Dagblaðið - 21.08.1981, Síða 16
24
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1981.
VISIR
Tónleikar „StrengjasveKarinnar" í Bústaða-
kirkju 15. ágúst.
Stjórnandi: Josef Vlach.
Verkefni: G.F. Handel: Concerto grosso op. 6
no. 8; Loifur Þórarinsson: Rent; W.A. Mozart:
Divortimento KV 136; Benjamin Britten:
Simple Sinfony; A. Dvorak, Soronada.
Um síðustu jól kom fram fyrirbæri
sem nefndi sig einungis Strengjasveit,
ef mig minnir rétt. Strengjasveit þessi
reyndist kærkomin nýjung og þarft
framtak. Þótti mér þá sem þau hefðu
varið þeim helgidögum.sem flestir
aðrir notuðu til að kýla sínar vambir,
til góðs með stöðugu æfingastriti
sínu. Höfðu þau orð á að þau myndu
reyna að koma saman í sumar og
taka upp þráðinn að nýju. Það gerðu
þau líka svo að um munaði, því að
þau fengu kunnan fiðlara austan úr
Tékkó til að þjálfa liðið og
árangurinn gat að heyra á tvennum
tónleikum, á föstudags- og laugar-
dagskvöld. Ekki heyrði ég tónleikana
á föstudag, en náði nógu snemma í
bæinn til að hlýða á sveitina leika i
Bústaðakirkju á laugardagskvöld.
Sulta með steikinni
Ekki var ég ýkja hrifinn af upp-
hafsverkinu, Concerto grosso
Hándels. Spilamennskan, sem í sjálfu-
sér var ágæt, var einfaldlega ekki í
samræmi við stil verksins. Þetta var
hálfgerður rokokko-barokk og verk-
aði í álíka góðu samræmi og sletta af
sultutaui út á piparsteik. En svo kom
Mozart og þá kvað heldur betur við
annan tón. Þar komu blæbrigðin öll,
svo geislandi fin og hámákvæm, að
fullu til skila.
Simple Sinfony Brittens léku þau
frísklega og létt músíkalskt, en hefðu
mátt láta bera svolítið meira á satir-
unni í verkinu. Sumir hlutar þessarar
sinfóníettu, sem er langt frá því að
bera nafn með rentu, voru bráðvel
leiknir, t.d. pizzicato kaflinn, þar
sem sveitin sýndi góða samhæfingu.
Rent, það ágæta stykki Leifs Þórar-
inssonar, léku þau skýrt og settlega
og án þess að gera minnstu tilraun til
ýkts leiks, þar sem músík Leifs bein-
línisbauð uppáslikt.
Sungið á strengi
Að lokum ómaði Serenaða
Dvoraks. Serenöðuna „sungu” þau á
strengi sína og þótt þreytu væri farið
að gæta hjá liðinu hélst bragurinn til
loka.
Josef Vlach hefur unnið gott starf
með sveitinni að undanfömu. Að
vinna með svona manni hlýtur að
verka eins og vænn skammtur af víta-
míni. Þótt ég hafi ekki verið dús við
túlkun hans á Hándel dáist ég að
meðferð hans á verkum Mozarts og
Dvoraks. Strengjasveitin hefur með
tónleikum þessum fest sig í sessi. Hún
er þegar orðin vísir of mikils til að fá
að lognast út af. Fyrstu sporin hafa
verið stigin og nú verður ekki aftur
snúið.
-EM
Josef Vlach & æfingu með Strengjasveitinni.
Heimdallur, Samtök ungra sjálfstæöismanna:
Skipulagsmálum
borgarinnar
kollvarpað
á undanförnum þremurárum
„Undir forystu Alþýðubandalags-
ins hefur skipulagsmálum borgarinn-
ar verið kollvarpaö,” segir í fréttatii-
kynningu frá Heimdalli, Samtökum
ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík í
tilefni af 195 ára afmæli Reykja-
víkurborgar, sem var 18. ágúst sl. og
þriggja ára setu vinstri meirihlutans í
borgarstjórn.
„Loforð Alþýðubandalagsins um
að spilling I stjórn borgarinnar skuli
upprætt hefur reynzt ómögulegt að
efna. 1500 einstaklingar eru núáskrá
í Reykjavík yFir þá sem skortir leigu-
húsnæði, vegna þriggja ára afskipta-
leysis borgaryfirvalda gagnvart leigj-
endum og skammtastefnu í lóðaút-
hlutun.
Þá hefur húsaleigulöggjöf stjóm-
valda leitt til þess að húseigendur láta
fremur íbúðir sínar standa auðar en
aö taka á sig þær kvaðir sem á þá eru
settar, gerist þeir legusalar.”
Þá minnist Heimdallur á að fyrri
samþykktir borgarbúa um nýja
íbúðabyggð hafi verið hundsaðar,
þar sem borgarmeirihlutinn stefnir
skipulagi sínu til fjalla í stað þess að
reisa byggð við ströndina. Segir
Heimdallur Reykvíkingum hollt að
minnast þessarar þriggja ára setu nú
á afmæli borgarinnar, þar sem
stjómartíminn hafi reynzt mistök á
mistök ofan.
- ELA
Nú geta Homfirðingar baðað sig fiauginni á
nýjan leik:
Sundlaugin opnuð
eftir gagnlegar
endurbætur
Sundlaugin á Höfn var opnuð
aftur um síðustu helgi eftir að hafa
verið lokuð í allt sumar vegna endur-
bóta. Laugin, sem er steinsteypt úti-
laug, var fóðruð með trefjaplasti að
innan auk veggja hússins. Það var
Skipasmlðastöð Guðmundar Lárus-
sonar á Skagaströnd sem sá um
verkið.
Sundlaugin á Höfn mun vera
fyrsta laugin sem fóðruð er að innan
meö þessum hætti og þykir verkið
hafa tekizt mjög vel. Einnig var tekin
í notkun hitaveita og sett ný sandsía
til að hreinsa vatnið.
Sundnámskeið fyrir börn eru þegar
hafin og standa þau yfir frá kl. 9—19
virka daga. 170 börn frá Mýrum,
Nesjum og Höfn taka þátt I nám-
skeiðinu. Tími fyrir almenning er frá
kl. 7—9 á morgnana og frá 19.30—
21.30 á kvöldin. Eru menn hér að
vonum mjög ánægðir með að geta
tekið sér sundsprett á ný en mikil
óánægja var I sumar vegna lokunar-
innar. - ELA / Júlía, Höfn.
Demantssíld veidd
á færi og í net
— en nýtingarmöguleikar engir
Fyrir helgina varð vart mikillar
síldargöngu allt upp í fjöru á ýmsum
stöðum á Ströndum. Gripu menn á
Gjögri til gamalla rekneta og fengu
3—4 tunnur í net. Fyrir helgina tóku
menn upp þessi net, því ekki koma
menn aflanum frá sér því hér er engin
síldarverkun. Slldin sem dregin var á
land var söltuð ýmist til skepnu-
fóðurs eða manneldis.
Megnið af sUdinni var demantsslld
og ekki sást smásUd í aflanum. Mikið
virðist af þessari sUd hér inn um alla
firði.
SæmUega hefur veiðzt á handfæri
undanfamar þrjár vikur en
„fiskurinn er mjög mishittinn”, þ.e.
sumir fá góðan afla en aðrir engan.
Setja menn þetta í samband við
kynjagöngur síldarinnar. Afiinn er
allur vænnþorskur.
- A.St. / Regína, Ströndum.
Búðardalur:
Loftf imleikar á
skurðbörmum
—á meðan undirbúið er fyrir malbik
íplássinu
Mikið jarðrask hefur verið i Búðar-
dal í sumar vegna fyrirhugaðra gatna-
framkvæmda í plássinu. Götur hafa
verið tættar upp til jarðvegsskipta og
hafa af þessu orðið mikil óþægindi
fyriríbúana.
Alls konar drasl hefur verið að
flækjast fyrir gröfunum, svo sem
Áskriftarsími
Eldhúsbókarinna
er 2-46-66
vatnsleiðslur, rafmagnslínur, símalínur
og skolplagnir. Af þessum sökum hafa
heimamenn harla oft orðið rafmagns-,
vatns- og símalausir — ásamt því að
hafa fengiö góða þjálfun í skurða-
stökki og moldarhólaklifri.
Allt stendur þetta nú til bóta og lítur
fólk tilhlökkunaraugum til þess dags er
malbikið hylur göturnar í plássinu.
- AF, Búðardal.
Þótt eldri borgarar i Búðardal hafi oft
bölvað skurðum og moldarhaugum i
hljóði hafa hinir yngri notið lifsíns og
ieikið sér innan um vinnuvélarnar.
DB-mynd Anna Flosadóttir.