Dagblaðið - 13.06.1981, Qupperneq 24
önundur Ásgeirsson olíuforstjóri á Orkuþingi:
„Ekkert mark takandi
á orðum stjómvalda"
— „rauðvínsdrykkja íalþjóðaklúbbum gerir menn aðeins syfjaða”
„Hálfu öðru ári eftir að sérstök
samþykkt er gerð í rikisstjórn íslands
um að olíuverð á fslandi skuli fylgja
kostnaðarverði innfluttra vara, og að
halli skuli ekki myndast á innkaupa-
jöfnunarsjóði olíufélaganna, er skuld
ríkisins við olíufélögin orðin 4000
milljónir gkr.,” sagði önundur Ás-
geirsson forstjóri Olis i erindi er hann
flutti á Orkuþingi. Erindið bar heitið
„Viðbúnaður fslendinga við truflun-
um á olíuinnflutningi”.
„Samþykkt ríkisstjórnarinnar var
gerð í kjölfar samþykktar hennar um
að taka erlent lán til að greiða 2800
milljón króna skuld við olíufélögin
vegna rangrar ve'rðlagningar innan-
lands. Eftir að lánið var tekið og
skuldir jafnaðar, og ný 4000 milljóna
króna skuld er til orðin er að mynd-
ast ný skuld á innkaupajðfnunar-
reikningi fyrir allar olíutegundir og
nam sú skuld i byrjun þessa mánaðar
um 2000 milljónum gkr. Samtals er
því skuld á þessum reikningi 6000
milljónir gkr. eða 60 milljónir
nýkróna,” sagði önundur.
önundur Ásgeirsson hélt áfram:
„Þetta er gott dæmi um hversu
spillt stjórnmál eru á fslandi og ekk-
ert mark er takandi á yfirlýsingum
stjórnvalda. Þá er og augljóst að
ekki greiðir slík framkvæmd fyrir
þvi að unnt sé að auka olíubirgðir i
landinu.”
önundur rakti tvær truflanir á
olíuafgreiðslum til Evrópu, bylting
Mosadeks i fran 1953 og Súez-striðið
1958.
1 .............
Hann rakti einnig aðför stjóm-
málaflokka og málgagna þeirra að
olíufélögunum. Sérstökum orðum
fór hann um afskipti stjómskipaðrar
nefndar um olíuinnkaup og viðhafði
þau orð um niðurstöður nefndarinn-
ar sem höfð eru eftir Árna Pálssyni
prófessor: „Að aidrei hef ég vitað
menn hafa jafnmikið fyrir því að
komast að rangri niðurstöðu”.
Komst önundur loks að þeirri
niðurstöðu að olíufélögin hefðu nú
þegar nægt geymslurými fyrir eðlileg-
ar öryggisbirgðir og meiri en gerð er
krafa til um af International
Emergency Agenzu (Alþjóða orku-
stofnunin).
„Fjármögnun birgðanna er mikið
vandamál og veldur mestu skiinings-
leysistjómvalda,” sagði önundur.
Hann benti á 3,5 milljón dollara
tap á 100 þúsund tonna gasolíuvið-
skiptum við BNOC og hve Norð-
menn væru ósamvinnuþýðir i olíu-
viðskiptum.
önundur fjallaði sérstakiega um
aðild fslands að Alþjóðaorkustofn-
uninni og taldi þurfa hugarfars-
breytingu til ef hún ætti að verða til
góðs fyrir þjóðina.
„Ef viðhorfið er hins vegar að líta
á Alþjóða orkustofnunina sem
cocktaii-klúbb eða hádegisverðar-
klúbb með rauðvíni eru afleiðingar
þær einar að menn verða syfjaðir það
sem eftir er dagsins.”
-A.St.
Ekki öll kurl
komin til
grafar
ífrímerkja-
rmm
malinu
— eitt umslagið selt
dönskum f rímerkja-
safnara fyrir
10-25 þús.kr.
„Flest hefur náðst en þó vantar
ennþá nokkuð af því sem horfið
hefur úr bréfasafni Tryggva
Gunnarssonar,” sagöi Þórir Odds-
son, vararannsóknarlögreglustjóri
ríkisins, i viðtali við DB i gær. Kvaðst
hann að svo komnu ekki geta sagt
meira um rannsókn þessa frimerkja-
máls sem svo hefur verið nefnt.
Þór Magnússon þjóðminjavörður
og skrásetjari safnsins voru i gær-
morgun til aöstoðar rannsóknar-
iögreglu ríkisins við athugun á því
sem fundizt hefur eða komizt til skila
á annan hátt. Með samanburði við
skrá yfir bréfasafnið verður væntan-
lega ljóst hvers enn er saknað úr
safninu.
Bréfasafn Tryggva Gunnarssonar,
Gránufélagsforstjóra, alþingismanns
og bankastjóra fslandsbanka, er
eign Þjóðminjasafnsins. Með sér-
stöku samkomulagi var því
„deponerað” til varðveizlu í skjaia-
safni Seðlabanka íslands. í febrúar-
mánuði síðastliðnum komst upp um
þjófnað úr safninu. Varð fljótlega
ljóst að starfsmaður þess var valdur
að honum. Hafði hann þegar selt
einhver frímerkjanna sem voru á
umslögum.
Haraldur Sæmundsson í Frí-
merkjamiðstöðinni sagði i viðtali við
DB hinn 28. febrúar að hann hefði
strax gert Seölabankanum viðvart er
hann varð þess áskynja að starfs-
maðurinn myndi ckki hafa haft lög-
leg umráð yfir 26 frímerkjum sem
hann haföi keypt af honum. Gat
hann þegar f stað skilað þeim flest-
um.
Mesta athygli vakti hvarf umslags
sem mynd er af í bókinni íslenzk fri-
merki í 100 ár eftir Jón Aðalstein
Jónsson. Var i fyrstu talið aö það
hefði hafnað í Sviss fyrir miltigöngu
annars frímerkjakaupmanns. Sam-
kvæmt heimildum DB var það selt
dönskum frímerkjasafnara. Talið er
að tilboöa hafi verið leitað viðar í
þetta verðmæta umslag.
Tókst frimerkj akaupmanninum að
endurkaupa umslagiö. Um verðið er
ekki vitað meö fullri vissu. Víst er þó
talið að það liggi einhvers staðar yfir
10 þúsundum nýkróna og þó ef til vill
taisvert hærra eða allt að kr. 25
þúsundum.
Málið er enn í rannsókn, sem fyrr
segir, meðal annars hugsanleg sök
aðildarmanna að viðskiptum við
starfsmann skjalageymslu Seðla-
bankans. -BS.
Sigrún Ólöf í s/ö pörtum
Listakona í sjö pörtum gœti þessi mynd heitið en konan heitir hins vegar Sigrún Ólöf Einarsdóttir
og hefur sjúlft gert glerskálina sem hún heldur á. Mun hún því vera eini starfandi glerhönnuður ís-
lendinga. Verk hennar er annars að finna á mikilli sýningu á listiðnaði sem verður opnuð að Kjar-
valsstöðum í dag en þar verða einnig fuUtrúar leirlistamanna, vefara, gull- og silfursmiða ogfata-
hönnuða. Hlutu þessir listamenn mikið lof erþeir sýndu verk sín í Svíþjóðfýrir skömmu.
DB-mynd Einar ÓI./AI.
irjálst, óháð dagblað
LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ1981.
118
tonna
bátur á
þurrt við
Eyjafjörð
—tveirbátartil-
búniraðkippa
íhann í
gærkvöldi
118 tonna fiskiskip frá Vopnafirði,
Rita NS 13, strandaði skammt frá
Gjögurtáarvita, austanvert við mynni
Eyjafjarðar, kl. 13 i gær. Sat skipið
enn á strandstað kl. 18 í gærkvöldi en
þá var beðið flóðs sem verða átti um kl.
sjö. Voru tveir bátar, Otur frá Eyja-
firði, 23 tonn, og Eyborg frá Stykkis-
hólmi 55 tonn, tilbúnir til að kippa í
Ritu og reyna að ná henni á flot.
Rita var á leið frá Ákureyri til
Vopnafjarðar er óhappið varð. Ekki er
vitað um orsök strandsins en gott veður
er á þessum slóðum. Engan mann hafði
sakað og var öll skipshöfnin um borð
og beið björgunartækifærisins á
flóðinu í gærkvöidi.
SVFl beið átekta en félagið hafði
ekki verið beðið neinnar aðstoðar í
sambandi við strandið. Stóðu eigendur
Ritu i sambandi við Tryggingamiðstöð-
ina, tryggingaraðila Ritu. Hafði trygg-
ingafélagið ekki beðið SVFÍ neinnar
aðstoðar í sambandi við strand bátsins.
-A.St.
Áskrifendur
DBathugið
Einn ykkar er svo Ijónheppinn
að fá að svara spurningunum i
leiknum „DB-vinningur í viku
hverri”. Nú auglýsum við eftir
honum á smáauglýsingasiðum
blaðsins i dag.
Vinningur í þessari viku er 10
gira DBS eða Raleigh reiðhjól fró
Fálkanum, Suóuriandshraut 8 í
Reykjavik. Fylgizt vel með, áskrif-
endur, fyrir nœstu helgi verður
einn ykkar glœsilegu reiðhjóli rík-
ari.
hressir betur.