Dagblaðið - 27.07.1981, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 27.07.1981, Blaðsíða 12
'2 frfálsi, óháð daghlað Útgefandi: DagblaðM hif.~ , FramkvœmdastjóH: Sveinn R. EyjóHason. Ritstjón: Jónaa Kristjánsson. AðstoóamtstjóH: Haukur Helgason. Fróttastjóri: Ómar Valdimarsson. SkrifstofustjóH ritstjómar Jóhannes Reykdal. íþróttir: Hallur Simonarson. Menning: Aöalsteinn Ingólfsson. Aóstoóarfróttastjórí: Jónas Haraldsson. Handrit: Ásgrimur Pálsson. Hönnun: Hilmar Karisson. ^ Blaðamenn: Anna Bjamason, Atli Rúnar Halldórsson, Atii Steinarsson, Ásgeir Tómasson, Bragi Sig- urflsson, Dóra ~Stefánsdóttir, EHn Albertsdóttir, Gunnlaugur A. Jónsson, Inga Huld Hákonardóttir, Kristján Már Unnarsson, Siguröur Sverrisson. Ljósmyndir: Bjamloifur Bjamleifsson, Eirtar ólason, Ragnar Th. Sigurflsson, Sigurflur Porri Sigurösson og Sveinn Þormóflsson. Skrifstofustjóri: Ólafur EyjóHsson. Gjaldkeri: Þráinn Þorieifsson. Auglýsingastjórí: Már E.M. Hall- dórsson. Drorfingarstjóri: Valgerður H. Svoinsdóttir. Ritstjóm: Siflumúta 12. Afgreiflsla, áskriftadoild, auglýsingar og skrifstofur: Þverhotti 11. Aflalsimi btaðsins er 27022 (10 linur). Setning og umbrot Dagblaflifl hf., Siflumúla 12. Mynda- og ptötugerfl: Hilmir hf., Siðumúla 12. Prentun: Árvakur hf., Skoifunni 10. Áskriftarverfl á mánufll kr. 80,00. Verfl í lausasöki kr. B fiO. Vinna taki við afþrasi Nú er að verða nóg komið af pexi um súrál, ísal og Alusuisse. Allir málsaðilar eru búnir að segja mörgum sinnum það, sem þeir vilja segja. Síðustu daga hefur fátt nýtt komið fram. Umræðan er að verða að þrástagi. Framundan er vinna, fremur en umræða. Annars vegar þarf hið fyrsta að hefja viðræður við Alusuisse um niðurstöður skýrslu brezku endurskoðendanna. Jafnframt þarf að hefja rannsókn á rafskautakaupum og lánakjörum ísal. Viðræðurnar við Alusuisse munu síðan leiða í ljós, hvort ástæða er til málshöfðunar eða ekki. Til öryggis er rétt að hefja strax undirbúning slíkrar málshöfð- unar, bæði til að flýta fyrir og til að sýna festu. Rétt er að leggja áherzlu á, að Morgunblaðið er á villigötum í áherzlunni á heildarmynd viðskipta ísals og Alusuisse. Hún kemur í ljós á sínum'tíína, en nú strax er hægt að skoða samningsrof í súfálsviðskiptum. Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra hefur í stórum dráttum slegið sér upp á máli þessu. Enda veitti honum ekki af, eftir þann álitshnekki, sem hann beið í vetur vegna seinagangs og tvístigs í virkjanamálum. Þá fékk hann orð fyrir að vera lítill framkvæmda- maður, en þeim mun meiri maður pappírsgagna. Síðari hæfileikinn hefur nýtzt honum betur í súrálsmálinu, enda segja menn nú, að hann hefði orðið ágætur endurskoðandi! Efnislega séð hefur Hjörleifur gengið nokkrum sinnum of langt. Alusuisse var hvorki í vetur né nú satt að sök. Sökin er aðeins líkleg, ekki 100% örugg. Málið hefur ekki enn komið fyrir dóm, hvað sem síðar verður. Pólitískt hefur Hjörleifur hins vegar náð þeim árangri að einangra þingflokk sjálfstæðismanna og Morgunblaðið í einhverri mestu stjórnmálafýlu síðustu ára. Þetta bragð hefur gert honum kleift að halda þjarkinu áfram. Morgunblaðið hefur að undanförnu verið nánast ein samfelld varnarræða fyrir Alusuisse og árás á Hjörleif. í öllu því flatarmáli fer mjög lítið fyrir stuðningi við, að haldið verði á málinu af festu, þótt hann sjáist endrum og einsJ Hitt málgagn þingflokks sjálfstæðismanna hefur hins vegar ekki fallið í þessa gryfju. Vísir hefur meira að segja varað við henni. Og Alþýðuflokkurinn hefur líka tekið tiltölulega skynsamlega á málinu og ekki lagzt í sjálfvirka stjórnarandstöðu. Morgunblaðið hefur átt einkar erfitt með að stöðva sig á fluginu. Það flytur daglegar breiðsíður um mistök Hjörleifs, mikilvægi ísals og göt á skýrslu hinna brezku endurskoðenda, eins og það sé málgagn Alu- suisse. Þjóðviljinn hendir þetta allt á lofti og notar til að halda þrasinu áfram. Hjörleifur hefur lýst sérstökum fögnuði yfir mikilli útbreiðslu Morgunblaðsins. Og jafnframt er teygður lopinn í ferðasögu Inga R. Helga- sonar til Ástralíu. Moldviðrið fer nú senn að lægja, enda tími til kominn. Komið hefur í Ijós, að málsaðilar eru ekki sammála um túlkun atriða. Niðurstaða fæst aldrei á málfundi fjölmiðlanna, heldur verður samkomulag eða dómstóll að skera úr. Svo vel vill til, að samningur er um viðskiptin og um meðferð deilumála sem þessa. Það hlýtur að vera hægt að finna, hvort eitt eða fleiri ákvæði þessa samnings hafa verið brotin. Það er sú vinna, sem nú skiptir máli. DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 1981. BURTMED ERLENDA ST0RIÐJU Nú er það komið á daginn, sem margan grunaði, að ekki er allt með felldu í viðskiptum Alusuisse og hins „íslenska” dótturfyrirtækis þess, ÍSAL. Um árabil hefur Elías Davíðsson kerfisfræðingur unnið að rannsóknum á starfsemi auðhringa og þá einkum þeirra er starfa hér- lendis. Af greinaskrifum hans að dæma, hefur honum þótt margt grunsamlegt. Allar umleitanir hans um aðrar upplýsingar en þær sem liggja á lausu opinberlega hafa farið í ruslakörfuna hjá hinum háu herrum auðsins. Tap hór en grófli þar Á sínum tíma benti Elías á bað. að á meðan forkólfar ÍSAL auglýstu tap á fyrirtækinu gerðu for- kólfarnir í Sviss grein fyrir því að gróðinn af dótturfyrirtæki Alusuisse á íslandi hafi verið notaður til að dekka halla á rekstri fyrirtækja annarstaðar í heiminum. Á þessi orð Elíasar var ekki hlustað. Ragnar ál- forstjóri gerði hins vegar Eliasi svo hátt undir höfði að senda honum margar háðsglósur í blaðagreinum, en sá hlær best sem síðast hlær. Fyrirtæki eins og Alusuisse er alþjóðlegur auðhringur, sem starfar með fjölda dótturfyrirtækja. Að bókfæra tap og gróða er reiknings- kúnst þeirra talnameistara sem hringnum stýra og er þá seglum hagað eftir vindi. Hvort tölur , .hækki í hafi” eða „Iækki í lofti” gildir einu bara að það þjóni hags- munum auðhringsins^i taflinu um völdin á markaðinum. Hvort gróðinn komi fram hér eða þar gildir einu því hann endar alltaf á sama stað — hjá miðstöð hringsins. Meirihluti — minnihluti? Um það hefur oft verið skrifað að björninn sé unninn við að íslendingar eignist meirihluta í fyrirtækjum eins og ÍSAL. Víst er að fyrirtæki sem er að meirihluta í eigu íslendinga, er ekki dótturfyrirtæki erlendra auðhringa. Stýring slikra fyrirtækja verður að líkum með öðrum hætti og koma má í veg fyrir millifærslur á gróðaíbókhaldi. Setjum svo að ÍSAL væri íslenskt fyrirtæki. Þá væri það samt í fyrsta lagi háð erlendum auðhringum um hráefni, í öðru lagi um margvísleg aðföng, svo sem rafskaut (á meðan þau eru ekki framleidd hérlendis) og þriðja lagi um markaði. Þetta síðasta er öllu erfiðast vegna þess að auðhringa háttur er sá að hirða gróðann í síðasta lið, þ.e. við loka- sölu fullunnins hráefnis. Markaðurinn er lokaður, honum hefur verið skipt upp á milli auðhringa, sem ógjarnan vilja hleypa öðrum að. í báðum tilfellum — meirihluta- eign og minnihlutaeign — er um að ræða að gera verður samninga við erlenda. Fyrir íslendinga hlýtur slík samningsgerð að vera erfið vegnaþess hve smá í sniðum fyirtækin hérlendis eru og lítill hluti markaðarins. Eftir stendur spurningin um það hvort það sé yfirhöfuð rétt stefna að nýta dýrmæta orku landsins til að vinna úr hráefni sem flytja þarf til landsins ef ekki er hægt að vinna úr fullunnu hráefni í landinu. Stóriflja hefur verið fyrir hendi Á sama tíma og hefðbundnar íslenskar atvinnugreinar þurfa að greiða miklu hærra raforkuverð en t.d. ÍSAL og Járnblendið er há- stemmd umræða um að auka enn erlend ítök í stóriðju. Um langan aldur hefur verið rekin hér á landi stóriðja í fiski, reyndar ekki í einu risastóru fiskiðjuveri, heldur dreifð um land allt. Fiskstóriðjan hefur verið einokuð af tveim hringum, SH og SÍS, sem starfa samkvæmt lög- málum auðhringa og hirða gróðann af iðjunni í síðasta lið hennar, sölunni erlendis. Sá gróði hefur ekki komið rekstrinu hérlendis til góöa á annan hátt en þann að búið er að festa stærsta hluta fisksölunnar við á- kveðinn markað, sem er í þokkabót tiltölulega ótryggur. Þessi stjórn- sýslan er hvorki sjómanna né fisk- verkafólks, heldur stjórnast allt af hagsmunum dótturfyrirtækja SH og SÍS i Bandarikjunum. Fyrirtæki þessi ráða það stórum hluta fisk- markaðarins i Bandaríkjunum að þau hafa verulega mikil áhrif á markaðsverðið. Þetta á ekki síst við nú á síðustu árum eftir að fyrirtækin hafa byggt upp miklar birgða- geymslur sem auðvelda þeim stjórnun á markaðsverðinu. Þess vegna geta þau með einföldum tilfæringum hækkað fiskverðið ögn til að liðka til fyrir samninga sjómanna og ákvörðun fiskverðs til sjómánna og útgerðar og svo lækkað verðið á ný til að auka eigin gróða og skapa erfiðleika við útgerð og í fiskvinnslu hérlendis. Sá er háttur auðhringa og hann er í mikilli and- stöðu við hagsmuni vinnandi fólks og raunar þjóðarbúsins alls. Færi niður- Flugleiðir: A 0RUGGRI LEIÐ UPP ÚR ÖLDUDALNUM í kjallaragrein Geirs R. Andersen sem birtist í Dagblaðinu 13. júlí sl. eru málefni Flugleiða rædd, en mjög hallað réttu máli í veigamiklum at- riðum. Stjórnendur félagsins eru sakaðir um vanhæfni og allt að því misferli. Engin rök eru hins vegar færð fyrir þessu og liggur næst að ætla að þessi fyrrverandi starfsmaður Flugleiða láti fremur stjórnast af skapsmunum en rökhyggju. Allt frá því að rógurinn um Flugleiðir upphófst veturinn 1978, þegar sýnt var að Norður-Atlants- hafsflug félagsins yrði rekið með stórfelldu tapi, hafa fjölmiðlasjúkir einstaklingar reynt að gera sér mat úr erfiðleikunum. Stjórnendur félagsins brugðust hins vegar við með festu og um þessar mundir er félagið á greinilegri uppleið þó ennþá séu ærnir erfiðleikar á veginum. í skýrslu, sem stjórn Flugleiða lét taka saman um fjárhagslega stöðu félagsins og send var sam- gönguráðherra 8. september 1980 segir að samkvæmt bréfi endur- skoðenda félagsins og miðað við þær forsendur sem þar eru raktar, sé endurmetið eigið fé félagsins 30. júní

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.