Dagblaðið - 29.07.1981, Side 6
\/
I
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ1981.
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Heldur drottningin völdum til dauðadags?
Erlöngbið
undan hjá f
— Forgangsverkefni að eignast böm
Karl prins og lafði Diana Spencer
þurfa ef til vill að bíða í mörg ár eftir
að taka við brezku krúnunni.
Hinn konunglegi erfingi, sem nú er
32 ára gamall, hefur sagt vinum
sinum að móðir hans, Elisabet
drottning, muni ekki afsala sér
völdum. Drottningin lítur á það sem
skyldu sína að sitja á valdastóli allt til
dauðadags, að því er áreiðanlegar
heimildir segja.
Það kann að vera langt i þann dag.
Drottningin er nú 55 ára gömul og
hefur aldrei þurft að leggjast á
sjúkrahús vegna veikinda.
Hin konunglega fjölskylda hefur
þó fyrir sér dæmi, afa Elísabetar
drottningar, um hversu illa getur
tekizt til þegar erfingi krúnunnar þarf
að bíða lengi eftir því að taka við
völdum.
„Bertie”, eins og fjölskylda hans
kallaði hann, varð mikill glaumgosi,
gerði söngkonuna Lily Langtry að
hjákonu sinni og var viðriðinn
hneykslismál áður en hann tók við
embætti 60 ára gamall sem Játvarður
sjöundi.
Karl og Diana. Langt Itann að vera þar til þau taka við brezku krúnunni af Elfsabetu drottningu.
En Karl þykir ekki hafa skapgerð
glaumgosans og ólíkt þvi sem átti sér
stað með „Bertie” hefur Elísabet
drottning séð til þess að Karl hafi
nægum störfum að gegna.
Karl prins og lafði Diana munu
búa sér heimili í 19. aldar herragarði
með 150 hektara landi um 110 kíló-
metra frá London. Fyrir þá eign
greiddi prinsinn eina milljón sterl-
ingspunda.
Nágrannar herragarðsins High-
grove, þ.e. Ibúar Tetbury, hafa séð
lafði Diönu verzla I aðalgötu bæjar-
ins en reyna að koma fram við hana
og Karl prins eins og sérhvert annað
ungt par.
„Við viljum að þau hafi einkalíf
sitt í friði,” sagði einn íbúanna.
Karl og Diana munu koma aftur úr
brúðkaupsferð sinni um Miðjarðar-
Ihaf eftir um þrjár vikur. Þá munu
þau dvelja i Kensington-höll um hríð
en þau fá eina álmu hallarinnar sem
aðsetur sitt 1 London. f Kensington-
höll hefur Margrét prinsessa einnig
nokkur herbergi og prinsinn og prins-
essan af Kent hafa einnig ibúð þar.
Llklegt er að Karl og Diana muni
vilja eignast börn sem fyrst. Sjálf
lítur lafði Diana á það sem forgangs-
verkefni. Það kom meðal annars
fram í sjónvarpsviðtali við hana í
gærkvöldi. Henni þykir afskaplega
vænt um börn enda vann hún á
barnaheimili í London áður en hún
og Karl opinberuðu trúlofun sína.
—y
Óeirðir fToxteth-hverfinu í Liverpool þriðja kvöldið i röð:
UVERPOOL-BUAR VORU
í LITLU HÁTÍÐARSKAPI
—um 200 unglingar köstuðu bensínsprengjum að lögreglu
Ungmenni í Toxteth-hverfinu í
Liverpool voru 1 litlu hátíðarskapi 1
gærkvöldi þrátt fyrir brúðkaup
þeirra Karls og Díönu.
Um 200 ungmenni fóru ránshendi
um hverfið þriðja kvöldið 1 röð og
vörpuðu bensínsprengjum að lög-
reglu.
Fyrr í mánuðinum kom til mjög
alvarlegra óeirða í Toxthe-hverfinu
þrjú kvöld 1 röð. Óeirðirnar þá voru
hinar alvarlegustu í þeirri óeirðaöldu
sem gengið hefur yfir Bretland, að
undanförnu. 250 lögregluþjónar
særðust þá, eldur var borinn að
húsum og verzlanir rændar.
Óeirðaseggirnir 1 gærkvöldi settu
upp vegatálma og þegar nokkur
hundruð lögregluþjónar réðust til
atlögu gegn unglingunum var þeim
svarað með grjótkasti og síðan
bensínsprengjum. Margir
lögregluþjónar særðust og voru
fluttir á sjúkrahús.
Talsmaður lögreglunnar sagði að
óeirðirnar i gær hefðu orðið vegna
sögusagna um að maður hefði látizt
eftir að lögreglubfll hefði keyrt hann
niður. Talsmaðurinn sagði það rangt
að maðurinn væri látinn. Hann hefði
verið fluttur á sjúkrahús, alvarlega
slasaðurá fótum.
Hann sagði að slysið væri i
rannsókn sem umferðarslys af hálfu
lögreglunnar.
Sautján manns voru handteknir
fyrir að taka þátt í óeirðunum f gær-
kvöldi.
Lögregluþjónar á Bretlandi hafa haft I nógu að snúast að undanförnu. Hér leiða þeir einn óeirðasegginn á brott.
REUTER
Víðtœk
mótmœli
íPóllandi
Búizt er við nýjum mótmælum í Pól-
landi í dag vegna skortsins á matvælum
þar í landi, þriðja daginn í röð.
Þúsundir manna fóru f mótmæla-
göngur í borginni Lodz í gær og bfl-
stjórar þeyttu flautur bifreiða sinna er
þeir óku niður aðalgötu borgarinnar.
Á morgun ráðgera konur í Lodz
kröfugöngu og er reiknað með að hún
verði sú stærsta sfðan mótmælin hófust
gegn biðröðum, vöruskorti, fyrirhug-
uðum verðhækkunym og minni kjöt-
skammti.
óOOeftir-
prentunum
Picassos
stolið
Tveir vopnaðir menn rændu bifreið
sem var með 600 eftirprentanir af mál-
verkum Picassos. Bifreiðinni var rænt
þegar hún stöðvaðist á rauðu ljósi í
miðborgNew York.
Eftirprentanirnar eru metnar á 500
þúsund dollara og voru nýkomnar frá
París þar sem dóttir Picassos hafði
áritað þær.
Listaverkasalinn, Herman Finesod,
sem átti að fá myndirnar í umboðssölu,
sagði að mjög erfitt yrði fyrir þjófana
að koma þeim f verð.
Erfið
prófraun
hjáReagan
Reagan Bandarfkjaforseti gengst
undir prófraun sína í þinginu í dag
þegar fulltrúadeildin greiðir atkvæði
um skattalækkunartillögur hans.
Úrslitin eru mjög tvfsýn og eru tals-
menn beggja fylkinga sammála um að
ekki muni skilja nema 6—8 atkvæði á
annan hvorn veginn.
Reagan vill lækka skatta um 25 pró-
sent á næstu þremur árum en demó-
kratar vilja ekki ganga lengra f skatta-
lækkunum en f 15 prósent.
Reagan hefur lagt sig mjög fram um
að ná f stuðning hikandi demókrata,
einkum úr suðurríkjunum. hefur hann
verið óspar á persónuleg símtöl og
heimboð f Hvíta húsið i þessu skyni.
Iran:
Meira en
fjörutíu
manns fór-
ustíjarð-
skjálfta
Mjög öflugur jarðskjálfti varð í
Kerman héraði f suðurhluta Irans f
gærkvöldi. Að minnsta kosti fjörutfu
manns létu lffið og 450 særðust að þvf
er íranska útvarpið skýrði frá i gær.
Jarðskjálftinn olli mestu tjóni í
Kermanborg og þeir er létu lífið höfðu
grafizt undir húsarústum þar. íbúar
Kermanborgar, sem eru 650 þúsund
talsins, þustu út á götur þegar jarð-
skjálftans varð vart. Hann mældist
milli 6,5 og 7 stig á Richterskvarða og
upptök hans voru um 65 kilómetra
fyrir austan Kermanborg.
I sfðastliðnum mánuði létu meira en
þúsund manns lífið í jarðskjálfta f
þessu sama héraði.