Dagblaðið - 04.06.1981, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 04.06.1981, Blaðsíða 9
9 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR4. JÚNÍ1981. meö há- skólaprófí kennslu- fræðum Það var stoltur öldungadeildar- þingmaður sem horfði á þegar Joan Kennedy tók á móti prófskírteini sínu frá Lesley-háskóla 1 Cambridge, Massachusetts. Þótt þau Edward og Joan hafi skilið i janúar eftir 22 ára hjónaband gat Edward Kennedy ekki látið hjá líöa að vera viöstaddur útskriftarathöfnina. Með honum voru þrjú börn þeirra úr hjóna- bandinu og var ekki annað aö sjá en öll fjögur væru ákaflega montin yfir Joan. Lesley-háskóli útskrifar aðallega kennslukonur og Joan Kennedy stóð sig vel i hinni erfiðu samkeppni í skólanum. Aðaláhezluna lagði frúin á tónmennt, enda er hún sjálf dug- mikill pianóleikari. Námið tók hana þrjú ár og eftir á sagði hún að það hefði „opnað fyrir henni nýjan heim”. Brúðkaup Karls prins og laföi Díönu hinn 29. júlí: Ekið til kirkju í opnum vögnum öryggisverðir brezku konungsfjöl- skyldunnar stynja nú þungan undan þvi aö fjölskyldan hyggst aka til brúðkaups Karls Bretaprins og Dfönu Spencer i St. Páls kirkjunni í opnum vögnum. Þykir öryggisvörðunum sem konungsfjölskyidan gefi hryðju- verkamönnum óþarflega langt nef með þessu uppátæki sinu. Vagn sá sem lafði Diana á að aka í til kirkjunnar var byggöur 1910 og notaður við brúðkaup Ellsabetar drottningar 1947 og aftur viö brúð- kaup önnu prinsessu árið 1973. Vagninn er með óvenjustórum glugg- um og verður einstaklega vel lýstur upp að innan svo að almenningur geti virt ungfrúna sem bezt fyrir sér. Karl prins mun aka i opnum vagni sem smiðaður var 1902. Hinir meðlimir konungsfjölskyldunnar verða einnig í opnum vögnum. Fari svo illa að rigni á brúðkaupsdaginn veröur skellt upp blæjum á alla -vagnana. Að sögn þeirra sem til þekkja var það Elfsabet Bretadrottning er ákvað feröamáta konungsfjölskyldunnar og þá með •það i huga að almenningur sæi með- jimi fjölskyldunnar sem bezt. Sé maöur haldinn þeirri áráttu er heil- mikið atriði að teygja inn höndina og stela einhverju i leiðinni. Þannig er mál með vexti að rúðubrot eitt sér telst skemmdarverk og á sliku er strangt tekið. Rúðubrot f þeim tilgangi að stela einhverju er hins vegar ekki litið nærri eins alvarlegum augum. Þetta hefur Annbjörg Hovland fengið að sannreyna. Hún er haldin þeirri furðulegu áráttu að mölva rúður. Hún gengur berserksgang við þessi tækifæri og hefur rúðubrot fyrir stórfé á samvizkunni. Hún hefur verið send frá einum geðlækninum til annars en ekkert hefur komiö að neinu gagni. Hún ræður ekkert viö sig þegar hún dæmd fyrir rúðubrot 1 þeim tilgangi að fær „þessa fljótandi tilfinningu”, eins stela og hann hefði jafnframt verið og hún orðar það, og hefur nú verið mildari hefði hún verið tekin fyrir dæmd i sex ára fangelsi fyrir eiturlyfjasölu. Mórallinn i öllu saman skemmdarverk. Dómurinn hefði orðið er að maður á að vanda vel til sinna mun mildari hefði Annbjörg verið árátta.sérstaklegaiNoregi. Hún fmfði értmðu tk mO broaa hún Joan Kmnnacfy, komkt mmð hé- skólmprófl konnslufræðum. Joan Kennedy situr ekki auðum höndum eftir skilnaðinn við Edward: Komin Oslóbúar: Sundfólkið flúði hljóðandi upp úr — en „hákarlinn” reyndist vera dauð gedda Sólbaðsgestum við Sognsvatn við Osló brá heidur i brún dag einn fyrir skömmu þá sóiin skein og allt lék i lyndi. Var þetta hákarl sem kom synd- andi niður eftir vatninu eða eitthvað annað hættuiegt sjávardýr? Allur er varinn góður hugsuðu Oslóbúarnir um leiö og þeir flúðu upp úr en ósköp urðu þeir hjákátlegir er sást hvers kyns var. Óargadýrið var vatnafiskurinn gedda, að vísu óvenju stór, eða meter á lengd, en ólikleg til að gera nokkurn skaða þar eð fiskurinn var dauður. Dánarorsökin var vatnakarfi sem staðið hafði f geddunni, broddar karfans höfðu festst i hálsi geddunnar og hún kafnað af eigin græðgi. Geddan er gráðugur vatnafiskur er étur allt er að kjafti kemur, þótt ekki sé vitað til að hún hafi nokkurn tíma lagt til atlögu við mannskepnuna. Oslóbúar ættu þvi að geta tekið gleði sína aftur og fengið sér sundsprett i Sognsvatni án þess að eiga það á hættu að ,,mann- drápsfiskar” narti í tærþeirra. Norsku blmðmmmnnlmlr brugðu i Mk og skmhtu gmrvthondtogg upp I gkt geddunnmr, mvonm rétt tH að undlrstrikm ,jrtmnnkmrMk" flskslns. Verður stolt Bergen- búa selt á uppboði? Við Bryggjuna í Bergen liggur bundið seglskipið Statsraad Lehmkuhl en skipið er eitt helzta augnayndi Bergenbúa og að margra mati tákn borgarinnar. En nú er hætta á að festar skipsins verði leystar, það boðið upp á uppboði og jafnvel selt úr landi. Ástæðan er sú að fyrrverandi eigandi skipsins, fyrirtækið Hilmar Reksten, ku hafa gefið skipið þá fyrirtækið var gjaldþrota. Þegar gera átti siðan upp þrotabú fyrirtækisins kom i ljós að eignir þess nægöu ekki fyrir skuldun- um. Borgaryfirvöld, sem meðal ann- arra eiga skuldakröfur á hendur Hilmar Reksten, velta því nú fyrir sér hvort þau eigi að taka skipið eignar- námi til að hafa upp í skuldirnar. Vist er að ekki væru allir borgarbúar fúsir til að sjá á bak skipinu og því eru borgar- yfirvöld í óþægiiegri klemmu. Og þangað til þau finna lausn á vanda sinum mun Statsraad Lehmkuhl liggja við Bryggjuna. Enn þá liggur Statsraad Lehmkul við festar við Bryggjuna en hversu lengi er fyrir borgaryfirvöld að ákveða. Sex ára fangelsi jyrir ráðubrot — mildari dómur fyrir eituriyfjasölu Erlent Erlent Erlent Erlent Þaö er ekki neinum tii framdráttar að ætla sér að stunda rúðubrot i Noregi, alla vega ekki svo neinu nemi. FÓLK

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.