Dagblaðið - 13.06.1981, Qupperneq 14
14
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ1981.
mm .
Fundir
AA-samtökin
í dag, laugardag, verða fundir á vegum AA-samtak-
anna sem hér segir: Tjarnargata 5 (s. 91-12010),
græna húsið, kl. 14 og 16 (sporafundur) Tjamargata
3 (91-16373), rauða húsiö, kl. 21, Langholtskirkja
kl. 13, ölduselsskóli Breiöholti kl. 16.
Akureyri (96-22373) Geislagata 39, kvennadeild, kl.
14.00
Akureyri (96-22373) Geislagata 39, kl. 16.00.
Höfn Hornafirði, Miðtún 21, kl. 17.00.
Staðarfell Dalasýslu (93-4290), Staðarfell, kl. 19.00.
Tálknafjörður, Þinghóll, kl. 13.00.
Vestmannaeyjar (98-1140), Heimagata 24, opinn, kl.
17.00.
Á morgun, sunnudag, veröa fundir sem hér segir:
Tjarnargata 5, græna húsið, kl. 11, 14, 16 (spora-
fundur) og 21 (framsögumaður). Tjarnargata 3,
rauöa húsið, kl. 21.
Akureyri (96-22373), Geislagata 39, kl. 11.00.
ísafjörður, Gúttó viöSólgötu, kl. 14.00.
Keflavík (92-1800), Klapparsíg7, kl. 11.00.
Keflavík, ensk spor, kl. 21.00.
Grindavik, barnaskólinn, kl. 14.00.
Grundarfjörður, safnaöarheimili, kl. 17.00.
Egilsstaðir, Furuvellir 10, kl. 17.00.
Fáskrúðsfjörður, félagsheimiliA Skrúður, kl. 11.00.
Reyðarfjörður, kaupfélngshúsið, kl. 11.00.
Selfoss (99-1787), Selföss egur9,kl. 11.00.
Staðarfell, Dalasýsla (93-4290>, Staðarfell, kl. 21.00.
Vopnafjörður, Heimabyggð4. kl. 16.00.
Sjálfsbjörg
— Útifundur
í tilefni af ári fatlaðra mun Sjálfsbjörg landssam-
band fatlaðra halda útifund á Lækjartorgi í
dag, 13. júní kl. 13.30. Landssambandið hvctur
fatlaöa og stuðningsmenn þeirra að sýna samstöðu
og fjölmenna á fundinn. Fólki er bent á að útvega
sér aðstoðarmenn í tíma og athuga um flutninga til
og frá fundi. Feröaþjónusta og aöstoð verður veitt i
tengslum viö fundinn. Ef aðstoðar er þörf hafiö þá
samband við skrifstofuna i s. 17868 eða i s..29133
sem fyrst. Fundurinn verður túlkaður á táknmáli
fyrir heyrnarlausa. Sýnum samstöðu og mætum öll.
Ibrótttr
íslandsmótiö í
knattspyrnu 1981
Laugardagur 13. júní
Kópavogsvöllur
UBK-FH, l.deild.kl. 14.
Vestmannaeyjavöllur
ÍBV—Valur, l.deild.kl. 15.
Þór—Afturelding, 5. fl. B, kl. 14.
Borgamesvöllur
Skallagrímur—Völsungur, 2. deild, kl. 14.
Skallagrímur—Reynir S., 5. fl. C, kl. 16.
Laugardalsvöllur
Þróllur—ÍBK, 2. deild, kl. 14.
Neskaupstaðarvöllur
Þróttur N—Haukar, 2. deild, kl. 14.
Þróttur—Sindri, 5. fl. E, kl. 16.
Þróttur—Sindri, 4. fl. 17.
Sandgerðisvöllur
Reynlr—iBl, 2. deild, kl. 14.
SelfoMvöllur
Selfoss—Fylkir, 2. deild, kl. 14.
Selfoss—Þór V., 3. fl. B, kl. 16.
Hveragerflisvöllur
Hveragerði—Grótta, 3. deild A, kl. 14.
Varmárvöllur
Afturelding—Grindavik, 3. deild A, kl. 14.
Fellavöllur
Leiknir—Léttir, 3. deild B, kl. 14.
Njarflvíkurvöllur
Njarðvík—Þór, 3. deild B, kl. 15.
Njarðvík—Þór V., 4. n. B, kl. 14.
Stjömuvöllur
Stjarnan—Víöir, 3. deild B, kl. 14.
Akranesvöllur
HV—Víkingur ó., 3. deild C, kl. 14.
Grundarfjarflarvöllur
Grundarfj.—Snæfell, 3. deild C, kl. 14.
Hellissandsvöllur
Reynir He.—Rcynir Hn., 3. dcild C, kl. 14.
Blönduósvöllur
USAH—KS, 3. deild D, kl. 14.
Ólafsfjarflarvöllur
Leiftur— Reynir Á., 3. deild D, kl. 14.
Reyflarfjarðarvöllur
Valur—Höttur, 3. deild F, kl. 15.
Vopnafjarðarvöllur
Einherji—Huginn, 3. deild F, kl. 15.
Eskifjarflarvöllur,
Austri—Hrafnkcll, 3. deild G, kl. 17.
Stöflvarfjarflarvöllur
Súlan—Leiknir, 3. deild G, kl. 15.
Bikarkeppni kvenna
1981
Laugardagur13.júní
Kaplakrikavöllur
FH—Völsungur kl. 14.
Sunnudagur 14. júnl
Laugardalsvöllur
Víkingur—KA, 1. deild, kl. 20.
Vestmannaeyjavöllur
ÍBV—KR, 2. fl. A.kl. 14.
ísafjarflarvöllur
ÍBÍ—UBK, 3. fl. B, kl. 14.
Siglufjarflarvöllur
KS—Tindastóll, 5. fl. D, kl. 14.
KS—Tindastóll, 4. fl. D, kl. 15.
KS—Tindastóll, 3. fl. D, kl. 16.
Blönduósvöllur
Hvöt—Völsungur, 5. fl. D, kl. 14.
Hvöt—Völsungur, 4. fl. D, kl. 15.
Eskifjarflarvöllur
Austri—Sindri, 5. fl. E, kl. 13.
Austir—Sindri, 4. fl. E, kl. 14.
Ferðaiög
Safnaflarferð
Laugarnessóknar
Nk. sunnudag verður fariö í safnaðarferð frá Laug-
arneskirkju kl. 9.30 árdegis. Farið verður um Borg-
arfjörð. Fyrsti viðkomustaöur verður Saurbær á
Hvalfjaröarströnd en þar mun sóknarpresturinn sr.
Jón Einarsson ávarpa hópinn og mun hann m.a.
sýna hina fögru kirkju sem þar stendur. Næst verður
komið í Reykholt. Þar verður helgistund i kirkjunni
í umsjá sóknarprestsins sr. Geirs Waage. Úr Reyk-
holti verður ekið sem leiö liggur í Bifröst en þar
verður drukkiö sameiginlegt síödegiskaffí áður en
lagt veröur af stað til höfuðborgarinnar að nýju.
Nokkuö er nú liðið siöan farið var í ferð scm þcssa
á vegum Laugamessafnaöar og því vonandi að sem
flestir geti verið með. Fólk er beðiö að hafa með sér
nesti til að snæöa í hádeginu en eins og fyrr segir
kaupum við sameiginlegt kaffi í Ðifröst. Ekki er
nauðsynlegt að tilkynna þátttöku fyrirfram. Þennan
dag verður engin messa i Laugameskirkju.
Útivistarferflir
Sunnudagur 14.6.
Id. 8: Þórsmörk, einsdagsferð, verö 170 kr.,
kl. 10: Dyravegur, gengiö í Grafning með Einari
Egilssyni, verð70kr.,
kl. 13: Grafningur, léttar göngur, verð 70 kr., fritt f.
böm m. fullorðnum. Farið frá BSÍ, vestanverðu.
Norflur-Noregur, uppselt.
Grænland i júlí og ágúst, laussæti.
Klifumámskeifl og Öræfajökull i júnílok.
Úrval sumarleyfisferða. Leitið upplýsinga. Vest-
mannaeyjar um næstu helgi. Simi 14606.
Orlof húsmœðra í Reykjavfk
verflur f Eyjafirfli
Orlofsheimili reykviskra húsmæðra sumarið 1981
veröur að Hrafnagilsskóla i Eyjafirði. Rétt til að
sækja um dvöl á heimilinu hafa húsmæður i Reykja-
vík, sem veita eða hafa veitt heimili forstöðu. Eins
og sl. sumar munu einnig dveljast þar húsmæöur aí
Norðurlandi og Vestfjöröum. Þetta samstarf og til-
högun hefur enn aukiö á reisn hins félagslega þáttar
orlofsins. Þegar er ákveðið um 7 hópa og þá miðað
viö 50 gesti frá Rcykjavík og 10 að norðan hverju
sinni. Fyrsti hópurinn fer laugardaginn 4. júlí.
Flogið verður meö Flugleiðum til Akureyrar.
Frá og með 11. júní veröur tekiö á móti umsókn-
um á skrifstofu orlofsnefndar aö Traðarkotssundi 6
í Reykjavik kl. 15—18 alla virka daga.
Göngudagur Ferfla-
fólagsins 14. júní 1981
Ekifl aö Djúpavatni, gengiö um Grænavatnseggjar
og Sogin. Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, aust-
anmegin, kl. 10.30 og kl. 13. Verð kr. 50.-. Fritt
fyrir böm 15 ára og yngri i fylgd með foreldrum.
Þátttakendur geta einnig komiö á eigin bilum.
FÍópur frá Noregi og Svíþjóð kemur gagngert til
þess að ganga með okkur. Verið með í léttri og
skemmtilegri göngu í Reykjanesfólkvangi.
í tileíni al eöngudegi 1 crðófélagsins 14. júni efnir
F.í til mynd. I» ölds laugardaginn 13. júní kl. 20.30
að Hótel Heklu, Rauðarárs.ig 18. Rune Anderson
sýnir myndir frá norska gör'.udeginum og Bergþóra
Sigurðardóttir kynnir ísland i myndum. Allir vel-
komnir. Kaffi í hléi.
Ferflafólag íslands
Helgarferðir 12.—14. júní kl. 20:
1. Mýrdalur—Hafursey, Dyrhólaey, Hjörlcifshöfði.
2. Þörsmörk.
Miðar seldir á skrifstofunni, Öldugötu 3.
Kvöldferð 12. júni kl. 20: Skarösheiöi.
Farið frá Umferðarmiðstöðinni austanmegin.
Farm. v/bil.
. Aðaitunmr
Þernur ókvefla afl segja upp
gildandi kjarasamningum
Aöalfundur Þernufélags íslands var haldinn um
borð i Akraborg þriöjudaginn 19. mai sl. Fundurinn
var vel sóttur og var mikill hugur i þernum ..ð efla
félaaið og standa saman fyrir bætMim kjörum berna
almennt á öllum þeim stööum þar sem þernu- væru
starfandi Kosinvar i\) stjórn cg skipa hana el','tald-
ai J:.*:;iui, se... allar eru starfandi: Formaður Emma
Ámadóttir, Akranesi, varaformaður Jóhanna
Óskarsdóttir, Reykjavik, ritari Guðrún Markan,
Vestmannaeyjum, gjaldkcri Valdis Valdimarsdóttir,
Reykjavik. Meðstjórnendur: Helga Gísladóttir,
Akranesi, og Guðrún Jónsdóttir, Reykjavik. Endur-
skoöandi Steina Guðmundsdóttir, Reykjavík.
Fundurinn samþykkti einróma að segja upp gild-
andi kjarasamningum.
Aukaþing Sjólfsbjargar
Sýningar
Sigurður Þórir Stgurflsson
sýnir f Sandgarfli
Sigurður Þórir Sigurðsson opnar ^unnudaginn
14. júni sýningu á oliumálverkum og grafikmyndum
i Bókasafni Sandgerðis. Siguröur hefur ekki áöur
sýnt í Sandgerði en hann hefur haldið fjölda sýninga
i Reykjavik og úti á landi auk sýninga erlendis.
Myndirnar fjalla allar um fólk við hin ýmsu störf i
þjóðfélaginu og er uppistaða sýningarinnar myndir
tengdar fiskvinnslu. Sýningin verður opnuð kl. 2
(sunnudag) og stendur til sunnudags 21. júni. Aðra
daga er sýningin opin á opnunartima Bókasafnsins.
Listasafn Einars Jónssonar
Frá og með 1. júní er Listasafn Einars Jónssonar
opiðdaglega, nema inánudaga, frákl. 13.30—16.
Eins og kunnugt er var heimili Einars Jónssonar
og önnu konu hans á efstu hæö safnsins og er það
opið almenningi til sýnis yfir sumarmánuöina á
sama tíma.
Tilkynntngar
Hf. Skallagrímur
ÁÆTLUN AKRABORGAR
í janúar, febrúar, mars, nóvember og
desember:
Frá Akranesi Frá Reykjavík
Kl. 8,30 Kl. 10,00
— 11,30 — 13,00
— 14,30 — 16,00
— 17,30 — 19,00
I april og október verða kvöktfer&ir á sunnudögum. — I
maí, júní og september ver&a kvökMeröir á föstudögum
og sunnudögum. — I júli og ágúst ver&a kvökHer&ir alla
daga, nema laugardaga.
Kvöldfer&ir eru frá Akranesi kl. 20,30
og f rá Reykjavik kl. 22,00.
Afgreiðsla Akranesisimi2275
Skrifstofan Akranesi simi 1095
Afgreiðsia Rvik simi 16050
Simsvari i Rvík simi 16420
Talstoðvarsamband við skipið og afgreiðslur á Akranesi og Reykja-
vik FR -bylgja. rás 2 Kallnúmer Akranes 1192, Akraborg 1193.
Reykjavík 1194
Dagana 13. og 14. júní heldur Sjálfsbjörg, lands-
samband fatiaöra, aukaþing I Reykjavik i tilcfni al-
þjóöaárs fatlaðra.
Meginmál þingsins verða, alþjóðaár fatlaðra, meö
sérstakri áherzlu á atvinnu- og lífeyrismál.
Stefán Jónsson, formaöur tryggingaráðs, ræðir
um lifeyrismál og svarar fyrirspurnum.
Framsögumenn veröa Þórður Ingvi Guðmunds-
'son sem ræðir frumvarp til laga um málefni fatl-
aöra, Aðalheiöur Bjarnfreösdóttir sem ræðir sam-
starf Sjálfsbjargar og ASÍ og Theodór A. Jónsson
sem hefur framsögu um alþjóðaár fatlaðra.
í tengslum við þingið veröur haldinn útifundur á
Lækjartorgi, laugardaginn 13. júní og hefst hann
klukkan 13.30.
Lúðrasveit Garfla-
bœjar stofnufl
JC Garðar í Garöabæ gekkst í samvinnu við Æsku-
lýðsráð Garðabæjar fyrir stofnun Lúðrasveitar
Garöabæjar nýveriö. Garðabær hefur síðustu árin
orðið að leita til Reykjavikur eftir íúðrasveitum til
aö leika viö hátiðleg tækifæri, svo sem á sumardag-
inn fyrsta og þjóöhátíöardaginn, og eru miklar vonir
bundnar við að vel takist til meö rekstur hinnar nýju
lúörasveitar.
Stofnfundur lúðrasveitarinnar var haldinn 25.
marz sl. og var Trausti Ævarsson kjörinn form.,
stjórnar iúðrasveitarinnar. Lúörasveitin mun njóta
aðstöðu og leiðsagnar af hendi Tónlistarskólans í
Garöabæ. Skólastjóri skólanser Alma Hansen.
Æfingar eru þegar hafnar og væntir hljómsveitin
þess að henni bætist fljótt liðsafli en fjöldi ungs
hljómsveitarfólks úr Garðabæ hefur leitað til þátt-
töku (lúörasveitum i nágrannabyggðarlögunum.
Fyrsta stjórn og nokkrir þeirra er stóflu afl stofnun
I.úflrasveitar Garflabæjar, tallfl frá vinstri: Bergþór
Úlfarsson, formaflur Æskulýflsráfls Garðabæjar,
Hörflur Rögnvaldsson, Einar Kr. Pálsson, Alma
Hansen, Hildur Jóhannesdóttir, Trausti Ævarsson,
formaflur nýkjörinnar stjórnar, Logi Runólfsson og
ómar Ingólfsson.
Skólaslit í Hóraflsskóianum
á Laugarvatni
HéraðssKólanum á Laugarvatni var slitið föstu-
daginn 22. mai sl. og lauk þar með 53. starfsári
skólans.
Benedikt Sigvaldason skólastjóri rakti i skólaslita-
ræðu sinni helztu atriði skólastarfs vetrarins. —
Héraðsskólinn á Laugarvatni hefur tvo efstu bekki
grunnskóla og framhaldsdeildir: íþrótta- og félags-
málabraut, uppeldisbraut og fomámsdeild.
Nemendur voru á siöasta skólaári 99 talsins, þó
ekki allir samtímis. Voru þeir að vanda úr öllum
landshlutum. —Fastakennarar skólans voru 6 auk
skólastjóra og 8 stundakennarar, en skólaþorpið á
Laugarvatni gefur umtalsverða möguleika til sam-
nýtingar sérhæfðra kennslukrafta, t.d. fer kennsla i
heimilisfræði fram i Húsmæðraskóla Suðurlands.
— Nemendur uppeldisbrautar og 9. bekkjar sóttu
starfskynningu hjá ýmsum skólum og fyrirtækjum
— allar götur til Akureyrar — og nemendur iþrótta-
brautar sóttu einnar viku sklöanámskeið á Siglu-
firði. — Vel heppnuö og allfjölsótt sýning á handa-
vinnu nemenda var haldin sunnudaginn 3. mai.
Prófun í grunnskólabekkjum lauk 9. mai. í 8.
bekk náðu einkar góðum árangri Margrét Svein-
bjömsdóttir frá Heiðarbæ i Þingvallasveit, Laufey
Böðvarsdóttir frá Búrfelli í Grlmsnesi og Lóa ólafs-
dóttir frá Þorlákshöfn, en í 9. bekk Guöný Þ. ólafs-
dóttir, Sigrún Óskarsdóttir, Sigurður Kristinsson,
öll frá Laugarvatni, og Guðný Rún Sigurðardóttir
frá Felli i Strandasýslu.
í uppeldisbraut voru 5 nemendur og hlaut þar
hæstu einkunn ósk Eiriksdóttir frá Miðdalskoti 1
Laugardal, 7,0.
I iþrótta- og félagsmálabraut I. árs voru 15 nem-
endur. Þar hlaut hæstu einkunn Svava Amórsdóttir
frá Höfn i Hornafirði, 7,5, en af 8 manna hópi sömu
námsbrautar á II. ári var hæstur Aðalsteinn Norberg
frá Reykjavik, 7,3.
Afhentar voru verðlaunabækur, sem danska og
vestur-þýzka sendiráðiö í Reykjavík veittu fyrir
góðan árangur í dönsku og þýzku, sem og verö-
launabækur frá skólanum fyrir bezta námsárangur í
framhaldsdeildum.
Nýtt fyrirtsski (Sfflumúla —
Akron hf.
Nýlega hóf starfsemi nýtt fyrirtæki að Siðumúla 31
Rvk undir nafninu Akron hf.
Hefur þuð tekið við umboði Bílasmiðjunnar fyrir
plexiglas, sem er V-þýzkt akrylgler i hæsta gæöa-
fiokki.
Á islenzku gæti plexiglas lagzt út sem gler með
möguleika, og eru ónýttir ýmsir möguleikar á fram-
leiöslu úr þvi með mótun við hita og samsetningu
með limi sem er sama efni. Fyrirtækið mun leitast
við að þjóna áfram viöskiptavinum Bilasmiöjunnar
og öðrum með plexiglas.
Einnig hefur Akron hf. opnaö verzlun i sama húsi
undir þvi nafni og leggur áherzlu á sölu stálhúsgagna
frá Sóló-húsgögnum. Einnig eru seld skrifstofuhús-
gögn, létt innflutt húsgögn og handunnin gjafavara,
s.s. vönduð útskorin trévara og keramik frá Glit hf.
Eigendur Akron eru Markús Atlason og Ámi V.
Atlason.
DB-mynd Sig. Þorri.
Fólagsfundur skýrsiutœkna
Skýrslutæknifélag íslands boðar til félagsfundar i
Norræna húsinu mánudaginn 15. júni 1981 kl.
14.30.
Á fundinum verður tekiö til meðferðar efnið
Kennsla i tölvunarfræöi, gagnavinnslu og skyldum
greinum hérlendis.
FuIItrúar margra framhaldsskóla munu fiytja
stutt framsöguerindi. Siðan verða umræður sem
Sigurjón Pétursson varaformaður Skýrslutækni-
félagsins, stýrir. Á fundinum verður fulltrúi frá
menntamálaráðuneytinu.
Veggmynd á stöflvarhús
vifl Sigölduvirkjun
Landsvirkjun hefur ákveöið að efna til samkeppni
meðal islenzkra listamanna um gerð veggmyndar við
stöðvarhús Sigölduvirkjunar. Verðlaun eru samtals
allt aö kr. 50.000,00. Þar af veröa 1. verölaun kr.
20.000,00. öllum íslenzkum listamönnum er heimil
þátttaka.
Trúnaðarmaöur dómnefndar er ólafur Jensson,
framkvæmdastjóri Byggingaþjónustunnar, Hall-
veigarstig 1, Reykjavík og afhendir hann keppnis-
gögn og veitir frekari upplýsingar um keppnina.
Skila skal tillögum til hans eigi siðar en 15. septem-
ber 1981.
í dómnefnd eru dr. Jóhannes Nordal, stjórnarfor-
maður Landsvirkjunar, Guömundur Kr. Kristinsson
arkitekt og Hörður Ágústsson listmálari.
Kjarvalsstaflir
sumarið 1981
í dag, 13. júní, verða opnaöar tvær sýningar að
Kjarvalsstöðum, sýning á verkum Jóhannesar S.
Kjarval i eigu Reykjavikurborgar í Kjarvalssal og
sýningin Leirlist, gler, textill, silfur, gull í vestursal.
Þar sýna eftirtaldir listamenn í boði Kjarvalsstaða:
Steinunn Marteinsdóttir fleirlist), Haukur Dór fleir-
list), Jónína Guðnadóttir fleirlist), Elisabet Haralds-
dóttir (leirlist), Hulda Jósefsdóttir (textill), Sigriöur
Jóhannsdóttir og Leifur Breiðfjörð (textill), Guðrún
Auðunsdóttir (textill), Ragna Róbertsdóttir (textill),
Ásdís Sveinsdóttir Thoroddsen (silfur og gull), Jens
Guöjónsson (silfur og gull), Guðbrandur Jezorski
(sUfur og gull) og Sigrún ó. Einarsdóttir (gler).
Þessir listamenn, sem nú koma með sumarið inn i
sali Kjarvalsstaða, sýndu saman í Hásselby-höll i
Sviþjóö fyrr í vor, aö Sigrúnu undanskiUnni en hún
hefur ekki sýnt verk sin opinberlega fyrr hér á landi.
Forstöðumaður Hösselby-hallar, Birger Olsson,
valdi þátttakendur og listmuni á sýninguna i samráöi
við Stefán Snæbjörnsson innanhússarkitekt, sem
síðan haföi aUan veg og vanda af uppsetningunni,
þar og á Kjarvalsstöðum. Nú er alltaf fróölegt að
skoða hvernig ísland og islenzk menning er kynnt á
erlendri grund og er það ein ástæðan fyrir þvi aö
Kjarvalsstaðir bjóöa listamönnunum að sýna hér í
sumar. önnur ástæðan er sú að Kjarvalsstaðir vildu
taka upp þráðinn frá sumrinu ’79, er þrem hópum
listamanna var boðið að sýna yfir hásumarið. Sú til-
raun, að gefa borgarbúum og ferðamönnum, inn-
lendum sem erlendum, tækifæri til þess að njóta is-
lenzkrar listar á þeim tima sem Kjarvalsstaðir eru i
sumarskrúða, reyndist takast vel. Sýningamar verða
opnar daglega kl. 14—22 tU 23. ágúst og er ókeypis
aðgangur. Kaffistofa Kjarvalsstaða er opin daglega
kl. 14—19 og einnig á kvöldin þegar sérstök dagskrá
er í húsinu, t.d. tónleikar.
í tilefni sýninganna hefur verið gefinn úr bækling-
ur um Kjarvalsstaði og vönduð skrá um listiönaöar-
sýninguna. Ennfremur veggspjald, „Kjarvalsstaðir
sumarið 1981”, með teikningu eftir Jóhannes S.
Kjarval.
DB-mynd: Einar Óla.
Tfmamót f skólamólum
Austfirðinga
— Ramhaldsskólinn I Naskaupstafl — kjama-
skóii Ifln- og taaknlmanntunar á Austuriandi —
tskur tll starfa í haust
í april sl. var undirritaður samningur á mUli Nes-
kaupstaðar og menntamálaráöuneytisins um skóla-
hald á framhaldsskólastigi I Neskaupstaö. Kveður
samningurinn á um aö sérstakur framhaldsskóU
skuli stofnsettur i bænum og skuU hann taka til
starfa næsta haust. Á skólinn að bera heitið Fram-
haldsskóUnn I Neskaupstað og á hann aö verða
kjarnaskóli iðn- og tæknimenntunar á Austurlandi.
Samkvæmt samningunum á þessi nýi skóli aö taka
alfarið við starfsemi Iðnskóla Austurlands og
Gagnfræðaskólans i Neskaupstað.
Verður hægt að stunda nám í málm-, tré- og raf-
iðnbrautum i skólanum og verður einnig næsta
haust boðið upp á nám á verknámsbraut tréiöna en
stefnt mun verða að þvi að koma fljótlega einnig
upp verkkennsluhúsnæði fyrir aðrar iönbrautir. Á
næstunni er fyrirhugaö að starfrækja vélstjómar-
braut fyrsta og annars stigs við skólann svo og
meistaraskóla húsasmiöa.
Nemendur, sem stefna að stúdentsprófi í bókleg-
um greinum, geta stundað nám á öllum bóknáms-
brautum í tvö ár en fyrst I stað verður lögð megin-
áherzla á eftirtaldar brautir: Eins árs fiskvinnslu-
braut, tveggja ára sjávarútvegsbraut, tveggja ára
íþróttabraut, tveggja ára heilsugæzlubraut og
tveggja ára viðskiptabraut.
Fyrir nemendur sem ekki hafa náö grunnskóla-
prófi og fyrir fólk sem vill hefja nám að nýju eftir
hlé og rifja upp helztu námsgreinar mun Fram-
haldsskólinn bjóöa upp á upprifjunaráfanga (for-
nám).
Við Framhaldsskólann í Neskaupstað verður
kennt eftir eininga- og áfangakerfi fjölbrautaskóla.
Á undanfömum árum hafa tveir skólar boðiö upp
á framhaldsnám i Neskaupstað. Iðnnemar hafa sctið
í Iðnskóla Austurlands en þeir sem stundað hafa
nám á bóknámsbrautum hafa sinnt þvi við fram-
haldsdeildir Gagnfræðaskólans.
Reiðhjólakeppni
grunnskóia 1981
Tæplega 4000 12 ára skólanemendur tóku þátt i
spurningakeppni um umferðarmál sem fór fram i
marzmánuði sl.
Þeir nemendur sem náöu beztum árangri öðluðust
rétt til þátttöku i hjólreiðakeppni sem haldin var i
byrjun maimánaðar. Alls mættu 65 nemendur frá 48
skólum víðs vegar af landinu. Keppt var i tveimur
riðlum, 2 maí viö Austurbæjarskóla í Reykjavik og
9. maí við Oddeyrarskóla á Akureyri.
Úrslit urðu sem hér segir:
Reykjavík: Stig
Hjörtur Þór Grétarsson, Árbæjarskóla 281
Theódór Kristjánsson, Melaskóla 272
Valdimar Svavarsson, Víðistaðaskóla 269
Valtýr Þórisson, Snælandsskóla 252
Elín Ragnarsdóttir, Njarövíkurskóla 251
Guömundur Heiðar Erlendsson, Kópavogsskóla 251
Hrannar Erlingsson, Barnaskóla Selfoss 244
Kristinn Guðlaugsson, öldutúnsskóla 243
Einar Júliusson, Kársnesskóla 242
Siguröur Gisli Björnsson, Flataskóla 240
Páll Kristjánsson, Viðístaðaskóla 232
Kári Lúthersson, Fossvogsskóla 231
Akureyri:
Einar Bjarni Malmquist, Lundarskóla 311
Hjalti Ómar Ágústsson, Þelamerkurskóla 275
Kristjana G. Bergsteinsd., Laugalandsskóla 275
Agnar Guömundsson, Grunnsk. Blönduósi 272
Þessir nemendur, 12 úr Reykjavikurriölinum og 4
úr Akureyrarriölinum taka þátt i úrslitakeppni sem
haldin verður í október nk. Tveir efstu hljóta í
verðlaun ferð til Hollands í mái 1982. Þar munu
verðlaunahafar taka þátt í alþjóðlegu reiðhjólamótí
PRI (alþjóðasamtaka umferðarráða).