Dagblaðið - 04.06.1981, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 04.06.1981, Blaðsíða 28
ÚtlSt fyrír mikinn ferðamannastraum hingað í sumar. Hvergi ódýran að gista ogboröa en á íslandi —-segir í víðlesnu ferðatímaríti fyrír kaupsýslumenn Hvergi í heiminum er ódýrara að búa á fyrsta flokks hóteli og borða á sama stað en hér á íslandi. Þessi stað- reynd kemur fram í viðtækri könnun sem eitt víðlesnasta tímarit kaup- sýslumanna birti í marzmánuði. Blaðið heitir Business Traveller og verðkönnun þess á hótelum og fæði í „framkvæmdastjóra- og forstjóra- klassanum” er miðuð við áramótin. Blaðið segir að gisting og dagsfæði á íslandi kosti 31 sterlingspund. Er það ekki aðeins lægsta verð i Evrópu, heldur lægsta verð hvar sem er í heiminum, samkvæmt niðurstöðum tímaritsins. Umrædd þjónusta kostar 36 pund í Grikklandi, 37 pund i Portúgal en 50 pund i Tyrklandi, sem er fjórða ódýrasta land Evrópu á þessu sviði. Dýrust er þessi þjónusta i Sovét- rikjunum, kostar 91 pund, en næst kemur Bretland með 74 pund. Dýrustu lönd heimsins eru hins vegar Saudi-Arabía þar sem gisting og fæði kostar 122 pund á dag og 100 pund kostar sama þjónusta i Kuwait. Ódýrustu lönd heims, utan Evrópu, eru Brunei, þar sem gisting og fæði á 1. flokks hóteli kostar 33 pund og 39 pund kostar sama þjónusta i Ind- landi. „Þessi staðreynd kemur mér ekki á óvart,” sagði Lúðvig Hjálmtýsson ferðamálastjóri. „Þaö er löngu vitað að gisting hér er til muna ódýrari en gerist og gengur, en matarverðið er teygjanlegra. Þó við eigum mjög góð hótel, eins og t.d. Sögu, þá viðhafa þau ekki þann lúxus sem tíðkast á dýrum hótelum erlendis þar sem bilar manna eru teknir við dyrnar og komið með þá þangað að óskum manna, svo eitthvað sé nefnt.” Lúðvig sagði að útlit væri fyrir mikinn ferðamannastraum til íslands í sumar. „Það varð 14% samdráttur i flugfarþegum til landsins í fyrra, frá 1979. En það kæmi mér ekki á óvart, þó nýju meti yrði náð á þessu ári,” sagði ferðamálastjórinn. DB mun birta heildartöflur Busi- ness Traveller um gistikostnað á morgun. - A.St. Edward R. Schreyer, landstjóri Kanada, og Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, I stjórafrúin Lily Schreyer, Gunnar Thoroddsen forsœtisráðherra, sendiherrafrú við háborðið á Hótel Sögu í gœrkvöldi. Á litlu myndinni sjást fleiri gestir við há- Kanada frú Campbell og Ólafur Jóhannesson utanríkisráðherra. Fyrirframan borðið borðið, Vala Thoroddsen forsœtisráðherrafrú, landstjórinn, forseti Islands, land- | má sjá Hans G. Andersen sendiherra og Hörð Helgason ráðuneytisstjóra. DB-myndir Sigurður Þorri. r VEÐRIÐ LEIKUR VIÐ LANDSTJORANN Edward R. Schreyer, landstjóri Kanada, og föruneyti hans hefur gert víðreist i morgun. Landstjórinn fór kl. 9.30 i morgun með Ólafi Jóhannessyni utanrikisráðherra og fleirum að Reykj- um í Mosfellssveit. Þar var dælustöð Hitaveitu Reykjavikur skoðuð og menn þáðu morgunveitingar. Á meðan skoöaði landstjórafrúin íslenzkan heimilisiðnað. Landstjóri og föruneyti hans hélt siðan til Þingvalla og kona hans jafn- framt. Forseti íslands tók á móti hjón- unum við Aimannagjá og síðan var gengið á Lögberg, þar sem Eiríkur J. Eiriksson sagði sögu þingstaðarins. Veðriö lék við hina tignu gesti, sól og blfða. í hádeginu býður ríkisstjórnin til há- degisverðar i Valhöll. Síðar i dag verður ekið til Hveragerðis og dag- skránni i kvöld lýkur með kvöldverði landstjórahjónanna til heiðurs forseta Íslands að Lækjarhvammi Hótels Sögu. Vigdis Finnbogadóttir, forseti veizlu í Súlnasal Hóteis Sögu i gær- þjóðarinnar.auk föruneytis landstjóra- íslands, hélt hinum opinberu ge»tum kvöldi. Þar var samankomiðfyrirmenni hjónanna. -JH Fengu ekki leyfi til að halda hvítasunnurokkið á laugardagskvöld — það verður því um daginn í staðinn ^ „Við vorum ekkert að flýta okkur að sækja um skemmtánaleyfið. Sam- kvæmt gamalli reynslu hefur það ávallt verið hreinasta formsatriöi en nú hefur heldur betur komið i ljós að svo er ekki,” sagði Steinar Berg Is- eifsson, forsvarsmaður hljómplötu- útgáfunnar Steina hf., sem hyggst gangast fyrir svoköliuðu Hvitasunnu- rokki i LaugardalshöUinni á laugar- daginn. „Það kom sem sé i ljós þegar til átti aö taka að ekki fæst leyfi til að halda skemmtanir i Reykjavik eftir miðaftan daginn fyrir stórhátlðir. Þá er ætlazt til þess aö fóik leggist í fallegar ihuganir og skemmtun eins og Hvitasunnurokkið gæti bersýni- lega truflað þær,” sagði Steinar enn- fremur. Hann bætti þvi við að af þessum sökum hafi orðið að flýta hljómleik- unum á laugardaginn. Þeir hefjast klukkan fjögur um daginn, (jórum klukkustundum fyrr en fyrst var áætlað. „Okkur þykir þetta mái hið undar- legast þvi að á laugardagskvöld eru skemmtistaðir og félagsheimili út um allt land opin,” sagði Steinar Berg. „Þá hafa hvitasunnugleöir tiökazt árum saman og skemmst er að minn- ast tveggja hljómleika Sambaftds al- þýðutónskálda og -tónlistarmanna (SATT) í Austurbæjarbiói laugar- dagskvöldið fyrir páska. Þá hófust hljómleikarnir klukkan sjö og klukkan niu. Reyndar segist lögreglu- stjóraembættið ekki hafa veitt leyfi fyrir þeirri skemmtun en SATT-menn segja að engin fyrirstaða hafi verið fyrirleyfinu.” -ÁT frjólst, úháð dagblað FIMMTUDAGUR 4. JÚNl 1981. Ábarðargeymar I Páli Sveinssyni fylitir á Reyltja- vikurflugvefli f gærkvöldl. MJólkurbá Flóamanna gaf Landgræðslunnl bilinn árið 1975. Flugmenn frá Flugleiðum taka að sér i sjálfboðavinna að fljúga Páli i áburðardreiflngunni og leggja þannig sitt af mörkum til að efla gróðurvinjar landsins. - DB-myndS. -PállSveinsson kominn ívorverkin „Við munum nú sem áður leggja mesta áherzlu á áburðardreifingu og sáningu i grennd við þéttbýlissvæði. Dreift verður heldur minna magni i sumar en áður, bæði vegna mikillar verðhækkunar á áburði og eins vegna þess að nýja landgræðsluáætlunin er ekki fyllilega komin til framkvæmda,” sagði Sveinn Runólfsson landgræðslu- stjóri f samtali við fréttamann DB á Reykjavikurflugvelli. Þar var verið að ferma landgræðsluflugvélina Pál Sveinsson og henni siðán flogið til dreifingar á svæðum á Reykjanesi. Alls var dreift 100 tonnum á nesinu fyrír sveitarfélög þar og verkinu lauk f gær- kvöldi. Næst skal haldið á Suðurlandið og dreift í nágrenni við Gunnarsholt, Kirkjubæjarklaustur, Vik í Mýrdal, Hellu og Þorlákshöfn. Siðan er ætlunin að halda i Þingeyjarsýslurnar og dreifa 400 tonnum frá Aðaldalsflugvelli yfir þingeyskan gróður. S / ARH Áskrifendur DBathugið Vinningur I þessari viku er Apple-tölva frá Radíóbúðinni, Skipholti 19, Reykjavík, og hefur hann verið dreginn út. Nœsti vinh- ingur verður kynntur I blaðinu á þriðjudaginn. Nýir vinningar verða dregnir út vikulega næstu fimm mánuðina. Áburðirigniraf himnum ofan i \ i i í hressir betur. I

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.