Dagblaðið - 27.07.1981, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 1981.
G
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Sara dóttir Peter Sellers:
Selur fot af Britt Ektand í
verzluninni Being There
í verzluninni Being there í London er
hægt að kaupa notuð föt. Og fötin eru
af engri annarri en Britt Ekland. Það er
dóttir Peter Sellers, Sara, sem rekur
verzlunina, en Peter og Britt voru gift
eina tíð. Sara er hins vegar dóttir Peters
af fyrsta hjónabandi, en sú kona hans
hét Anne Hayes. Nafnið á verzluninni
er fengið frá síðustu kvikmyndinni sem
Peter Sellers lékífyrir dauða sinn. Sú
hét einmitt Being there og fékk góðar
viðtökur, bæði gagnrýnenda og áhorf-
enda.
Britt Ekland og Söru hefur ætíð
sem selur föt af Britt Ekland.
komið vel saman og þær hafa alltaf
haldið sambandi hvor við aðra. Að
sögn Söru á Britt heilmikið af gömlum
fötum sem hanga í klæðaskápum
hennar, engum til gagns eða ánægju.
Því þótti Söru alveg tilvalið að selja
þau í verzlun sinni og þar kennir
margra grasa. Þar ægir saman alls kyns
stíl og tízku og hægt er að gera ágætis
kaup í verzluninni, að sögn Söru. Þá
selur Sara einnig hatta sem Britt átti.
„Eg held að pabbi hefði verið
ánægður með að ég stofnaði verzlun af
þessu tagi,” segir Sara. Móðir pabba,
Peg, rak einnig svona verzlun, svo það
má segja að ég sé að halda áfram fjöl-
skylduhefðinni.
En hvað fannst Söru um föður sinn,
kvikmyndaleikarann Peter Sellers?
Ég var ánægð með að pabbi skyldi
hafa sig út í að leika í Being there.
Innst inni óttaðist hann oft að standa
sig ekki nógu vel. Being there sannaði
fyrir honum og öllum öðrum hversu
góður leikari hann var. En ég held að
honum hafi þótt leiðinlegt að hljóta
aldrei óskarsverðlaunin. Honum fannst
hann eiga þau skilið.
Joan ikJókHmn þunna.
Joan Kennedy hélt
píanótónleika
í Tórínó:
Mætti
til leiks
í nœfur-
þunnum
kjól
Eftir að Joan Kennedy skildi við
mann sinn Ted hefur hún þurft að
standa á eigin fótum. Hún útskrifaðist í
vor frá tónmenntaháskóla í Bandaríkj-
unum og í sumar hefur hún haldið
píanótónleika víðs vegar í Evrópu.
Joan er sjálfstæð kona sem gerir það
sem henni sýnist. Það sýndi hún og
sannaði síðast á tónleikum er hún hélt
í Teatro Regio i Tórínó á Ítalíu. Joan
var klædd hlíralausum kjól úr næfur-
þunnu chiffon. ítalir voru hæst-
ánægðir bæði með klæðnað Joan og þá
ekki síður leik hennar, því hún var
þrívegis klöppuð upp.
Söngvarinn Harry Chapin lézt í bílslysi:
Safhaði ötul-
lega fé handa
hungruðum heimi
Söngvarinn Harry Chapin lézt nýlega
í bílslysi i Bandaríkjunum. Chapin var
38 ára og var kunnur tónlistarmaður,
hann gaf alls út 11 breiðskífur. Hin
síðari ár var Chapin einkum þekktur
fyrir baráttu sína gegn hungri í
heiminum.
Slysið varð á hraðbraut í Long
Island. Chapin var einn í bíl sínum er
hann lenti í árekstri við flutningabíl.
Eldur kom upp í bíl Chapins en
flutningabílstjóranum tókst að draga
Chapin út úr flakinu. Hann lézt
skömmu siðar á sjúkrahúsi.
Harry Chapin var sonur kunns jazz-
trommuleikara, en hann lærði á
trompet á unga aldri. Síðar lærði
Chapin á gitar en hann sló fyrst í gegn
árið 1972 með laginu Taxi. Það fjallar
um elskendur sem hittast í leigubíl eftir
margra ára viðskilnað, hann er bílstjór-
inn og hún farþeginn. Árið 1974 gaf
hann út plötuna Cat’s in the Cradle
sem varð gullplata fyrir mikla sölu.
Auk þess að gera fjölda breiðskífna
samdi Chapin tvær ljóðabækur, stjórn-
aði og samdi handritið að frétta-
myndinni Legendary Champions og
samdi söngleik fyrir Broadway, The
Night That Made America Famous.
Sigldi á brim-
bretti í 50 tíma
samfleytt
Frakkinn Stephane Peyron setti
nýlega heimsmet í að vera sem
lengst á seglbrimbretti. í meira
en 50 klukkustundir samfleytt
þeysti Frakkinn um öldur
hafsins í La Baule flóa við
Atlantshafsströnd Frakklands.
Alls sigldi hann 292 mílur, eða
um 467 kílómetra. Stephane
bætti met Yann Roussel frá
Martinique um rúmlega 14
klukkustundir.
Harry Ctíapln var kunnur söngvari og
gftarieikari en hann var 38 ára er hann
lézt.
Chapin hélt í seinni tíð fjölmarga
tónleika til styrktar hungruðu fólki um
allan heim og safnaði á þann hátt um
fimm milljónum dala, jafnvirði 37,5
milljóna króna.
Lafði Díana er
skyld Djengis Khan
Brezku dagblöðin hafa unnið kapp-
samlega að því undanfarnar vikur og
daga að fræða lesendur sína sem bezt
þau geta um ættir, hætti og siði brúð-
hjónanna. Margt skrítið hefur komið í
Ijós í því grúski og eitt blaðanna upp-
lýsti um daginn að lafði Diana
Spencer væri skyld Djengis Khan,
Mongólahöfðingjanum ógurlega sem
skelfdi hina kristnu Evrópu í upphafi
13. aldar.
Juan Balonso nefnist spánskur sagn-
fræðingur sem er sérfræðingur í
kóngaættum Evrópu og það var hann
sem uppgötvaði skyldleikann. Balonso
segir að Karl prins sé einnig skyldur
Djengis Khan en hljótt hefur verið um
þennan skyldleika hingað til. Þá á lafði
Díana einnig að vera skyld El Cid, þeim
mexikanska bandítt.
Brimbrettísro/ð Frakkans Stephane Peyrone stóð yfír í rúmer SO klukku-
stundir, heldur lengur en re/ð landa hans um Fossvoginn i hittifyrra.