Dagblaðið - 08.07.1981, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 08.07.1981, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1981. 17 fyrir nýjum starfsaöferðum. Hægt er að laða fólk að henni á margbreytilegri hátt. Þetta sannaðist i safnaðarstarfmu hjá okkur. Um leið og við hófum aldr- aðrastarf hér á virkum dögum fjölgaði öldruðum úr sókninni sem sækir mess- ur á sunnudögum. Fólkinu liður vel hér og hefur yndi af að taka þátt í tóm- stundastarfinu. Það laðaði sama fólk svo að sjálfri boðuninni um helgar.” „Prestskosningar eru vandrœðamál" — Er hægt að tala um trúfrelsi á fs- landi; menn fæðast inn í þjóðkirkjuna og trúarbragðafræði eru lítið eða ekki kennd í skyldunámsskólunum heldur nánast eingöngu kristin fræði? „Trúfrelsi er á íslandi, já, já. Við höfum þjóðkirkju, kirkjan og þjóðin prestar þurfa að ganga í gegnum kosn- ingaslag til að fá vinnu. Með kosninga- fyrirkomulaginu er prestum att saman beint og óbeint. Og erfitt er fyrir presta að flytja sig milli staða með það yfir höfði sér að þurfa að berjast um emb- ættið við starfsbræður sína í hvert sinn.” „Myndi ekki ganga í kristilegan stjórnmálaflokk" — Leiðtogar kirkjunnar í Suður- Ameríku taka þátt í öflugri þjóðfrelsis- baráttu í álfunni. Kirkjunnar menn í Póllandi eru líka ófeimnir við að gefa beinar pólitískar yfirlýsingar. Á kirkjan að láta þjóðfélagsmál til sín taka eða aðeins að halda sig við „boðun orðsins”? „Kirkjan lætur sig varða allt mann- — Hvert er viðhorf þitt til spirit- isma? „Allir prestar hljóta að hafa áhuga á sálarrannsóknum og kristnir menn trúa þvi að Jesú hafi risið upp og veitt okkur hlutdeild í eilífðinni. Hvað varöar spíritismann þá er hættan sú að hann verði að trúarbrögðum, að þetta verði kukl og að óprúttnir menn notfæri sér sorg og vandræði annarra.” Dóttirin stundar nám f guðfræóideildinni — Sumir lita það hornauga að konur gegni prestsembætti. Rætt er um hvort guð hafi endilega verið karl en ekki kona. Hvað er um þetta að segja? „Auðvitað er sjálfsagt mál að konur verði prestar. Ég studdi það án minnstu efasemda að Auður Eir yrði vígð á „Stungið var upp á þvi að prestar skrýddust hempunum og gengju I þögulli fylkingu inn f fjármálaráðuneytið til að minna á kjörin.” „Fólk vill kjölfestu I lífinu sem það finnur I kirkjunnL” styðja hvort annað. Því er eðlilegt að kenning kristninnar sé reifuð í skóla- kerfinu. Hins vegar þarf kirkjan að hafa visst eftirlit með kennslu í kfistn- um fræðum í skólakerfinu. Mér sýnist að þar stefni i rétta átt. Kominn er námsstjóri I kristnum fræðum og nýjar námsbækur í faginu eru betri en þær gömlu.” — Hvað er að segja um prestskosn- ingar, á það fyrirkomulag rétt á sér eða ekki? „Prestskosningar, já,' þær eru vand- ræðamál! Ég hef sjálfur eiginlega aldrei gengið í gegnum slikt þar sem enginn keppti við mig um Bústaða- sókn. Vinir minir hafa hins vegar lent í þessu. Af reynslu þeirra og lýsingum veit ég að finna verður aðrar leiðir. Þetta fyrirkomulag er út í hött. Ég vil þó ekki taka valdið algjörlega frá söfn- uðunum. Sóknarnefndir ættu að hafa sitt að segja, prestar í viðkomandi pró- fastsdæmi og biskup líka. Allir þessir aðilar ættu að koma inn í myndina. Engir aðrir embættismenn rikisins en legt. Hún er þar af leiðandi pólitísk. Ekki þó flokkspólitisk þannig að hún segi fólkinu hvað það eigi að kjósa. Kirkjan á að láta í sér heyra, benda á og opna augu fólks telji hún þörf á því. Kirkjunnar menn í Bandaríkjunum hafa til dæmis varað eindregið við auknum herútgjöldum Reagan-stjórn- arinnar.” — Hvaðmeðkristileganstjórnmála- flokk á íslandi? „Ég myndi sjálfur ekki ganga í slík- an flokk ef stofnaður væri. Mér finnst miklu vænlegra til árangurs að kristnir menn láti meira til sín taka innan þeirra flokka sem fyrir eru. Það er nóg komið af stjórnmálaflokkum á fslandi.” sínum tíma. Auk þess stæði það mér ekki næst að vera á móti kvenprestum á sama tíma og dóttir mín stundar guð- fræðinám i Háskólanum! Um hitt hef ég það að segja að það er of mikil við- kvæmni að mega ekki karlkenna guð. Kemur ekki á móti að við kvenkennum kirkjuna?” — Biskupsembættið. Mig langar til að kynnast viðhorfum þínum til þess og hvort þér sýnist þörf á breyttum að- ferðum við yfirstjórn kirkjumála? „Biskupinn er yfirmaður þjóðkirkj- unnar og jafnframt andlegur leiðtogi hennar. Hvort tveggja er mjög þýð- ingarmikið. Sem embættismaður er biskupinn eftirlitsmaður með starfi Æviatriðií stuttu máli Séra Ólafur Skúlason er fædd- ur 29. desember 1929 i Birtinga- holti, Hrunamannahreppi I Árnessýslu. Foreldrar hans eru Skúli Oddleifsson í Keflavik og Sigríður Ágústsdóttir frá Birtingaholti sem andaðist 1959. Ólafur lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla íslands 1952 og guðfræðiprófi frá Háskóla íslands 1955. Þann 5. júni sama ár var hann vígður til Mountains- prestakalls í Norður-Dakóta I Bandaríkjunum og var þar til haustsins 1959. Hann var síðan settur prestur í Keflavík og gegndi því starfi í þrjá mánuði, eða til 1. febrúar 1960. Ólafur varð fyrsti æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar og gegndi þvf starfi í fjögur ár, 1960—1963. Prestur i Bústaða- sókn hefur hann verið frá 1. janúar 1964. Auk þess dómpróf- astur frá 1. nóvember 1976. Séra Ólafur Skúlason er kvænt- ur Ebbu Sigurðardóttur, ættaðri frá Siglufirði. Þau eiga þrjú börn: Guðrúnu Ebbu, 25 ára, Sigríði, 23 ára, og Skúla Sigurð, 12ára. -ARH., ,Þeir eru fáir matartfmamir sem liða án þess að siminn hringL’ kirkjunnar og safnaðanna. Hann er þess vegna býsna oft með báða fætur á jörðinni þó hann bendi okkur til hæða. Herra Sigurbjörn Einarsson tók við embættinu 1959. Þá störfuðu auk hans á skrifstofunni ritari og skrifstofu- stúlka. Nú eru skrifstofustúlkurnar orðnar tvær. Það þætti ekki mikil út- þensla í mörgum öðrum ríkisstofnun- um á svo löngum tíma. Það fer ekki milli mála að nauðsynlegt er að fjölga starfsfólki á biskupsstofu. Raunar ætti biskupsembættið að fá um leið ýmsa málaflokka sem nú heyra undir stjórn- arráðið. Hvaða nýr maður sem tekur við embætti biskups vill breyta ýmsu. Engir tveir menn standa nákvæmlega eins að verki. Ég hvorki get né vil segja um það hvort og þá hvernig ég myndi beita mér fyrir breytingum í starfi bisk- ups, taki ég við embættinu. Það verður að koma i ljós siðar.” „Þjóðkjör biskups kœmiekkitilgreina" — Margir telja það litið lýðræði að 150 manns skuli velja biskup á sama tíma og margir tugir þúsunda manna teljast til þjóðkirkjunnar. Er þörf á breytingum á fyrirkomulagi biskups- kjörs? „Þjóðkjör biskups kemur ekki til greina. En hugsanlegt er að leikmenn fái jafnmikla ábyrgð og guðfræðingar og prestar í kjörinu. Annars þykir mér versti gallinn á núverandi fyrirkomu- lagi sá að kjörið tekur allt of langan tíma. Þegar samgöngur eru eins góðar og raun ber vitni er ótrúlegt að at- kvæðagreiðsla 150 manna þurfi að taka margar vikur.” — Herra Sigurbjörn Einarsson er virtur maður og vinsæll. Hann þykir með afbrigðum góður og skeleggur ræðumaður og nær vel til fólks. Er ekki erfitt að taka við embættinu af honum ef það á fyrir þér að liggja? „Hver svo sem sezt í þennan stól axlar um leið geipimikla ábyrgð. Ef ég ætti að fara að bera mig saman við herra Sigurbjörn gæti ég ekki sofið eina nótt í friði. Ég þekki engan sem gæti farið í fötin hans. Ég myndi sem biskup ekki keppa við minningu herra Sigur- björns eða þeirra tveggja fyrirrennara hans sem ég kynntist líka — reyndar var Ásmundur biskup náfrændi minn. Ég myndi gera mitt bezta og sé maður sannur og trúr þarf ekki að örvænta. „Þögn um kirkjuna f fjölmiðium er ekki ávinningur" — Lokaspurning: Gagnrýnt hefur verið á opinberum vettvangi að fjöl- miðlar skuli yfirleitt fjalla um biskups- kjör, með þvi sé verið að gera biskups- kjörið að kosningaslag á borð við þann sem stjórnmálamenn eru eilíft í. Eiga fjölmiðlar að láta kirkjuna i friði við val á eftirmanni herra Sigurbjörns Einarssonar? „Kirkjunni væri það lítils virði ef fjölmiðlar létu sig engu skipta að verið sé að velja biskup. Umtal í fjölmiðlum hlýtur að vera kirkjunni til góðs, svo framarlega að umfjöllunin sé ekki dregin niður á „lágt plan”. Þögn um kirkjuna er ekki ávinningur fyrir hana. Almenningur lætur sig þetta miklu varða og við hljótum að verða að gang- ast undir umtal. Slíkt er óhjákvæmi- legt. Á meðan fjallað er af skilningi um málefni kirkjunnar er það henni til gagns.” - ARH INSTANT ÁLVINNUPALLAR & SPANDECK BURDARPALLAR Ragnar Hafiiöason, mátarameistari Hafnarfirói: Öruggur og þægilegur, vegna léttleika auöveldur I uppsetningu, fyrirferöarlltill I geymslu. Hvereining aöeins 25 kg. Notkunarstaðir allar húsaviögeröir stórir saliÚAukin vinnuafköst um 40—50%. Reynist rosalega vel. Léttur i meðförum. Fljótlegt að setja upp og taka niður. Reynist mjög vel í notkun. Allar nánari upplýsingar hjá RÁLMASON &VALSSON HP. KLAPPARSTÍC 16 5.27705

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.