Dagblaðið - 08.07.1981, Side 20

Dagblaðið - 08.07.1981, Side 20
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1981. 20 I Sat af sér sekt á „Níunni” vegna umferðarlagabrots: „SVONA FANGELSIERU BETUR TIL FALLIN AÐ FRAM- LEIÐA AFBROTAMENN" — segir Þórður V. Magnússon sem kaus fangelsið í staðlOOO kr. sektar. „Menn teknir fyrir hassneyzlu, en gef ið vaiíum og annað dóp f staðinn” Þegar Þóröi V. Magnússyni var gefið það val að borga 1000 krónur í sekt fyrir of hraðan akstur ellegar sitja inni í þrjá daga valdi hann hið síðarnefnda. í október hafði Þórður verið tekinn fyrir að keyra á hundrað km hraða en dóm- urinn var ekki kveðinn upp fyrr en í júní. Prófiö var síðan tekið af honum einn mánuð í apríl. Afbrotafangar þegar út kemur „Ég hef alltaf haft áhuga á að kynn- ast þessari hlið mannlífsins og þarna kom kjörið tækifæri til þess, þar eð ég þurfti að velja,” sagði Þórður og af- henti okkur bænaskjal frá föngunum á Skólavörðustíg 9 þar sem þeir báðu Dagblaðið að kynna sér rekstur þeirrar stofnunar. Þórður sagðist hvort eð er hafa átt 4 daga frí í vinnunni sem brunavörður og nýtti tíma sinn inni á Níunni eingöngu til að tala við og kynnast samföngum sfnum. Alkóhólistinn bað um hjálp en fókk fangelsis- vistun „Verst fannst mér þó að sjá alkóhól- istann sem var settur inn í tvo daga fyrir 50 kr. sekt,” sagði Þórður. „Hann hafði komið í fangelsið einn daginn og beðið þá um hjálp til að komast á Tíuna á Kleppi því hann þarfnaðist afvötnunar. í staðinn kærðu þeir hann fyrir ölvun á almannafæri og létu hann dúsa inni í tvo daga án nokk- urrar félagslegrar hjálpar. Honum leið alveg hrikalega illa og gat varla haldið á kaffibolla fyrir skjálfta í höndunum. Ég get ekki gleymt því hvað manngrey- inu leið hroðalega. Ég hélt að alkóhól- ismi hefði verið viðurkenndur sem sjúkdómur. Hvers vegna settu þeir þá manninn þarna inn? Því var honum ekki hjálpað eins og hann bað um?” „Var honum þá hjálpaö til að komast í afvötnun eftir vist sína á Ní- unni?” fyrir of hraðan akstur voru simtöl mín hleruð, súkkulaðipakki, sem ég hafði á mér, var opnaður og meira að segja tannburstinn minn grandskoðaður.” „Það er aldrei að vita nema þú ætlir að smygla Kariusi og Baktusi inn í tannburstanum.” „Ja, ég veit ekki hvað þeir bjuggust við að finna í tannburstanum en að mínu áliti er svona símahlerun ekkert annað en persónunjósnir. Það má einnig minnast þess að sum þessara laga um fangelsisvistun eru síðan 1700 og súrkál. Þjóðfélagið hefur breytzt mikið síðan en þessi lög hafa hins vegar staðnað. Ef maður spyr yfirvaldið hvers vegna lögunum hafi ekki verið breytt segja þeir bara að enginn tími hafi unnizt til að bæta lögin. Allt kerfið ersvona! Það stendur líka 1 reglugerðinni að fangar eigi heimtingu á að sjá lögin. Þegar strákarnir báru það undir fanga- verðina að sjá lagasamþykkt um fanga- vist var þeim neitað um það. Fanga- Þórður V. Magnússon var tekinn fyrir of hraðan akstur og tðk þann kostinn að sitja sektina af sér. Hann segir okkur af reynslu sinni sem fangi á Skðlavörðustig 9. DB-mynd Einar Ólason. fahgelsi eru betur til fallin að framleiða afbrotamenn en að þjóna tilgangi sem betrunarhús.” Fangarnir minna mig á lifandi dauða „En hvernig fá fangarnir á Skóla- vörðustígnum timann til að líða?” „Þeir sofa mikið og minna mig helzt á lifandi dauða,” sagði Þórður og hristi höfuðið í uppgjöf. „Þeir fá að ganga á milli klefa og horfa á sjónvarp- ið. Én nú þegar sjónvarpið er i fríi líður timinn með snigilshraða. Umhverfið verður til þess að þeir verða lífsleiðir og taugaveiklaðir. Klefarnir eru sóðalegir og illa hirtir. í einum var búið að míga á gólfið og skvetta því síðan í glugga- kistuna þar sem héngu óhreinar nær- buxur. Fanginn sem tók við þessum klefa varð að byrja á því að skúra klef- ann upp á eigin spýtur. Maturinn, sem kemur frá Rán, var ekki með afbrigðum slæmur en svo lítið sást af honum að fangarnir voru meira eða minna svangir allan tímann. Kaffi var tvisvar á dag en aldrei neitt með því. Það er lfkast því að þarna gleymist að þessir fangar eru einnig menn.” -LKM. Umhverfið á Niunni er ekki beinifnis uppbyggjandi. Hvernig er hsegt að ætlast til þess að menn verði að betri þjóðféiagsþegn- um með þvf að gista svona stofnanir? „Ég var taugaóstyrkur og reiður þeg- ar ég kom þaðan út því mér blöskrar óréttlætið sem kerfið býður þessum mönnum. Þarna eru ekki afbrotafang- > ar heldur úttektarfangar. En líkurnar til þess að(þeir verði að afbrotaföngum þegar út kemur eru miklar. Á Norður- löndum er reynt að byggja fangana upp til betri þjóðfélagsþegna en hér á landi er aðeins reynt að brjóta þá niður. Einn sti ákanna hafði verið tekinn fyrir hass- neyzlu en þess i stað fékk hann valium og annað opinberlega viðurkennt dóp. Hann sagðist vera orðinn háður róandi töflum!” „Ég held ekki.” Sfmtöl hleruð og tann- burstinn grandskoðaður „í bænaskjalinu, sem þú komst með frá föngunum, telja þeir að brotið sé á þeim með simahlerunum, að bréf þeirra séu lesin og heimsóknir vaktað- ar. Þeir eru jú í fangelsi en ekki á hóteli og samkvæmt lögum er þetta einmitt leyfilegt.” „Já, en til hvers?” svaraði Þórður: „Þó svo að ég hafi aðeins setið inni verðirnir spurðu bara hvort þeir tryðu sér ekki og þar við sat.” Ekkert samræmi í sekt- arupphæð og vistartíma „Sumir fá virkilega að finna fyrir því þegar lengi er verið að dæma í einstaka málum. Einn sem hafði verið tekinn fyrir hassmál árið 1976 var fyrst núna að sitja það af sér. Þessi seinagangur er alveg óþolandi. Menn eru kannski komnir með fjölskyldur og orðnir heið- virðir borgarar þegar þeim er svo fleygt í fangelsið fyrir gamalt afbrot. Annað sem mér þótti einkennileg meðferð var í sambandi við peninga- sektina. Vistartíminn og sektarupp- hæðin virtist fara eftir því hver maður- inn væri. Ég t.d. sat þrjá sólarhringa fyrir 1000 krónur og gerir það um 330 krónur á dag. Þegar við strákarnir fórum að bera þetta saman var ekkert samræmi í þessu. Einn sem hafði verið tekinn fyrir umferðarbrot hlaut 16 daga fyrir 1600 krónur, eða 100 krónur á dag. Aikóhólistinn, sem hafði verið tekinn fyrir ölvun á almannafæri, fékk tvo daga fyrir 50 króna sekt. Allt þetta verður til þess eins að mennirnir, sem fyrir þessu verða, fá ótrú á lögunum. Það segir sig sjálft hvað tekur við þegar út kemur. Svona GLJÁI Lyngási 8 Garðabæ SÍMI 53822 Sorppokagrindur Fást í ýmsum litum

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.