Dagblaðið - 27.07.1981, Blaðsíða 18

Dagblaðið - 27.07.1981, Blaðsíða 18
26 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. JÚLl 1981. Tr- JÓN L. ÁRNAS0N 2 ipiajl SKRIFAR UM SKÁK iS- . . '*r' ifj m m Sviptingar á Norðurlandamótinu: STÓRMEISTARINN FÉLL Á TÍMA í 16. LBK! —fann enga leiðtil þess aðbjarga drottningunni Á laugardag hófst keppni 1 Öörum flokkum en úrvalsflokki á Norður- landamótinu í skák og var því að vonum llf og fjör í MH. Hins vegar var eins og þessi óvasnta fjölgun hefði sett keppendur I úrvalsflokki úr jafnvægi, því taflmennska þeirra var með daufara móti. Einungis Margeiri tókst að knésetja Færeyinginn, en fjórum skákum lauk með jafntefli. Sú fimmta fór í bið og er mjög jafn- teflisleg . Áhorfendur fylgdust jafn- vel meira með keppninni í hinum flokkunum, enda tefla menn þar fyrir. ánægjuna og æfinguna. Fórna mönnum á báðar hendur án þess að depla auga og skammast sln ekkert þótt allt fari í vaskinn. Lítum á um- ferðir helgarinnar: 2. umferð: Fjörugar skákir. Úrvalsflokkur átti athygli áhorf- enda óskipta á föstudag, en þó var tefld önnur umferð. Barátta var mikil í skákunum og sumar hverjar voru býsn fjörugar. Einungis tvö til- þrifalitil jafntefli sáu dagsins ljós, sem verður að teljast gott. Sverre Helm (Noregi) og Jens Krlstiansen (Danmörku) sömdu eftir 17 leiki og þeir Helgi og Guðmundur eftir 19 leiki. íslendingarnir fengu upp sömu stöðu og Fischer og Filip á milli- svæöamótinu á Mallorka 1970, en með breyttri leikjaröð. Guömundur varaðist hættuna i tíma og féll ekki í sömu gryfjuna og Filip. Eftir stór- felld uppskipti blasti jafnteflið við. Skák umferðarinnar var vafalítið viðureign Helmers og Rantanen: Hvitt: Helmers Svart: Rantanen Kóngslndversk vörn. 1. Rf3 g6 2. d4 Rf6 3. c4 Bg7 4. g3 0-0 S. Bg2 g6 6. 0-0 Rbd7 7. Rc3 eS 8. e4 c6 9. b3 He8 10. h3 exd4 11. Rxd4 RcS 12. Hel I)b6 13. Be3 aS 14. Hbl Helmers sagðist hafa fengiö þessa stöðu áður, á „helgarmóti” I Noregi. Næsti leikur Finnska stórmeistarans er nýr af nálinni. 14. — Db477 15. RdbS! cxbS 16. RxbS Eins og sjá má sleppur svarta drottningin ekki úr prísundinni og gegn hótuninni 17. a3 er ekkert við- unandi svar. Rantanen féll i þunga þanka og leitaði með logandi ljósi að björgunarleið. Að lokum féll hann á tima! Sannarlega auðveldur sigur fyrir Helmers, sem þurfti ekki að leika nema tvo leiki frá eigin brjósti. Margeir tapaði sinni annarri skák, nú fyrir Ornstein. Eins og I 1. umferð gegn Helga, var Margeir algjörlega heiilum horfinn og tefldi byrjunina afar ónákvæmt. Til þess að vinna sigur þurfti Ornstein þó að sýna nokkur tilþrif svo áhorfendur fengu eitthvað fyrir sinn snúð. Hvitt: Ornstein Svart: Margeir Pétursson Tarrasch-vörn. 1. d4 dS 2. c4 e6 3. Rf3 c5 4. cxdS exdS 5. e3 Rf6 6. Be2 Rc6 7. 0-0 Be7 8. dxcS BxcS 9. a3 a67! Eðlilegra er 9. — 0-0. 10. b4 Ba7 11. bS!, axbS 12. Rc3 0-0 13. RxbS Bb8 14. Bb2 Re4 15. Db3 RaS? 16. Da2 Be6 17. Hfdl Rc6 18. Hacl He8 19. Dal! Svartur hefur kastaö nokkrum tempóum á glæ í byrjuninni og á þegar við erfiðleika að etja. Texta- leikurinn þvingar fram —f6, sem hindrar að svarta drottningin komist í sóknarstöðu á kóngsvæng. 19. — f6 20. Rfd4 Rxd4 21. Bxd4 Rd6 22. Db2 Rc4 23. Db4 Da5 24. Bc3 Dxb4 25. Bxb4 BeS 26. e4 Rb2 abcdefgh_ 27. exd5! Rxdl 28. dxe6 Rb2 29. e7 Þessi skiptamunsfórn gerir að- stöðu svarts hartnær vonlausa. Riddari svarts á b2 er illa staðsettur og frelsinginn hvíti hlýtur að kosta svartan lið. 29. — Hac8 Tapar strax, en hæpið er að aðrir leikir hefðu breytt úrslitunum. Ef t.d. 29. — Kf7, gæti komið 30. Hb'. með hótuninni 31. f4 er vinnur mann.Ef riddarinn víkur sér undan til a4 kæmi 31. Bc4 + og 30. — g5 er svarað með 31. Bh5+ ogvinnur. 30. Hxc8 Hxc8 31. f4! Bxf4 32. Bg4 Ekki 32. Bc3? Kf7 33. Bxb2 Hc2. 32. — Ha8 33. Be6 + Kh8 34. Rd6 og svartur gafst upp. Skákir Hansen við Schtlssler og Höi við Raaste fóru í bið og hófust afturkl. lOimorgun. 3. umferð: Hermikrákuskák og yfir- lið. Eins og áður sagöi stai keppnin I öðrum flokkum senunni af úrvals- flokksmönnum, sem höfðu litla til- burði í frammi. Fyrirfram var búist við snörpum átökum I skák Guð- mundar við efsta mann, Ornstein, en lognmollan réð ríkjum. Staðan varð lokuð og lítt spennandi, en e.t.v. var Ornstein of fljótur á sér að þiggja jafnteflið. í lokastöðunni virtust möguleikar hans heldur skárri. Rantanen virtist fá betra tafi gegn Höi, en allt kom fyrir ekki. Skákin fór I bið og sýnist vera jafnteflisleg. Eina sigurskák umferðarinnar var milli Margeirs og Hansen frá Færeyjum. Þar fékk Margeir loks uppreisn æru eftir óheillabyrjun á mótinu. Skákin var kannski ekki mikið augnayndi. Hansen datt í vel þekkta gildru I byrjuninni og átti samkvæmt bókunum að fá tapaða stöðu. Áfram barðist hann þó af hörku, en eftir langt og mikið riddaraendatafl mátti hann gefast upp. Hansen er greinilega lakari skákmaður heldur en aðrir þátttak- endur í úrvalsflokki og virðist fyrst og fremst skorta reynslu. Hins vegar er aldrei að vita hvað hann gerir í seinni hluta mótsins, þegar hann verður kominn í æfíngu. Schussler virtist ætia aö vinna sína fyrstu skák á mótinu, en hann átti í höggi við Heim. Sviinn vann peð, en komst ekki I gegnum virki Heim og bauð því I staðinn upp á þráleik. Svipaða sögu er að segja af Kristiansen — Helmers. Þeir tefldu Sikileyjarvörn og eftir óljósar vend- ingar var eins og Helmers væri að ná yfirhöndinni. í eftirfarandi stöðu þvingaði Kristiansen fram jafntefli á skemmtilegan hátt: 1. Rxg6! hxg6 Ef 1. — Hxe7, þá 2. Rex7 + Kg7 3. Rxc8 Rxc8 og hvitur hefur tvo hróka og sóknarfæri fyrir drottninguna. 2. Df6 Dxf6 Eða 2. — Dxc3 3. Dxd6. 3. Hxf6 Hxc3 4. Hxd6 Hxc2 og jafntefli samið, því eftir 4. Hxa6 Hee 2 6. Hgl Ha2 fellur hvíta a-peðið. Raaste og Helgi þóttu tefla óskap- lega vandað og vel, þaö fannst a.m.k. tveimur áhugasömum skákmönnum sem tefídu I meistaraflokki, þeim Róberti Harðarsyni og Jóhannesi Gísla Jónssyni. Borö þeirra var í beinni sjónlínu við sýningarborðin sem kom sér ákaflega vel fyrir þá, því þeir tefldu sömu byrjun og „meistararnir”. Hvorugur vildi vera á undan hinum að breyta út af og svo fór að þeir hermdu eftir skák Raaste og Helga fram I 28. leik! Þá var Róbert búinn að fá sig fullsaddan af hlátri og flissi áhorfanda og breytti út af. — einmitt þegar Raaste tryggði sér jafntefíið á móti Helga. Eftir 16. ieik Helga (Jóhannesar) — Rh5 — f4 var þessi staða á borðinu: 17. Bxe7 Hxe7 Súetin stakk upp á 17. — Dxe7 18. Dxe7 Hxe7 19. Rxe5 Rxe5 20. Hxf4 Hd8 21. Hdl Hed7, en eftir 22. ■Hdfl! kemst svartur ekkert áleiðis. 18. Rxe5 Rxd3 19. Rxd3 Hxe4! 20. Dxd8+ He8 +1 Skemmtilegt þema. Svartur trygg- ir sér örlitið hagstæöara endatafl. 21. Kgl Had8 22. Hael f6 23. Hxe8+ Hxe8 24. Hel! Hxel 25. Rxel ReS 26.h3 Kf7 27. Kf2 gS 28. Rd3! Róbert lék 28. b3 og hefur Jóhannes eitthvað betri möguleika i biðstöðunni. 28. — Rd7 29. a4 bxa4 30. Rxa4 Be4 31. RacS RxcS 32. Rxc5 Bxc2 33. Rxa6 Í5 og keppendur sömdu um jafntefli. Nokkuð loftlaust var í Hamra- hlíðarskólanum á meðan á tafli stóö enda keppendur á annað hundrað og áhorfendur fjölmargir. í meistara- flokki féll danskur andstæðingur Gunnars Gunnarssonar i yfírlið og varð að stööva skákina um tima. Daninn jafnaöi sig þó von bráðar og mætti aftur til leiks. Illu heilli fyrir Gunnar, sem hafði tapaða stöðu! Kvennaflokkur Samkvæmt töfluröð eru keppendur í kvennaflokki þessir: 1. Ólöf Þráinsdóttir 2. Sigurlaug Friðþjófsdóttir 3. Ebba Valvesdóttir 4. Liselotte Grahm(S) 5. Áslaug Kristinsdóttir 6 Pamela Stewart (D) 7. Florence Assmundsson (S) Áslaug og Sigurlaug unnu sínar skákir af miklu öryggi I 1. umferð en Ebba hefur lakari biðstöðu. Ólöf sat yfir. Hvitt: Sigurlaug R. Rriðþjófsdóttir. Svart: Florence Assmundsson Kóngsindversk vörn. 1. c4 Rf6 2. Rc3 g6 3. d4 d6 4. e4 Bg7 5. Rf3 Bg4 6. Be2 0—0 7. Be3 c6 8. 0—0 Bxf3 9. Bxf3 e5 10. dxe5 dxe5 11. Db3 De7 12. Hfdl Ra6 13. a3 b6 14. Ra4c5 15. Rc3 Rc7 16. Rd5 rfxd5 17. cxd5 Dd6 18. Be2 f5 19. f3 f4 20. Bf2 g5 21. Hacl Hf6 22. Dc3 Hf7 23. b4 cxb4 24. axb4 Bf8 25. Bel Kg7 26. Db2 He8 27. Hc6 Dd8 28. d6 Ra8 29. Bc3 Dd7 30. Bxe5+ Kg6 31. Hdcl Bg7 32. Bxg7 Hxg7 33. Bc4 Kh6 34. Bd5 g4 35. Df6+ Hg6 36. Dxf4 + jíg7 37. Hc7 gefið. 8 7 6 5 4 3 2 1 Sigurlaug Friðþjófsdóttir vann Florence Assmundsson frá Sviþjóðl DB-myndir Sigurður Þorri.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.