Dagblaðið - 17.09.1981, Page 11
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1981.
11
Einhvern veginn skal vatnið úr vizkubrunninum ofan i busann.
Busar í MK bergðu á vizkubrunninum:
Fátt er meira hressandi en kalt vatn og ekki er siöur gott að fá hjá stúlkukind máls-
hátt til að hafa um hálsinn. DB-mvndir Sieurður Þorri
SUMIR SUPU UR AUSUNNIEN AÐRIR
FÓRU HÁLFIR í TUNNUNA
Þar grét Árni Oddsson lögmaður
fyrir hartnær 320 árum er hann
skrifaði undir einveldisskuldbindingu
Friðriks III. Danakonungs. Og í gær
varð gamli þingstaðurinn í Kópavogi
;aftur vettvangur gráts og gnístranar
tanna. Eldri bekkingar í Mennta-
skólanum i Kópavogi vigðu þá busana í
samfélag hinna menntuðu og vitru.
Ólíkt Árna Oddssyni sem grét af sorg
(eða kannski guðhræðslu) grétu
busarnir af gleði, eða allt að því.
Tannaglamrið stafaði hins vegar af
kulda, enda er allt annað en þægilegt
að vera dýft hálfum ofan í tunnu fulla
af vatni.
Busavígslan hófst við Digranesveg
þar sem Menntaskólinn er til húsa.
Busum var smalað út fyrir skólann,
færðir ,í strigapoka, merktir i öllum
regnbogans litum og þvi næst bundnir
við kaðal einn langan. Eldri bekkingar
gengu vasklega fram í því að troða
busaræflunum í pokana og tókst það
að mestu leyti án átaka, þótt einn og
einn væri með uppsteyt. En á 12
mínútum var verkinu lokið og 129 busa
stóðu málaðir og bundnir og biðu þess
sem framtíðin bæri í skauti sér.
Næst bar að dráttarvél með vagn í
eftirdragi. Upp á vagninn snöruðu sér
forvígismenn eldri bekkinga, en
kaðallinn,'sem busanir voru bundnir
við, var festur i dráttarvélina. Síðan
lagði fylkingin af stað og var haldið á
þingstaðinn. Fremst fóru tvær ungar
stúlkur með borða sem á var letrað
Busavígsla MK og á milli þeirra fór
ófrýnilegur „böðull” og barði bumbu.
Takturinn minnti á trommuhljóð.
Taktur hans var sá sami og leikinn er i
biómyndum á undan aftökum. Á eftir
fylgdu bundnu busarnir og halarófa af
krökkum, ungum og nær fullorðnum.
Nemendur menntaskólans báru spjöld
með áletrunum á borð við Hætta, bus-
ar ganga lausir og Ég hata busa og
margir voru með grímur fyrir vitum
sínum. Lyktin af busum er sögð
hræðileg.
í góðri fylgd lögreglu náði gangan á
þingstaðinn fyrir botni Kópavogs. Þar
hafði verið myndaður hringur með
köðlum og inn í honum miðjum voru
tunnur nokkrar fullar af vatni. Sögðu
eldri bekkingar að hér væri fundinn
vizkubrunnurinn er allir busar verða
að bergja af til að komast í siðaðra
manna tölu. í jaðri hringsins voru litlir
básar girtir af með böndum og var
hverjum busabekkjanna fimm ætlaður
sinn bás. Fljótlega gekk að „rétta” og
fyrr en varði voru allir busarnir komnir
á sinn stað.
Eftir stutta ræðu, þar sem busum
Þátttakendur 1 héraðsfundi Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmis, sem haldinn
var f Grundarfirði. DB-mynd Bæríng Cecilsson.
Héraðsfundur
Snæfellsness- og
Dalaprófastsdæmis
Héraðsfundur Snæfellsness- og
Dalaprófastsdæmis var haldinn í
Grundarfirði sunnudaginn 6.
september sl. Fundurinn hófst með
messu i Grundarfjarðarkirkju kl. 11.
Sr. Guðmundur Karl Ágústsson í
Ólafsvik predikaði og séra Jón Þor-
steinsson í Grundarfirði þjónaði fyrir
altari.
Prófasturinn sr. Ingiberg Hannes-
son á Hvoli setti síðan fundinn í
safnaðarheimili Grundarfjarðar-
kirkju kl. 13.30. Aðalmál fundarins,
auk venjulegra héraðsfundarstarfa,
var stofnun jöfnunarsjóðs fyrir
prófastsdæmið, sem vafalaust mun
marka tímamót um merkilega starf-
semi innan prófastsdæmisins.
Þá var fjallað um samræmingu
sóknargjalda innanprófastsdæmisins,
rafmagnsverð til hitunar, starfsreglur
fyrir sóknarnefndir og annað starfs-
fólk, skyldur safnaðarfulltrúa og
kirkjukórahátíð í tilefni kristniboðs-
afmælis.
Sr. Gísli H. Kolbeins í Stykkis-
hólmi flutti fróðlegt erindi um Þor-
vald víðförla Konráðsson og Friðrik
biskup i tilefni kristniboðsársins.
—BC, Grundarfirfli.
var tjáð hvað í vændum væri, gat
vígslan sjálf loks hafizt. Kallarar lásu
upp nöfn busa og þeir gáfu sig síðan
fram við skírara sína. Busar áttu að
drekka eina ausu eða tvær af vatninu
úr vizkubrunninum, en margir voru
eigi fúsir til að bergja á. Þeir hinir
sömu voru því einfaldlega hafnir á loft
og i næstu andrá voru þeir komnir
hálfir ofan í tunnuna og á næsta andar-
taki aftur komnir upp úr. Sannarlega
snögg umskipti það. Á endanum var
búið að taka þá alla i heldri manna tölu
og þeir héldu heim á leið með bros á vör
og vætu í hári.
Busaball var síðan haldið i
Snekkjunni í Hafnarfirði i gærkvöldi
og eflaust hafa sumir þusanna freistað
þess þá að koma fram hefndum.
Hvernig það hefur gengið er önnur
saga.
-SA.
plexíglas
Acryl-gler í hæsta gæðaflokki
Allt að 20 sinnum sterkara en gler
Margar þykktir og litir
PLEXIGLAS • urtdir skrifstofustólinn • f sólveggi, svala- og
stigahandríð • f gróðurhúsið og vermireiti • I vinnuvélar •
Framleíðum Ijóshlffar ó flestar gerðir bfla.
Miklir möguleikar í innréttingum, s.s. verzlanir og heimili.
okron
• Komið og skoðið myndabœklinga okkar
— Skerum — beygjum
/ídúmúlo 3i, /ími: 33706
®ple>ðgla8
•inkoumbod
BRÚÐAN
sem: gengur
talar
og syngur
Háríð er sítt/stutt
og greiða má eftir ósk
eða smekk
93 cm á hæð
Mikið úrval
af brúðum í
ö/lum stærðum
HEILDSALA - SMÁSALA
afe BLÁBER H/F
ðnT' ÞINGHOLTSSTRÆTI 6
SÍMI29488
Umboðsmenn vantar
um land a/ft
* J* «t-JB l
• K It '1