Dagblaðið - 27.07.1981, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 27.07.1981, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. JÚLf. 1981. f( Erlent Erlent Erfent Erlent Bg) - — - -- — — - - - -- * William Casey, yf irmaður Cl A, á í vök að verjast: CM ætiaöi að boh Gaddafí frá völdum —RáAamenn í Hvíta húsinu þegar farnir að ieita að eftirmanni Caseys, segirNewsweek Tímaritið Newsweek skýrði frá því í gær að William Casey, yfirmaöur bandarisku leyniþjónustunnar, CLA, hefði fallizt á áætlun um að steypa Muammar Gaddafi, leiðtoga Líbýu- manna, af stóli. Casey á nú mjög 1 vök að verjast heima fyrir vegna ásakana um aö William J. Casey. hann hafi stundað ósæmileg viðskipti áður en hann gekk í leyniþjónustuna. Barry Goldwater, formaður þing- nefndar er fjallar um málefni leyni- þjónustunnar, hefur krafizt þess að Casey víkiúrstarfi. Newsweek skýrði einnig frá þvi að ráðamenn í Hvita húsinu væru þegar farnir að svipast um eftir manni sem leyst gæti Casey af hólmi. Blaðið segir að Bobby Ray Inman væri ekki meðal þeirra þriggja sem helzt þættu koma til greina í starfið. Inman hefur gengið næst Casey að völdum innan CIA. Þeir sem helzt þykja koma til greina i starfið eru Daniel Graham, Samuel Wilson og Vernon Walters. Þeir eru ailir fyrrverandi hershöfðingjar og hafa ýmist veriö yfirmenn varnarmálaieyniþjónustu Pentagons, DIA, eða aðstoðarstjóm- endur CIA. Newsweek sagði að áætlun CIA um að steypa Gaddafi af stóli hefði gert ráð fyrir að grafið yrði undan honum með ýmsum hætti, meðal annars með þvi að koma á fót stjórnarandstöðu og hernaði gegn honum. Muammar Gaddafi, leiðtogi Libýumanna. 1 REUTER 8 Francois Mitter- randnot- fœrirsér brúðkaupið Francois Mitterrand, hintrnýi forseti Frakklands, mun nota tækifærið sem gefst i brúðkaupi Karls prins og lafði Diönu Spencer á miðvikudag til að ræða við ýmsa þjóðarleiðtoga, að því er skýrt var frá á skrifstofu hans i gær. Talsmaður Mitterrands sagði að for- setinn myndi snæða með Anatonio Ramalho Eanes, forseta Portúgals, og hitta Margaret Thatcher, forsætisráð- herra Bretlands, um kvöldið. þá hefur forsetinn einnig í hyggju að ræða við Malcolm Fraser, forsætisráðherra Ástraliu, og Lee Kuan Yew, forsætis- ráðherra Singapore. Shimon Peres gagnrýndi árásina áBeirút LAFÐIDIANA SPENCER GRÉT VEGNA ÁGANGS FRÉTTA UÓSMYNDA RA — Nancy Reagan hneigði sig ekki fyrir drottningunni Karl prins, erfingi brezku krún- unnar, átti sinn þátt í sigri Englendinga yfir Spánverjum í póló-kappleik í gær, aðeins þremur dögum fyrir brúðkaup hans og lafði Diönu Spencer. Juan Carlos Spánarkonungur hafði átt að vera meðal áhorfenda að leikn- um ásamt Sofiu drottningu og börnum þeirra. Af því varð ekki þar sem Juan Carlos afþakkaði i síðustu viku boð um að vera viðstaddur brúökaupið. Þaö gerði hann vegna frétta um að Karl og Diana hygðust hefja brúðkaupsferð sína í brezku nýlendunni Gíbraltar, sem Spánverjar hafa um aldir gert tilkall til. Spænski sendiherrann, Fernando Arias-Salgado, var hins vegar meðal gesta Elisabetar drottningar á leiknum. Eftir leikinn ræddi Karl prins vingjarn- lega viö leikmenn spænska liðsins. Hinn 32 ára gamli prins skoraði eitt mark í 10—5 sigri enska liðsins. Leikurinn fór fram á póló-leikvellinum við Windsorkastala fyrir vestan London og var lafði Diana Spencer meðal áhorfenda. Lafðin kyssti Karl áður en hann hélt út á völlinn og var viðstödd verðlauna- afhendinguna i leikslok. í fyrradag yfirgaf hún póló-leikvöllinn grátandi eftir að hafa verið hundelt af ljósmynd- urum þar sem hún fylgdist með Forsetakosningarnar í íran: Ali Rajai fékk um 90 prósent atkvæða Mohammad Ali Rajai, forsætis- ráðherra írans, fékk um 90 prósent atkvæða í forsetakosningunum sem fram fóru þar i landi síðastliðinn föstudag. Ríkisútvarpiö í íran sagði að hinn 48 ára gamli Rajai hefði fengið rétt tæpar 12,6 milljónir atkvæða af um 14 milljón greiddum atkvæðum. Formlegrar yfirlýsingar um kjör hans er að vænta á næstu tveimur dögum. Samkvæmt þessari frétt hefur Rajai fengið um tveimur milljónum atkvæða meira en Abolhussan Bani- Sadr fékk i fyrstu forsetakosningun- um þar í landi fyrir átján mánuðum. Bani-Sadr, sem nú fer huldu höfði í Iran, fékk 10,7 milljónir atkvæða. Ayatollah Mohammad Mahdavi- Kani, innanríkisráðherra írans, sagði í viðtali við rikisútvarpið að viðbrögð kjósenda hefðu verið „frábær”. Ali Rajai var frambjóðandi Islamska lýðveldisflokksins, og hlýtur stórsig- ur hans að teljast mikill sigur fyrir klerkaveldiö i landinu. væntanlegum brúðguma sinum. Hún var flutt út í bifreið þar sem Karl reyndi að hughreysta hana áður en hún var keyrð i burtu. „Þetta var einfaldlega einum of mikið fyrir hana,” sagði prinsinn við einn fréttamannanna. Þetta mun vera i fyrsta sinn sem lafði Diana Spencer er svo mjög brugðið yfir þeirri stöðugu athygli og ágangi ljós- myndara sem hún hefur búið við á undanförnum mánuðum. { gær sat Diana Spencer ekki í fremstu röð á póló-kappleiknum. Þar sátu Elísabet drottning, Philip prins og Nancy Reagan forsetafrú. Nancy Reagan hefur vakið nokkra athygli síðan hún kom til Englands fyrir að hún hneigir sig ekki fyrir drottningunni, svo sem venja er þar i landi, heldur lætur nægja að heila með handabandi og brosa. Af þeirri ástæðu gaf Buckingham- höll út yfirlýsingu þar sem sagði að drottningin móðgaðist ekki þótt ein- hverjir kysu að hneigja sig ekki fyrir henni. Karl og Diana. Óeirðir brutust út á ný í Liverpool Hópur unglinga réðust að lög- regluþjónum í Liverpool í nótt og er það i fyrsta sinn sem kemur til götuóeirða i Englandi eftir að hlé varð á óeirðunum, sem stóðu samfellt í ellefu kvöld, fyrr í mánuðinum. Bensinsprengjum og grjóti var kastað að lögreglunni í Toxteth- hverfinu þar sem óeirðirnar urðu hvað verstar fyrr í mánuöinum. Einn lög- regluþjónn særðist alvarlega í nótt svo og leigubílstjóri er missti stjórn á bif- reið sinni sem varð fyrir grjótkasti unglinga. Shimon Peres, formaður Verka- mannaflokksins í ísrael og leiðtogi stjórnarandstöðunnar þar í landi sagði f gær að stjórn Begins hefði orðið á mörg mjög alvarleg mistök í Libanon- deilunni og nefndi hann sérstaklega loftárásirnar á Beirút í því sambandi. Perers ræddi við fréttamenn þar sem hann var á ferð um héruðin við landamæri Líbanons. Hann sagðist þeirrar skoðunar að fsraelsmenn hefðu átt að fallast fyrr á vopnahlé en gert hefði verið. Síðan sagði hann: „Okkur hafa orðið á mörg alvarleg mistök. Fyrstu mistökin voru f Beirút. Ekki er ljóst hvers vegna ráðizt var í þessar miklu árásir. Ég er ekki bara að tala um hina siðferðilegu hlið málsins þó hún sé líka mikilvæg. En það er ekki ljóst hver tilgangurinn var, hvað þeir ætluðu sér. Viðbrögðin mátti líka sjá fyrir.” Þetta var fyrsta gagnrýni Peresar á stjórn Begins fyrir stjórn hans í Libanon-deilunni. Áður hafði Peres iýst því yfir að hann hygðist ekki gagnrýna ríkisstjórnina á meðan israelsk landsvæði yrðu fyrir árásum. Lœknar skipa Walesa að taka sérhvíld Læknar hafa fyrirskipað Lech Walesa, leiðtoga óháðu verkalýðsfélag- anna í Póllandi, að taka sér hvíld, að því er skýrt var frá í höfuðstöðvum Einingar (Solidarnosc) í Gdansk í gær. Sagt var að hinn 37 ára gamli Walesa þjáðist af þreytu eftir að hafa staðið í eldlinunni í heilt ár. Walesa varð leiðtogi fyrstu óháðu verkalýðsfélaganna sem stofnuð hafa verið innan Varsjárbandalagsins, í kjölfar verkfallanna í skipasmiðastöðv- unum i Gdansk í fyrra. Hann hefur verið í forsvari verkalýðshreyfingarinn- ar allar götur síðan, á þeim tima sem hreyfingunni hefur tekizt að knýja fram meiri umbætur en þekkjast innan Varsjárbandalagsrikjanna. 1 REUTER 8

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.