Dagblaðið - 29.07.1981, Page 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ1981.
Hugðustfiremja morð til að
sýna Jodie ást sína
Jodie Foster er ekki alveg eins og
allir hinir nemendur Yale-háskóla í
New York fylki. Hún er með lífvörð.
John Hinckley skrifaði henni ástríðu-
þrungin bréf áður en hann reyndi að
myrða Reagan en morðið hugðist
Hinckley fremja til að sýna Jodie hve
heitt hann elskaði hana. Annar náungi,
Edward Richardson, ætlaði sér síðan
að fullkomna verk Hinckleys, en tókst
ekki.
Tilræði Hinckleys hefur vakið
mikinn ugg í brjóstum margra vegna
þeirra áhrifa sem Jodie virðist geta
haft á suma unga ntenn. Ekki vegna
þess að Jodie sé sjálf svo „hvetjandi”.
Öðru nær, heldur eru það hlutverkin
sem Jodie Foster hefur leikið á hvita
tjaldinu sem kemur ungmennum til að
fremja slík voðaverk. Er hún var 12 ára
lék hún vændiskonu sem var eiturlyfja-
«
. . . og að gera
skóiaverkefni.
Nýjasta bók Gore Vidal:
Fjallar um lífsendi-
herra fyrir 2500 árum
Gore Vidal, hinn margslungni
bandaríski rithöfundur, -sendi nýlega
frá sér sína 15. skáldsögu, Creation.
Sem fyrri bækur hans er þessi mikil að
vöxtum og styðst að miklu leyti við
sagnfræðileg sannindi.
Sögusvið bókarinnar eru hinar
Gore Vidal er einhver kunnasti skáld-
sagnahöfundur Bandaríkjanna í dag en
nýjasta bók hans heitir Creation.
fornu menningarþjóðir fimm öldum
fyrir Krists burð. Aðalpersónan er
persneskur sendiherra, Cyrus Spitama
að nafni, sem þjónar landi sínu í
Aþenu, Kina og Indlandi. Lesandinn
kynnist háttum og siðum hvers lands
með augum hins erlenda sendiherra og
hefur Vidal lagt sig mjög eftir því að
kynna sér sögu fyrrnefndra landa svo
hann fari ekki með fleipur í skáld-
sögunni. Meðal merkra manna, sem
fram koma í sögunni, eru Konfúsíus og
Heródótos og eru kenningar þeirra
skoðaðar í allt öðru ljósi en við 20. ald-
ar fólk eigum að venjast.
sjúklingur. Ári eldri var hún komin í
hlutverk vitstola morðingja.
Jodie sjálf er allt önnur persóna. í
skóla stendur hún sig með mikilli prýði
og er hún lauk samsvarandi prófi og
okkar stúdentsprófi var hún með svo
góðar einkunnir að hún gat valið úr
beztu mögulegu háskólunum. Þannig
buðu bæði Yale og Stanford henni
skólavist.
Jodie Foster reynir að vera eins lítið
áberandi í skólanum og henni er frekast
kostur. Þegar hún var spurð hvort hún
ætlaði að leika í skólaleikritinu í Yale
sagði hún. ,,Ég vil ekki vera í aðalhlut-
verkinu, hinar stúlkurnar eiga að leika
jafnstór hlutverk og ég þvi ég vil ekki
verða óvinsæl í skólanum.”
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Leikurinn fielst í að sprengja pabba
Farðu nú út að leika við son þinn.
Hversu oft hafa mæður ekki sagt þetta
við eiginmenn sína þegar lætin í
syninum ætla þær lifandi að drepa. En
Shirley Watts frá Wheatley í Englandi
veigrar sér ætíð við að segja þessi orð,
því er feðgarnir leika sér saman leikur
allt hverftð á reiðiskjálft.
Sonurinn Davíð sprengir
nefnilega föður sinn, Ken, í loft upp
með hávaða miklum og hamagangi. Sá
Ég ýti á hnappinn og kassinn
springur. . .
«
gamli lætur þó ekki lifið i
sprengingunni því hann er í skotheldum
kassa. Sprengjuhleðslu er komið fyrir
undir kassanum og síðan ýtir Davið á
hnapp og pabbi springur. Atriði þetta
leika þeir oft á markaðstorgum i smá-
bæjum í Englandi og gerir það alltaf
mikla Iukku. Og Davíð er náttúrlega
yfir sig montinn af kraftaverka-
manninum, föðursínum.
. . . en pabbi stígurómeiddur út.
Orðin þreytt
á að líkjast
Marilyn
Monroe
Aðeins eitt fer í taugamar á hinni 24
ára gömlu Lindu Kerridge frá Ástraliu.
Hún er orðin þreytt á að vera líkt við
Marilyn Monroe og neitar öllum
fullyrðingum um að nafn hennar sé i
raun Marilyn.
En Linda hefur samt ekki ástæðu til
að vera óánægð með útlit sitt. Það var
akkúrat vegna þess hve lík hún er kyn-
bombunni fyrrverandi að hún varð
jafnvinsæl fyrirsæta og raun ber vitni.
Hún flakkaði á milli Parisar, London
og Los Angeles og litaði hár sitt Ijóst
og málaði sig til að undirstrika hversu
lík hún er Marilyn Monroe. En Linda
hefur ekki hug á að leika draug Marilyn
um ókomna framtíð. Hún hefur leikið i
Emanuelle-myndum og kom þar fram
fáklædd. Nú hefur Lidna ákveðið að
taka að sér að leika Jean Harlow, sent
Tnargir vilja kalla Marilyn fjórða
áratugarins, í mynd sém á að fara að
taka.
«
Vist er I.inda Kerridge lík Marilyn
Monroe en nú á hún að leika Jean
Harlow i mynd um þá kynbombu.