynd af skeggjuðum manni með
sár á lfkamanum eins og Biblían greinir
frá að sár Krists hafi verið.
Útdráttur vísindamannanna, sem
sendur var til Vatíkansins f skýrslu-
formi, ber nafnið „Eðlis- og efnafræði
Tórínó-líkklæðanna. Samantekt rann-
sóknanna 1978”. Skýrsla þessi er of
löng til að hún verði birt f tímaritum en
Schwalbe segir að vfsindamennirnir
vinni nú að þvi að semja stutta vfsinda-
lega grein um niðurstöðurnar, f að-
gengilegum búningi fyrir almenning.
Sovétmenn hafa ekki í hyggju að takmarka fjölda fösturevðinga þrátt fyrir að þa>r
séu nú orðnar fleiri en fæðingarnar.
FÓSTUREYÐINGAR
ERU NÚ FLEIRI
EN FÆÐINGAR
í SOVÉTRÍKJUNUM
Fleiri fóstureyðingar eru nú í Sovét-
ríkjunum á ári hverju en fæðingar.
Alexander Smimov, aðstoðarfor-
stöðumaður félagsmálastofnunar
Sovétríkjanna, lýsti þessu yfir á blaða-
mannafundi í gær. Hann bætti þvi við
að sovézkir embættismenn hefðu ekki i
hyggju að setja nein takmörk við
fóstureyðingum f landinu.
Smirnov sagöi að árlega fæddust um
5 milljónir lifandi barna f Sovétríkjun-
um. Hann sagði að ungbarnadauði
hefði aukizt um 13 prósent á síðustu
tveimur árum.
Hann sagðist telja að skýringin á
þeim tölum sem sýndu fram á aukningu
ungbarnadauðans væru vafalaust þær
að yfirvöld gengju nú betur fram f að
safna saman slikum tölum en áður,
einkum f lýðveldunum f Mið-Asíu þar
sem aukningin væri mest áberandi.
flugnafælan
er ómissandi í
FERÐALAGIÐ
Hver vill 'ekki losna við moskító-
flugnastungur? ANTI BITE er
tœkið, sem verndar þig. Gefur
frá sér sérstakan són, sem heyr
ist varla — tekur 5 m radíus inni
og 2 m radíus úti. Gengur fyrir
rafhlöðu sem endist i eitt ár.
TÆKIÐ ER LÍTIÐ
0G NETT
Verðkr. 90,-
JÓN& ÓSKAR
LAUGAVEGI70
SÍMI24910
1