Dagblaðið - 27.07.1981, Síða 4
4 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 1981.
.................... "" ................................... ' ......................................... "
Borð, stóla og bekk í garöinn
— ef sólin vildi vera svo góð að skína á okkur í ágúst
Er maður ekki undarlega bjart-
sýnn? Þótt hann rigni og sumarið
hafi víða um land verið mjög kalt, þá
heldur maður áfram að vona að hlýir
og sólríkir dagar séu á næsta leiti. Þá
verður hægt að setjast í garðinn og
drekka kaffið úti. Sumir láta sig hafa
það að setjast flötum beinum í
grasið, en óneitanlega er þægilegra
að sitja á stól við borð.
Neytendasíðan fór í þrjár verzlanir
í Reykjavík að líta á húsgögn sem
þola vind og veður. Okkur var sagt
að salan væri góð og í tveimur þeirra
var mikil ös þegar okkur bar að. Það
er um ýmsar tegundir að velja. í einni
verzluninni voru húsgögnin úr furu, í
þeirri næstu úr áli og plasti, og í
þeirri þriðju úr-pottjárni. Verðið var
ekki síður fjölbréytt. Fyrir kr. 162
geturðu fengið lítinn garðstól en vilj-
irðu eyða meiru þá geturðu fengið
stóra sófarólu með vatnsheldu þaki
fyrir kr. 3.600 eða, ef hugur þinn
girnist, tvo stóla og borð úr pottjárni,
eins og Elísabet drottning hefur í
garðinum sínum við Buckingham-
höll, fyrir kr. 5000.
Svo er hægt að kaupa sólhlífar en
ætli þær séu ekki fremur notaðar til
að skýla fyrir roki en sól. „Það
seljast svona tvær á ári,” var okkur
sagt i einni búðinni.
Við höfum ekki rekizt á neina inn-
lenda framleiðslu á garðhúsgögnum.
Ef einhver verzlun eða trésmiðja
hefur slikt í boði ættu þeir aðilar að
hafa samband við neytendasíðuna
svo við getum kynnt vöru þeirra.
-IHH.
V
Eins og hjá Elísabetu drottningu
i garðinu við Buckingham-höll
—borð ogstólarúrpottjárnimeögamaldagslaufamunstri
„Okkur er sagt að svona garðhús-
gögn séu hjá Elísabetu drottningu í
garðinum við Buckingham-höilina,”
sögðu búðarkonurnar f Bólstrun
Ingólfs, Aðalstræti 7, við Hallæris-
planið. Verzlunin er nýflutt á þennan
stað, var áður í Austurstræti.
„Það stelur þessu enginn,” bættu
þær við og það var orð að sönnu.
Stólarnir og borðin eru úr potti og
níðþung. Vitaskuld eru þau fram-
leidd í Englandi eftir gömlum
hefðum, miklu flúri og laufaskurði.
Borð af þessu tagi er kringlótt, fætur
úr potti en platan úr olíusoðnu
mahóní sem þolir bæði storma, regn
og vínbletti. Það kostar kr. 1980.
Stóll í stíl kostar kr. 1495. Pottjárnið
er lakkað með svörtu lakki sem að
sögn er níðsterkt.
Verzlunin er einnig með útihús-
gögn í svipuðum stíl en úr nútíma-
Þarna er vinsælasta furusettið, finlegt og þægilegt að sitja i þvl. Borðið kostar kr.
545, hver stóll sömuleiðis kr. 545 og sófabekkurinn kr. 880, allt með sessum.
Það er óhætt að berja I þetta borð og bekkirnir eru skrúfaðir fastir við það með
stórum boltum. Borðið er vafalaust heppilegt fyrir barnafjölskyldur og verðið er
gott, kr. 1361. Fyrir aftan er fjalltraustur rólusófi á kr. 3600.
legra efni, álblöndu í staðinn fyrir
pott. Bekkur með hliðum úr slíkri
álblöndu en setu og baki úr vatns-
vörðum viði kostar kr. 1990. Borð
með fjórum stólum úr slíkri álblöndu
kostar tæpar 4000 kr.
Gerður Björk, tveggja ára, við hósgögn af þeirri gerð sem Englandsdrottning hefur I garði sínum. Stóllinn kostar kr. 1495
en borðið kr. 1980.
Funiiúsgögnin fásthjá
Seglagerðinni Ægi
—og eru f ramleidd f Svíþjóð
Útihúsgögn úr vatnsþolinni furu
fást hjá Seglagerðinni Ægi sem er
utarlega á Grandanum vestan við ís-
björninn. Þar var gott úrval af stól-
um og borðum í ýmsum stærðum.
Vinsælast er sett með borði, stól-
um og sófa, og getur maður keypt
‘"“•n hlut fyrir sig. Borðið er 70 cm x
120 cm að stærð og kostar kr. 545.
Hver stóll kostar kr. 392 og flestir
taka sessu fyrir sæti og bak, sem
passar í, og kostar hún kr. 153.
„Sóffinn” kostar kr. 574 og góðar
sessur í hann kr. 306.
Þetta eru þægileg húsgögn, en ekki
mjög sterkleg. Persónulega mundi ég
heldur fá mér mjög traustlegt borð,
sem þarna fæst, af stærðinni 77 cm x
150 cm. Það er með áföstum bekkj-
um báðum megin, og kostar öll
dýrðin aðeins kr. 1361. En sumum
finnst kannski erfitt að klöngrast í
sæti yfir fastan bekkinn og hafa
ekkert bak til að halla sér að.
Þarna mátti lika fá furuborð og
stóla af ýmsum öðrum stærðum og
gerðum og er þetta sænsk framleiðsla.
Geysimikill rólusófi var þarna í
boði. Yfir honum var traustlegt þak
sem áreiðanlega myndi þola góða
regnskúr, enda kostaði hann kr.
3600. En einnig var hægt að fá nettan
þriggja manna rólusófa úr stáli og
var hann miklu ódýrari, kostaði ekki
nema kr. 740 með sessum. Áklæði
eru yfirleitt ljós og einlit á þessum
sænsku vörum.
Jh
ðf