Dagblaðið - 27.07.1981, Side 14
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 1981.
OAOOBTOO
w
Mmridö amm Rósa hannaðl fyrtr
grmnlamku sjónvarpxxtöölna
QAQORTOQ
utvarpsog
AD LAUGAHvATNI 27.
.... og martdð ■
fyrir nonwana rtéatafnu útvarps-
og sjónvarpsstarfsmanrm.
Nóg að gera hjá Rósu Ingólfsdóttur teiknara:
Hefur nýlokið við að hanna
merki fyrir sjónvarpsstöð
— Grœnlendingar fá nú að berja augum merki og stillimynd eftir íslenzkan höfund
„Sigurjón Ásbjörnsson kom
hingað til lands i vor ásamt
grænlenskum sjónvarpsmönnum sem
voru að taka mynd um íslenzku
ullina. Sigurjón bað mig fyrir hönd
þeirra að teikna merki sjónvarps-
stöðvarinnar og gera stillimynd,”
sagði Rósa Ingólfsdóttir auglýsinga-
teiknari f samtali við blaðamann DB.
Rósa hefur nú lokið við teikningu
merkisins og stillimyndarinnar og
hafa verkin þegar birzt grænlenzkum
sjónvarpsáhorfendum.
Þetta er í fyrsta skipti sem
íslendingur fær verkefni sem þetta.
Rósa er sjálf mjög vön merkja-
teikningu því undanfarin ár hefur
hún unnið við þannig teikningu hjá
sjónvarpinu hér, ásamt ýmsum
öðrum verkefnum.
„Það má kannski segja að ég hafi
verið vel í stakk búin fyrir þetta
verkefni þar sem vinna mín hjá
sjónvarpinu hefur einkennzt af
hraðri vinnu fyrir fréttastofu. Merkið
fyrir grænlenzka sjónvarpið þurfti að
vera tilbúið á örskömmum tíma og
þó það sé kannski ekki sniðugt að
segja frá því, þá vann ég það á einni
nóttu.
Ég get unnið á hvaða tíma sólar-
hringsins, sem er, bara að nógu
mikill hávaði sé í kringum mig. Til
dæmis finnst mér bezt að vinna ef ég
er með diskótónlist á fullu,” sagði
Rósa. „Merkið sýnir snjóhús, auga
Grænlendingsins, þar sem það þykir
mjðg listrænt og yfir þetta steypist
regnbogi. Það var mjög skemmtilegt
nemandi i leiklist. Aftur hóf hún
starf hjá sjónvarpinu 1978 og hefur
starfað hjá fréttastofunni fram til
þessa. Um næstu mánaðamót hefur
hún nýtt starf hjá sjónvarpinu sem
yfirteiknari þess. í sitt fyrra starf
hefur hún þjálfað tvo teiknara .
Nýjasta verkefnið hennar Rósu
er gerð auglýsingarmyndar fyrir
innheimtudeild Rikisútvarpsins en
hún hefur ávallt teiknað þær
auglýsingamyndir. „Það má segja að
ég fari nú 'allt aðra leið fyrir
innheimtudeildina því þessi auglýsing
verður lifandi og svolítið í takt við
Rósa Ingótfsdóttír: Mór fínnst bozt aö vinna þar sem nógu miklll h&vaói er og aldroi sezt óg við teikniborörO
nema að hafa kaffíhjé mór og kraftmikla diskótónlist DB-mynd Einar Ólason.
að fá tækifæri til að gera þetta,”
segir Rósa.
Hún hefur einnig nýlokið við að
hanna merki fyrir norræna ráðstefnu
útvarps- og sjónvarpsstarfsmanna
sem haldin verður hér á landi í fyrsta
skipti nú í ágúst.
Rósa hóf starf hjá sjónvarpinu við
stofnun þess sem teiknari. Hún
starfaði þar til 1970 að hún gerðist
nútímann. Lagið í auglýsingunni
verður Stjörnuhrap með hljóm-
sveitinni Mezzoforte en ég vil sem
minnst segja um þetta verkefni í
bili,” sagði Rósa Ingólfsdóttir. ELA.
Ásrún Lóre Jóhannsdóttir, einn þriggja landvarða Nóttúnrvomdarráðs i
Ásbyrgl og Jökulsárgljúfntm, ættuð fró Víklngavatnl I Kelduhvorfí og
'sinnlr landvörzlu í sianar, 3ja órið í röð. DB-myndir: Sig. Þorri.
Landvörðurinn Ásrún Lára frá Víkingavatni tekin tali:
Skógur snurfusaður
og borin möl í göngustíg
— í tilejni forsetakomunnar í Ásbyrgi
„Umgengni ferðamanna er
fremur góð, áberandi betri hjá er-
lendum hópum. Islenzkar fjölskyldur
mættu hins vegar bæta umgengnis-
venjur sinar,” sagði Ásrún Lára
Jóhannsdóttir, landvörður Náttúru-
verndarráðs, við flökkusveina DB
þegar þeir heimsóttu Ásbyrgi fyrr í
júlímánuði. Ásrún Lára, Auður
Guðný Ingvadóttir og Magnús
Ásgeirsson sinna vörzlu í
Jökulsárgljúfrum og Ásbyrgi f
sumar. Tveir halda til í gljúfrunum
en einn er í eina viku í senn í Ás-
byrgi og býr i hjólhýsi. Ásrún Lára
er landvörður þarna 3ja sumarið í
röð og lætur vel af sér. Þó bjóst hún
síður við að taka gæzluna að sér enn
á ný að ári. Hún er nýútskrifuð úr
Kennaraháskólanum og stefnir að
Frakklandsför í haust. Markmiðið er
að búa i Montpellier og glöggva sig í
franskri tungu. Sumir segja svo að
þannig læri menn til forseta.
Landverðir koma til starfa um
mánaðamótin maí/júní og eru að til
haustsins. Ábyrgð starfsins hvílir á
þeim nánast allan sólarhringinn, alla
daga sumarsins. Fyrri hluta sumars í
ár hefur ferðamannastraumur í
Jökulsárgljúfri og Ásbyrgi verið með
minna móti. Kuldatíðinni er um að
kenna. Útlendir ferðamenn skila sér
að venju, enda oftast í hópferðum
sem skipulagðar eru langt fram í
tímann. íslenzkir ferðamenn eru
færri en áður. Ábyggilega hefur þeim
samt fjölgað þegar hitabylgja lagðist
yfir Norðurland síðustu daga
júlímánaðar.
Ásrún Lára gaf sér lítinn tíma til
skrafs við komumenn. Vigdís forseti
var væntanleg i Ásbyrgið daginn
eftir. Þess vegna þurfti að snurfusa
skóginn og bera möl í göngugötur.
Landverðinum leizt ekki meira en svo
á blikuna ef hann rigndi meira fyrir
komu þjóðhöfðingjans. Moldarstigir
virtust ekki geðslegir til göngu eftir
votviðratíð. Gestunum tignu var
ætlað að prila upp stíginn að útsýnis-
staðnum yfir Byrgið. Öskemmtileg
tilhugsun ef þeir misstu fótanna 1
svaðinu. Málið var snarlega leyst með
malarflutningum í hjólbörum og
skólpfötu úr plasti siðasta spölinn.
Enda kom á daginn að gestir gengu
til útsýnis án þess að spóla hið
minnsta í slóðanum. Háir hælar
sumra kvenna urðu meira að segja
ekki sýnileg hindrun í uppgöngunni.
-ARH.
Malarflutningar tH undirbúnings forsetaheimsókn í ByrgiO. Hjólbörumar
dugðu skammt því aöeins var fært með mölina í skólpfötu síðasta spöl-
inn.