Dagblaðið - 27.07.1981, Side 2
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 1981.
EFNISPURNINGA SEM VIL-
MIINDUR GYLFASON LAGÐI
FYRIR MAGNÚS L SVEINSSON
samkvæmt beiðni Lesanda
Lesandi hríngdi:
Ég óska eftir að fá að vita, hvaða
spurningar Vilmundar Gylfasonar
alþingismanns það voru er Magnús
L. Sveinsson taldi „óviðkomandi
Raddir
lesenda
efni fundarins” sem sagt er frá á bls.
8 í Dagblaðinu, þriðjudaginn 21.
þ.m. Það var undir fyrirsögninni
Blaðamenn gengu út.
Svar: Efni þeirra spurninga, sem
Vilmundur Gylfason lagði fyrir
Magnús L. Sveinsson er í hnotskurn
eftirfarandi;: „Hvort hann teldi að
það væri lýðræði í Verkamannafélag-
inu Dagsbrún”; „Hvort hann héldi
að reykvískir verkamenn hefðu kosið
Eðvarð Sigurðsson í fjörutíu ár, ef
þeir hefðu átt kost á einhverju öðru”;
Hvernig Magnúsi litist á að eftirieiðis
yrðu „formaður og stjórn” (V.R.)
„kosin sem einstaklingar”; „Af
hverju V.R. stöðvaði ekki verzlunar-
rekstur á Seltjarnarnesi utan hefð-
bundins vinnutíma, efns og i Reykja-
vik og Mosfellssveit”; Síðan fylgdu
einar 4 spurningar viðvíkjandi
„vinnuþrælkun”, t.d. hvers vegna
V.R, stöðvaði slíkt í verzlunum en
liði simastúlkum Dagblaðsins að
vinna um helgar, og hvort Magnús
myndi banna bílstjórum akstur á
kvöldin og um helgar, ef hann væri
formaður í bilstjórafélaginu Frama.
Heimild DB fyrir ofangreindu er
forsíðugrein í Alþýðublaðinu, þriðju-
daginn 21. júlí. Sú er rituð af Vil-
mundi Gylfasyni sjálfum og er mjög
itarleg.
-FG.
Vilmundur Gylfason, niþingismaður,
sem aú gegnir störfum rítstjóra
Alþýðublaðsins i frii Jóns Baldvins
PBMI
Hannibalssonar.
Úr slæmu hráefni verður
aldrei fyrsta flokks vara
—ekki ná allir bændur góðum árangri í mjólkurf ramleiðslu
Fyrrverandi bóndi skrifar:
Því verður ekki neitað að sú mjólk,
sem undanfarið hefur verið til sölu,
er mjög léleg vara. Það er erfitt, að
segja hvað veldur og ef til vill er viða
pottur brotinn í þessum efnum.
í mínum huga er skýringin sú, að
mjólk frá mörgum bæjum er hellt
saman í mjólkurbílinn. Vel vissi
maður það í gegnum árin, að sumir
framleiðendur voru ár eftir ár með
fyrsta flokks mjólk. Siðan voru aftur
aðrir, sem ekki náðu sama árangri og
voru stundum með lélega mjólk.
Þessi lélega mjólk olli því, að öll sú
mjólk, sem hún lenti saman við varð
um leið léleg vara, og getur aldrei
orðið annað. Sem sagt, úr slæmu
hráefni verður aldrei fyrsta flokks
vara.
Nú eru starfandi mjólkureftirlits-
menn á trúlega hverju samlagssvæði,
alla vega var það þannig þar sem ég
bjó. Fóru þeir á þá staði, þar sem þeir
vissu af misbrestum og reyndu að
kanna hvaða ástæður lægju þar að
baki.
Kæling er víðast hvar orðin mjög
góð, svo ástæðurnar gætu verið
skortur á hreinlæti eða júgurbólga.
Júgurbólga getur í einstaka tilfellum
verið dulin og kemur þá til kasta
dýralæknis.
Auðvitað getur fleira komið til en
það er löng leið frá framleiðanda til
neytanda.
V
\
Bflamarkaðurinn
Grattisgötu 12-18 — Sími25252
Mltzubishl, Sapporo 1981. Rauflur,
ekinn 2.500 krn. sjálfsklptur, aflstýri
og bremsur, útvarp. Nýr bíll f sér-
flokki. Verfl 133 þús. kr.
Subaru 4 x 4 1600 1980. Rauflur, út-
varp, eldnn 18 þús. km. Verfl 115
þús. kr.
Citroen GS1978. Club. Brúnn, ekinn
47 þús. km. útvarp. Mjög góflur bill.
Verfl 72 þús. Icr.
Colt GL 1980. Brúnn. Eklnn 14 þús.
km, útvarp, vetrar- og sumardekk.
Verfl 81 þús. kr.
Blazer 1975, disll. Rauflur, ekinn 50
þús. mfl., 5 þús. á vél, 6 cyl. trader. Afl-
stýri og -bremsur, 4 gira kassi.
Monster-dekk. Verð 130 þús.
Mazda 323 1980. Hvftur, eldnn 17
þús. km. Útvarp, snjó- og sumar-
dekk. 5 dyra. Verð 85 þús. kr. Einnlg
1981.
Fiat 131 úrg. 1980. Litur grúsans.,
eldnn 4.500 km, upphækkaður, silsa-
llstar, hlffflarpanna. Verfl $15 þús.,
sldpti ú Fiat 127 ’80—’81.
Toyota Cressida 1978. Grænn, eldnn
67 þús. km„ útvarp- segulband,
sumar- og vetrardekk, drúttarkrókur.
Verfl 85 þús. kr. Ath. sldpti ú station.
Autobianci 1978. Drapplitur. eklnn
50 þús. km, útvarp, segulband,
sumar- og vetrardekk. Verfl 38 þús.
kr. Sldpti möguleg ú ódýrari bfl.
Saab 99 1979. Hvitur,eklnn 26 þús.
km, útvarp, segulband. Ný sumar-
deldc. Verfl 95 þús. kr. Sldpti mögu-
leg ú jeppa f sama verðflokki.
Citroen CX 2400 Dallas 1979.
Rauflur, eldnn 56 þús. km, c-matic,
útvarp, segulband, leflursæti. Litafl
gler, rafm. f rúðum. LúxusbfU. Verð
160 þús. kr.
Lada 16001979. DrappHtnr, eklan 35
þús. km. Verfl 51 þús. kr.
Lada Sport 1980,. Rauflur, eldnn 14
þús. km. Útvarp, Broncofelgur + ný
dekk + orglnal dekk ú felgum. Verð
92 þús. kr.
AUa Sud 1978. Rauður, ekinn 40
þús. km,segulband, vetrar- og sumar-
dekk. 58 þús. kr.
Mazda 929 station 1977. Grænn:
Ekinn 37 þús. km. Mjög góður bill.
Verö 70 þús. kr.
Galant 1600 1977. Rauður, eldnn 67
þús. km. Útvarp, sumard., verfl 65
þús. kr.
Mikil sala
Vantar árgerðir ’80—’81
á staðinn
Mazda 626 1980. Brúnsans. 2ja dyra,
eldnn 15 þús. km. útvarp, segulband.
Verfl 93 þús. kr.
Volvo 244 DL 1978. Blúr, eldnn 50
þús. km. Útvarp, snjó- og vetrar-
dekk. Verfl 110 þús. kr.
Audi 100 GLS 1977. SUfurgrúr.,
eldnn 77 þús. km. sjúlfskiptur, út-
varp- segulband, sumar- og vetrar-
dekk. Verfl 85 þús. kr.
AMC Hornet 1977. Hvitur, ekinn 60
þús. km, Sjúlfsldptur, aflstýri- og -
bremsur. 8 cyl., 304. Útvarp, segulb.,
Verfl 95 þús. kr.
Daihatzu Runabout 1980. Blúr, ekinn
30 þús. km. útvarp, seguiband. cover
ú sætum. Verfl 72 þús. kr.
„Ástæðurnar gætu verifl skortur ú
hreinlæti efla júgurbólga,” segir fyrrverandi
bóndi um mjólkurvandamáiið.
DB-mynd: Rangar Th.
„Dægur-
málið
er
útitafl”
— paradís
gjörningamanna?
G.K. skrifar:
Aldrei bregst „hann,” Um leið og
einhverjar snjallar framkvæmdir
hefjast í okkar annars ágætu borg, þá
byrjar „Hann”. Hann er smáborgar-
inn, sem daglega fyllir dálka „kjafta
og kvörtunarþjónustu” dag-
blaðanna.
Dægurmálið er útitafl, sem flestir
er lesa „smáa letur” dagblaðanna
vissu um. En sumir lesa bara fyrir-
sagnirnar og vita þess vegna mest um
málefnin. Það er smáborgarinn.
Að mínu mati, eru bæði Austur-
stræti og Torgið ónothæf fyrir svona
mannvirki áhorfendanna vegna,
nema „stúkan” verði gluggar Út-
vegsbankans (er hann ekki að rúlla
yfir?).
Þaö eru tvö svæði í miðbænum
sem hægt er að nota fyrir taflið.
Bakarabrekkan og Arnarhóll vestan-
verður, en það er bara ekki sann-
gjarnt að vera sífellt að krunka í og
karpa um hólinn hans Ingólfs. Þess
vegna er „Brekkan” notuð. Senn
verður Torfan miðbænum aftur til
sóma og fólki vonandi til ánægju, en
þá má umhverfið ekki vera ein alls-
herjar drullubrekka eins og verið
hefur í ótalin ár.
Sjálft taflborðið getur orðið vett-
vangur margskonar skemmtana og
gleði, t.d. sem útileikhús, eða paradís
gjörningamanna og svo gæti Borgar-
ráð haldið fundi þarna, svo ekkert
fari framhjá þeim sem ekki lesa
„smáa letrið”.
FÁLKIN N Aeúuiíiitxiíi
SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670
Guðmundur Frfmann rithöfundur: Því
ekki það? Við höfum margar konur í
þýðingarmiklum stöðum, til dæmis í
forsetaembættinu. Kvennaframboð á
tvimælalaust rétt á sér.
Áslaug Jónsdóttir húsmóðir: Alls ekki.
Jafnréttið í bæjarmálunum er i allgóðu
lagi og ég vil hafa karlana með. Ég
myndi ekki kjósa kvennalista.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR27. JÚLÍ 1981.
Telur knattspyrnumann á Hornafirði vera á
borð við Ásgeir Sigurvinsson — landsliðsefni?
Sindra-aðdáandi skrifar:
Mig langar til þess að vekja athygli
á stórefnilegum knattspyrnumanni i
liði Sindra frá Hornafirði.
Ég hef séð þá Sindramenn að leik
og hef heillazt mjög af leikmanni er
mun heita Dagbjartur Pálsson.
Finnst mér rétt af þeim er velja til
landsliðs að „gjóta” augunum til
þessa leikmanns, jafnvel þótt hann
leiki enn í þriðju deild.
Ég tel Dagbjart vera á borð við
Ásgeir Sigurvinsson.
Alltaf
eitthvað
nýtt og
spennandi
VIKUFERÐ TIL
WINNIPEG
28.júlítil5. ágúst
Flogið til Winnipeg 28/7.
Heim frú Toronto.
Verð kr. 2980,00
WINNIPEG
28. júlí, 3ja vikna ferð, örfá
sætilaus.
T0R0NT0
5. ágúst (vikuferð), biðlisti
12. ágúst, biðlisti.
RIMINI
2., 12. ,23. ágúst,
biðlisti, og 2. sept., biðlisti.
P0RT0R0Z
2., 12., 23. ágúst,
biðlisti. 2. sept., biðlisti.
Öll almenn ferðaþjónusta —
hvar sem er og hvert sem er.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRíET112 - SÍMAR 27077 S 28899
Hermann Arason, íssali og reviuhöf-
undur: Nei, konur geta komið sér
áfram á annan hátt. Á sama tíma og
barizt er fyrir jafnrétti er hér verið að
tala um að stía kynjunum enn frekar í
sundur.
Sigurlína Snorradóttir afgreiðslu-
maður: Mér er næstum því sama, til-
hugsunin snertir mig ekki sérstaklega.
Hundar á hverju strái
— Hafnf irðingur er að hugsa um að flytja
Höfum til afgreiðslu nú
þegar nokkra uppgerða
STILL lýftara. Greiðslu-
kjör.
Upplýsingar á skrifstofunni,
Hverfisgötu 72. Sími 12452
og 26455.
Frfmann Hallgrimsson, starfsmaður i
K. Jónsson: Skilyrðislaust, það er
ágætt að hrista upp í bæjarpólitíkinni.
Ég gæti hugsað mér að kjósa kvenna-
lista.
Sessa Péturs bankastarfsmaður: Að
sjálfsögðu! Ég er hlynnt framboðinu en
það færi eftir þvi hvaða konur byðu sig
fram hvort ég kysi kvennalista eða
ekki.
Hafnfirðingur skrifar:
Ég hef ekki svefnfrið á nóttunni
fyrir gelti í hundum og er að hugsa
um að flytja.
Hér í Hafnarfirði eru hundar á
hverju strái, t.d. er einn með sex
hunda. Auk þess sem ljtið fer fyrir
svefnfriði, þá er mikill óþrifnaður af
þessu og umrót í görðum okkar.
Ég vil vekja athygli fólks á því, að
ýmsar nágrannaþjóðir okkar eiga nú
í vandamálum vegna hundahalds í
þéttbýli. Við ættum að kynna okkur
nákvæmlega reynslu þeir^a, áður en
við samþykkjum eitt eða neitt í þeim
málum hér heima. Ég vil líka benda
á, að þótt hundahald sé orðið hefð-
bundið í Kaupmannahöfn og út-
hverfum, þá er í sumum nýju
hverfunum bannað að hafa hunda og
ketti.
15.. Jónsson
& Co. h.f.
Spurning
dagsins
Ertu hlynnt(ur) sórstöku
kvennaframboði til bæjar-
stjórnarinnar?
(spurt f miflbæ Akurayrar)
Sjóðheitt kaffi og ristað brauð
góðan daginn!
Það er notalegt að vakna á morgnana og fá
gott heitt kaffi og ristað brauð. Þessi frábæra
kaffivél og brauðristin valda þér ekki
vonbrigðum . . . nývöknuðum.
Kaffivélin er 45 sek. að hella upp á hvern bolla af frábæru
heitu kaffi. Þýsk gæða framleiðsla. Margar stærðir: 12,10,8,6 og
18 bolla. Einnig með innbyggðum hitabrúsa og tölvuklukku
(sjálfvirk uppáhelling eftir minni).
Verð frá: 38.000 kr.
Þessi brauðrist er með nýjum búnaði, lítilli tölvu sem tryggir að
brauðið sem þú glóðar, brennur ekki. Hljóðlaus brauðrist, tvær
sneiðar af brauði á 90 sek.
Verð: 37.000 kr.
Hring iðísí"”
millikl.l3ogl5,
eðaskrifið
Hafnfirflingur hefur ekld svefnfrið ú nóttunni fyrir hundum.
DB-mynd: Ragnar Th.
„Rasið ekki um ráð fram í
sölu á grásleppuhrognum”
—því verið er að kanna markaðsmöguleika, segir
Benjamín Sigurðsson
Benjamin Sigurðsson skrifar:
Það hefur verið mjög mikil tregða
á sölu grásleppuhrogna og uppi hug-
myndir um að lækka verð þeirra.
Sagt er að allt að 30% muni tryggja
næga sölu.
Ég skora á grásleppumenn að ljá
þessu ekki lið, því verið er að kanna
markaðsmöguleika og von er til þess,
að samningur náist um sölu til Japan.
Er þá um mikið magn að ræða. Ékki
er því ráðlegt að samþykkja neitt í
fljótfærni, fyrr en þessi möguleiki
hefur verið kannaður að fullu.
Rasið því ekki um ráð fram í sölu á
grásleppuhrognum. Bíðið átekta þar
til niðurstaða samningaviðræðnanna
við Japan liggur fyrir.