Dagblaðið - 10.08.1981, Blaðsíða 27
BOTNSSÚLUR
'akrafjai
AKRANES
Valuv
kV/ATfJÍ
REYKJA\
LYNGDALS
HEIÐI
ý HAFNARFJORÐ
EFLAyl
índavlk
Önnumst kaup og sölu allra almennra
veðskuldabréfa og ennfremur vöruvíxla.
Getum ávallt bœtt við kaupendum á við-
skiptaskrá okkar.
Góð þjónusta. — Reynið viðskiptin.
Vciulliréf;i -
áUsirluiiluriiiii
Nýja húsinu
v/Lækjartorg.
12222
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðslustofa Klapparstíg
Tímapantanir
13010
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 1981.
ÍÞRÓTTIR— sjónvarp kl. 20,45:
VÍÐA VERÐUR
KOMIÐ VIÐ
— m.a. knattspyrna, f rjálsar, tennis og
kringlukast
Bjarni Felixson kemur viða við i
Iþróttaþættinum f sjónvarpinu í kvöld.
Verða þá svipmyndir úr knattspyrn-
unni um helgina og frá siglingamóti
íslands í Skerjafirði um helgina.
Þá verða frjálsar íþróttir og sýnt
hvernig „Draumamilan” svokallaða
fór fram i Osló um miðjan júlí. Þar
hlupu kappar eina enska mflu sem
jafnast á við 1609 metra.
Einnig ætlar Bjarni að segja frá
helztu heimsviðburðum f júlí sl. Verður
þar m.a. Wimbelton mótið í tennis og
kringlukast f Svfþjóð, ei) þar setti Ben
Plucknett frægt heimsmet í kringlu-
kasti. Stuttu seinna varð Ben Plucknett
dæmdur ævilangt úr leik, þar sem hann
var fundinn sekur um að taka bönnuð
hormónalyf í keppni sem haldin var á
Nýja-Sjálandi.
-LKM.
1»
íþróttaunnendur fá nú loksins ósklr
sinar uppfylltar. í kvöld veröur æöi
margt til að berja augum þvi Bjarni
Felixson kemur viða við í fþrótta-
þættinum.
iVIDEO
Video — Tæki — Fiimur
— Sala — Skipti
Kvikmyndamarkaðurinn — bimi 15480.
Skólavörflustig 19 (Klapparstigsmegin).
KVIKMYNDIR
Ágústa Björnsdóttir rekur gönguferð um Reykjanesfjöii i þættinum Áður fyrr á árunum.
ÁÐUR FYRR Á ÁRUNUIM—útvarp kl. 11,00 í fyrramálið:
Á rölti um Reykjanesfjöll
Spennum beltin
ALLTAF
FERÐAR
ekki stundum
,,Ég hef alla tíð haft allmikið dáiæti
á Reykjanesfjöllum og kynntist þeim
nokkuð vel, sérstaklega á yngri árum”,
sagði Ágústa Björnsdóttir f samtali við
DB. En i fyrramálið kl. 11 sér Ágústa
um þáttinn Áður fyrr á árunum og
nefnist hann að þessu sinni Á rölti um
Reykjanesfjöll. Þátturinn verður svo
endurtekinn um kvöldið klukkan
20.30.
„Ég fór þá oft f gönguferðir um
fjöllin og tók þá oftast strætisvagn til
Hafnarfjarðar”, hélt Ágústa áfram. ,,í
þættinum segi ég aðallega frá göngu-
ferð á Keili og Trölladyngjur fyrir nær
tveim áratugum.
Þetta er heillandi land, þar sem and-
blær óbyggða ríkir, þrátt fyrir nálægð
þéttbýlasta hluta landsins.”
í þættinum verða svo sungin tvö lög
eftir Sigvalda Kaldalóns við ljóð
Grétars Ó. Fells. Það eru „Fjallið
eina” og „Heiðin há”, en þau örnefndi
prýða fjöll á Reykjanesfjallgarðinum.
-LKM.
ÚTBOÐ
Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar óskar eftir tilboðum i
smíði tveggja stálgeyma.
ÚtboðA
Miðlunargeymir við Seleyri, 2500 m3
ÚTBOÐB
Miðlunargeymir við Akranes, 2000 m3
Útboðsgögn verða afhent á eftirtöldum stöðum: í Reykja-
vík á Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen, Ármúla 4 og á
Vérkfræðistofunni Fjarhitun hf. Álftamýri 9. Á Akranesi
á Verkfræði- og teiknistofunni sf., Heiðarbraut 40. í Borg-
amesi á Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen, Berugötu
12.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Hitaveitu Akraness og
Borgarfjarðar, Heiðarbraut 40 Akranesi, þriðjudaginn 25.
ágúst 1981 kl. 11.30.
Húsnæði óskast
Óska eftir að taka á leigu 2ja herbergja íbúð.
Uppl. í síma 10677.
Sjónvarp
Útvarp
’
4
4