Dagblaðið - 27.07.1981, Síða 27
pAGBLADID. MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 1981.
f
Útvarp
35
Útvarp
§)
KVÖLDTÓNLEIKAR - útvarp kl. 23:
Fólkið þoldi ekki byltingu
Wagners og eyðilagði frum-
sýningar hans með látum
Wilhelm Richard Wagner var
gæddur afburða hæfileikum og er
talinn hafa verið eitthvert stórbrotnasta
tónskáldið sem uppi hefur verið. En
hann var einnig mikill baráttumaður og
þrekmikili maður sem barðist
frækilega við fátæktina, fávizku
fólksins og skilningsleysi því hann var
herfilega misskilinn og jafnvel
fyrirlitinn en lét aldrei kúgast.
Wagner var byltingarmaður i
listinni. Einn þátturinn var óperan, en
þar hafði hann hausavíxl á hlutverkum
söngvaranna og hljómsveitarinnar.
Áður var hljómsveitin eins og einn stór
gítar, sem „dúllaði” undir ástar-
söngvana. En Wagner vildi láta
hljómsveitina hafa hátt svo að skil-
merkilega kæmi fram skáldleg hug-
kvæmni tónskáldanna þar en þá urðu
söngvararnir Iika að hafa
„hetjuraddir”.
En Wagner var gæddur mörgum
hæfileikum. Hann var líka snjall
rithöfundur og skáld, samdi sjálfur
texta söngleikjanna sem hann síðan
fléttaði hljómskrúð utan um. Eftir að
Wagner hafði samið Tannháuser taldi
hann það hlutverk sitt að vera
framherji þjóðlegs þýzks skáldskapar
um leið og hann var þýzkt tónskáld.
Textarnir voru þá oftast sóttir i
þjóðsagnir og fornaldarsögur og voru
nokkuð frábrugðnir slíkum textum sem
áður þekktust. Áður hafði lítil eða
engin rækt verið lögð við þetta og
óperutextarnir þess vegna oft endemis
þvættingur. Söngleikir Wagners urðu
þannig jafnframt efnisrfkir sjónleikir.
En fólkið, „burgeisarnir” vildu
ekki þola þessar byltingar Wagners.
Það var fussað og sveiað, æpt og
ærslazt, svo að hver frumsýningin á
fætur annarri var eyðilögð fyrir
Wagner og blöðin helltu sér yfir hann
miskunnarlaust. Að hugsa sér að fara á
tónleika til þess eins að rægja þá! En
Wagner æðraðist hvergi og greip þess i
stað til kaldhæðninnar. Þá átti hann
það til að buna fram af vörum sér
visukornum til þessara ósiðuðu hlust-
enda.
En Wagner lifði það lika að verða
hylltur á stórfenglegri hátt en nokkru
öðru tónskáldi hefur hlotnazt. Eins og
oft gerist var fyrirlitningu fólksins snú-
ið upp i áðdáun.
Wagner var fæddur i Leipzig árið
1813 og missti kornungur föður sinn
sem var embættismaður í lögreglunni.
Hann fékk þó gott uppeldi því að
móðir hans giftist aftur góðum manni.
Ekkert bar á því á bernskuárum
Wagners að hann væri neitt sérlega
hneigður til tónlistar en hann var frá-
bærlega góðum gáfum gæddur og var
ákveðinn i því að verða menntamaður.
16 ára varð hann fyrst fyrir tónlistar-
áhrifum sem ollu þvi að hann vildi
verða tónskáld sjálfur og var það við
að hlusta á „Egmont” Beethovens.
Þá sótti hann námið og æfinguna
geyst og var aðeins tvitugur þegar hann
varð hljómsveitarstjóri við Magdeburg-
arleikhúsið. f tugi ára þurfti hann þó
að reyna að koma list sinni á framfæri
þar eð enginn vildi líta við söngleikjum
hans. Það var Liszt, sem kom því til
vegar að Wagner gat sýnt söngleikinn
Lohengrin í Weimar 1850 en þá var
Wagner búinn að vera 12 ár í útlegð i
Sviss. Árið 1873 fékk svo Wagner
uppfyllta heitustu ósk sína því að
samskotasöfnun, sem öll þýzka þjóðin
hafði tekið þátt í hafði borið svo
góðan árangur að hann gat þá, á
sextugsafmæli sínu, lagt hornsteininn
að hinu þjóðlega „hátíða-sönghúsi” í
Bayruth sem eiginlega var byggt
eingöngu yfir söngleiki hans og þar eru
þeir sýndir enn þann dag í dag.
Wagner lézt í Feneyjum 13. febrúar
1883.
í kvöldtónleikum útvarpsins kl. 23
verða leikin mörg tónverk eftir Richard
Wagner.
-LKM.
^ Útvarp
Mánudagur
27. júlí
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Mánudagssyrpa. —
Ólafur Þórðarson.
15.10 Miðdegissagan: „Praxls” eftir
Fay Weldon. Dagný Kristjáns-
dóttir les þýðingu sína.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar. Rena Kyri-
akou leikur á píanó Habanera eftir
Emmanuel Chabrier / Itzhak Perl-
man og Fílharmóníusveit Lundúna
leika Fiðlukonsert nr. 1 eftir
Henryk Wieniawski; Seiji Ozawa
stj. / Kammersveitin i Stuttgart
leikur Serenöðu op. 6 eftir Josef
Suk; Karl MUnchinger stj.
17.20 Sagan: „Lltlu fiskarnlr” eftir
Erik Christian Haugaard. Hjalti
Rögnvaldsson les þýðingu Sigríöar
Thorlacíus (4).
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Veðurfregntr. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn. Sig-
urður Steinþórsson jarðfræðingur
talar.
20.00 Lög unga fólksins. Kristín B.
Þorsteinsdóttir kynnir.
21.10 í kýrhausnum. Þáttur í umsjá
Siguröar Einarssonar.
21.30 Útvarpssagan: „Maður og
kona” eftlr Jón Thoroddsen.
Brynjólfur Jóhannesson leikari les
1(10). (Áður útv. veturinn 1967—
68).
22.00 Jörg Cziffra leikur á píanó.
lög eftir Rameau, Schubert,
Mendelssohn og Chopin.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 „Miðnæturhraðlestin” eftir
Billy Hayes og Wllliam Hoffer.
Kristján Viggósson les þýðingu
sina(16).
23.00 Kvöldtónleikar: Tónlist eftir
Richard Wagner.
Þriðjudagur
28. júlí
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.15 Tónleikar. Þulur velur og
kynnir.
8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorð.
Anna Sigurkarlsdóttir talar.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dag-
bl. (útdr.). Tónleikar.
8.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur
Helga J. Halldórssonar frá
kvöldinu áöur.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna. Svala
Valdimarsdóttir les þýðingu sína á
„Malenu í sumarfrii” eftir Maritu
Lindquist (3).
9.20 Tónleikar. Tilkynningar. Tón-
10.00 Fréttir. 10.10Veðurfregnir.
10.30 íslensk tónlist. Sinfóníuhljóm-
sveit íslands leikur „Sigurð Fáfnis-
bana”, forleik eftir Sigurð Þórðar-
son, og „Lýriska svítu” eftir Pál
ísólfsson. Stjórnendur: Páll P.
Pálsson og Róbert A. Ottósson.
11.00 „Áður fyrr á árunum”.
Ágústa Björnsdóttir sér um þátt-
inn. Meðal efnis er smásagan
„Leikur við lax” eftir Olaf
Jóhann Sigurðsson, Karl
Guðmundsson les og Ijóðið „Einn
lítill veiðisálmur” eftir Huldu
Runólfsdóttur; höfundur flytur.
11.30 Morguntónleikar. Róbert
Shaw-kórinn og RCA Victor
hljómsveitin flytja atriði úr
þekktum óperum; Robert Shaw
stj.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir
Tilkynningar. Þriðjudagssyrpa. —
Páll Þorsteinsson og Þorgeir Ast-
valdsson.
15.10 Miðdegissagan: „Praxis” eftir
Fay Weldon. Dagný Kristjáns-
dóttir les þýðingu sina (17).
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Siðdegistónleikar. Gruiaux-
trióið leikur Strengjatríó í b-dúr
eftir Franz Schubert / Félagar í
Vínaroktettinum leika Diver-
timento nr. 17 i D-dúr eftir Wolf-
gang Amadeus Mozart.
17.20 Litli barnatíminn. Stjórnandi:
Guðríður Lillý Guðbjörnsdóttir.
M.a. les Vilborg Gunnarsdóttir
Ævintýrið um hérann og brodd-
göltinn úr Grimms-ævintýrum í
þýðingu Theódórs Arnasonar.
Wagner barðist af hörku við fátæktina, fávizku fólksins og skilningsleysi þeirra sem
misskildu byltingu hans i tónlistinni. Seinna var hann hylltur af allri þýzku þjóðinni.
VIDEOl
Video — Tæki — Fiimur
Leiga — Saia — Skiptí
Kvikmyndamarkaflurinn — bimi 15480.
Skólavörðustíg 19 (Klapparstigsmegin).
KVIKMYNDIR
Smámyndasýning í
Gallerí Djúpið
Dagana 15. ágúst til 2. sept. 1981
býöur Gallerí Djúpiö myndlistamönnum
aö taka þátt í fyrirhugaöri smámynda-
sýningu. Þeir myndlistamenn sem vilja
taka þátt í sýningunni eru beönir aö
senda 1—4 verk fyrir þann 10. ágúst til
Gallerí Djúpiö Hafnarstræti 15.
Hámarksstærö verka meö ramma er
ca. 30x25 cm.
Gallerí Djúpið telur þaö sjálfsagt aö
borga dagleigu fyrir verkin á meðan
sýningu stendur.
Nánari upplýsingar veitir Ríkharöur
Valtingojer í síma 27683.
Gallery Djúpið
HAFNARSTRÆTI 15 — REYKJAVÍK
ÞAÐ BESTA ER ALDREIOF GOTT