Dagblaðið - 08.07.1981, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 08.07.1981, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ1981. SKRIFSTOFUSTARF Dagblaðið óskar að ráða starfsmann á ritstjórn til starfa við móttöku, vélritun og sjálfstæða úrvinnslu efnis. Umsóknir sendist Dagblaðinu Síðumúla 12, fyrir 14. júlí. BlADin Fjölbrautaskóli Suðurnesja Laus er staða fulltrúa á skrifstofu Fjölbrautaskóla Suður- nesjafrá 15. ágústnk. Laun fylgja kjarasamningum opinberra starfsmanna. Skriflegar umsóknir sendist fyrir 15. júlí, merktar: Fjöl- brautaskóli Suðurnesja, pósthólf 100,230 Keflavik. Undirritaður veitir upplýsingar um starfssvið og hæfnis- ^rÖ^Ur' Skólameistari. Frá Kennaraháskóla íslands Kennarar með kennarapróf frá Kennaraskóla íslands þ.e. fyrir 1974, sem lokið hafa háskólaprófi eða sambærilegu prófi í kennslugrein eða kennslugreinum sem veita þeim réttindi til kennslu á framhaldsskólastigi samkvæmt lögum um embættisgengi kennara og skólastjóra en vantar til- skilið nám í uppeldis- og kennslufræði til að öðlast skipun í starf sitt, eiga kost á að ljúka því námi við Kennaraháskóla íslands. Gert er ráð fyrir að námið skiptist í heimavinnu að vetri og sumarnámskeið sumarið 1982. Umsækjendur skulu vera undir það búnir að þurfa að mæta í skólanum í nálægt vikutíma eftir næstu áramót. Þeir sem áhuga hafa á umræddu námi eru beðnir að senda afrit af prófum sínum og gera grein fyrir starfsferli að loknu kennaraprófi ásamt öðrum þeim upplýsingum sem þeir telja að gildi hafi fyrir 1. sept. og verður haft samband við þá síðar í sumar eða haust. Þessi nýlegi sumarbústaður er til sölu. Hann stendur i landi Mööruvalla í Kjós gegnt Vindáshlið. Hann er 44 m2 að stærð. Allar upplýsingar I sima 92-2172 GriHstofa til leigu í Kópavogi. Upplýsingar í síma 84179. Toyota Landcruiser árg. '76 til sölu Ekinn 29 þús. mil- ur. Uppl. hjá auglþj. DB i slma 27022 eftir kl. 12. H-7681 LÝST EFTIR DRENG —faðirhans býríNoregi Kristján S. Jósefsson, íslenzka dýra- safninu hringdi: Ég óska eftir að skolhærði dreng- urinn sem var í heimsókn hjá mér föstudaginn síðastliðinn, 3. júlí, hafi samband við mig í síma -26628, eða komi. Samtal okkar var á þá leið að hann sagði aö foreldrar slnir væru skildir og pabbi sinn væri í Noregi en kæmi svona einu sinni til 2svar á ári til ís- lands. Ef einhver skyldi álíta sig kannast við þennan dreng þá bið ég viðkom- andi jafnframt um að hafa samband við mig á safninu eða i ofangreindan síma. Kristján S. Jósefsson i tslenzka dýra- safninu. Gott er að eiga góða skó en lakara þyklr mönnum et peir eru oi sionr. DB-mynd Ragnar Th. Skórnir fengust ekki endurgreiddir — þar sem búið var að gera ráð fyrir þeimíveltunni Ólafur H. Johnson, Suöurhólum 8, hringdi: Fyrir viku keypti ég mér skó á 516,85 kr. f Skóbúð Steinars Waage. Eitthvað hef ég verið bólginn á fótun- um þegar ég mátaði skóna því að þegar heim var komið reyndust skórnir of stórir. Ég var að fara úr bænum og því dróst þaö 1 eina viku að skipta skónum. Þegar ég kom i verzlunina til að skipta skónum kom í ljós að þeir áttu enga þrengri skó sömu gerðar og reyndar fannst aðeins eitt par i búðinni i mínu númeri, 43 1/2, sem er eitt algengasta númeriö. Ég var að leita að svörtum karl- mannaskóm og því gat ég ekki notað þessa einu skó sem buðust. Ég fór því fram á að fá peningana endurgreidda en þvi neitaði stúlkan sem afgreiddi mig á þeim forsendum að búið væri að stimpla upphæðina inn í kassan. Ég vildi nú ekki una þessu og fékk því samband við mann sem ég held að sé verzlunarstjóri skóbúðarinnar. Hann tók ( sama streng og stúlkan og sagöi að ómögulegt væri að endurgreiða mér peningana, þvi búið væri að gera ráð fyrir þeim i veltunni. Þaö eina sem fyrir mig var hægt að gera var að Raddir lesenda ég gat fengið innleggsnótu sem ég varðsvo að þiggja. Mér finnst þetta nú anzi léleg þjón- usta og finnst þvi rétt að vekja at- hygli á þessu. Vitaskuld get ég svo ekki gert annað en beðið þangað til aukið skóúrval kemur í búðina. Þá mun ég taka út á nótuna en beina svo viðskiptum mínum annað í framtíð- inni. "V milli kl. 13 og 15, eðaskrífið Telur unglingaklúbba draga úr notkun vímugjafa Stuöningsmaður unglingaklúbba hringdi: Mig langar til þess aö taka undir orð Reynis Ragnarssonar i Dagblað- inu 3. júlí í sambandi við unglinga- klúbbinn. Mér finnst unglingar al- mennt ekki hafa neina aðstöðu þótt stöku hverfi sé þar undantekning. Sonur minn, 17 ára, hefur tekið þátt i að safna undirskriftum í sam- bandi við unglingaklúbbinn og ég hef mikla samúð með þessum krökkum. Árin 1958—62 voru mín táningsár og við áttum ekki úr mörgu að velja. Það var þá helzt rúnturinn og gamla góða Hálogaland. Á þessum aldri þarf maður að hafa eitthvað við að vera. Ég hef kynnzt mörgum ungling- um og veit að þeir hafa áhuga á að fá að takast á við einhver verk. Þvi ekki koma á fót einhverju húsnæöi sem þau geta fengið að innrétta og jafnvel reka sjálf? Ef slikt kæmist á held ég að ungl- ingarnir sneru fremur baki við vimu- gjöfum og sliku. Annað hef ég ekki að segja, nema beztu óskir til þeirra sem leggja þessu máli Iið.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.