Dagblaðið - 27.07.1981, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 27.07.1981, Blaðsíða 28
•Hrauni: Bankaði upp á hjá móður mimi og bað um eldspýtur —sagði béndinn á Stekkum. Lögreglan látin vita þar sem heldur þótti gesturinn grunsamlegur Fangi frá Litla-Hrauni slapp út á föstudagskvöld og náðist ekki fyrr en sólarhring síðar við bæinn Stekka í Sandvíkurhreppi. „Maðurinn bank- aði upp á hjá móður minni, sem býr hérna líka,” sagði Guðmundur Lárusson bóndi á Stekkum í gær. „Hann bað um eldspýtur, en móöur minni fannst hann eitthvað grunsam- legur þannig að hún hringdi niður á Litla-Hraun. Þeir könnuðust við lýsinguna á manninum þar og létu lögregiuna vita. Maðurinn gekk sfna leið í átt til Selfoss en lögreglan kom og gómaði hann. Hann var hinn bliöasti og sýndi engan mótþróa þegar lögreglan náði honum.” Bærinn Stekkar er við Eyrarbakka- veg og fyrsti bær sem komið er að eftir að farið er frá Litla-Hrauni. „Þetta er ekki i fyrsta skipti sem fangar frá Litla-Hrauni nást hér,” sagði Guðmundur. Við fundum einn fyrir þremur árum og auk þess hafa a.m.k. tveir aðrir fundizt hér. Þessir menn eru á leið i bæinn en okkur stendur ekki á sama um þetta þvi að degi til standa oft bflar i hlaðinu með lyklum í. Það væri auövelt að taka þá. Ég talaði við fangavörð á Litla- Hrauni og sagði hann að þeir væru mannfáir og auk þess vantaði girðingu sem næði hringinn i kringum fangelsið. Fangarnir gætu gengið beint úr vinnuskála og út i við- áttuna. Fangaverðirnir sögðu að meira fé þyrfti til gæzlunnar. ” - JH V TAKMARKAÐ BANN VIÐ BUR- HVALAVEIÐUM SAMÞYKKT VÆNN DRÁTTUR Hann er vænn þessi og efllilegt að veiðlmaðurinn sé hreykinn. Birgir Karlsson flugþjónn setti i 27 punda lax i Viðidaisá. Birglr veiddi laxinn á flugu og voru átökin hressileg áður en laxinn náflist á land. DB-mynd Sigurflur Þorri. Þing Alþjóða hvalveiðiráðsins ákvað um helgina bann við veiðum á búr- hvölum með 25 atkvæðum gegn 1. Fjórar þjóðir sátu hjá við atkvæöa- greiðsluna, þar á meðal ísland og Sovétrikin. Bannið við búrhvalaveiðum gildir alls staðar nema i Viestur-Kyrrahafi, þar sem veiddir voru 890 búrhvalir á síðustu vertíð. Visindanefnd Alþjóða hvalveiðiráðsins mun fjalla um þessar veiðar fram að næsta þingi ráðsins og þykir ekki óliklegt að algjört bann við veiði á búrhvölum verði þá samþykkt. Talið er að bannið sem nú var sam- þykkt á þingi ráðsins muni bjarga um 430 búrhvölum á næstu vertið, en ekki er þó vitað hvort allar hvalveiðiþjóð- anna muni viröa bannið. -ESE „Á erfitt með að skilja afstöðu Dana” - segir Friðrik Ólafsson um þá ákvöiðun fulltrúa Skáksam- banda Danmerkur og Finnlands „Ég skil að vissu leyti sjónarmið Finna en ég á bágt með að átta mig á hvað veldur þvi aö Danir taka þessa afstöðu nú til máls Kortsnojs og fjöl- skyldu hans,” sagði Friðrik Ólafs- son, forseti FIDE, er DB hafði sam- band við hann i Atlanta i Bandarikj- unum. Við spurðum hann hvað honum fyndist um að fulltrúar skák- sambanda Finnlands og Danmerkur, með nýkjörinn forseta Skáksam- bands Norðurlanda i broddi fylking- ar, skyldu skorast undan því að undirrita stuðningsyfirlýsingu þá sem fulltrúar Skáksambanda íslands, Noregs, Sviþjóðar og Færeyja, sendu Friðrik vegna framgöngu hans í máli Kortsnojs. „Það er búið að tala mikið um það af þessum mönnum að FIDE þurfi að taka af skarið 1 þessu máli en þegar til kastanna kemur þá verða þeir fyrstir til þess að hlaupa 1 burt. Ég verð að segja að ég er undrandi á þessari framkomu,” sagði Friðrik og var greinilegt aö hann hafði orðið fyrir vonbrigðum með að skáksambönd Norðurlanda skyldu ekki standa saman og styðja við bakið á honum i því stóra deilumáli sem nú loksins sér fyrir endann á og viröist ætla að leys- ast farsællega fyrir tilstuðlan Frið- riks. Friðrik sagöist nú hafa i höndun- um upplýsingar um að lausn fyndist á þessu máli, þannig að fjölskylda Kortsnojs ætti aö fá að yfirgefa Sovétrikin fyrir einvígið þó að engin dagsetning hefði verið nefnd í þessu sambandi. „Mér þótti rétt í ljósi þess- ara upplýsinga að verða við óskum Sovétmanna um að flýta einviginu til upphafslegs tíma,” sagði Friðrik, en tók það jafnframt fram að þó að ein- vígið hæflst þar með 19. september, þá yrði fyrsta skákin ekki tefld fyrr en 1. október. Þetta kæmi til vegna þess að einvígishaldaramir í Merano á Italiu treystu sér ekki til að hefja einvigið fyrr og væri það skiljanlegt i ljósi þess að allar þeirra timasetn- ingar hefðu frá upphafi miðazt við 19. október. Friðrik vildi ekki tjá sig um hvaða heimild fulltrúar sovézka skák- sambandsins hefðu haft frá sovézkum yfirvöldum til að semja um mál Kortsnojs, en sagðist vonast til að þetta mál væri nú úrsögunni. -ESE fifálst, óháð dagblað MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 1981. MissYounglnter- national á Manila: Svavanáði sjötta sæti Keppnin Miss Young International á Manila fór fram i gærdag og hafnaði Svava Johansen i sjötta sæti.Svava var kjörin ungfrú hæfileiki i siðustu viku og átti hún góða sigurmöguleika í keppninni. Engar fréttir hafa borizt hingað til lands um hver var sigurvegar- inn, en DB heyrði i morgun að það hefði verið ungfrú ítalia, sem þó var ekki staðfest. -ELA Keflavík: Féll þrjá metra niðurstigaíbíói — handleggsbrotnaði og missti framtennur 7 ára gamall drengur féll niður stiga i Nýja bíói í Keflavik í gærdag og slas- aðist illa. Drengurinn sem var á þrjú- sýningu handleggsbrotnaði og missti framtennur. Slysið átti sér stað i hléi en ekki er vitað af hvaða orsökum. Fallið mun vera um þrir metrar og þótti mesta mildi að ekki hefði verr farið. Hann var fluttur á Borgarspltalann I Reykjavík. -ELA Slasaðist í hjól- reiðakeppni Einn keppandi I hjólreiðakeppninni, sem fram fór I gær á milli Reykjavíkur og Keflavíkur, féll fram af hjóli sínu við Hástapa og slasaðist nokkuð. Hann var fluttur á sjúkrahús en fékk að fara heim eftir aðgerð. - ELA ZZ S" “Q' í VIKU HVERRI Vinningur vikunnar: Myndsegul- band f rá Radíóbúðinni Vinningur I þessari viku er myndseguiband frú Radióbúðinni. Skipholti 19. Reykjavlk. 1 vikunni verður birt, á þessum stað I blað- inu, spuming tengd smáauglýsing- um Dagblaðsins. Nafh heppins áskrifanda verður síðan birt daginn eftir i smáauglýsingum og gefst honum tœkifœri á að svara spumingunnL Fyigizt vel með, áskrifendur. Fyrir næstu helgi verður einn ykkar glœsiiegu mynd- segulbandi, ríkari

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.