Dagblaðið - 08.07.1981, Side 4

Dagblaðið - 08.07.1981, Side 4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ1981. DB á ne ytendamarkaði Dóra Stefánsdóttir Kristjana Halldórsdóttir, Hellissandi, verðlaunahafi aprflmánaðar: BOKHALDIÐ HJALPAR FÓLKIAÐ FARA VEL MEÐ MATARPENINGA „Ég tók þátt í heimilisbókhaldinu í fyrra, en sendi ekki inn seöla. Um áramótin tók ég hins vegar upp ná- kvæmt bókhald og sendi alltaf mán- aðarlega inn seðla tíl Dagblaðsins,” sagði Kristjana Halldórsdóttir hús- móðir, Laufási 3, Hellissandi. Kristjana er verðlaunahafi neyt- endasíðunnar í heimilisbókhaldinu fyrir aprílmánuð. Hún er aðeins 24 ára að aldri, gift Svani Aðalsteinssyni verkstjóra i Fiskverkun Sigurðar Ág- útssonar á Rifi. Þau hjónin eiga einn son, Stefán Jóhann, 3 ára. Kristjana er uppalin í Ólafsvík en flutti árið 1976 til Hellissands. Þau hjónin keyptu sér hús þar og fluttu inn i það um siðustu páska. Knstjana Halldórsdóttir, Hellissandi: Heimilisbókhaldið er I raun alveg nauðsynlegt. „Ég merki við öll min daglegu út- gjöld og færi inn hvort um mat eða annað er að ræða. Það er mjög gott að halda slíkt heimilisbókhald og fylgjast á þann hátt með þvi í hvað peningarnir fara. Það er í raun alveg nauðsynlegt. Það hjálpar fólki að fara vel með peningana. Innkaup hjá mér fara aðallega eftír daglegum þörfum. Ég er ekki með frystíkistu og verð því að kaupa „Mér Uzt stórvel á handklæðin og sængurverin. Það er alltaf þörf fyrir sUka muni.” flestar nauðsynjar daglega. Ég reyni þó frekar að kaupa vörur í stórum pakkningum, t.d. hveiti og sykur. Á haustin fæ ég yfirleitt gefna tvo kindaskrokka og þeir fara langt að duga veturinn fyrir okkur. Kjötið getum við geymt í frysti á Rifi. Slátur býégekki til. Maðurinn minn kemur oft heim með fisk og úr honum bý ég til bollur og fiskbúðing. Fiskurinn drýgir matarpeningana til muna. Ég baka mikið sjálf og kaupi litið af sæta- brauði i búðum. Mér finnst það heldur ekki mjög gott. Það er ekki bakarí á Heilissandi en bakaríið í Ólafsvík sér stöðunum fyrir brauð- meti. Ég var á húsmæðraskóla einn vetur. Sumir telja slíka skóla tíl bóta og aðrir ekki. Mér finnst fyrir mitt leyti að skólinn hafi komið mér mjög vel.” Kristjana tók utan af verðlauna- pakkanum frá Dagblaðinu með að- stoð sonar síns. Hann var heldur feiminn, er komumaður var að mynda hann, en gleymdi þvi þó fljótt er hann fékk að kíkja í pakkann. ,,Mér lizt stórvel á handklæðin og sængurverin,” sagði Kristjana, „það eru alltaf not fyrir slíka muni. Maður sparar sér heldur að kaupa slfka hluti þannig að þetta kemur sér vel.” - JH Verðlaunin voru: RÚMFÖT OG HANDKLÆÐI r ■■ FRA VOGGUR í þetta sinn völdum vð hérna á Neytendasíðunni sjálfar verðlaunin. Þau voru sængurfatasett fyrir 3 ásamt tveim settum af handklæðum. Hvert sængurfatasett var koddaver, sængurver og lak. Og hvort hand- klæðasett var baðhandklæði og handþurrka. Allt var þetta útsaumað áfeguiita hátt. Það er verzlunin Vöggur í Reykja- vík sem selur þessar vörur sem eru alveg sérlega fallegar. Rúmfatnaður- inn er straufrir, úr 55% póliester og 45% bómull. Hann var valinn hvítur fyrir Kristjönu og mann hennar en drapplitur fyrir drenginn. Þau mega skipta og fá annan iit að vild. Handklæðin voru blá og rústrauð. Þau eru amerísk. Eins og fyrr sagði var þetta allt út- saumað og er sú vinna unnin hér á landi á vegum verzlunarinnar Vöggs. Það er langt síðan við höfum séð eins fallega vinnu á nokkrum hlut. Næstu verðlaun verða einnig frá verzluninni Vögg. Eru það rúmföt fyrir fjóra og tvö lftil handklæði. Þau fara til Bolungarvlkur og verður nán- ar greint frá þvi síðar. Ástæða er tíl að hvetja fólk til að senda upp- lýsingaseðla fljótt inn því það hefur komið fyrir að nokk.ir seðlar hafa borizt eftir að búið var að draga og jafnvel afhenda verðlaun. - DS Hvað kostar sjónvarp í júlí? VARLA FYRIR ELLI- LÍFEYRISÞEGA Sumarfrí sjónvarpsins er óvenju langt að þessu sinni. Heilar fimm vikur sem mörgum getur reynzt erfitt að þreyja. Má þar til dæmis nefna gamla fólkið sem ekki á svo auðvelt að fara um. En þeim til huggunar sem ekki geta lifað af sjónvarpsleysi er þessi grein skrifuð. Hún er nefni- lega um myndsegulbönd sem hægt er að leigja sér og spólur i þau. En við verðum að hryggja gamla fólkið með því að varla er þessi möguleiki opinn fyrir það. í fyrsta lagi er þetta nokkuð dýrt og i Ööru lagi talsverð hlaup i kringum það. Það þarf nefni- lega að sækja spólurnar og skila þeim aftur. Við gátum grafið upp þrjá aðila i Reykjavík sem sinna þessum við- skiptum. Það eru Videomiðstöðin á Laugavegi (simi 14415), Radióbær f Ármúla (simi 83177), og Vídeó-són í Breiðholti (sími 71745). Hjá Videomiðstöðinni fengust þær upplýsingar að leiga á tækinu sjálfu væri mismunandi eftir því hversu lengi það væri tekið á leigu. Þannig 'tg" kostar það 600 krónur sé það leigt i viku og 2 myndir eru innifaldar. Sé það hins vegar leigt í mánuð kostar það 2400 og eru þá 8 myndir inni- faldar. 35 krónur aukalega kostar að leigja hverja filmu þar fyrir utan. Þetta þýðir að ætli menn að horfa á sjónvarpið á hverjum degi f mánuð kostar það hvorki meira né minna en 3205 krónur. Radíóbær leigir tækin út á 150 krónur á sólarhring. Spólur í það kosta siðan 20 krónur á sólarhring. En hægt er að ganga í kvikmynda- „Ég merki við öll min daglegu útgjöld,” segir Kristjana. Stefán Jóhann, 3 ára sonur Kristjönu, var heldur feiminn fyrst i stað, en gleymdi þvi svo. Myndsegulbandið er dýr en dálftið freistandi lausn á sumarleyfi sjónvarpsins. DB-mynd R.Th. klúbb hjá fyrirtækinu og kostar þá hver spóla 15 krónur á sólarhring og menn hafa 3 spólur f einu í 3 sólar- hringa. Mánaðarleiga á tækinu meö fyrrnefnda spólumöguleikanum (á hverjum degi) kostar þá 5270 krónur og síðarnefndi möguleikinn 5115 krónur á mánuði. Hjá Vídeó-són reyndist ómögulegt að fá nokkrar upplýsingar um verð. Það fyrirtæki setur upp myndsegul- bönd í fjölbýlishúsum og fer það eftir stærð hússins hversu mikið hver íbúðareigandi verður að greiða. Leigt er tíl ákveðins tima en það fer lika eftír aðstæðum hvað hann er langur. Annar eigandinn sagði að jafnframt væru allar aðstæður skoðaðar áður en nokkuð er sagt um verð. Filmu- verð er innifalið í leigunni. Mér er kunnugt um að núna borga stórar blokkir oft 500 krónur á mánuði og litlar blokkir 700 fyrir þessa þjón- ustu. Dagskrá er þá yfirleitt þrjá tíl fjóradagaí viku. - DS ✓

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.