Dagblaðið - 04.06.1981, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR4. JÚNÍ1981.
i 7
Elías Georgsson, námshestur og formaður Skólafélags FS:
„ÞETTA BJARGAÐIST
Á LOKASPRETTINUM”
Félagslíf hefur farið vaxandi i Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja með hverju
ári. Nemendafélag er starfandi þar og
auðvitað mæðir talsvert á stjórn þess
ef einhver árangur á að nást. For-
maður þess skólaárið 1980-81 var
Elías Georgsson eðlisfræðibrautar-
nemi, sem jafnframt sópaði að sér
námsverðlaunum á stúdentsprófinu.
„Auðvitað tóku félagsstörfin tlma
frá náminu, en ég las vel seinasta
mánuðinn fyrir prófin, svo þetta
bjargaðist á lokasprettinum. Eðlis-
fræðibrautin er erfið og krefst fulls
skilnings á efninu — ekkert til hálfs
— aðeins allt,” svaraði Elías, þegar
við spurðum hann um nám og félags-
störf hans í F.S., ,,en ég hafði
ánægju af þvi að vasast með félögum
mínum í skólanum og vona að eitt-
hvað standi til bóta eftir veturinn. ”
Starf formanns er aðallega fólgið i
þvi að vera tengiliður á milli nemenda
og stjórnar skólans. Samvinnan
hefur verið mjög góð og alltaf er eitt-
hvaö að bætast við til hagsbóta fyrir
nemendur, svo sem mötuneyti, les-
stofa og fleira. „Félagslífið var mjög
blómlegt i vetur. Leiklistaráhuga-
fólkið sýndi sjónleik i fyrsta sinn og
heldur vonandi áfram. Tónlistarfólk-
ið gekkst fyrir kynningu á tónlist og
hélt slika hátfð, enda margt góðra
tónlistarmanna i skólanum.
Stofnaður var skólakór og íþrótta-
starfsemin hefur aldrei verið meiri,
enda breytti nýja iþróttahúsið í
Keflavik miklu fyrir F.S., sem fékk
aðstöðu til æfinga þar, þegar það var
tekið i notkun,” sagði Elías, ,,og
F.S. náði yfirleitt mjög góðum
árangri f þeim mótum sem skólinn
tók þáttí.”
Hvað framtiðaráform Eliasar
varðar, „þá setti ég mér snemma það
takmark, að verða verkfræðingur og
ætli ég verði ekki einn af þeim.”
-emm
Ágústa Gfsladóttir ásamt manni sfnum, Hafsteini Sæmundssyni, og tveimur börnum, Jónu Ágústu og Gfsla Ara.
FJOGURRA BARNA
MÓDIR í FJÖLBRAUT
— rætt við Ágústu Gísladóttur í Grindavík, nýstúdent frá FS
Stofnun Fjölbrautaskóla Suður-
nesja opnaði menntunarmöguleika
fyrir fólk sem annars hefði ekki átt
þess kost að geta aukið menntun sina
gegnum skólakerfið nema þá að
flytja búferlum á milli héraða. Einn
nýstúdentanna, sem brautskráðust á
vorönn, var 33ja ára húsmóöir úr
Grindavík, Ágústa Gisladóttir,
fjögurra barna móðir, fædd á Ólafs-
firði en fluttist 15 ára til Grinda-
vikur með millilendingu í Reykjavík,
eins og hún orðaði þaö þegar við.
tókum hana tali, eftir að hún hafði
fengiö hvíta kollinn og þar með
brautskráðst frá F.S., eftir fimm
vetra námsstrit.
„Eftir að eiginmaðurinn, Haf-
steinn Sæmundsson, fór að fást við
útgerð, komust bókhaldsstörfin
smám saman í minn verkahring. Ég
fann fljótlega að gagnfræðamenntun
mfn nægði ekki til aö geta unnið bók-
haldið svo í lagi væri. Ekki var þvi
um annað að ræða en að skella sér á
viðskiptabrautina í F.S. Auðvitað
varð ég að leggja talsvert á mig.
Yngstu börnin voru aðeins fimm ára
— tvíburarnir Þyri Ásta og Heimir
örn, en hin tvö, þau Jóna Ágústa og
Gísli Ari, átta og niu ára. Margir
héldu að ég væri gengin af göflunum.
Töldu ákvörðun mína ábyrgðarleysi
gagnvartheimiliogfjölskyldu envið
erum samheldin og með henni tókst
að gera mér mögulegt að stunda
námið. T.d. sótti eldri strákurinn
matreiðslunámskeið hjá námsfiokk-
unum hérna til að geta létt undir með
matseldina.”
Ágústa hagaði námi sínu á þann
veg, að hún var i „dagskólanum” á
haustin, en i öldungadeildinni eftir
áramótin. Samhliða náminu annaðist
hún bókhald útgerðarinnar, auk þess
sem hún felldi netin sem báturinn
þurfti á vetrarvertiðina, en það vann
hún eftir áramótin. Hvenær gafst þá
timi til lesturs? hlutum við aö spyrja.
„Ég notaði „götin” í stunda-
skránni til að lesa, því heima gafst
mér ekki tími til þess. Fólk hélt að
það væri alveg hræöilega erfitt fyrir
Grindviking að stunda nám í Kefla-
vík — alla þessa leið, en á bifreið
tekur aksturinn ekki svo ýkja langan
tíma, um 25 minútur. Fyrsta önnin
var jú nokkuð strembin, á meöan ég
var að átta mig á kennslunni, sem var
allt öðru visi en ég hafði vanizt. Lika
er það átak að hefja nám eftir langt
hlé, með sér langtum yngra fólki, en
líklega af þvi að ég er grönn og lág-
vaxin, þá var mér tekiö eins og hverj-
um öðrum „krakka”. Hvorki nem-
endur né kennararnir vissu að ég var
fjögurra barna móðir fyrr en undir
lokin.”
í víðara rabbi við Ágústu kemur i
ljós að hún hefur iðkað handknatt-
leik og er formaður þeirrar deildar i
ungmennafélagi staðarins. Og til að
vera viðbúin f sem fiestum þáttum út-
gerðarinnar, tók hún 30 tonna stýri-
mannaprófið — svonefnt pungapróf
— og nú hlær Ágústa. „Ég vona að
það verði hækkað uppí lOOtonn áður
en langt um liður. Þá get ég fariö á
Hörpunni GK, 70 tonna bátnum
okkar, í róður sem skipstjóri. Hingað
til hef ég aðeins farið með þegar
báturinn hefur farið í slipp.”
Framhaldsnám hefur Ágústa ekki í
huga að sinni, en gæti alveg hugsað
sér einhvern tima seinna meir að auka
þekkingu sína i viðskiptafræðum —■
ef eiginmanninum dytti í hug að
kaupa togara.
-emm
Skemmtiferð á laugardag
Er Hrauneyjafoss
hotfinn?
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur efnir til árlegrar sumar-
hópferðar sinnar næstkomandi laugardag og verður hún að
þessu sinni farin að Hrauneyjafossi. Virkjunarfram-
kvæmdirnar verða skoðaðar og þær breytingar, sem fréttir
herma að orðið hafi á fossinum nýlega. Þar verður snædd-
ur hádegisverður (nesti). Á heimleið verður ekið um Skál-
holt og kvöldverður snæddur í Hótel Valhöll, þar sem
Kjartan Jóhannsson alþingismaður, formaður Alþýðu-
flokksins, mun ávarpa gesti. Verð hvers farmiða (að báðum
ofangreindum máltíðum meðtöldum) eraðeins 175 krónur.
Lagt verður af stað frá Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði kl. 8.30
frá Hamraborg 1 á sama tíma og frá Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu í Reykjavík kl. 9 á laugardagsmorgunn.
Miðasala og nánari upplýsingar eru á skrifstofum Alþýðu-
flokksins í Alþýðuhúsinu í Reykjavik, simi 15020.
Fjölmennið í fyrstu, ódýrustu og skemmti-
legustu sumarferð ársins!
Alþýðuflokksfélag Reykjavikur.
TIL LEIGU:
Einbýlishús í Breiðholti, 140 ferm íbúð á efri hæð, allt sér.
Á jarðhæð m/sérinngangi 3 herb., eldhús, bað m.m., ca 100
ferm. Leigist saman eða aðskilið. (Rétt við Fjölbraut í
Breiðholti). Fyrirframgreiðsla nauðsynleg. Leigutími
minnst ár frá 1.-15. ágúst nk. Bindindisfólk gengur fyrir.
Tilboð merkt ,,Hús — 140 + 100 fm” sendist til blaðsins
sem fyrst.
LAUSAR STÖÐUR
Við Menntaskólann í Kópavogi eru lausar til umsóknar þrjár kennarastöóur. Kennslugreinar eru
saga, jarðfræði, stærðfræði og cðlisfræði.
Laun samkvæmt launakcrfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt ýtaricgum upplýsingum um námsferil og störf, skulu hafa horist menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 30. júní nk. — Sérstök umsóknareyðuhlöð t'ást í
ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
3. júní 1981.
BIVIW 320 árg. ’77. Mjög fallegur bill,
rauöur, útvarp og segulband. Kr. 90
þús. Einnig 320 árg. ’79, kr. 110 þús.
Toyota Celica árg. ’79. Fallegur og
snöggur sportbill. Blár. Góð kaup í
góðum bil.
Honda Prelude árg. '19. Ekinn 22 þús.
km. Fallegur og rennilegur bfll. Vín-
rauður. Kr. 105 þús.
Pontiac Trans Am árg. ’76. Ekinn 77
þús. mílur, 8 cyl., 400 cub., sjálf-
skiptur, veltistýri, tvcir dekkjagangar.
Siflurgrár. Kr. 85 þús.
Bronco Ranger XLT árg. ’79. Ekinn
35 þús. km, 8 cyl., sjálfskiptur með
öllu. Rauður og hvitur. Mjög fallegur
bill. Kr. 175 þús.
Fiat 127 Sport árg. '19. Einn fallcgasti
Fiatinn á götunni. Svartur. Stærri og
kraftmeiri vél. Kr. 64 þús.
] si 'TTTTTTTTTTTTTTITTTI BILAKA.MPl
c SKEIFAN 5 — SÍMAR 86010 og 86030